Þjóðviljinn - 10.09.1977, Qupperneq 5
Laugardagur 10. september 1977 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5
FISKVERÐIÐ ÍSLAND — FÆREYJAR:
30 — 44% af togara-
fiski í millistæröina
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna lætur einkamálgagn sitt,
Morgunblaðið, birta i gær
samanburð á verðlagi ýmissa
sjávarafurða hér og i Færeyj-
um. Kemst tainameistari sölu-
miðstöðvarinnar að þvi að fisk-
verðið hér á landi sé hærra en i
Færeyjum, þegar lögð hafa ver-
ið ýmis gjöld ofan á fiskverðið
sjálft hér. Heldur fulltrúi Sölu-
miðstöðvarinnar þvi fram að
engin slik gjöld séu til i Færeyj-
um. Það kann að vera rétt — en
reiknimeistarinn gerir heldur
ekki ráð fyrir öðrum sköttum.
Þjóðviljinn aflaði sér upplýs-
inga frá Klakksvik i Færeyjum i
gær, um fiskverðið þar. Verða
þær upplýsingar raktar hér i
stuttu máli með samanburði við
verðið hérlendis:
Þorskur.
Stórþorskur, yfir 70 sm., I.
flokkur er á 114,50 kilóið i Fær-
SH gerir
verðsamanburð,
en sleppir
veigamiklum
staðreyndum
eyjum, úmreiknað i isl. krónur á
gengi gærdagsins. Fiskverðið
hér er 98,- kr. kg. en með öllum
gjöldum ofaná er verðið héf
119,70 hvert kiló eða nokkru
hærra en i Færeyjum. Þess er
ekki getið i samanburði SH, að
allur stórþorskurinn fer i einn
flokk i Færeyjum, en hér er II.
flokkur af stórþorski og til dæm-
is fóru nærri 28% af netafiski i
Reykjavik i 2. flokk i fyrra. Það
segir þvi ekki alla söguna, að
bera saman verðið á stórþorski i
1. flokki.
Þá sleppir samanburðar-
meistari SH að greina frá þvi
mikla magni sem hér fer i milli-
flokk og sleppir þar af leiðandi
einnig að greina frá verðinu
fyrir þann flokk. t Færeyjum
eru greiddar 99,66 kr. fyrir kiló-
ið af millistærö, þe. 44-70 senti-
metrar, en 78 kr. kilóið hérlend-
is fyrir I. flokk millistærðar og
63 kr. fyrir kilóið i II. fl. milli-
stærðar. Millistærðin hér er að
lágmarki 10 sentimetrum lengri
en i Færeyjum eða frá 54-70
sentimetrar. Allur fiskur undir
54 sentimetrum hér á landi
nefnist smáfiskur og greiðast
hér 34 krónur fyrir hvert kiló
smáfiskjar.
Ýsa
Fyrir kiló af ýsu yfir 40 senti-
metrum greiðast i Færeyjum
nærri 108 kr. islenskar, en hér
eru greiddar ísl. kr. 86 fyrir
kilóið i I. flokki stórýsu, en 71 kr.
fyrir II. flokk.
Það er augljóst að saman-
burður á einstökum verð- og
stærðarflokkum fiskjar milli
landa getur verið mjög villandi
ef forsendna og annars er ekki
getið.
Samsetning aflans
Sérstaklega er mikilvægt i
þessu sambandi að geta þess i
svona samanburði hvernig
samsetning aflans er. 1 tölum
SH voru aðeins dæmi um verð
stórþorsks, en ekki millistærð-
arinnar. Þjóðviljinn kannaði
hlutfall millistærðarinnar af
heildarveiði togaranna á seinni
7 mánuðum siðasta árs. Útkom-
an varð þessi:
Hafnarfjörður 34,3%
Reykjavik 30,6%
ísafjörður 43,5%
Akureyri 33,3%
Neskaupstaður 36,1%
Akranes 37,7%
Þannig sést að mjög stór hluti
aflans er greiddur með 78 krón-
um en ekki 98 krónum hvert
kfló.
Þá fer einnig talsverður hluti
fiskjarins jafnan f II. verðflokk ,
eða upp i 11% af stórþorskinum i
Hafnarfirði, 6,3% i Reykjavlk,
28,6% af netafiski lenti i 2. verð-
flokki i Reykjavik o.s.frv. Þá
má geta þess að millifiskur i
afla handfærabátanna i Reykja-
vik var 42,5% i fyrra á umrædd-
um tima.
Töluvert um aflasamsetningu
eru úr fréttabréfi Framleislu-
eftirlits sjávarafurða. Þær svna
svo ekki verður um villst aö frá
leitt er að bera saman án skýr-
inga verðlag á einstökum stærð-
arflokkum — nema það þjóni
best málstað SH að veita vill-
andi upplýsingar?
J
Síðara bindið af
Kortasögu Islands
Þjóðviljinn hafði samband við
Kristján Benediktsson formann
menntamálaráðs og spurðist fyr-.
ir um hvaða bækur væru væntan-
legar hjá Menningasjóði á næst-
unni.
Stærsta verkið sem Menningar-
sjóður sendir frá sér á næstunni
er Kortasaga tslands2. bindi eftir
Harald Sigurðsson fyrrv. bóka-
vörðog er hún geysilega mikil og
dýrbók.Fyrrabindiðer að mestu
uppselt, aöeins til eitthvað af
örkum ennþá.
Þá koma út tvær bækur i
Starfsfólk
vantar í
SÍS verk-
smiðjur
Samkvæmt upplýsingum
Hjartar Eirikssonar, fram-
kvæmdastjóra Iðnaðardeildar
StS er nú mikill skortur á starfs-
fólki i Sambandsverksmiðjunum
á Akureyri. Er þetta einna mest
áberandi i sútunarverksmiðjuni,
en þó vantar fólk einnig til starfa i
öllum hinum verksmiðjunum.
Að sjálfsögðu leiðir þessi vinnu-
aflsskortur til minnkandi fram-
leiðslu verksmiðjanna. Þó mun
naumast hætta á að ekki takist að
framleiða upp i þá samninga,
sem þegar hafa verið gerðir en
ljóst er, að i ýmsum vöruflokkum
veröur ekki um meiri framleiöslu
að ræða en sem þvi svarar.
(Heimild: Sambandsfréttir)
—mhg
alfræðisafni Menningarsjóðs.
önnur er tslandssaga 2. bindi
eftir Einar Laxness en hin er Tón-
menntir 1. bindieftirdr. Hallgrim
Helgason.
Ný bók i bókaflokknum Lönd og
lýðirkemurútað þessu sinni. Það
er Ungverjaland og Rúmenia
eftir Þórunni Magnúsdóttur.
Konur og kosningar heitir for-
vitnileg bók sem Gisli Jónsson
menntaskólakennari á Akureyri
sendirfrá sér, ekki mjög stór bók
en sérstæð og merkileg að sögn
Kristjáns.
Ýmsar nýjar bækur eru
væntanlegar frá Bókaforlagi
Odds Björnssonar á Akureyri nú i
haust. Þjóðviljinn hafði samband
við Geir Björnsson og fékk eftir-
farandi upplýsingar:
1 tilefni af 80 ára afmæli bóka-
forlagsins gefur það út bókina
Þjóðtrú og þjóðsagnir sem áður
kom út 1908 og Oddur Björnsson
safnaði efni i. Aö þessu sinni
verður hún mjög aukin eftir
handritum frá Oddi. Þaö er Stein-
dór Steindórsson sem sér um út-
gáfuna.
Þá kemur út bökin islenskar
dulsagnir eftir Guðmund Þop-
steinsson frá Lundi, ýmsar
frásagnir þ.á.m. talsvert um
Margréti frá öxnafelli.
Kaupfélagsstjóratal kemur út
með æviskrám allra kaupfélags-
stjóra frá upphafi og myndum af
flestum þeirra. Andrés Kristjáns-
son er höfundur.
Nýlega samþykkti Háskóli
Islands ritsmið eftir George J.
Houser sem gilda til doktorsvarn-
ar. Heitir hún Saga hestalækn-
inga á tslandi, mikið verk sem nú
er verið aö prenta hjá forlaginu.
De nöjsomme eftir Poul Vad
kemur i þýðingu Úlfs Hjörvar.
Menningarsjóður gefur út núna
fyrirjólin úrvalúr ljóðum Daviðs
Stefánssonar i samvinnu við
norrænudeild Háskóla Islands^og
hefur ólafur Briem menntaskóla-
kennari á Laugarvatni séð um út-
gáfuna en áður hafa komið út i
þessum bókaflokki, sem einkum
er ætiaður til kennslu, úrval úr
ljóðum Bjarna Thorarensen og
Jóns á Bægisá.
Almanak Þjóðvinafélagsins og
Andvari koma út að venju og enn-
Tvær ljóðabækur koma út. Þær
heita Málaðá glereftir Guömund
L. Friðfinnsson og Þankagætur
eftir Katrinu Jósepsdóttur.
Þýddar sögur koma út eftir
Haraldur Sigurðsson
fremur er á döfinni aukin og
endurbætt Orðabók menningar-
sjóðs.
—GFr
Slaughter og Sidney Sheldon og
barnabækur eftir Armann Kr.
Einarsson, Hreiðar Stefánsson og
Ragnar Þorsteinsson.
—GFr
V erkakvennaf élagið
Snót Vestmeyjum
Mótmælir
ummælum
forstjóra
Fisk-
iðjunnar
Þjóðviljanum hefur borist eftir-
farandi ályktun Verkakvennafé-
lagsins Snótar vegna rangfærslna
um sildarsöltunarsamninga 1
Vestmannaeyjum:
„Vegna missagna Guðmundar
Karlssonar I Vísi þriðjudaginn 6.
sept. sl. þar sem hann segir enga
sildarsöltun i Vestmannaeyjum
vegna þess að samningaviðræöur
við verkalýðsfélögin hafi strand-
að, sér stjórn Verkakvennafé;
lagsins Snótar sig knúna til að
senda eftirfarandi leiðréttingu:
Siðan samninganefnd verka-
lýðsfélaganna sat fund með
vinnuveitendum, þar sem hún
kynnti launakröfur þeirra, hafa
engar samningaviðræður átt sér
stað, atvinnurekendur engin
gagntilboð lagt fram og þar af
leiðandi ekkert á það reynt hvort
samkomulag næðist um launa-
kjör við sildarsöltun eða ekki.”
Kólerufarald-
ur á Sýrlandi
DAMASKUS 8/9 Reuter —
Kólerufaraldur gengur nú I Sýr-
landi, og hafa meira en 40 ný
sjúkdómstilvik komið I ljós á slð-
ustu 24 klukkustundum. Þegar
hefur 61 maður látist úr kóleru á
Sýrlandi i sumar.
Heilbrigðisyfirvöld landsins
sögðu að 32 af nýju sjúkdómstil-
vikunum hefðu komið upp i borg-
unum Damaskus og Aleppo.
Heildartala þeirra, sem sýkst
hafa af sjúkdómnum siðan hans
varð fyrst vart i Sýrlandi i júni, er
nú komin upp i 1937. Einnig hefur
orðið vart við kóleru i Jórdaniu og
Libanon, en þar hafa ekki orðiö
nein dauðsföll. Vitað er um 60
kólerusjúklingga i Jórdaniu og
fjóra i Libanon. Sýrlensk heil-
brigðisyfirvöld, og fulltrúar al-
þjóöa heilbrigðisstofnunarinnar
hafa gert áætlun um baráttu gegn
þessum sjúkdómi i Sýrlandi.
Sambandið selur
hey til Fœreyja
Sambandið, (Búvöru-
dcild), hefur nú selt nokkuð
af heyi til Færeyja. Er það
afgreitt með Smyrli, beint
frá Seyðisfiröi. Fyrr á árinu
voruafgreidd þangað 15 tonn
og nú, hinn 10. sept., fara 17
tonn til viöbótar, auk þess,
sem búast má við meiri
afgreiðslu síðar.
I fyrra seldi Búvörudeildin
einnig hey til Færeyja, sam-
tals um 50 tonn. Búvöru-
deildin er eini aðilinn hér á
landi, sem selt hefur hey úr
landi, en verðið er ein króna
færeysk fob fyrir hvert kíló,
eða um 33,- kr. islenskar á
núgildandi gengi.
(Heimild: Sambandsfréttir)
—mhg
Nýjar bækur frá Bókaforlagi Odds Björnssonar:
Kaupfélagsstjóratal
og Saga hestalækninga