Þjóðviljinn - 23.06.1977, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.06.1977, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 23. júní 1977 Auglýsing um framhald aðalskoðunar bifreiða I Hafnarfirði, Garðakaupstað og í Bessastaðahreppi 1977 Föstudagur 1. júli G-4651 til G-4800 Mánudagur 4. júlí G-4801 til G-4950 Þriðiudagur 5. júli G-4951 til G-5100 Miðvikudagur ! 6. júli G-5101 til G-5250 Fimmtudagur 7. júli G-5251 til G-5400 Föstudagur 8. júli G-5401 til G-5550 Mánudagur 11. júli G-5551 til G-5700 Þriðjudagur 12. júli G-5701 til G-5850 Miðvikudagur 13. júlí G-5851 til G-6000 Fimmtudagur 14. júli G-6001 til G-6150 Föstudagur 15. júlí G-6151 til G-6300 Skoðun fer fram við Suðurgötu 8 Hafnar- firði frá kl. 8.15 -12.00 og 13.00 - 16.00 alla framangreinda skoðunardaga. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vátrygging fyrir hverja bifreið séu i gildi. Athygli skal vakin á þvi að skráningar- númer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Við fullnaðarskoðun bifreiða skal sýna ljósastillingarvottorð. Þetta tilkynnist öllum þein , sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði og Garða- kaupstað. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu, 21. júní, 1977. Einar Ingimundarson. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahús Hvammstanga vill ráða hjúkr- unarstjóra frá 1. ágúst n.k. Einnig vantar ljósmóður til afleysinga frá 1. júli. Upplýsingar i sima 95-1329 og 95-1348. Sjúkrahús Hvammstanga BLAÐBERAR óskast í eftirtalin hverfi: Grettisgötu (afleysingar) Njálsgötu (afleysingar) Melhaga Kvisthaga ÞJÓÐVILJINN Vlnsamlegast haf.ið samband við afgreiðsluna' Síðumúla 6 — sími 81333 Staka úr Breiðdalnum Gisli heitir hann Björgvinsson i Breiðdal eystra og á það til, að láta fjúka i kviðlingum. Tilefni þeirrar stöku, sem hér fer á eftir, var, að opinber starfsmaður var að flytja erindi i útvarpið um daginn og veginn. Ræddi hann m.a. kjaramálin og taldi, að ef svo héldi fram sem horfði með þau, þá myndu ýms- ir flýja land: Þá kvað Gisli: Þó krefji árlega um kjarabót og kröfurnar hótunum blandi, við skulum ekki vila hót, vonandi fer hann.úr landi. Fjórðungsþing norðlendinga 1976 ákvað að gangast fyrir iðn- þróunarráðstefnu i samstarfi við íslenska iðnkynningu. Nú hefur verið ákveðið, i samráði við tsl. iðnkynningu, samtök iðnaðarins og iðnaðarráðuneyt- ið, að halda ráðstefnu um iðn- þróun á Norðurlandi á Húsavík og hefst hún föstudaginn 24. júni, kl. 9.30 f.h., og lýkur siðari hluta laugardags 25. júni. Jafn- framt ráðstefnunni verður iðn- kynning á Húsavik og kynning á starfsemi Kisiliðjunnar i Mý- vatnssveit. Umsjón: Magnús H. Gislason. Húsavík. Fjórðungssamband norðlendinga Idnþróunar- ráöstefna á Húsavík Ráðstefnan í þrem meg- inþáttum Ráðstefnan verður i þrem meginþáttum: Um iðnþróun á Norðurlandi ræða Sigurður Guðmundsson, áætlanafræðing- ur, Þórir Hilmarsson, bæjarstj. á Sauðárkróki, og Jón Illuga- son, oddviti i Skútustaðahreppi. Um þetta verkefni verður myndaður sérstakur starfshóp- ur undir forustu framsögu- manna, sem skila munu áliti til ráðstefnunnar. Um stöðu iðnþróunar ræða þeir Hjörtur Eiriksson, framkvæmdastjóri Iðnaðar- deildar SIS, Davið Scheving Thorsteinsson, formaður Fél. isl. iðnrekenda, og Sigurður Kristinsson, formaður Lands- samb. iðnaðarins. Um þetta verkefni verður myndaður sér- stakur starfshópur á ráðstefn- unni. Um nýiðnað og orkubúskap fjalla þeir dr. Vilhjálmur Lúð- viksson, efnaverkfræðingur, Bjarni Einarsson, fram- kvæmdastj. Byggðadeildar, og Kristján Jónsson, rafveitu- stjóri. Sérstakur starfshópur vinnur að þessu verkefni á ráð- stefnunni, undir forustu fram- sögumanna. Megin-starfiö í starfshóp- um Starfshópar munu starfa fyrri hluta laugardags. Niðurstöðum þeirra og ráðstefnunnar verður visað til iðnþróunarnefndar Fjórðungssambandsins, sem undirbýr tillögugerð fyrir næsta Fjórðungaþing norðlendinga, sem haldið verður siöar i sumar i Varmahlið. Ráðstefnumenn skipa sér sjálfir i starfshópa. Opnar pallborðsumræður Eftir hádegi á laugardag fara fram pallborðsumræður undir stjórn Péturs Sveinbjarnarson- ar. Fyrir svörum verða: Dr. Vilhjálmur Lúðviksson, Gunnar Ragnars, Jón Isberg, Sigurður Kristinsson og Davið Sch. Thor- steinsson. Matvælakynning á Húsa- vik Iðnkynningin á Húsavík hefst á föstudag með hádegis- verði i boði Fiskiðjusamlags Húsavikur, Mjólkursamlags og Kjötvinnslu Kaupfélags Þingey- inga, þar sem sérstaklega verð- ur kynnt húsvisk matvælafram- leiðsla. Siðan verða iðnfyrirtæki á Húsavik skoðuð. Iðnkynning- unni á Húsavik lýkur i kaffiboði iðnaðarráðuneytisins, þar sem Þorvarður Alfonsson, aðstoðar- maður ráðherra, flytur ávarp. Iðnkynning og náttúru- skoðun í Mývatnssveit Siðari hluta fyrri ráðstefnu- dags verður fariþ til Mývatns- sveitar, skoðuð Kröfluvirkjun, kynnt starfsemi Kisiliðjunnar og skoðuð ummerki náttúru- hamfaranna undir leiðsögn jarðfræðings. Heimsókninni i Mývatnssveit lýkur með sér- stökum, mývetnskum kvöld- verði i Hótel Reynihllð, á vegum Skútustaðahrepps, Kröfluvirkj- unar og Kisiliðju. Kynning á vegum Húsa- víkurkaupstaðar Bæjarstjórn Húsavikur býður ráðstefnugestum til hádegis- verðar á laugardag á Hótel Húsavik, þar sem Húsavikur- kaupstaður verður kynntur sér- staklega. Gert er ráð fyrir ráð- stefnuslitum fyrir kl. 18 sama dag. Vettvangur til stefnumót- unar Þessi ráðstefna er liður i þvi starfi Fjórðungssambands norðlendinga að gefa sem flest- um kost á að taka þátt i þeirri stefnumótun, sem fer fram á vegum Sambandsins, og gefa heimamönnum kost á að fá til sin forustumenn I hverri grein, til nánari skoðanaskipta. Með þessum hætti er reynt að opna leiðir á milli almennings og þeirra, sem starfa við stjórnun og stefnumótun þeirra mörgu málefnaþátta, sem i heild mynda heildarstefnu og byggðastefnu i senn. áe/mhg „Rokkarnir eru þagnaðir ”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.