Þjóðviljinn - 28.06.1977, Page 1
VERÐLAGSMÁL:
/
Asókn í hækkim
á útseldri vinnu
Umsóknir um hækkun á
útseldri vinnu er það sem
einkum brennur á hjá
verðlagsstjóra um þessar
mundir, var okkur tjáð er
við leituðum upplýsinga.
Það er frekar rólegt i
umsóknum um hækkun á
innfluttri vöru enda virð-
ast verðhækkanir vera á-
Guðbergur
Bergsson skrifar
um kosningarnar
á Spáni
Sjá síðu 5.
Aðhald í
afgreiðslu
hækkana
segir í
yfirlýsingu
ríkis-
stjórnarinnar
kaflega litlar erlendis um
þessar mundir.
Verölagsmál eru nú mjög i
brennipunkti eftir kjarasamning-
ana, einkum aö þvi er varðar
verðbólguspár atvinnurekenda.
t tenglsum við kjarasamning-
ana gaf rikisstjórnin út yfirlýs-
ingu þar sem m.a. er komið inn á
verðlagsmál.
Þar segir m.a. að verðhækkanir
opinberrar þjónustu skuli ekki
koma til framkvæmda nema sið-
ustu 10 daga fyrir útreikning
verðbótavisitölu, svo að launþeg-
ar þurfi ekki að bera þær lengi
bótalaust.
Einnig er lögð áhersla á að auk-
in verði öflun gagna um verðlag
erlendis og miðlun upplýsinga um
verðlag hérlendis, og að verð-
lagsstjóraembættinu verði tryggð
aðstaða til að sinna þessum verk-
efnum. Þá er verkalýðssamtök-
unum heitin aukin aðild að verð-
gæslunni og áhersla lögð á aðhald
afgreiðslu verðhækkana.
Verðum íhaldssamir
Snorri Jónsson frkvstj. ASI
sagði er við hringdum i hann.að
fulltrúar verkalýðshreyfingar-
innar i verðlagsráði myndu verða
mjög á verði gegn öllum verð-
hækkunum, og sýna hina mestu i-
haldssemi til að sporna gegn
þeim.
Um möguleika þeirra til að
hindra verðhækkanir i ráðinu
sagði hann,að þeir gætu ekki bara
sagt nei, en þeir gætu hinsvegar
gengið mjög langt i þvi að heimta
reikninga og fá samanburð við
verðlag erlendis. Og þessa mögu-
leika myndu þeir óspart notfæra
sér.
Okkur tókst þvi miöur ekki að
ná sambandi viö verðlagsstjóra
til að heyra álit hans á möguleik-
um embættisins til að sporna við
'verðhækkunum. eng.
Guðný Húnbogadóttir, fyrsta konan á tslandi, sem lýkur prófi I blla
málun.
Enda þótt iðngreinar flestar
hafi verið einkennandi karl-
mannafög eru þó æ fleiri
kvenmenn sem leggja i nám i
hefðbundnum karlmannaiðn-
greinum. Sl. laugardag var sótt
fram i þessa átt með þvi að
fyrsti kvenmaður á tslandi út-
skrifaðist sem bílamáiari. ■
Hún heitir Guðný Húnboga-
dóttir og lauk á laugardaginn
sveinstykki sinu i greininni hjá
Bilasprautuninni h.f., Skeifunni
11. Guðný Húnbogadóttir hóf
nám i bilasprautun árið 1973 i
Bilaskálanum, en lauk náminu
hjá Birgi Guðnasyni, málara-
meistara i Keflavik. Nám i iðn-
greininni tekur f jögur ár. Guðný
er ekki alveg ráðin i þvi hvort
hún tekur til við að starfa við
bilamálun i fullu starfi, en bjóð-
ist góðir skilmálar er aldrei að
vita. Vinnustaðir bilamálara
eru ekki allir til að hrópa húrra
fyrir, og þarf viða að gera mikla
bragarbót, áður en ungt fólk
getur hugsað sér að gera þessa
atvinnu að ævistarfi.
Karlmannavígi falla
SÖGUALDARBÆRINN
Kostaði 41.5
miljón
Við afhendingu sögualdarbæj-
arins á föstudag hélt Steinþór
Gestsson formaður bygginga-
nefndar ræðu og kom þar ma.
fram hver hefur verið kostnaður
við gerö bæjarins og hverjir
standa undir honum.
Heildarkostnaður er 41,5 miljón
króna
krónur og skiptist hann þannig að
rikissjóður borgar 10,5 miljónir,
Gnúpverjahreppur og Arnessýsla
2 miljónir hvor aðili, Þjóðhátiðar-
sjóður 15 miljónir og Landsvirkj-
un 7 miljónir. Þá hafa nokkrir
aðilar gefið fé og er langstærsta
gjöfin frá norska skóghöggs-
mannasambandinu, 4,4 miljónir.
Geir Hallgrimsson tók við bæn-
um fyrir hönd forsætisráöuneyt-
isins en það mun hafa umsjón
með honum á svipaðan hátt og
þjóðgarðinum á Þingvöllum og
Hrafnseyri við Arnarfjörð.
—GFr.
SJÁOPNU 1
Audur Geirs er mesta
feimnismál íslands
• », —yröi ekki þolað annarsstaðar”
DN um
islensk
efnahagsmál:
Forsætisráðherrann er helsti
kapitalistinn,segir i langri grein
um islensk efnahagsmál i sænska
blaöinu Dagens Nyhetcr frá 21.
júni. Blaðamanninum þykja auð-
ur og umsvif Geirs Haligrimsson-
ar og fjölskyldu hans það mikil,
að þau séu citt af þvi sem frétt-
næmast er og hneykslanlegast af
tslandi. Hann vitnar og i háttsett-
an embættismann islenska rikis-
ins, sem segir\ að „þetta yrði
varla liðið i nokkru öðru vestrænu
lýðræðisriki”.
Klausan um forsætisráöherr-
ann er á þessa leið: „Hið van-
helga bandalag milli Esso og
samvinnuhreyfingarinnar er þó
ekki eins athyglisvert og það sem
enginn vill (eða þorir) að ræða
opinberlega. Geir Hallgrimsson
forsætisráðherra og fjölskylda
hans eru stærstu einkahluthafar i
Shell á Islandi.
Ef islendingur er að þvi
spurður hver sé stærsti kapítalisti
á Islandi þá fer ekki hjá þvi hann
hvisli: forsætisráðherrann.
Hallgrimsson fjölskyldan á
nefnilega mikið innflutningsfyrir-
tæki sem fer með umboð fyrir
Mercedes-Benz. Hún á hluti i
Morgunblaðinu sem hefur algjöra
yfirburði i útbreiðslu yfir önnur
morgunblöð, i hinu þekkta flugfé-
lagi ódýrra fargjalda Loftleiðir —,
Icelandair, i efnaverksmiðju og i
súkkulaðigerð (um leið og rikið
leggur hömlur á innflutning
súkkulaðis).
Enginn vill ræða málið meðan
ekki er hægt að færa sönnur á að
forsætisráðherrann taki beinan
þátt i stjórn fyrirtækja sinna, en
við gerum okkur grein fyrir þvi
að þetta yrði varla liðið i neinu
vestrænu lýðræðisriki öðruj’segir
háttsettur embættismaður rikis-
ins.
Greinin i DN ber aðalfyrirsögn-
ina, Island, heimsmeistari i verð-
bólgu. Þar er m.a. fjallað um
kjaradeilur, sambúð þjóðar og
verðbólgu, áhrif utanrikis-
verslunar á sama fyrirbæri o.fl.