Þjóðviljinn - 23.06.1977, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 23.06.1977, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVlLJINN Fimmtudagur 23. júnl 1977 Málgagn sósíalisma, xerkalýdshreyfingar og þjóðfrelsis. Otgefandi: Otgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Óiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Ulfar Þormóösson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Siðumúla 6, Simi 81333 Prentun: Biaðaprent hf. Varðveitum árangurinn Kjarasamningarnir sem undirritaðir voru i gær fela i sér framkvæmd þeirrar launajöfnunarstefnu sem þing Alþýðu- sambandsins mótaði á siðasta ári. Lág- launafólkið fær nú hækkun sem einstæð er i sögu kjarabaráttu á íslandi. Kaup- máttaraukningin mun á næstu mánuðum færa launamönnum verulegan hluta þess sem tapast hefur á undanförnum árum, og þau dýrmætu verðtryggingarákvæði sem nú náðust fram tryggja að sá árangur haldist. Verkalýðshreyfingunni hefur þannig i reynd tekist að snúa vörn i sókn. Hinir nýju samningar fela i sér, auki kjarabótanna, aukningu réttinda á ýms- um sviðum sem er ekki siður dýrmætur áfangi. í viðtali við Þjóðviljann á Þjóðhátiðar- daginn lýsti Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands íslands, þeim árangri sem náðst hefði i samning- unum: „Lægstu laun eiga að hækka úr 70 þús. krónum i 102 þús. á samningstimabil- inu, eða um 40-50%. í þessu sambandi er tvennt mjög mikilvægt, annað það, að auk þessara grunnkaupshækkana á svo verka- fólk að fá tryggari verðbætur á launin en áður, til að mæta verðlagshækkunum, og svo hitt að nú fá allir aðeins sömu krónu- tölu i grunnkaupshækkun hvort sem laun- in hafa áður verið há eða lág, og þannig minnkar launamisréttið. —Það er hægt að reka þetta þjóðfélag og atvinnulifið á islandi með þeim hætti að lágmarkskaup verkafólks sé 102 þús. kr. á mánuði miðað við verðlag dagsins i dag. Það er verkefni rikisstjórnarinnar og þeirra sem stýra fyrirtækjunum að stjórna þjóðfélaginu og reka atvinnulifið þannig, að slík lág- markslaun verkafólks séu tryggð.” Aðrir forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar hafa siðustu daga tekið undir þetta mat formanns Verkamannasam- bandsins, Guðmundar J. Guðmundssonar. ,,Verði skynsamlega á málum haldið af hálfu stjórnvalda, ættu þessir samningar að færa launafólki verulega kjarabót”, sagði Benedikt Daviðsson, formaður Sam- bands byggingamanna. ,,Ég tel, að ef vel verður á haldið þá þurfi þetta samkomu- lag ekki að teljast verðbólgusamningar”, sagði Bjarni Jakobsson, formaður Iðju. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar, hefur látið svo um mælt ,,að ekki sé hægt að benda á, að i allri sögu verka- lýðshreyfingarinnar hafi svona stórum áfanga verið náð með ekki meiri fórnum”, og Jón Kjartansson, formaður verkalýðs- félagsins i Vestmannaeyjum, fagnaði þvi að verkalýðshreyfingunni hefði tekist að ná ,,mjög góðum samningum”. Það hefur hins vegar vakið athygli, að jafnvel áður en blekið var þornað á undir- skrift samninganna hófu fulltrúar at- vinnurekenda upp mikinn söng um þá verðbólgu sem hlyti að fylgja i kjölfarið. Verslunarráð íslands reið á vaðið i heild- salamálgagninu Visi fyrir helgina og boð- aði miklar verðhækkanir. Fulltrúar út- gerðarmanna og iðnrekenda fylgja þess- um hótunum svo eftir i Morgunblaðinu i gær. Ljóst er, að atvinnurekendur eru staðráðnir i þvi að knýja rikisstjórnina til að leyfa siauknar verðhækkanir og þar með áframhaldandi verðbólgu á næstu mánuðum. Rikisstjórnin stendur þvi frammi fyrir mikilli prófraun: Lætur hún undan kröfum atvinnurekenda eða stuðlar hún að þvi með breyttri stjórnarstefnu og nýjum vinnubrögðum að launafólk fái i reynd að njóta þess árangurs sem náðst hefur? Minna má á, að formaður annars stjórnarflokksins taldi sjálfsagt, að lág- launafólk fengi þá kauphækkun sem kjarasamningarnir hafa nú fært þvi, og forsætisráðherrann hefur hvað eftir annað lýst þeirri skoðun sinni, að það sé verkefni aðila vinnumarkaðarins að semja um kaup og kjör. Verkalýðshreyfingin mun þvi ekki láta það viðgangast að rikis- stjórnin gerist á næstu mánuðum sérstak- ur erindreki atvinnurekenda og láti undan þeim kröfum sem þeir hafa þegar sett fram i Morgunblaðinu og Visi. Launþegar i landinu eru sammála þvi mati Guð- mundar J. Guðmundssonar, formanns Verkamannasambandsins, að það sé vissulega hægt að reka islenskt þjóðfélag með þeim hætti að lágmarkskaup verka- fólks sé rúmlega hundrað þúsund krónur. Verkalýðshreyfingin mun á næstu misser- um sýna jafnmikla samstöðu við varð- veislu þess árangurs sem nú hefur náðst og hún sýndi við samningagerðina. Hún mun ekki liða rikisstjórninni að veitast aftan að launþegum með svikum á þeim samningum sem nú hafa verið gerðir. Varanlegt yfir- vinnubann? „Þaö næst aldrei að hifa kaupið hér á tslandi nægiiega upp fyrr en yfirvinna hefur ver- iö bönnuð nema I algjörum und- antekningartilfellum”, sagði maður einn sem leit inn á rit- stjórn Þjóðviljans i gær. Hann benti á að sama yfirvinnuþrælk- unin heföi veriö upp á teningn- um i Sviþjóö, þar til fariö var inn á þá braut þar að setja þrengri og þrengri skorður við yfirvinnuálagi. Annarsstaöar á Noröurlöndum og viða I öðrum Evrópulöndum, t.d. Þýskalandi, hafa stjórnvöld lagt þvi sem næst algjört bann við vinnu um- fram umsaminn vinnutfma. Sjálfsagt hefur þetta bann á flestum stöðum komið til i þvi skyni aö hefta útbreiðslu at- vinnuleysis. En það hefur einnig haft þau áhrif að fyrirtæki hafa lagt kapp á aö auka framleiðni sina. , Nú má segja að verkalýös- hreyfingin hafi náö verulegum árangri i kjarabaráttunni, bæði tekist að útfæra launajöfnunar- stefnu og hifa upp kaupiö al- mennt. Hitt er óliklegt að þessi árangur veröi þess valdandi aö útrýma yfirvinnuþrælkuninni. Sérstakiega þegar þess er gætt aö það er háttur ihaldsstjórna að ráðast á kaupmáttinn með kjafti og klóm i kjölfar kjara- samninga. Lexia yfirvinnu- bannsins Yfirvinnubann verkalýðs- hreyfingarinnar reyndist árangursrikt i mörgum skiln- ingi. Af viðtölum viö verkafólk meðan á yfirvinnubanninu stóö er ljóst að fjölmargir námu staðar og ihuguöu vinnuþrælk- unina, sem þeir hafa búiö við. Menn komust að þvi „aö það er ekkert lif”að þræla myrkranna á milli. t ljósi þessarar reynslu er ekki óliklegt aö þaö viðhorf „að heimta aukavinnu” sé nú liðin tiö og aukavinna verði aðeins unnin af „illri nauðsyn og engum fögnuði”. Hún hefur að visu aldrei veriö vinsæl, en fólk hefur ekki séö neinn annan út- veg en „aukavinnuuppgrip” til þess að ná endum saman. Allmargir atvinnurekendur, sem iiklega eru i hópi þeirra sem reka fyrirtæki sin I skárra lagi, vitnuðu um það i blööum að þeim hefði tekist aö halda sömu afköstum I átta timum og á tiu timum áöur, meðan á yfir- vinnubanninu stóð. A þessum málum þyrfti að gera alvarlega úttekt. Meö betri skipulagningu I fyrirtækjunum, hagræðingu og jafnri hráefnisöflun, t.d. I fisk- iönaöi, ætti að vera hægt aö auka afköstin, draga úr auka- vinnu, og hækka dagvinnukaup. Þaö eru kunn sannindi aö islensk fyrirtæki standa langt aö baki sambærilegum fyrirtækj- um á Noröurlöndum i flestum greinum hvað framleiöni varö- ar. Prentarinn hér og á Berlingi Sem dæmi um þá fullyrðingu aö aukavinnuæöið muni veröa við lýði áfram skulu hér tekin prentaralaun, sem eru i hærri kantinum I launakerfi ASI. Verði samningar þeir sem hafa verið undirritaðir samþykktir i HIP má gera ráö fyrir að lægstu dagvinnutekjur verði innan viö 26 þúsund krónur, en hæstu dag- vinnutekjur innan við 3 þúsund á viku. Þaö eru um 104 þúsund á mánuði, en framfærslukostnað- ur visitölufjölskyldunnar er tal- inn 161 þúsund krónur á mánuði. Prentari með fimm ára starfs- reynslu sem vinnur á vöktum viö rotationspressu á dagblaði mun fá innan viö 38 þúsund krónur fyrir 40 vinnustundir á viku samkvæmt undirrituðum samningi. Vaktavinnumaður og starfsbróöir hans á Berlingske Tidende I Kaupmannahöfn fær fyrir 36 vinnustundir á viku 67' þúsund Isl. kr. samkvæmt ný- geröum samningi. Þaö munar um 30 þúsund krónum á viku- kaupinu og 120 þúsund á mán- aðarkaupinu. Hæsta mánaðar- kaup prentara i vaktavinnu á íslandi nær ekki framfærslu- kostnaði visitölufjölskyldunnar, en hann er eins og áöur sagði 161 þúsund kr. á mánuði. Prentar- inn á pressunni hefur aðeins 152 þúsund kr. á mánuði. Sennilegt er þvi aö þeir prentarar sem hafa fyrir fjölskyldu að sjá og þurfa að standa skil á lánum vegna nauðsynlegra fjölskyldu- fjárfestinga reyni aö verða sér úti um talsverða aukavinnu ef þeir geta fengiö hana. Sennilegt er að i hópi prentara þættu laun svipuð þvi sem starfsbræður þeirra á Berlingnum fá nálægt þvl að vera lifvænleg laun. Eng- um þarf að þykja það vera þurftarfrekja að telja sig þurfa 268 þúsund krónur á mánuöi sem eina fyrirvinna fjölskyldu, þvi þaö hefur verið sýnt framá að verð á helstu nauðsynjum er svipaö hér og I Danmörku. Dæmi þetta sýnir að aukavinnu- þrælkunin veröur enn um sinn við lýði á Islandi. — ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.