Þjóðviljinn - 10.09.1977, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 10.09.1977, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. september 1977 UM IMORSKU ÞINGKOSNINGARNAR FYRRI GREIN Ivar Johansen: Hann safnaöi hernaöarleyndarmálum og upplýsingum um leyniþjónustuna í tómstundum. Christian Christensen og Svein Blindheim: Majorarnir sem leystu frá skjóöunni og sögöu frá starfsemi norsku leyniþjónustunnar I Finnlandi og Sovét. Kosningabaráttan sem týndist Á máunudaginn ganga Norðmenn til þingkosn- inga. Tvísýnt er um úrslit þeirra, og erf itt að segja til um, hvort Verkamanna- f lokkurinn heldur velli eða borgaraleg samsteypu- stjórn tekur við völdum í Noregi að þeim afstöðnum. Ætla mætti, að hinn naumi munur á fylgi Sósíaldemó- krata og borgaralegu flokkanna þriggja (Hægri- flokksins, Miðflokksins og Kristilega Þjóðarf lokks- ins) hefði kynt undir helstu hitamálum og orðið forsenda hressilegra ágreiningsátaka. En svo er ekki. Það, sem auðkennt hefur aðdraganda þessara þingkosninga öðru fremur, eru daufar þjóðfélagsum- ræður og blóðlaus kosn- ingabarátta. Astæöan fyrir hinni kyrrlátu kosningabaráttu er, aö hin svo- nefndu „lekamál” eöa „laus- mælgismál” hafa tröllriöiö öllum fjölmiölum upp á síökastiö, rugl- aö flokkspólitfska starfsemi og drepiö frjósamar umræöur. „Lausmælgismál” þessi eru: Loran-C máliö, njósnamáliö I Sovétrikjunum, og telex-skeyta- máliö. Leki á lokuðum fundi Fyrsti „leki” sumarsins birtist á forsföu Ny Tid, málgagns sósialista, f júnibyrjun. Lokaöur þingfundur ræddi þá svonefnda Schei-skýrslu, en hún fjallaði um miöunarstöövarnar Loran C og Omega, tilkomu þeirra og til- gang. Mikið fjaörafok varö meöal háttvirtra þingmanna og háværar raddir kröföust þess, aö haföar yröu hendur i hári þess sem bæri ábyrgðina (þingmenn sósialista lágu undir sterkum grun) og hon- um stefnt fyrir rikisrétt vegna brots á þagnareiöi. Ekkert var þó gert I málinu og skömmu siöar lýsti formaöur sósialista þvi yfir, aö ef norska stjórnin birti ekki hinn leynilega hluta Scheiskýrsl- unnar, ryfi hann þagnareið sinn, ogopinberaöi innihaldiö. Stjórnin þverskallaðist viö, og þann 22. ágúst héldu þingmenn Sósialistiska Vinstriflokksins, þeir Berge Furreog Finn Gustav- sen fjölmennan fund I Osló, þar sem þeir lásu upp úr skýrslunni. Þar fengu menn ugg sinn staö- festan: Hinn raunverulegi tilgangur stöövanna var aö þjóna bandariskum Pólaris-kafbátum, búnum kjarnorkuvopnum. Aöeins örfáir norskir ráöamenn vissu um tilgang stöövanna, þar á meöal Einar Gerhardsen, fyrrum for- sætisráöherra og Halvard Lange, áöur utanrikisráöherra. Þegar bygging stöövanna var samþykkt 1960, var fariö gróflega á bak viö bæöi þing og stjórn. Hver lak í Pax? Norömenn ráku upp stór augu, þegar hin róttæka bókaútgáfa PAX gaf út leyniskýrsluna I bókarformi daginn eftir aö þeir félagar Furre og Gustavsen sögöu opinberlega frá þessum tiöindum. Menn dáöust aö kænsku og þrautseigju forlagsins, prent- unin fór fram I leyni, lögreglunni var villt sýn á ýmsan hátt og upplaginu dreift án vitundar yfir- valda. En spurningin brann á allra vörum: Hvernig náði PAX i skýrsluna? Saksóknari lýsti þvl yfir, aö bókaútgáfunni yröi ekki stefnt, þar sem þingmennirnir tveir heföu áöur leyst frá skjóöunni, en hins vegar mundi öryggisnefnd þingsins rannsaka, hvernig for- lagið varð sér úti um eintak af skýrslunni. Þaö var m.ö.o. gefiö I skyn aö nýtt lausmælgismái væri i uppsiglingu. Þó aö innihald leyniskýrslunnar haföi nú veriö gert heyrinkunnugt um allan Noreg, neitaði norska útvarpiö Berge Furre formaður SVm og Audgunn Oltedal ritstjóri Ny Tid:Þaukomu Loran C-skriöunni af stað. (og sjónvarpiö) og fréttastofan NTB aö birta innihald skýrslunn- ar, þar sem um væri aö ræöa leynilegt þingmál, sem þingmenn væru bundnir þagnareiöi af. En þá var PAX-bókin þegar orðin metsölubók. Majorar rjúfa þagnareið Málgagn sósialista, Ny Tid, sem kom allri Loran C-skriöunni af staö, lá ekki á liöi sinu. 1 júli- mánuöi birti blaðið grein um njósnir Norömanna I Sovét fyrir 25 árum. Átti leyniþjónustan norska aö hafa þjálfað finnska njósnara, sem siöan voru sendir inn I Sovétrlkin. Norsk yfirvöld neituðu þessum sakargiftum, en krötum varö þó svarafátt, þegar þeir ráku augun i forsiöu Ny Tid viku siðar, eöa 27. júli. Fyrr- verandi striöshetja og majór i norska hernum, Svein Blindheim aö nafni, staöfesti ummæli blaös- ins og bætti viö, aö 1953 haföi hann verið sendur til Finnlands I þeim tilgangi aö þjálfa þarlenda spæj- ara i hermdarverkum og njósn- um innan landamæra Sovét- rikjanna. Annar fyrrverandi majór, og núverandi ritstjóri hins litla en afturhaldssama blaðs, Morgunblaösins, Christian Christcnsen að nafni, bætti gráu ofaná svarta fortiö kratanna, þegar hann staðfesti ummæli Blindheims i blaöi sinu. Samtimis upplýsti finnska öryggislögregl- an, að þrir finnskir borgarar heföu verið dæmdir fyrir störf I þágu norsku leyniþjónustunnar. Sá fyrsti var dæmdur 1952 en hin- ir tæpum tuttugu árum siöar, eöa 1970. Nú voru góö ráö dýr. Norsk yfirvöld gátu ekki lengur neitaö starfsemi norsku leyniþjónust- unnar i Finnlandi og Sovétrikjun- um, en tóku þaö til bragös aö snúa vörn upp I sókn. Þvi á grundvelli laganna reynist sóknin oft besta vörnin. öryggisnefnd norsku stjórnarinnar ákvaö þann 28. júli aö biöja saksóknara aö ihuga ummæli majóranna sem brot á þagnareiði samkvæmt 69. laga- grein refsilaga. Saksóknari gaf samdægurs skipun um aö máliö skyldi fara i rannsókn. Arne Huuse, lögregluforingi viö Osló- lögregluna var settur til aö ann- ast stjórn rannsóknarinnar og málið hlaut forgangsmeöferð. Þann 3ja ágúst hófust réttaryfir- heyrslurnar yfir majórunum i sakadómi Oslóar. Öll tromp á hendi Þegar hér var komið sögu, hafði Sósialistiski Vinstriflokkur- inn öll tromp á hendi. Málgagn þeirra haföi flett ofan af tveimur mikilvægustu málum sumarsins, þótt bæöi væru komin til ára sinna. Engu að siöur var njósna- máliö I Sovétrlkjunum og ekki sist Loran C-máliö kjöriö hitamál i kosningabaráttunni. Það ber aö hafa i huga aö SV er „jókerinn” I kosningunum. Verkamanna- flokkurinn, sem hefur um 40% fylgis kjósenda, er mjög háöur sama eöa vaxandi fylgi SV (rúm 5% fylgis kjósenda), eigi hann að sitja aö áframhaldandi völdum. Þess vegna gat SV flaggaö þess- um tveimur málum, án þess aö óttast pólitiskt stóráhiaup krata. Viöbrögö norskra yfirvalda viö þessum uppljóstrunum voru einn- ig þess eölis, aö þau jööruöu við lagamisbeitingu, pólitiskar of- sóknir og almenna taugaveiklun. A þessu stigi málsins stóð þvi hin pólitiska stjarna SV hátt: Flokk- urinn haföi afhjúpaö svik og flá- ræöi fyrri ráðamanna og oröiö pólitiskt fórnarlamb norskra yfir- valda. En stjörnuhrapið kom fljótt, orsakaö af aöeins einum manni, Ivari Johansen. / Ivars þáttur Jóhansens Þegar réttaryfirheyrslurnar yfir majórunum hófust, var út- gáfustjórinn I norska Gyldendal, Ivar Johansen, eitt þýöingar- mesta vitniö i málinu. Þaö var hann, sem safnaði öllum gögnum fyrir Ny Tid og kom blaöamönn- unum á sporiö I sambandi viö njósnamáliö i Finnlandi og Sovét- rikjunum. Tveimur dögum áöur en vitnaleiöslur byrjuðu, haföi Ivari oröiö á I messunni. I viötali viö „Arbeiderbladet”-málgagn krata —, sagöist hann hafa full- kominn nafnalista yfir meölimi Eftirlitslögreglunnar, — saman- lagt um eitt þúsund manna. Þar aö auki haföi hann ýmis önnur gögn i fórum sinum, sem hann haföi safnað i mörg ár, og stæöi til aö opinbera fyrir almenningi. Þetta heföi hann betur látiö ósagt. Þegar Ivar yfirgaf Saka- dóm eftir fyrsta dag yfirheyrsln- anna, var hann ekki lengur vitni i málinu, heldur einn hinna ákærðu. Nú beiö lögreglan ekki boöanna. Undir forustu hins snar- ráöa lögregluforingja, Anne Huuse, var gerö skyndileit hjá Punktar um uppljóstranir, leka og meidyröi

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.