Þjóðviljinn - 29.10.1977, Síða 11
Laugardagur 29. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Lofsvert framtak
bæjaryfírvalda
Það er leiðinlegur ágalli á
dagblöðum þessa lands, sem
gefin eru út á kostnað þjóðar-
innar allrar, hvað þau bera þess
greinilega merki að þau eru gef-
in út i Reykjavik.
Þetta á sér að sjálfsögðu
margar skýringar, sem við lát-
um vera að rekja hér, en við
getum ekki stillt okkur um að
benda á eina af veigaminnstu
ástæðunum, sem reyndar er
samtvinnuð öllum hinum.
Landsbyggðarmenn eru
nefnilega allt of hógværir i þvi
að koma fréttum i fjölmiðla i
gegnum hið frábæra sjálfvirka
simakerfi landsmanna. Meö þvi
einu að hafa meira álit á sjálf-
um sér og sinum gerðum gætu
þeir lagt byggðastefnunni i
landinu mikið lið.
Við munnumst á þetta hér
vegna þess að mikið skortir á að
forystumenn bridgefélaga út
um land hringi til okkar fréttir
af starfinu.
Austurland
A þessu eru þó sem betur fer
heiðarlegar undantekningar.
Eftirfarandi fréttir sanna það.
Helgina 21. og 22. okt. sl. var
haldið á Reyðarfirði, á vegum
Bridgesambands Austurlands,
tvimenningskeppni með baro-
meter fyrirkomulagi (þá getur
minusinn orðið jafn stór og plús-
inn).
Tuttugu og átta pör tóku þátt i
keppninni, þar á meðal gestir úr
Reykjavik, Hjalti Eliasson og
Einar Þorfinnsson. Þeir náðu
öðru sæti i keppninni.
Orslitin urðu annars þessi:
1. Asgeir Methúsalemsson —
Þorsteinn Ólafsson: 229 stig.
2. Hjalti Eliasson —
Einar Þorfinnsson: 224stig
3. Steinþór Magnússon —
Sigurjón Jónasson: 204stig
4. Þorleifur Kristmundsson —
ÓlafurBergmundsson: 199
stig.
5. Aðalsteinn Jónsson —
Sölvi Sigurösson: 191 stig.
6. Guðmundur Bjarnason —
Kjartan Einarsson: 145stig.
7. Jónas Jónsson —
Kristmann Jónsson: 107stig.
Keppnisstjóri var Guðmundur
Kr. Sigurðsson.
Stórmerkt framlag
Aö loknu Austurlandsmóti i
Bridge sem haldið var á Reyð-
arfirði hafði bridgefélagiö á
staðnum samband við stjórn
Bridgesambands Islands, og
fékk hjá henni að láni eitt eintak
af öllum þeim bókum, sem sam-
bandið er með til sölu.
En Reyðarfjarðarbær gerði
gott betur og keypti allar bæk-
urnar.
Er það frábært framlag bæj-
aryfirvalda að koma þannig upp
visi að bridgebókasafni á ekki
stærri stað og ætti að veröa
öðrum til eftirbreytni.
Aðalhvatamaður þessa mun
vera Þorsteinn Ólafsson.
Alls munu þetta vera bækur
að andvirði 45—50 þús. krónur,
og er það mikil upphæð i saman-
burði við aðra styrki sem
bridgeiþróttin hefur fengið hér á
þessu landi.
Frá bridgefélagi
Breiöholts
Eftir 6 umferðir af 17, i
Butler-keppni félagsins, hafa
Tryggvi Gislason og Guðlaugur
Nielsen tekið forystuna. Annars
er röð efstu para þessi:
1. Guðlaugur Nielsen —
Tryggvi Gislason 115 stig.
2. Kristján Blöndal —
Valgarð Blöndal lllstig.
3. Eiður Guðjohnsen —
Kristinn Helgason lllstig.
4. Friðrik Guðmundsson —
Hrinn Hreinsson 109stig.
Hæstu skor fengu, Guðlaugur
Karlsson — Óskar Þráinsson og
Baldur Bjartmarsson — Helgi
Magnússon, alls 63 stig. Næstu
umferðir verða spilaðar á
þriðjudaginn kemur.
/
Frá Asunum
Sl. mánudag lauk hjá félag-
inu, hinu svokallaöa „boðs-
móti”, en alls tóku 36 pör þátt i
þvi. Óhætt er að segja, að úrslit
hafi komið nokkuð á óvart, þvi
eftir jafna og tvisýna keppni,
sigruðu ungir -og efnilegir spil-
arar glæsilega, Þeir Guðmund-
ur Sv. Hermannsson og Sævar
Þorbjörnsson.
Fast á hæla þeim komu aðrir
ungir spilarar, sem að visu hafa
áður sannað ágæti sitt, þeir Jón
Baldursson og Sverrir
Armannsson.
Röð efstu para varð annars
þessi:
1. Guðmundur Hermannsson —
Sævar Þorbjörnsson 576stig.
2. Jón Baldursson —
Sverrir Armannsson 566stig.
3. Jóhann Jónsson —
Stefán Guðjohnsen 556 stig.
4. Skafti Jónsson -
Valur Sigurðsson 541stig.
5. Rikharður Steinbergsson —
Steinberg Rikharðsson 539
stig.
6. Guðlaugur R. Jóhannsson —
Orn Arnþórsson 530stig.
7. Asmundur Pálsson —
Hjalti Eliasson 520stig.
8. Sverrir Kristinsson —
Vilhjálmur Þórsson 518 stig.
9. Jón Hilmarsson —
Oddur Hjaltason 518 stig.
10. Gisli Steingrimsson —
Sigfús Arnason 516stig.
Stjórn Asanna vill þakka þann
mikla áhuga, sem boðspör og
önnur pör, sýndu þessu móti,
með þeirri von um, að þeir hinir
sömu spilarar sjáist i mótum
félagsins, i náinni framtið.
Næsta keppni félagsins er
þriggja kvölda hraðsveita-
keppni, þar sem öllum er að
sjálfsögðu heimil þátttaka, og
er félögum bent á, að taka með
sér ný andlit. Mót þetta er
tileinkað fyrsta formanni fél-
agsins, Þorsteini I. Jónssyni.
Mótið hefst 31. okt.
Og þá eru það úrslit sl. mánu-
dag: A—riðill:
1. Guðmundur — Sævar 211 stig.
2. Skúli Einarsson — Valur 191
stig.
3. Jón B. — Sverrir 175 stig.
B—riðill:
1. Guðlaugur — Orn 196 stig.
2. JónH. — OddurH. 196stig.
3. Guðm. E. — Sigfús A. 191 stig.
C-riðill:
1. Jakog R. Möller -
JónHjaltason 201stig.
2. Hörður Arnþórsson —
Þórarinn Sigþ. 198 stig.
3. Einar Þorf. —
Sigtryggur Sig. 187 stig.
Undankeppni fyrir R.vikur-
mótið i tvim. hefst kl. 13.00 á
laugardaginn. Spilað verður i
Hreyfilshúsinu. Keppni verður
framhaldið á sunnudag.
Ariðandi er, að væntanlegir
keppendur láti skrá sig hið
fyrsta hjá félögunum. 1 M.fl.
úrslit komast 27 efstu pör, en
auk þess komast 28 önnur pör i
•úrslit 1. fl.
Nv. Reykjavikurmeistarar i
tvimenning, eru Asmundur
Pálsson — Hjalti Eliasson.
Keppnisstjóri i undankeppninni,
verður hinn góðkunnugi
Guðmundur Kr. Sig.
Frá bridgefélagi
Akraness
Orsliti firmakeppni félagsins,
sem jafnframt var einmenn-
ingskeppni, urðu þessi:
1. Skagaver h.f....
sp. Kjartan Guðmundss. 111
stig
2. Sildar/Fiskimjölsv....
sp. Alfreð Kristjánss. llOstig
3—4. Verzl.Valfell...
sp. Jón Alfreðsson 109 stig
3—4. Fiskiðjan Artic...
sp. Alfreð Viktorss. 109 stig
5. Nótastöðin h.f....
sp. Jón Z. Sigrikss. 107stig
6—7. Landsbankinn...
sp. Andréz Ólafss. 106 stig
6—7. Fatagerðin h.f....
sp. Jón Z. Sigrikss. 106 stig
8. Ora/Skartgr.Verzl.H.J.
sp. Guðni Jónsson 103 stig
9—10. Þorgeir/Ellert h.f....
sp. Guðjón Guðm. 102stig
9—10. Skagaprjón...
sp. Kjartan Guðm. 102stig
Alls tóku 42 fyrirtæki og stofn-
anir þátt i mótinu en úrslit i
einm.keppninni urðu eftirfar-
andi:
1—2. Kjartan Guðmundss. 213
st.
1—2. Jón Z. Sigrikss. 213 st.
3. Alfreð Viktors. 210 st.
4. Þorvaldur Guðmundss. 206 st.
5. Andrez ólafss. 202 st.
6. Jón Alfreðss. 199 st.
7. Valur Sigurðss. 198 st.
8. Björgvin Bjarnas. 197 st.
BFEIDGE
Umsjón:
Baldur Kristjánsson
Ólafur Lárusson
Frá Baröstrendinga-
félaginu
Starfssemi félagsins hófst
með aðalfundi 22. sept sl. Ný
stjórn var kjörin i félaginu, og
er hún þannig skipuö: Valur
Sieurðsson forömaður, Andréz
Ólafsson gjaldkeri, Karl
Alfreðsson ritari, m. stj. Guðni
Jónsson.
Keppnisárið hófst með
firma/einmenningskeppni, en
nú stendur yfir „Butler”-
—keppni, tvimenningur alls 6
kvöld. Þátttaka er 22 pör,
keppnisstjóri er Bragi
Hauksson. En næsta keppni fél-
agsins, er hraðsveitakeppni
sem verður 5—6 nóv. Það er
opin keppni, með góðum verð-
launum i boði. Þátttaka i mótið,
tilkynnist Vali Sigurðssyni, i s:
2298.
Að loknum 2 kvöldum i
„Butler”—keppni félagsins er
staða efstu para þessi:
1. Lúðvik—Jón 126 st.
2. Alfreð — Þráinn 119 st.
3. Þórður — Þórður 115st.
4. Jón — Valur 114 st.
5. Eirikur — Karl 113 st.
Fjórum kvöldum af fimm er nú
lokið i bridgekeppni félagsins.
Atta efstu pörin eru:
1. Birgir Magnússon —
Viðar Guðmundsson 931 st.
2. Einar Bjarnason —
Kristinn Óskarsson 916 st.
3. Eggert Kjartansson —
Ragnar Þorsteinss. 899 st.
4. Finnbogi Finnbogason —
Þórarinn Arnason 887 st.
5. Haukur Zophoniasson —
Viðar Guðmundsson 880 st.
6. Einar Jónsson —
Gisli Benjaminsson 856 st.^
7. Hermann Ólafsson —
Sigurður Kristjánss. 846 st.
Hraösveitarkeppni félagsins
hefst 7. nóvember i Domus
Medica.
Aö lokum
Þegar þátturinn var unnin sl.
fimmtudagskvöld, lágu ekki
fyrir úrslit úr Butler—keppni
Bridgefélags Reykjavikur.
Ekkert spil er i þættinum i
dag, þvert ofan i stefnu þáttar-
ins að láta alltaf fylgja með eitt
eða tvö spil.
Tekjur sveitarfélaga
veröi geröar jafnari
Tillaga 4 þingmanna Alþýöubandalagsins
A fundi efri deildar Alþingis s.l.
miðvikudag var tekið til fyrstu
umræðu frumvarp til laga um
breytingu á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga. Flutnings-
menn frumvarpsins eru Ragnar
Arnalds, Geir Gunnarsson, Helgi
F. Seljan, og Stefán Jónsson. 1
frumvarpinu er lagt til að fjölga
þeim fyrirtækjum sem greiða
landsútsvör.
Ragnar Arnalds gerði grein
fyrir frumvarpinu og sagði að
lagt væri til i frumvarpinu aö
fjölga þeim fyrirtækjum sem
greiði landsútsvör. Þessi fyrir-
tæki greiði nú aöstöðugjöld til
sveitarfélaga, en greiði ekkert til
annarra sveitarfélaga i landinu
þó að þau hafi mikil viðskipti viö
fólks viðsvegar um land. Gerö sé
tillaga um að nokkur hinna
stærstu fyrirtækja greiöi landsút-
svar, en ekki þá aöstöðugjald.
Þau viðbótarfyrirtæki sem gerö
sé tillaga um að greiöi landsút-
svör séu eftirfarandi: Frihöfnin á
Keflavikurflugvelli, Vátrygg-
ingafélög, Flugfélög, Eimskipa-
félag Islands hf„ Hafskip h.f„
Sölumiðstöö hraðfrystihúsanna,
Sölusamband isl. fiskframleið-
þingsjá
anda, Innkaupadeild Llú,
ferðaskrifstofur, Samband isl.
samvinnufélaga.
Þá sagði Ragnar að I frum-
varpinu væri gert ráö fyrir aö
tvöfalda landsútsvör bankanna
frá þvf sem nú er. Bankarnir
greiði nú yfirleitt landsútsvör,
meðan hin fyrirtækin greiði i
mörgum tilfellum önnur gjöld.
Ragnar sagði að til greina gæti
komiö aö hafa fyrirtækin fleiri
sem greiða ættu landsútsvör, þvi
eftirværu fjölmörg fyrirtæki sem
hafi landiö allt sem viðskipta-
svæði, t.d. kæmu heildverzlanir,
flutningafyrirtæki og dagblöðin
lika til greina.
Megintilgangurinn með frum-
varpinu, sagöi Ragnar, miðaöist
við aö gera tekjur sveitarfélaga
jafnari, en mikill munur væri á
þessu f dag. Sem dæmi um þenn-
an mun tók Ragnar tekjur sveit-
arfélaga á árinu 1975 á Ibúa af út-
svörum, aöstöðugjaldi og fast-
eignaskatti, samanber eftirfar-
andi töflu:
Ragnar Arnalds
ekki leiðréttur. Miðað viö áriö
1975 heföu kaupstaðir, eftir sam-
þykkt frumvarpsins, hækkað i
50.000 krónur, en Reykjavik staö-
ið ic.a. 57.000krónum. Það þyrfti
þvi róttækari aðgerðir ef jafna
ætti þennan mun meira, en hér
væri þó engu aö siður stigið spor i
rétta átt.
Aibcrt Guðmundsson tók næst
tilmáls og sagðist vilja kynna sér
ræðu Ragnarsáöur en hann úttal-
aði sig um efni frumvarpsins, en
hann sagðist þó óttast að veriö
væri aö leggja nýjan skatt á
Reykjavik.
Ragnar Arnalds tók aftur til
máls og sagði aö meö þessu væri
ekki verið að leggja á neina nýja
skatta. Fyrirtækin myndu ekki
greiöa meiri gjöld en áöur, þar
sem gert væri ráð fyrir að þau
slippu við aöstööugjöld, en
greiddu samsvarandi upphæð
sem landsútsvar til Jöfnunar—
sjóðs. Tillagan fæli hins vegar i
sér aö i hlut Reykjavikur kæmi
minni upphæð en borgin fengi i
dag, en samt yrfá um að ræða
ákv. forréttindastöðu Reykjavik-
ur I tekjuöflun.
Ragnar sagöist vilja minna á að
i tillögunni væri hvergi minnst á
Reykjavik. Ef SÍS ákvæði t.d. aö
hafa aöalsetur 1 öðru sveitarfél-
agi en nú er, þá myndi það verða
það sveitarfélag sem missti spón
úr aski sinum.
Eftir að Ragnar hafði lokiö
máli sinu var umræöum frestað.
Reykjavik
Aðrirkaupstaðir
Dæmi:
Kópavogur
Hafnarfjöröur
Isafjöröur
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Akureyri
Neskaupstaður
Vestmannaeyjar
57.900 kr.
48.500 kr.
45.900.-
47.100,-
51.400. -
43.300,-
41.400, -
51.500,-
48.600. -
54.600. -
Ragnar gat þess að þó að þetta
frumvarp yrði samþykkt, þá yrði
mismunurinn milli sveitarfélaga
ugiysing
í ÞjóðvUjanum
ber ávöxt