Þjóðviljinn - 28.06.1977, Side 6

Þjóðviljinn - 28.06.1977, Side 6
6 stÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 28. júnl 1977 A. Paul Weber á Kjarvalsstöðum: Hann klappar okkur ekki á kollinn.... Má gefa mynd sem þessari jafn afstrakt heiti og „Vistkreppa Um helgina var opnuð á Kjarvalsstöðum sýn- ing á svartlistarmynd- um eftir þýskan lista- mann háaldraðan, A. Paul Weber. Myndirnar eru um 160 og eru gerðar á síðastliðnum 45 árum. Paul Weber er einn af þeim mönnum sem kallaöir veröa „óþægilegir” listamenn, hann er litt gefinn fyrir aö klappa mönn- um á kollinn. Ein mynda hans sýnir digran dólg og valdsmanns- legan, sem hefur lagt mann á skuröarborð og er aö skera úr honum hrygginn. Út um dyr til hægri ganga þeir mjög slyttisleg- ir, sem hafa nú verið sviptir þeim möguleika,—eöa þeirri áreynslu, Hann er áttatiu og þriggja ára, en myndlistarmenn veröa allra karla elstir — aö ganga uppréttir. Svo er aö oröi komist vegna þess, aö broddi myndarinnar er ekki beint gegn þeim dólg einum sem heldur á hnifnum. Til vinstri standa vænt- anlegir hryggleysingjar i biöröö, skælbrosandi; þaö er eins og eng- inn hafi neytt þá til aö koma. Þaö sem mun gerast er gott og þægi- legt. — Hér er heimspeki Webers, segir einn af skipuleggjendum sýningarinnar, dr. Scwabe. Myndin sýnir frosk og skorkvik- indi, sem nefnist gullsmiöur sam- kvæmt oröabók. A meöan étur lirfa gullsmiösins egg frosksins. Ekki sérlega aölaöandi hringrás. Hvaö um þaö. 1 tilefni þessarar sýningar birtum viö þrjár mynd- ir. Ein sýnir A. Paul Weber aö störfum. Hann hefur m.a. mynd- skreytt mörg ágæt verk — nú siöast Reineke Fuchs Goethes, og hann hefur um tuttugu ára skeiö haldiö úti „Gagnrýnu almanaki”, þar sem hann myndskreytir ýmsa þá texta beiska.sem honum finnst eiga erindi viö samtiöina, hvort sem þeir voru skrifaöir I fyrra eöa fyrir mörgum öldum. Onnur er mjög fræg. Hún er frá . 1932 og gerö fyrir timarit er nokkrir andstæöingar nasismans geröu út og hét Wiederstand, Andspyrna. Þar er heil þjóö aö marséra ofan I opna gröf undir hakakrossfánum. Spámannleg mynd reyndar. Onnur mynd á sýningunni frá sama tima sýnir dauöann i beinagrindarliki tala i hljóönema: Göbbels er aö leggja undir sig útvarpiö. Fyrir þessar myndir og aörar skyldar varö Weber þeirrar sæmdar aönjót- andi að vera settur I fangabúöir. Hin þriöja er nýrri og sprottin af umræöu um sambúö manns viö þá jörö sem hefur getið hann af sér. Lifandi beinagrind þrammar galvösk meö exi beitta yfir skóg- inn sem var og hagvaxtarhug- sjónin hefur eytt — I áttina aö sið- ustu trjánum. Sem veröa aö sjálf- sögöu felld einnig. —áb. Laus staða Staöa aðstoöarskólastjóra viö Menntaskólann viö Hamra- hiíö er laus til umsóknar. Samkvæmt 53. gr. regiugeröar nr. 270/1974, um mennta- skóla, skal aöstoöarskólastjóri ráöinn af menntamála- ráöuneytinu tii fimm ára i senn úr hópi fastra kennara á menntaskólastigi. Umsóknir um framangreinda stööu ásamt uppiýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamáiaráöu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 20. júli n.k. Menntamálaráðuneytið 23. júni 1977. Auglýsing I Þjóðviljanum ber ávöxt Tæki sem finnur njósnahljódnema Tæknimenn, ekki sist I Banda- rikjunum, hafa haft ærin verk- efniaf njósnastarfsemi. Þeir hafa búiö til æ fullkomnarijlævisari og smærri hljóðnema til aö hlera samtöl manna. Og þeir hafa einn- ig haft nóg aö gera viö aö búa til tæki til að finna þessa hljóönema. Kaupendur eru nógir, þvi aö stjórnmálanjósnir, persónunjósn- ir og iönaöarnjósnir eru atvinnu- vegur sem blómstrar: ekkert at- vinnuleysi á þeim vettvangi. Þaö hefur til þessa verið tiltölu- lega auðvelt aö finna falda hljóö- nema meö færanlegum tækjabún- aði. Annaö mál er, aö þaö getur verið þreytandi til lengdar aö sannprófa, hvort nýjum hljóð- nemum hafi ekki veriö komið fyrir i staö þeirra sem fundust við siðustu leit. Fyrirtæki eitt I New York hefur nú búiö til kerfi, sem er fyrsti sjálfvirki tæknibún- aðurinn sem kemur á markaö. „Þreifurum” frá einni miöstöö er komið fyrir i allt að átján her- bergjum, og hvenær sem hler- unargræjum er komið fyrir i þvi húsi er hringt viðvörunarbjöllu. Tæki þetta kostar sem svarar sex miljónum króna. Starfsmannafélagið Sókn Farið verður i skemmtiferð til Vest- mannaeyja laugardaginn 2. júli. Komið aftur á sunnudag. Hafið samband við skrifstofuna fyrir fimmtudaginn 30. júni. Starfsmannafélagið Sókn. Hitaveita Suðurnesja óskar að ráða véla- eða efnaverkfræðing. Umsóknir sendist skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja að Vesturbraut lOa Keflavik fyrir 15. júli.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.