Þjóðviljinn - 10.09.1977, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. september 1977
Þó óneitanlega sé mikil freisting að beygja
sig fyrir jafn haldgóðum rökum og hér eru
fram sett um líf og dauða og jafnvel fallast á
réttmæti þeirra, get ég upplýst þá, sem þessar
línur lesa^um það, að líkamleg heill hins stutta
og feita er í óumræðilega góðu standi miðað
við sálarheill hans. Ég á satt að segja erfitt
með að lýsa því hve oft það hefur valdið mér
ómælanlegu hugarangri að vera ekki hár og
grannur, en sú staðreynd hef ur oft staðið mér
mjög fyrir þrifum,sérstaklega t dansi á opin-
berum veitingastöðum. Þetta veit ég að á líka
við um Óla og Kidda.
AF VONLAUSUM TANGO
Til þess er að sjálfsögðu ætlast af sjón-
varpinu, að það f jalli um þau höf uðvandamál,
sem steðja að mannkyninu hverju sinni, og
væri óréttlátt að halda því f ram að stofnunin
hafi brugðist þessari skyldu sinni.
Gerðir hafa verið margir og greinargóðir
þættir um skaðsemi reykinga, hassið, brenni-
vínsháskann, getnaðarvarnir og fleira það,
sem líklegt er talið að orðið geti til að tortíma
mannkyninu.
Nú er ,,hlaupinn af stokkunum" nýr þáttur
um vágest sem svo sannarlega virðist vera til
þess fallinn að ógna mannlíf inu á jörðinni, en
það er of f ita og ofát. Til eru að sjálfsögðu þeir
menn, sem segja að þessi hörmung herji ekki
á nema vissa heimshluta, en það breytir að
sjálfsögðu engu um þá vá sem er fyrir dyrum
og þess vegna ber að fagna þessu framtaki
sjónvarpsins.
Mér skilst að þættirnir eigi að vera vikulega
til að byrja með,en síðan á víst, ef ég man rétt,
að láta líða lengra á milli, víst þegar mörsugur
er genginn í garð.
Þegar þetta er ritað er fyrsti þátturinn
liðinn hjá, og mátti af honum ráða að allar
af leiðingar ofáts væru líkamlegs eðlis, en þar
sem ég hef lengi verið á öndverðum meiði,
f inn ég mig knúinn til að setja hér f ram kenn-
ingar mínar. Mig langar þá fyrst til að lýsa
sjónvarpsþættinum eins og hann kom mér
fyrir sjónir, og vona að þar séekki hallað réttu
máli svo alvarlega að teljandi slagsíða sé á.
I þættinum komu fram bæði lærðir og leikir
og voru þar færð rök fyrir því, að líkur gætu
verið á, að ofát væri hugsanleg orsök offitu,
þó það að vísu væri staðreynd, að horaðir
menn stunduðu ekki síðurofát en fitubelgir.
Bráðfalleg stúlka, sem er að verða doktor í of-
átúsetti meðal annars fram þá hugmynd að
ekki þýddi að halda áfram að dæla bensíni á
bíl eftir að geymirinn væri orðinn fullur og
sama væri að segja um mataræði (og þá
væntanlega drykkjusiði).
Þá kom á skjáinn annar sérfræðingur í of-
fitu, og sagði sá eitthvað á þá leið að þyngd
manna færi oft eftir stærð þeirra, þannig að
stórir menn væru þyngri en smáir, en stundum
væri þessu öf ugt farið. Hefðu raunar amerísk
tryggingarfélög sannað það með rannsóknum
á fjórum miljónum manna, að feitir menn
enduðu fremur í gröfinni en horaðir. Á
þessum forsendum er það byggt að ekkert
tryggingarfélag vill líftryggja undirritaðan,en
aðsögnsárafá óla Jóog Kidda Finnboga.
Eins og um tvo framangreinda samfélaga
mina er það um mig að segja,að ég er fremur
stuttur og feitur, sumir mundu kannske segja
riðvaxinn,svo að við verðum líklega allir þrír
að beygja okkur fyrir þeirri amerísku, sér-
f ræðilegu staðreynd, að það eigi fremur fyrir
okkur að liggja að geispa einhvern tímann
golunni, en þeim sem krángalegri eru,eins og
til dæmis Jónas Haralz.
Það er nefnilega óbærileg tilhugsun fyrir
dansherra að stíga tangó (hvort sem það er nú
í París eða annars staðar) við dömu(nema ná
henni rækilega í mitti, einkum þegar haft er í
huga hvar slikur maður verður að halda
utanum slíka konu, þegar allir hinir herrarnir
halda utanum mittið.
Það er ekkert launungarmál, að mig hefur
lengi langað til að stíga dans við eina mjög
góða en hörku vinstrisinnaða vinkonu mína,og
ég hef ríka ástæðu til að ætla að hún beri sömu
þrá í brjósti, en hæðarmunurinn á okkur er
slíkur að óhugsandi er að við fáum nokkurn
tíman*að njótast (í dansi) á opinberum veit-
ingastað.
Vangadansi verður að sjálfsögðu ekki við
komið, nema með aðferðum, sem hingað til
haf a ekki verið viðhafðar nema í heimahúsum,
og slikur dans mundi enda á barmi glötunar.
Það þarf enginn að segja mér að Óla og
Kidda haf i aldrei langað í svona dans við eina
,,hörku vinstrisinnaða", en því haf i ekki verið
við komiðaf f ramangreindum ástæðum, nema
þá á stultum, eða þá að daman stígi dansinn
meira en lítið hokin í hnjánum.
Hvað sagði raunar ekki yfirlæknirinn á
Kólestról-þinginu í vor:
„istran veldur kröm og kvöl,
kvillum — mundi ég segja.
Hún er okkar æviböl,
af henni munum við deyja".
FLOSI
L. ALCOPLEY
að Kjarvalsstöðum
L. Alcopley
I dag verður opnuð að
Kjarvalsstöðum yfirlits-
sýning á verkum banda-
ríska lista- og vfsinda-
mannsins Alcopleys, og
eru á sýningunni yfir 300
verk frá 33 ára tímabili.
Alcopley er mörgum islending-
um aö góöu kunnur, þvi aö hann
var kvæntur Ninu Tryggvadóttur
listmálara, og hefur mjög oft
komiö hingaö til lands áöur, þótt
þetta sé fyrsta sýning hans hér.
Þegar blaöamaöur Þjóöviljans
leit inn á Kjarvalsstööum var
listamaöurinn önnum kafinn niöri
i kjallara aö mála 25 metra langt
málverk, sem siöan átti aö setja
upp á noröurhliö safnhússins; var
þetta aö þvi er forráöamenn
safnsins töldu, lengsta málverk
sem málaö haföi veriö á Islandi.
En þótt Alcopley ætti annrikt gaf
hann sér samt góöan tima til aö
rabba viö fréttamenn, og tók
hann sérstaklega fram aö þessi
sýning væri sér mjög mikilvæg,
vegna allra þeirra tengsla sem
hann heföi viö Island. í fylgd meö
honum voru dóttir hans, sem
fædd er hér á landi, og tengdason-
ur, en þau eru bæöi listamenn.
Alcopley sagöi aö hann væri i
rauninni tveir ólikir menn. A einu
tilverustiginu er hann frægur vis-
indamaöur, sérfræöingur i blóö-
rannsóknum og kennari viö Poly
technic Institute of New York, en
á hinu tilverustiginu er hann
listamaöur, sem tekiö hefur þátt i
flestum þeim straumum, sem
' máli skipta i listþróun tuttugustu
aldar. Hann tók þó fram, aö sam-
búð þessara tveggja óliku manna
væri ekki erfið. Hann fæddist i
Þýskalandi árið 1910 og kynntist á
unga aldri þvi helsta sem þar var
aö gerast á sviöi lista. En eftir
valdatöku nasista varö hann aö
flýja land, og dvaldist I Sviss 1935-
1937, en flutti siöan til Bandarikj-
anna og varö bandariskur rikis-
borgari 1943. Hann geröist málari
áriö 1939 og varö brátt einn af
frumherjum nútimalistar i
Bandarikjunum. Þannig var hann
einn af tólf stofnendum „klúbbs-
ins” svonefnda á 8. stræti i New
York, en aörir i þeim hópi voru
Jackson Pollock og Franz Kline.
Alcopley kvæntist Ninu Tryggva-
dóttur áriö 1949, og bjuggu þau
nokkur ár i Paris, þar sem jiau
stofnuöu samtökin „Le Club”
ásamt málaranum og rithöfund-
inum Michel Seuphor. Eftir 1960
bjuggu þau i New York. Nina lést
áriö 1968.
Alcopley hefur haldiö upp undir
fjörutiu einkasýningar viöa um
>
Málaskólinn
Mímir
Lifandi tungumáiakennsla. Mikiö um nýjungar. Kvöid-
námskeið fyrir fuiloröna. Samtalsflokkar hjá Englending-
um. Léttari þýska. Noröuriandamáiin. Suöurlandamálin.
Hinn vinsæli Enskuskóli Barnanna. Unglingum hjálpaö
fyrirpróf. Einkaritaraskólinn, simi 10004 og 11109 (kl. 1-7
e.h.)
V IM ————J
Eitt af þeim rúmlega 300 verkum
Alcopleys sem eru á sýningunni.
heim, þ.á m. iNew York, London,
Paris, Jerúsalem og Tókió, og
tekið þátt i ótal mörgum samsýn-
ingum. Sýningin aö Kjarvalsstöö-
um stendur yfir dagana 10. til 25.
september.
empa
INNROMMUN
Hamraborg 12
Simi 43330
Alhliða
innrömmunarþjónusta
STff TlLBONAR%/
f Á 3 MÍN.!
WSSAMTNDI
Ljosmyndastofa AMATÓR
LAUGAVEGI 55 S 2 27 18
41 Blikkiðjan
t
•Ásgarði 7/ Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
tiverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI53468