Þjóðviljinn - 20.09.1977, Page 5
Þriðjudagur 20. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Sighvatur nýtur pabbans, leift- Jón Baldvin heggur ótt og titt i
toga gömlu kratanna sem eftir allar áttir en hefur fáa að baki.
eru.
Prófkjörsraunirkrata á Vestjjördum:
Faðir Sighvats
útbjó kjörgögn
og Jón kærði
Prófkjör krata taka nú á sig æ
skringilegri myndir og er þar
hart barist um menn en þvi
minna um málefni. Á Vestfjörð-
um fara þeir Sighvatur Björg-
vinsson ogJönBaldvin Hannibals-
son hamförum og hefur það geng-
ið svo Iangt að senda varð sendi-
nefnd frá höfuðstöðvunum að
sunnan til að stilla til friðar. Hafði
komiðf ljós að Björgvin Sighvats-
son, faðir annars frambjóðand-
ans, hafði gengið frá kjörseðlum
og þegar upp komst og hvernig
hann hafði fariö að þvi varð Jón
Baldvin æfareiður og kærði til
flokksstjórnar suður og varð að
senda sáttaenfnd vestur.
Björgvin Sighvatsson hefur um
drabil verið einn helsti baktjalda-
makkari Alþýðuflokksins á Vest-
fjöröum og er nú einn af fáum
eftirlegukindum úr gamla krata-
veldinu sem þar var. Leggur
hann nú allt i sölurnar fyrir póli-
tiskt framhaldslif Sighvats,
einkabarns sins, og nýtur stuðn-
ings gömlu kratanna.
Hann er skólastjóri Barnaskól-
Kvikmynd
um Alcopley
Þriðjudaginn 20. september kl.
20.30 verður sýnd kvikmyndin
„Alcopley i Japan” sem er gerð
af japanska myndlistarmannin-
um Shiryo Morita, i fundarsal
Kjarvalsstaða. Fram I henni
koma m.a. Nina Tryggvadótt-
ir og aðrir listamenn. Myndin er
ca. 25 minútna löng og án texta,
en Alcopley mun sjálfur segja
frá. Aðgangur er ókeypis.
ans á Isafirði og hefur lengi haft
inni á skrifstofu hjá sér forláta
fjölritunartæki sem kennarar
skólans hafa engan aðgang haft
að en þurft þess i staö að notast
við gamalt sprittskrapatól I kjall-
aranum.
Hvað um það? Vegna stöðu
sinnar innan Alþýðuflokksins
hafði nú Björgvin styrka hönd i
bagga með framkvæmd próf-
kjörsins og kom fjölritarinn i
barnaskólanum loks i góðar þarf-
ir. Þar voru kjörgögn öll fjölrituð.
Jón Baldvin sem er fyrir annað
þekktur en skapstillingu og hóg-
værð i pólitiskum framamálum,
undi þessu illa og taldi á sinn hlut
gengið. Kærði hann formlega suð-
ur og taldi i fyrsta lagi skilgrein-
ingu ábótavant hverjir mættu
kjósa, i ööru lagi hvar kjörstaðir
ættu að vera, i þriðja lagi gerð
seðilsins og i fjórða lagi hina
mestu óhæfu aö pabba Sighvats
skildi falið að útbúa kjörgögnin i
barnaskólanum.
Uröu nú sviptingar harðar og
lauk þéim svo að Kjartan
Jóhannsson og Eyjólfur Sigurös-
son voru sendir fljúgandi til Isa-
fjarðar til að stilla til friðar. I
samtali við Þjóðviljann sagöi
Kjartan að það hefði tekist á far-
sælan hátt.
Þetta kostulega sjónarspil
heldur nú áfram fyrir vestan og
ganga rógmálin á vixl. Ekki er
rifist um framkvæmd jafnaðar-
stefnunnar, heldur um eitthvað
allt annað. Fylgi Jóns Baldvins
byggist aðallega á nokkrum
lausamönnum, og vildarmönnum
en Björgvinheldur fast um gömlu
mennina i Alþýöuflokknum. Þeir
eru ihaldssamir og litt hrifnir af
framagosanum Jóni Baldvin.
-GFr.
Æskulvðsnetnd Alþýðubandalagsins
Ráðstefna ungra
Alþýðubandalagsmanna
Helgina 8-9 okt. n.k. verður haldin ráð-
stefna ungs fólks í Alþýðubandalag-
inu, á Akureyri, en hún er jafnframt
opin öllum Alþýðubandalagsmönnum.
Ráðstefnan hefst á Laugardagsmorg-
ninum 8. okt. og lýkur síðdegis á
sunnudegi.
Meginviðfangsefni
ráðstefnunnar
Meginviðfangsefni ráðstefnunnar
verða málefni landsfundar Alþýðu-
bandalagsins og skipulagsmál ungs
fólksinnan Alþýðubandalagsins. Tvær
framsöguræður verða fluttar, önnur
um íslenska atvinnustefnu en hin um
skipulagsmál.
Fyrirhugað er að þátttakendur frá
Stór-Reykjavíkursvæðinu, Reykjanesi
og Suðurlandi, fari norður með rútu
síðdegis á föstudegi 7. okt. og taki upp
í á leiðinni þátttakendur frá Vestur-
landi.
Þáttökugjald er krónur 1500 fyrir ein-
stakling. Gögn varðandi ráðstefnuna
verða send til þeirra sem tilkynna
þátttöku með nægum fyrirvara. Tekið
verður á móti tilnefningum í sima
17500 Reykjavík, alla virka daga f rarr^
að ráðstefnunni.
Æslulýðsnefnd Alþýðubandalagsins
ARMOR
RITFÖNG NÝKOMIN
FILMOR kalkipappír fyrir alla
vélritun. Smitar ekki hreinar
hendur — hrein afrit
Frábærir Isofilm leturborðar
fyrir IBM — og allar aðrar raf-
ritvélar.
Einnig ARMOR leturborðar í aII-
ar skrifstofuvélar.
DIN-leturborðar, Addo X, Odhn-
er, Precisa, Walther, Olivetti,
Smith Corona, Totalia.
Reyndir ritarar nota ARMOR ritföng.
Heildverslun
Agnar K.
Hreinsson hf.,
Bankastræti 10 — Simi: 16382
Pósthólf 654 — R.
Vönduð gólfteppi
Litaver Grensásvegi 18
Fjölmargar lausnir bárust við auglýsinga-
myndagetraun 14. Rétt lausn gátunnar er:
„Vönduð gólfteppi, Litaver, Grensásvegi 18.”
Úrréttum lausnum var dregið út nafn Guðrúnar
Friðriksdóttur, Bólstaðarhlið 52 Rvik., og biðj-
um við hana að gera sér leið hingað i Siðumúl-
ann og vitja verðlaunanna.
1