Þjóðviljinn - 20.09.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.09.1977, Blaðsíða 1
Heims- meistari! Enn hafa stjórnvöld ekki birt matsgerð þá sem f jár- veitinganefnd fékk m.a. í hendur um Víðishúsið. Enginn fjölmiðill hefur heldur fengið að fara inn í Víðishúsið til þess að ganga úr skugga um hvort ástand hússins er eins slæmt og glefsur úr skýrslum matsgerðar- manna svo og aðrar upplýsingar, er hér hafa birst í Þjóðvi I janum, benda til. Nú hefur Þjóöviljinn aflaö sér allmargra ljósmynda.af inn- viöum Viðishússins, bæöi af efstu hæöinni og úr kjallara . Nokkrar þeirra eru birtar i blaöinu i dag og gefa þær ekki ástæðu til að ætla aö nokkuð hafi verið ofmælt i fullyrðingum um ástand hússins. —ekh Lekt, fúið og myglað á efstu hæðinni Sjá 8.síðu Jón L. Árnason, nýr heims- meistari sveina i skák. Jón L. Árnason var i gær- kvöld krýndur heims- meistari sveina i skák. islendingar hafa þar meö eignast sinn fyrsta heims- meistara, ekki aöeins I skák heldur i fyrsta sinn i sögunni. Sigur Jóns markar þvi mikil timamót i skákmálum hér á landi og meö sigrinum hefur fengist ótviræöúr vitnis- buröur um gildi hinnar miklu útbreiöslu og áhuga á skák hér á landi. Jón L. Arnason sem er nemandi i Menntaskólanum i Hamrahlið hefur á undan- förnum mánuðum unnið hvert stórafrekið á fætur öðru á skáksviöunu. Hann varð skákmeistari tslands siöastliöna páska, þar eftir vann hann titilinn Norður- landameistari unglinga i skák og nú heimsmeistara- titil sveina. Sjá viðtöl á 9. síðu Þrí- burar frá Grímsey Þessir þriburar, Grimseyjar- strákar reyndar og veruleg við- bót viö íbúafjölda eyjarinnar, komu i heiminn á miövikudags- kvöld á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri. Foreldrar þeirra eru Sigrún Þorláksdóttir og Gylfi Gunnarsson, Sólbrekku. Vel skipuö móttökunefnd var til aö taka á móti piltum — faðir þeirra og amma, ljósmæöurnar Inga Magnúsdóttir og lngibjörg Björnsdóttir, fimm læknar og fleira fólk ágætt. Myndin sýnir móöur og þribura. OSOGÆ Þessi mynd sýnir ágætlega raka- bletti og lekatauma i lofti hússins — og loftlampa heillegan, enda eru lamparnir vatnsþéttir vegna lekans. _ekh HEIMAVISTARSKÓLINN í KRÍSUVÍK: 3 dauðaslys um helglna Þrjú dauðasiys urðu um helg- ina. Á baksiðu er sagt frá slysinu á Akranesi. A föstudaginn drukknaöi sjómaöur f höfninni á Raufar- höfn. Hann hét Hilmar Indriöa- son, 4Cára, lætur eftir sig konu og 5 börn. A laugardag lét 26 ára gamall maður, Jón Melstaö Stefánsson, lifið I bifreiöaslysi á Akureyri, hann lætur eftir sig konu og 3 börn. UÚÐVIUINN Þriðjudagur 20. september 1977 —42. árg. 207. tbl Hvort kemur fyrst rafmagn eða skólinn? Hártogun milli Rarik og ríkis- valdsins Athygli hefur vakið, að í Krísuvík stendur ónotuð og ófullgerð stór og glæsileg skólabygging, sem ríkið og sveitarfélög á Reykjanesi standa að og á að verða heimavistarskóli fyrir heimilislaus börn. Engu fé var veitt til skólans á fjárlögum þessa árs. Helgi Jónas- son, fræöslustjóri i Reykjanes- umdæmi, sagði i samtali viö Þjóðviljann i gær, að einn áfangi væri eftir i byggingunni, og hann mundi liklega kosta 50-70 miljón- ir. Þetta fé þyrfti að koma i einu lagi, þvi að erfitt væri að bjóða verkið út i smærri áföngum. Einnig þarf að rafvæða Krisu- vik, svo gerlegt sé að reka þar skóla. „Það var meiningin að leggja þangað raflögn frá Raf- magnsveitum rikisins”, sagði Helgi, ,,og skólabyggingin hefur strandað á þvi, að þetta þarf að gera um leið. Það hefur þvi ekki verið nein sérstök pressa á málið af hálfu sveitarfélaganna og rikisins, meðan ekki bólar á raf- strengnum.” Helgi sagði, að skólayfirvöld vildu ekki hefja starfrækslu skól- ans fyrr en rafmagnið væri tryggt, en Rarik teldi hinsvegar, að þörfin fyrir rafmagn yrði að koma fyrst, áður en rafstrengur Framhald á 14. siöu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.