Þjóðviljinn - 20.09.1977, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 20. september 1977
11
Sjón er sögu ríkari”
Þrátt fyrir læstar
dyr gefst nú kostur
á að sjá „reifara-
kaup” stjórnarinnar
Eins og fram hefur komiö i
fréttum eru allar dyr Viöishúss-
ins aö Laugaivegi 166 harölæstar
og svo lagt fyrir aö enginn fái aö
lita þessa eign aö innanveröu,
þótt rikiö hafi ákveöiö aö festa
kaup á henni og marga fýsi aö
vita hvort ástand hennar er eins
slæmt og sagnir herma.
Dagblaöiö hefur meöal annars
reynt aö komast inn i húsiö og sl.
fimmtudag greinir þaö frá viötali
viö forstjóra Viöis, Guömund
Guömundsson. Kemur þar skýrt
fram aö forstjórinn viidi „engan
óþarfa umgang um húsiö”.
Dagblaðið spyr þá:
- „Hefurðu eitthvað að fela,
Guðmundur, fyxst við megum
ekki fara inn i húsið?”
—„Nei ég hef ekkert að fela,
nefndir frá þvi opinbera hafa
skoðað húsið og lýst sig ánægðar
og mér likar ekki hvernig Dag-
blaðið hefur skrifað um málið”.
Þjóðviljinn hefur að undan-
förnu birt glefsur úr matsgerð
þeirri, er fyrir liggur um ástand
Viðishússins, en stjórnvöld hafa
ekki fengist til að birta opinber-
lega i heild. Þar kemur fram að
húsið er metið lakara en fokhelt
og meira eða minnna ónýtt eða
óhentugt. 1 viðtali við Geir Gunn-
arsson, alþingismann, fulltrúa i
fjárveitinganefnd, sl. fimmdudag
i Þjóðviljanum,er að finna eftir-
farandi lýsingu á ástandi hússins:
,,í Þjóðviljanum hafa áður birst
nokkrar lýsingar á húsnæðinu, og
eins og þar hefur verið skýrt frá
þarf til viðbótar 260 milj. kr.
kaupverði að verja liklega 380
miljónum kr. til endurbóta á hús-
næðinu, vegna þess að þaö er I
hörmulegu ástandi, áberandi
óvandaö frá upphafi, illa farið,
mikill leki á þaki, einangrun ónýt,
fylling undir gólfi sigin, gluggar
ónýtir, lyftur vantar, bilastæði
ónóg, aðkeyrsla ófullnægjandi,
MÉMiiÉr ..... i
. -< ta
Gólfiö er allt i lekabiettum og viöa poliar.
Hiuti af loftinu á efstu hæöinni,rakablettirnir eru nær samfelldir og lekataumarnir hvar sem litiö er.
gólf óslétt og mishá, húsið er
hornskakkt, svo til alla hitalögn
og ofna verður að fjarlægja, raf-
magnstöflur ónógar og úreltar,
núverandi raflagnir nýtast ekki,
hreinlætisaðstaöa getur ekki tal-
ist fyrir hendi. Húsið er aiisekki
taliö henta sem skrifstofuhusnæöi
og hlýtur þvi að nýtast illa tii
þeirra nota.
í skýrsium um Viðishúsiö kem-
ur aðeins fram eitt atriði sem
virðist vandað:^ Loftlampar á 5.
hæö eru vatnsþéttir, en það helg-
ast af þaklekanum.”
Þjóðviljinn hefur nú aflað sér
ljósmynda úr Viðishúsinu og
munu þær án efa hjálpa lesendum
til þess að glöggva sig betur á
ástandi hússins heldur en hægt er
að gera af framangreindri lýs-
ingu, þótt nógu svakaleg sé I
sjálfu sér. Myndirnar eru alveg
nýjar af nálinni.
Allir i stjórnarliöinu eru ekki
jafn ánægðir með kaupin á Viðis-
húsinu eins og formaður fjárveit-
inganefndar, Ingi Tryggvason.
Flokksbróðir hans Halldór E. Sig-
urðsson, ráöherra, sagði i viðtali
við Dagblaðið fyrir helgina að
„hann myndi ekki vilja kaupa
þetta hús fyrir sig eða aðra”, og
talar þar maður sem vit hefur á
húsakaupum, eins og minnt var á
i útvarpi.
Þá hefur þing Sambands ungra
Sjálfstæðismanna gagnrýnt
Viðiskaupin, bæði hvernig háttaö
er samningsgerð og meðferð
málsins yfirleitt. Þing SUS skor-
aði á stjórnvöld að birta mat
gerðina.
Þess skal að lokum getið að
viðtalinu við Geir Gunnarssoi
sem áður er vikið aö, kemur frai
að gera má ráð fyrir að fermetei
inn I Víðishúsinu uppgeröu ser
skrifstofuhúsnæði muni kosta ur
130 þúsund krónur, en i nýbygf
ingu 110 til 120 þúsund kr. miöai
við byggingarvisitölu 135. -eki
Kjallarinn er í niöurnföslu og dyr svo iágar aö varla er
manngengt.
Húsiö er illa byggt frá upphafi og engu líkara en undir-
stööurnar séu aö gefa sig f kjallaranum er marka má
af bungunni á veggnum.
Veggir á 5. hæöinni eru sundursprungnir, múrhúöunin
tekin aö leka niöur i taumum og mygluskán tekin aö gróa
á sprungubörmunum.
iti&' 1