Þjóðviljinn - 20.09.1977, Qupperneq 16
Flugeldagerðin á Akranesi
sprakk í
loft upp
• Eigandinn lést, drengurinn enn
í lífshættu
# Óljóst hvað sprengingunni olli.
Liöan litla drengsins sem
slasaöist i sprengingunni á
Akranesi á sunnudagsmorgun
var óbreytt i gærkvöldi og var
hann þá enn I lifshættu.
Drengurinn, sem er 4ra ára,
var meö fööur sfnum Helga
Guömundssyni viö flugelda-
geröina, þegar sprengingin varö
og lést Helgisíöar um daginn af
völdum sára sinna.
Helgi var eigandi Flugelda-
geröarinnar h.f. og hafði verið
að störfum i verksmiðjunni þá
um morguninn.
1 gær voru rannsóknar-
lögreglumenn og fulltrúar
öryggiseftirlitsins að störfum á
Akranesi, og sagði Jón
Sveinsson, fulltrúi bæjarfógeta
þar, að rannsókninni miðaði vel
eftir atvikum, en erfitt er um
vik þar sem húsið jafnaðist nær
algerlega við jörðu.
Enn er þó óljóst hvað olli
sprengingunni sem var svo
mikil að stjórtjón varð á
nærliggjandi húsum, bilum og
bátum, þegar braki úr húsinu
rigndi niður og sterk loftþrýsti-
bylgja braut rúður sem að verk-
smiðjunni sneru.
Fyrir mildi komst eldurinn
ekki i púðurgeymslu
verksmiðjunnar sem var við
hlið hússins, en þar voru geymd
um 300 kg. af púðri.
Flugeldagerðin h.f var
staðsett inni i miðju ibúðar-
hverfi við Esjubraut. Ibúar
hverfisins höföu mótmælt stað-
setningu hennar þegar hún var i
byggingu, en öryggiseftirlit
rikisins samþykkti byggingu
t gær var unniö aö hreinsun á slysstaönum, en eftir sprenginguna stóö eitt múrbrot eftir þar sem áöur
var Flugeldageröin h.f. Hægra megin á myndinni má sjá púöurgeymsluna.
Menn voru önnum kafnir viö aö setja nýjar rúöur I þær húshliöar
sem að verksmiöjunni sneru.
hússins sem var byggt sam-
kvæmt viðurkenndum dönskum
teikningum.
Jón Sveinsson sagðist ekki
vita hvernig eftirliti öryggis-
eftirlitsins með verksmiðjunni
var háttað, en hún var
hönnuð með sérstöku tilliti til
eld- og sprengihættu.
Fjárhagslegt tjón varð mjög
mikið, og munu um 20 hús, bilar
og bátar hafa orðið fyrir
skemmdum. Rúður i nær-
liggjandi húsum brotnuðu, þil-
og loftklæðningar létu undan og
þök og bilar skemmdust af
völdum braks.
Enginn annar en þeir feðgar
urðu þó fyrir slysum, en
skammtfrá voru börn að leik og
umhverfis þau rigndi brakinu.
DIOÐVIUINN
Þriöjudagur 20. september 1977
Aðalsimi Þjóðviljans er 01333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfs-
menn blaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaðaprent 81348.
81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-
skrá.
lönkynning
í Reykjavík
opnuö í gær
lönkynning í Reykjavík
var opnuð i gær í Austur-
stræti. Talsverður mann-
fjöldi var þar viðstaddur í
fallegu haustveðri. Mið-
bærinn var skreyttur, fán-
um prýddur og með hátíð-
arbrag.
A undan athöfninni lék Lúðra-
sveit Reykjavikur, en siðan bauð
Albert Guðmundsson, formaður
Iðnkynningarnefndar Reykjavik-
ur, gesti velkomna og flutti'
ávarp. Einnig fluttu ávörp þeir
Birgir Isl. Gunnarsson borgar-
stjóri, Hjalti Geir Kristjánsson
formaöur verkefnisráðs Islenkrar
iðnkynningar og Björn Bjarnason
formaður Landssambands iðn-
verkafólks, sem setti iðnkynning-
una. Kór Söngskólans i Reykjavik
söng nokkur ættjarðarlög á milli
atriða, undir stjórn Garðars
Cortes.
Iðnkynningin i Reykjavik er
lokaþáttur Iðnkynningarársins.
Dagskrá Iðnkynningar er fjöl-
breytt og má m.a. nefna Iðn-
minjasýningu i Arbæjarsafni,
Iðnkynningu i Laugardalshöll,
sem verður opnuð 23. september
og verður aðalsýningarstaður og
miðpunktur Iðnkynningarinnar,
og Iðnnámskynningu i Iðnskólan-
um 23. og 24. sept..,,Dagur iðnað-
arins” verður svo 30. september
og hefjast hátiðahöld þann dag
við styttu Skúla fógeta. Iðnkynn-
ingu I Reykjavik og Iðnkynning-
Framhald á 14. siöu
Kjaradeila BSRB:
Von á sáttatillögu
fyrir miönættið
Fyrir miönætti I nótt á aö koma
fram sáttatillaga frá sáttanefnd I
kjaradeilu BSRB. Samninga-
nefnd BSRB kemur saman á fund
þegar á morgun, miövikudagytil
aö taka afstööu til tillögunnar, aö
þvi er Haraldur Steinþórsson
tjáöi blaöinu I gær.
Sáttatillagan verður prentuð
um leið og hún hefur komið fram i
Asgarði og henni dreift þannig til
félagsmanna. Þegar á föstudag
hefjast fundir um tillöguna og eru
þeir fyrstu á Patreksfirði, Akur-
eyri, Neskaupstað og Siglufirði.
Atkvæðagreiðsla fer fram 2. og
3. október og gæti komið til verk-
falla þann ellefta október ef
sáttatillagan er felld.
!■>• /
Fjöldi manns var samankominn I Austurstræti viöopnun Iönkynningar IReykjavIk