Þjóðviljinn - 20.09.1977, Qupperneq 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriOjudagur 20. september 1977
Fyrirsætur
Myndlistaskólinn i Reykjavik óskar að
ráða fyrirsætur (model), karla og konur.
Fólk á öllum aldri kemur til greina. Helst
þrekið.
Upplýsingar i skólanum frá klukkan 13:30
-18:00.
Myndlistaskólinn i Reykjavík, Mimisvegi
15. Simi 11990.
Fóstra
óskast til starfa frá 1. mai á dagheimilið
Völvuborg. Upplýsingar veitir forstöðu-
kona, simi 73040
Ríkisendurskoðun
óskar að ráða i stöðu i tolladeild. Umsókn
ir með upplýsingum um aldur, menntui
og fyrri störf óskast sendar rikisendur
skoðun, Laugaveg 105.
Einnig óskast sendill hluta úr degi.
Norska
til prófs i stað dönsku verður kennd i Mið-
bæjarskcla i vetur. Nemendur mæti i stofu
11 sem hér segir: 4. 5. og 6. bekkur þriðju-
daginn 20. sept. kl. 18.
7. 8 og 9. bekkur miðvikudaginn 21. sept.
kl. 18.
Framhaldsskólastig og túdentspróf sama
dag kl. 19.
Innritun í almenna flokka fer fram 26. og
27. sept.
Námsfl. Reykjavíkur
“V— “■
Til leigu í miðbænum
160 fm. hæð
Stór og bjartur salur + tvö herbergi á
annari hæð til leigu i miðbænum. Hentugt
fyrir teiknistofur, skrifstofur og fleira.
Upplýsingar i sima 25252 og 20359 (á
kvöldin).
Alþýðubandalag Suðurnesja
Alþýöubandalag Suöurnesja heldur fund í Vélstjórahúsinu viö Hafnar-
götu þriðjudaginn 20. september kl. 20.30. Uppstillingarnefnd ræðir
vinnubrögð við uppstillingu á framboðslista Alþýðubandalagsins i
Reykjaneskjördæmi.
Styrktarmannakerfi Alþýðubandalagsins
Flokksmenn eru vinsamlega minntir á að greiða framlag sitt i
styrktarmannakerfi flokksins. Greiða má framlagið með giróseöli inn
á hlaupar. 4790 i Alþýðubankanum eða senda þaö til skrifstofu flokksins
að Grettisgötu 3.
Auglýsing
í Þjóðviljanum ber ávöxt
Tölva
Framhald af bls. 10
Um þá svokölluðu samninga
sem IBM lætur viðskiptamenn
sina skrifa undir, gildir hin hnit-
miðaða regla: „Take it or leave
it”! Samningarnir eru efnilega
einhliða, eins og IBM setur þá
upp. Viðskiptamenn fá þar engu
um breytt hvorki um verð né önn-
ur ákvæöi.
I þeim löndum sem IBM á i
raunhæfri samkeppni og fær að-
hald af hálfu stjórnvalda og
tölvunotenda eru einhliða að-
ferðir af ofangreindu tagi óhugs-
andi.
Hvað er til ráða?
Fyrsta skilyrði til þess að Is-
lendingar geti sjálfir ráðið tölvu-
málum sinum er að menn geri sér
fyllilega grein fyrir þeirri
einokunaraðstööu sem IBM hefur
og fyrir ólögmæti núverandi við-
skiptahátta og ivilnana sem þetta
fyrirtæki býr við.
Annað skilyrði sem þarf að
vera fyrir hendi er að menn
skynji óhagræðið sem felst i
þeirri einokunaraðstöðu sem að
ofan greinir.
Þriðja og siðasta skilyrði sem
þarf að vera fyrir hendierað
ákvörðunaraðilum, þ.m.t. opin-
berum embættismönnum verði
settar fastar skorður við meðferð
slikra mála til þess að hindra
hlutdrægni i þágu erlendra fyrir-
tækja.
Það er ekki fyrr en a.m.k. þess-
um skilyrðum er fullnægt að hægt
veröur að vinna skipulega að upp-
stokkun islenskra tölvumála.
Meðal þeirra aðgerða semætla
má að heföu jákvæð áhrif á þessi
mál, má nefna:
1. Um leið og sérréttindi IBM
varðandi rekstur útibús á Is-
landi væru afnumin og fyrir-
tækinu lagöar sömu skyldur á
herðar og öðrum innlendum
fyrirtækjum, ætti að stofna
lánasjóðtil að fjármagna kaup
á tölvum og skyldum tækjum.
Slikur sjóður ætti að starfa á
svipuöum grundvelli og með
svipuðum markmiðum og aðrir
fjárfestingarsjóðir til eflingar
Islenskum atvinnuvegum,
þannig að aðgangur að lánsfé
væri ekki bundinn ákveðnum
framleiðendum og tryggö væri
hagkvæm nýting lár.sfjár. Við
sjóðinn gæti einnig tengst
ráðgjafarþjónusta sem myndi
aðstoða væntanlega tölvukaup-
endur við samnmgsgerð og
skipulagningu tölvukerfa.
Alþýöubandalagið í Reykjavík
Hvert viljum við að
Reykjavík stefni?
Almennur félagsfundur
í kvöld
Alþýðubandalagið i Reykjavik heldur almennan
félagsfund i kvöld miðvikudaginn 21. septem-
ber kl. 20.30 ÍLindarbæ.
DAGSKRA:
1. Kjör uppstillinganefndar fyrir iandsfund
Alþýðubandalagsins.
2. Skipun starfshópa unt landsfundarmál.
3. Borgarmál.
Hvert viijum við sið Reykjavik stefni?
FfutUr verða 3 stuttar framsöguræður en að
öðru leyti verða frjálsar umræður og svarað
fyrirspurnum.
Starfshópar verða myndaðir um
einstök verkefni.
Umræðustjóri verður Sigurður Tómasson.
Þorbjörn Broddason: Verkefni og val-
Málshef jendur: kostir í stjórnmálum borgarinnar.
Sigurjón Pétursson: Atvinnulíf á Adda Bára Sigfúsdóttir: Markvisst
undanhaldi.—íhaldsöf I í varnarstöðu. starf á komandi vetri.
Bára Siguröur
2. Horfið verði frá einhliöa rekstri
stórra tölvumiöstööva. Fram-
farir á sviði tölvutækni gera nú
dreifingu tölvukosts talsvert
hagkvæmari. Slik dreifing
minnkar m.a. áhættu á sóun
sem fylgir oftast rekstri stórra
miðstöðva. Dreifing á tölvu-
búnaði eykur heildaröryggi
tölvukerfanna enda verða áhrif
af völdum bilana, mistaka og
skemmda minni, en þegar um
er að ræða miðstöðvartölvu.
Dreifing tölvubúnaðar er auk
þess i fullu samræmi við þá
valddreifingu sem lýðræði
landsins á að byggja á og
minnkar um leið áhættuna á
nótkun stórra upplýsingabanka
um einstaklinga.
3. Unnið verði markvisst að þvi
að bæta samningsaðstööu
tölvunotenda gagnvart seljend-
um. 1 þvi sambandi má nefna
notkun fiytjaniegra forrita
(þ.e. forrit sem ganga á tölvum
mismunandi framleiðenda),
vfðtæka tæknimenntun tölvu-
manna (þ.m.t. menntun á sviði
viðhalds og kerfisforritunar)
og fagiega ráögjafarþjónustu
handa tölvunotendum (sjálf-
stæða i tengslum við opinbera
tölvumiðstöð eða i sambandi
við umræddan lánsjóð).
4. Hafi verði skipuleg skráning á
þeim tölvubúnaði sem er til i
landinu.Slik skráning skal að-
stoða við stefnumörkun við
ráðgjöf og vera almennum
tölvunotendum til hagræðis
varðandi samvinnu þeirra á
milli.
Með þökk fyrir birtinguna
Elias Daviösson 12.9.77.
Heimavistarskóli
Framhald af bls. 4.
frá samveitu yrði lagður. Þarna
virðist þvi komin upp harla ein-
kennileg þverstæða i „kerfinu”.
Helgi taldi, að ef fjármagn
fengist á næsta ári, ætti aö vera
hægt að hefja starfsemi skólans
haustið ’78. I Reykjanesumdæmi
er nú enginn heimavistarskóli.
Heigi sagði, að ekki væri nóg meö
aö erfitt væri að koma heimilis-
lausum börnum fyrir, heldur væri
viða erfitt að tryggja þeim skóla-
göngu. Heimavistarskólar heföu
verið lagðir niður viða um land og
heimanakstur tekinn upp i stað-
inn.
Að lokum sagði Helgi, að allir
skólastjórar i Reykjanesumdæmi
væru sammála um það, að skól-
anum i Krisuvik þurfi að koma i
gagniö sem allra fyrst.
eös
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sala á aögangskortum
stendur yfir.
Fastir frumsýningagestir,
vinsamlegast vitjiö korta yðar
sem fyrst.
Miðasala 13,15 til 20. Simi 1-
1200.
I.KIKFf-lAr, 2(2 a2
REYKIAVIKUR
GARY KVARTMILJÓN
4. sýning fimmtudag kl. 20:30.
Blá kort gilda
5. sýning laugardag. Gul kort
gilda.
SKJALDHAMRAR
144. sýning föstudag kl. 20:30.
Miðasala i Iðnó kl. 14:00 til
19:00. simi 16620.
Askriftarkort eru afgreidd á
skrifstofu L.R. kl. 9:00 —
17:00. Simar 13191 & 13218.
Siðasta söluvika.
Iðnkynning
Framhald af 16. siðu.
arári verður slitið 2. október.
Flestir þeirra, sem ávörp fluttu
við opnun Iðnkynningar i gær,
minntust Skúla fógeta og innrétt-
inganna, sem mörkuðu upphaf
þess, að Reykjavik óx úr litiu
þorpi I höfuðborg tslands.
Borgarstjóri minnti lika á það, að
iðnaðurinn i Reykjavik væri sá
atvinnuvegur, sem hefði flest
„mannár” i borginni. Mannár er
sá tími, sem einn maður vinnur á
einu ári.
Liklegt má telja, aö Iðnkynning
i Reykjavik sé umfangsmesta
kynningarstarf sem framkvæmt
hefur verið á einum stað á Is-
landi. Megintilgangur Iðnkynn-
ingar i Reykjavik er kynning á
framleiðsluiðnaði, þjónustuiðn-
aði og byggingariðnaði sem starf-
ræktur er i Reykjavik og að auka
sölu á islenskum iönvarningi og
stuðla að jákvæðri afstöðu al-
mennings til islensks iðnaðar, svo
menn geri sér grein fyrir þeirri
miklu atvinnu sem hann veitir og
hve mikið hann- sparar af gjald-
eyri.
-eös