Þjóðviljinn - 20.09.1977, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 20. september 1977
Vegna skorts á vinnufólki hafa hinir ólfklegustu menn verifl
fengnir I kolmunnavinnsluna I Geröum. Hér er Sveinn Sigurösson
viöskiptafræöingur i Seöiabankanum á iyftara. Hann býr I sama
húsi og Trausti verkfræöingur og lét tilleiöast aö taka sér fri I
bankanum og fara I fisk. Af ævintýraþrá, sagöi hann blaöamanni
Þjóöviljans.
Hér eru eftirþurrkunarkassarnir sem tvöfalda afköstin viö þurrkun kolmunnans.
Vestur af landinu er geysistór
koimunnatorfa sem sumir
fiskifræöingar hafa nefnt stærstu
torfu i heimi. Eins og stendur er
engin hætta á ofveiði á stofni kol-
munnans og þessi ágæti matfiskur
gæti því orðið veigamikiil þáttur I
fiskveiöum landsmanna á næstu
árum. í fyrra byrjuðu tiirauna-
veiðar á vegum sjávarútvegs-
ráöuneytisins austur af landinu
og fyrir uþb. 10 dögum hóf togar-
inn Runólfur á ný veiðar á vegum
ráðuneytisins en að þessu sinni i
stóru torfunni vestur af landinu.
Aflanum er iandaö i Kefiavík og
fiuttur i Fiskverkunarstöð Guð-
bergs Ingólfssonar í Gerðum I
Garði og er þar unninn i skreiö og
frystur. Það er Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins sem stendur
fyrir þessari tilraunavinnsiu og
hefur fengiö til hennar tæplega 25
miljón króna fjárveitingu. Þjóö-
viijinn fór suöur i Garð fyrir helgi
til að kynna sér vinnsiuna.
Dregur hann stóra
björg í bú?
MYNDIR OG TEXTI: GFr
Við náðum tali af Trausta
Eirikssyni vélaverkfræðingi á
skrifstofu fiskverkunarhússins en
hann er deildarstjóri Rannsókn-
arstofnunar fiskiðnaðarins. „Það
er laglegt að vera orðin útgerðar-
maður”, sagði hann að bragði. Ég
verð að vakna kl. 6,30 á hverjum
morgni og safna saman fólkinu og
er svo að til miðnættis oftast. Það
sem háir okkur aðallega er að
enginn virðist vilja vinna hjá okk-
ur. Við þurfum 12-13 manns en
þrátt fyrir auglýsingar gefa sig
sárafáir fram. Við erum nú hérna
5-6 úr Rannsóknarstofnuninni,
nokkrir strákar úr Fiskvinnslu-
skólanum og ýmsir vinir og
vandamenn minir úr Reykjavik
til að bjarga ástandinu. A meöan
hef ég heyrt að um 200 konur af
þessum slóðum vinni við skúring-
ar á Vellinum.
I fyrra unnum við um 13 tonn af
kolmunna i skreið sem var seldur
i hundafóöur til Sviþjóöar. Þá var
Runólfur er á veiðum á Dorn-
banka mitt á milli Grænlands og
Islands og er svona 4 daga i túrn-
um. Hann fær 25 tonn i hali og tek-
ur hvert hal 3-4 tima. Þetta er
mikill fiskur sem við verðum að
isa i kassa.
Við tökum fiskinn fyrst i mót-
töku sem er stiuð af i vinnslusaln-
um og kæld. Siðan er hann settur
i þvottavél, I flokkunarvél og svo i
hausunar- og slóghreinsi vél. Þá
erhann aftur settur i þvottavél og
siðan ýmist þurrkaður eða fryst-
ur.
Vélabúnaður er fenginn að láni
eða leigður. Við höfum td. fengið
lánaða frá Þýskalandi Bader 34,
sem er sildarvinnsluvél, sem
hægt er að nota við kolmunna-
vinnsluna. Ennfremur höfum við
fengið lánaða frá Noregi sérstaka
fiskþvottavél sem „vibrerar”
fiskinn fram af sér og er vel fallin
til að hreinsa þær lifrartæjur sem
hanga á honum. Aðrar fisk-
þvottavél höfum við frá Vél-
smiðju Heiðars og flokkunarvél
frá Stálvinnslunni.
Svo er vél, fundin upp af mér,
sagði Trausti, sem tekur
innan úr fiskinum slógið
án þess að taka hausinn
af. Þannig vélar eru að
visu til erlendis en þær eru dýrar.
Þessi er ódýr og hefur verið sótt
um einkaleyfi á henni. Tilgangur-
inn með þvi að taka slógið en ekki
hausinn er sá að hundar i Sviþjóð
ættu að geta etið hausinn eins og
annað og reynslan með skreiðar-
sölu til Nigeriu er sú að þeir
kaupa þorkhausa á næstum sama
verði og annað og mætti því ætla
að þeir vildu kolmunnaskreið
með hausnum á. Með þessu móti
nýtist um 80% af fiskinum i stað
60% áður.
Þá erum vio einmg meo ser-
stakan útbúnað til að tvöfalda
nýtinguna á saltfiskþurkunar-
klefanum þar sem kolmunninn er
þurrkaður. Þar höfum við smiðað
sérstaka eftirþurrkunarkassa.
Það er greinilegt á Trausta að
hann er fullur bjartsýni á framtið
kolmunna fyrir islenskt þjóðarbú
en ætlunin er að Runólfur stundi
þessar veiðar i 2-3 rnánuði. Sim-
inn gengur látlaust hjá honum
eins og vera ber i annasömu
fyrirtæki. -GFr.
Haraldur Antonsson starfsmaöur Rannsóknarstofunar fiskiönaöar-
ins heldur á tveimur vænum kolmunnum.
Sfminn gengur látlaust hjá Trausta Eirikssyni deildarstjóra I Rann-
sóknarstofnun fiskiönaðarins á skrifstofunni I Fiskverkunarstöö
Guöbergs i Geröum
Kristinn Vilhelmsson verkfræöingur hjá Rannsóknarstofnuninni
var á kafi I fiskvinnu þegar Þjóöviljann bar aö garöi á föstudag.
hún unnin i fjórum fiskvinnslu-
stöðvum en það gafst ekki nógu
vel og var þessi vinnsla yfirleitt
látin sitja á hakanum fyrir ööru.
Nú i ár höfðum við augastað á að
vera i einu húsi og standa að
þessu sjálfir. Við vorum lengi að
hugsa um að fá inni hjá Haraldi
Böðvarssyni og Co á Akranesi en
þar fylltist þá allt af skreið sem
ekki var hægt að selja svo að ekki
varð úr. Að lokum duttum við of-
an á þetta fiskverkunarhús en ór-
aði ekki fyrir þvi að svona erfitt
væri að fá fólk i vinnu.
1 fyrra barst 100 tonna pöntun á
kolmunna, verkuðum I skreið, frá
Nigeriu en svo stoppaðist öll sala
þangað. Nú ætlum við okkur að
selja mestalla skreiðina þangað.
Þá er Islenska útflutningsmið-
stöðin tilbúin að selja hausaðan
og slógdreginn kolmunna frystan
til Portúgals og tökum við þvi
fegins hendi. Fleiri möguleikar
eru fyrir hendi.
Heimsókn í GERÐAR þar sem tilraunavinnsla fer fram