Þjóðviljinn - 04.11.1977, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 04.11.1977, Qupperneq 16
NOÐVIUINN Föstudagur 4. nóvember 1977 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfs- menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, iltbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. L 81333 Einnig skal bent á heima- slma starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá. Hafnarsamband sveitarfélaga ályktar: Fara fram á 40% hækkun gjaldskrár A ársfundi Hafnasambands sveitarfélaga á Hótel Húsavik um mánaðamótin var samþykkt ályktun um 40% hækkun gjald- skrár til samræmingar við verð- hækkanir sem orðið hafa. Fund- inn sóttu 63 fulltrúar og gestir. Á ársfundinum voru samþykkt- ar ýmsar aðrar tillögur og eru þessar helstar: 1. Að komið verði upp aðstöðu fyrir raforkusölu til skipa á hafnarsvæðum, og skorar á Hafnamálastofnun að gera til- lögur um samræmdan rafbún- að i þvi sambandi. 2. 4ra ára áætlun um hafnargerð- ir og væntir þess, að i þings- ályktunartillögu, sem nú liggur fyrir Alþingi, og fjárlögum, verði ákveðið fjármagn, sem tryggi að lokið verði þeim framkvæmdum, sem 4ra ára áætlunin gerir ráð fyrir. 3. Að samgönguráðuneyti láti kanna, hvernig einfalda megi gjaldtökur og afgreiðsluhætti við strandflutninga og draga úr skriffinnsku við þá. Jafnframt lýsir fundurinn stuðningi við framkomnar tillögur um nýja skipan strandflutninga á veg- um Skipaútgerðar rikisins. 4. Varnir gegn oliumengun og komið verði upp aðbúnaði til að veita oliuúrgangi móttöku og ennfremur að efni til eyðingar oliu verði til staðar á sem flest- um stöðum. 5. Að stjórn Hafnasambandsins kanni möguleika á að tryggja betur innheimtu hafnargjalda. 6. Fjárveitingar til hafnarfram- kvæmda verði auknar að mikl- um mun á næstu árum. FlM í nýjum sýningarsal Verk eftir 40 listamenn med 20% afslætti Félag islenskra myndlistar- manna efnir til sölusýningar laugardaginn 5. nóv. á mynd- listarverkum, sem félagar I FIM hafa gefið til ágóöa fyrir hið nýja húsnæði félagsins að Laugarnes- vegi 112, en þar veröur sýningin haldin. Húsnæðið, sem i fram- tiðinni veröur notað sem félags- miðstöð og athvarf listsýninga, er 150 fermetrar að viðbættum 60 fermetra kjallara, 1 kjallaranum er aöstaða til' að pakka inn myndum, sem sendar verða á sýningar út á land og úr landi. A þessari sýningu eru nokkrir tugir verka eftir 40 listamenn, máiverk, höggmyndir og grafik, og er hægt að kaupa þau með 20% afslætti frá venjulegu sýningar- verði. Að auki er fólki gefinn kostur á að greiða 60% kaupverðs við afhendingu og eftirstöövar þrem mánuðum siðar. Dýrasta verkið á sýningunnikostar 288.000 krónur en það ódýrasta 9.600 krónur. Aðgangur að sýningunni er ókeypis.en hún verður opin frá kl. 14-22 um helgar og 17-22 virka daga og lýkur sunnudaginn 13. nóvember. FÍM hefur nú fengiö útborg- aðan eignarhluta sinn i Kjarvals- stöðum og hefur þvl fé verið varið tilkaupa á hinu i$ja húsnæði, þar sem verslun var áöur til húsadþ Tveir stjórnarmanna FtM og þrir úr sýningarnefnd i nýja sýningarsalnum. Talið frá vinstri: Eirikur Smith, i sýningarnefnd, Þorbjörg Höskuldsdóttir, i sýningarnefnd, Ragnheiður Jónsdóttir, i stjórn, Hallsteinn Sigurðsson, I sýningarnefnd og Jón Reykdal, i stjórn. (Ljósm. eik.) Þýsk upp- sláttamt gefin Árnastofnun Stofnun Árna Magnússonar var afhent i' gær bökagjöf frá Þýska visindasambandinu fyrir meðal- göngu þýska sendiráðsins i Reykjavik. Ritin eru valin sér- staklega með þarfir Arnastofn- unar i huga. Hér er um að ræða tvö mikil þjóðfræði- og þjóðtrúar- rit og þrjú alfræðisöfn, eitt heimildarritum lærða menn, sem kom út í fjórum bindum 1750 til 51, annað uppsláttarrit i þýskum bókmenntum og hið þriðja er upphafið af nýju uppsláttarriti um þýska fornfræði. A myndinni sjást fulltrúar þýska sendiráðsins afnenda Jónasi Kristjánssyni, forstöðumanni Arnastofnunar bókagjöfina. Leiklistarþing 1977 Ræktun listamanns og verkefnaval Dagana 20. til 21. nóvember verður haldið leiklistarþing i Þjóðleikhúsinu. 1 upphafi var ráðgert að þingið yrði haldiö 16. til 17. október siðastliðinn en þvi var frestað vegna verkfalls BSRB. Umræðuefni þingsins eru: Verkefnaval leikhúsa og ræktun listamannsins. Málshefjendur verða: Arnar Jónsson leikari, Guðmundur Steinsson rithöfund- ur, Margrét Guðmundsdóttir leikari og örnólfur Arnason rit- höfundur. Auk þess flytur Ævar R. Kvaran erindi, sem nefnist: „Hvers á mælt mál að gjalda?” Dagskráin hefst á þvi að kl. 10.00 f.h. á sunnudaginn 20. nóvember setur Þorsteinn ö. Stephensen þingíð og að lokinni setningu mun Vilhjálmu. Hjálmarsson menntamálaráð- herra ávarpa þingfulltrúa. Að loknum framsöguerindum og fyr- irspurnum hefjast umræður i hópum. A mánudag verður þing- inu haldið áfram kl. 14.00 og lýkur þvi á mánudagskvöld. Þriggja daga ráðstefna Alþýðubandalagsins um verkalýðsmál: Aukin flokksleg samskipti — segir Benedikt Daviðsson, formaður Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins — Það er búist við mikilli þátttöku ailstaðar af iandinu á ráðstefnu um verkalýðsmál, sem Verkalýðsmálaráð Aiþýðu- bandalagsins efnir til i Tjarnar- búð I Reykjavik dagana 11.-13. þ.m., sagði Benedikt Daviðsson, formaður ráðsins i viðtali i gær. — Við hvetjum mjög eindreg- ið þá liðsmenn okkar sem sinna verkalýðsmálum að koma á þessa ráðstefnu. Við teijum nauðsynlegt I Verkalýösmáia- ráðinu að auka mjög samskipti okkar sem vinnum i verkalýðs- hreyfingunni á flokkslega svið- inu. Alþýðubandalagsmenn sem virkir eru verkalýðsmálum munu á þessari ráðstefnu bera saman bækur sínar, sam- eiginlega móta kjarastefnu og ræða um baráttuaðferðir verka- lýðshreyfingarinnar. Það er einnig von okkar að út úr svona ráðstefnuhaldi komi nokkur leiðsögn um það hvernig Alþýðubandalaginu beri að rækja það hlutverk sitt að vera stjórnmálalegt baráttutæki verkafóiks og samtaka þess. Benedikt iagði áherslu á að þeir sem hug hafa á að sækja ráðstefnuna létu skrá sig sem allra fyrst á skrifstofu Alþýðu- bandalagsins I Reykjavik, þar sem Baldur Óskarsson, starfs- maður Verkalýðsmálaráðs flokksins, veitir allar nánari upplýsingar. Einnig vakti hann athygli á þvi að ráðstefnan er opin öilum áhugamönnum Al- þýðubandalagsins I samtökum launafólks. A verkalýðsmálaráðstefnunni verða flutt erindi um þróun efnahags og kjaramála og verkalýðsbaráttuna frá siðasta þingi ASt, um Samstarf sam- taka launafólks, Um Fram- tiöarstefnu og baráttuaðferðir i kjarasamningum, og um AI- þýðubandalagið og verkalýðs- hreyfinguna. —ekh Benedikt Daviðsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.