Þjóðviljinn - 04.11.1977, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 04.11.1977, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN F<>studagur 4. nóvember 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóöfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar Gestsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsbiaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjori: úlfar Þormóðsson Uitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Sföumúla 6. Simi 81333. Prentun: Blaðaprent hf. Þeirra frelsi — Þeirra metnaöur Þessa dagaramá lesa i Morgunblaðinu hverja forystugreinina á fætur annarri, þar sem þess er krafist að heildsalar og aðrir kauphéðnar fái að selja allar vöru- tegundir á þvi verði, sem þeim sjálfum sýnist. Þetta er gamalt baráttumál „frelsis- hetjanna” i forystuliði Sjálfstæðisflokks- ins, þeirra sem ávallt setja frelsi fjár- magnsins ofar frelsi vinnandi alþýðu til að njóta mannsæmandi lifskjara. Það er einkar athyglisvert, að Morgun- blaðið skuli herða sóknina fyrir ótakmörk- uðu „frelsi” heildsala og kaupahéðna til að okra á almenningi einmitt nú, þegar fyrir liggur að allt verðlag á Islandi hefur i tið rikisstjórnar Geirs Hallgrimssonar hækkað nákvæmlega helmingi örar en á árum vinstri stjórnarinnar. Rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar hefur nú setið að völdum i 38 mánuði. A þeim tima hefur visitala framfærslukostnaðar hækkað um 183%. Allt valdaskeið siðustu vinstri stjórnar var lika 38 mánuðir. Á þeim 38 mánuðum hækkaði framfærslu- kostnaðurinn um 93%, eða nær nákvæm- lega helmingi minna en á 38 mánuðum ríkisstjórnar Geirs Hallgrimssonar. Um þetta þykjast Morgunblaðið og önn- ur málgögn stjórnarflokkanna ekkert vita. - En Morgunblaðið skrifar þeim mun meira um nauðsyn þess, að öll heildsala- hjörðin, sem er dýrasti bagginn á islensku þjóðfélagi, og allir kaupahéðnarnir smáir og stórir, fái einmitt nú fullt „frelsi” til að selja allar vörur á þvi verði, sem þeim sjálfum þóknast. Þetta er það töfralyf, sem á að lækna flest mannfélagsmein á íslandi að dómi pólitiskra þjóna braskarastéttarinnar i rikisstjórn Islands og við Morgunblaðið. - Þvilik frelsishugsjón! Halda menn máske, að verðlag á íslandi færi lækkandi ef „frelsi” heildsala og kaupahéðna til ótakmarkaðs gróða væri enn aukið? Vonandi eru menn ekki búnir að gleyma þeim mjög svo fróðlegu upplýs- ingum, sem verðlagsstjóri kom með i sjón- varpsþætti fyrir um það bil einu ári siðan. Hann skýrði þar alþjóð frá niðurstöðum könnunar, sem starfsfólk verðlagsskrif- stofunnar hafði gert. Niðurstöðurnar voru á þessa leið: I. Á fjölmörgum vörutegundum gáfu heildsalar upp hærra innkaupsverð erlendis, en svaraði til smásöluverðs út úr búð i framleiðslulandi vörunnar. II. Á vissum vörutegundum, þar sem álagning er nú frjáls, reyndist álagningin hér vera meira en helmingi hærri en t.d. i Englandi, og stundum yfir 100%! Svo vill heildsalahjörðin fá meira frelsi, meiri gróða. - Og Morgunblaðið, - mál- gagn Sjálfstæðisflokksins - Morgunblaðið, sem i hverri kjaradeilu láglaunafólks beitir öllum áróðursstyrk sinum til að niða rétt vinnandi alþýðu til bættra lifskjara, - þetta sama Morgunblað má ekki vatni halda af umbyggju fyrir pyngju kaup- sýslumanna og „frelsi” þeirra til ótak- markaðs gróða. Halda menn að það þurfi ekkert eftirlit með bröskurum sem hér selja börnum leikföng með helmingi hærri álagningu en tiðkast i nágrannalöndum, með yfir 100% álagningu? Halda menn að það þurfi ekkert eftirlit með svindlurum, sem þykjast kaupa inn vörur hjá erlendum framleiðendum fyrir hærra verða en varan kostar i smásölu i framleiðslulandinu. - Og reikna svo sinar prósentur út á það innkaupsverð, sem þeim þóknast sjálfum að gefa upp! „Eng- inn vafi er á þvi, að verslunarstéttin mundi leggja metnað sinn i að sýna fram á kosti frelsisins”, segir i forystugrein Morgunblaðsins s.l. þriðjudag. Fögur orð eru þetta, en hver reyndist metnaður hinna „frjálsu” leikfangasala? Vill Morgunblaðið spyrja verðlagsstjóra að þvi? Þeirra metnaður reyndist slikur, þeirra frelsishugsjón reyndist sú að fyrst bundust þeir samtökum um að okra sér- staklega á börnunum i jólakauptiðinni i fyrra, - og siðan neituðu þeir fullir hroka að svara kurteislegu opinberu bréfi frá Neytendasamtökunum, þar sem farið var fram á skýringar og svör við ákveðnum spurningum. Við óskum Morgunblaðinu til hamingju með þessa frelsispostula sina. Þar hæfir skel kjafti. Eina baráttutœkiö i hópi flokkanna Alþyöubandalagiö er samein- ingarflokkur. Meö starfi sinu vill flokkurinn sameina vinstri menn og sóslalista og fylkja þeim til átaka. Þaö er fróölegt aö fylgjast meö þvi aö fleiri, ungir sem gamlir, viröast nú átta sig á því aö enda þótt stjór nmá lahreyf ingunni Alþýöubandaleginu sé áfátt I mörgu er hún samt sem áöur eina baráttutækiö sem þeir geta bundiö vonir viö sem vilja vinstri þróun á íslandi. Um þrjátiu nýir félágar gengu i Alþýöubandalagiö iKópavogi i haust og bæjarmálablaöiö Kópavogur spyr þrjá þeirra um ástæöurnar fyrir inngöngunni. Þaö eru þeir Jónas Pálsson, skólastjóri, dr. Ingimar Jónsson og Hákon Gunnarsson, nemi. Lengi verið á vinstri kanti — Þaö má segja að ég hafi I fjölmörg ár, jafnvel áratugi veriö stuöningsmaöur vinstri hreyfingarinnar á Islandi þótt þaö sé fyrst nií sem ég geng til liös viö Alþýðubandalagið I þeirri von aö ég geti oröiö aö einhverju gagni, sagöi Jónas Pálsson, skólastjóri Æfinga- skólans. — Mér viröist uppsetningin á stjórnmálasamtökum landsins þannig, aö eini flokkurinn sem hafi einhverja möguleika til þess aö byggja upp endurnýjaöa Jónas Pálsson sósialiska stefnu sé Alþýöu- bandalagiö. Ég vil þvf gjarnan taka þátt I umræöum og stefnu- mótun I einstökum málaflokk- um, sem ekki veröur lengur hjá komist aö ræöa i viöu samhengi meö róttækar breytingar fyrir augum, t.d. i efnahags- og fél- agsmálum. Þaö er ljóst aö stjórnmálaflokkar landsins veröa aö móta miklu markviss- ari og framsýnni stefnuáætlanir en raun hefur veriö á. — Hvaö um skólamálin? — Jú, auövitaö væri gaman aöfáupp umræöurum skólamál innan Alþýöubandalagsins. Viö- leitni mín i mörg ár hefur veriö sú, aö sýna fram á mikilvægi samstööu og náinna tengsla milli skolans og samfélagsins. Enginn stjórnmálaflokkur hefur aö minu áliti fjallaö af raunsæi um skólamál og er kominn timi til aö úr því veröi bætt hiö snar- asta. Hákon Gunnarsson. þessu vandlega fyrir mér áöur en ég gekk I félagiö og mér fannst þaö ekki rétta leiöin aö ganga frekar I þessa róttækari hópa sem standa á Utjöðrum vinstri hreyfingarinnar I land- inu. E.t.v. á ég meiri samieiö meö þeim I skoöunum, en ég tel rangt aö foröast Alþýöubanda- lagið vegna ónógrar róttækni, heldur vil ég fá ungt og róttækt fólk inn i félagiö og freista þess aö berjast innan frá viðað knýja fram breytingar. Ég neita þvi samt ekki aö mér finnst ég svolitið einn á báti. Mér finnst stöönun á umræöu hafa átt sér staö i öiluin stjórn- málaflokkum og Alþýöubanda- laginu sömuleiöis. Þaö þarf aö skerpa duglega á sólialisman- um i Alþýðubandalaginu ef vel á aö takast tii”. —e.k.h. Oft ósammála en œtla aö vera með starfa meö Sósía listafélagi Reykjavikur um stund, en hætti siöan meö öllu afskiptum af stjórnmálastarfi þar til nú, aö ég fylki mér undir merki Alþýðubandalagsins. Þaö hefur lengistaöiö til aö ég kæmi aftur inn i pólitiskt starf og ég tel þaö auöséð, aö allir sannir vinstri menn veröi aö sameinast i Alþýöubandalaginu ef sá draumur á einhvern tim- ann aö rætast aö viö náum þvi aö vinna fullnaöarsigur á ihaldsöflunum i landinu. Ég tel sjálfan mig vera til vinstri viö bæöi Þjóöviljann og Alþýöubandalagiö i mörgum máium, en þaö er ekki um önnur samtök aö ræða en Alþýöu- bandalagiö fyrir þá vinstri menn sem vilja hafa áhrif á gang mála. Þetta er sá flokkur sem hægt er aö binda raunhæfar vonir viö um þessar mundir.” — Þaö má segja aö ég sé bæöi fæddur og uppalinn „eldrauö- ur” og enda þótt ég hafi ekki starfaö i pólitiskum samtökum um hriö hef ég aldrei villst af vinstri linunni, ef svo má segja, sagöi Dr. Ingimar Jónsson er hann var tekinn tali i fundarhléi á aðalfundi Alþýöubandalagsins sl. mánudagskvöld, en þá gekk hann ásamt þrettán öörum mönnum til liös viö Aiþýöu- bandalagið. — Ég vann mikiö fyrir Sósi- alistafiokkinn og var einn af þeim fjölmörgu sem ekki gat sættmig viö hvernig staöið var aö þvi aö leggja hann niöur er Alþýöubandalagiö var stofnaö áriö 1968. Ég hélt þá áfram aö Ingimar Jónsson Óhjákvœmilegt aö berjast innanfrá Ég geng I Alþýöubandalagiö af þeirri einföldu ástæöu aö ég tel þaö eina möguleikann til þess aö ég geti haft raunveruleg áhrif á þá umræöu, sem vonandi mun i fyllingu timans breyta þessu þjóöfélagiokkar itakt viö kenningar sósialismans, sagöi Hákon Gunnarsson mennta- skólanemi, en hann er 18 ára gamall. — Ég haföi auövitaö velt

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.