Þjóðviljinn - 10.11.1977, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 10.11.1977, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. nóvember 1977 Forvigismenn hinna nýju samtaka herstöOvasinna: Kristján Hjaitason, Hannes Gissurarson og Skafti Harðarson. Herstöðvasinnar stofna samtök Þrir ungir menn, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Kristján Hjaltason og Skafti Harðarson.hafa stofnað með sér samtök til blaðaútgáfu og fundahalda um utanrikismál og hafa þeir valið samtökunum nafnið Samvinna Vesturlanda: Sókn til frelsis. 1 fréttatilkynningu frá þre- menningunum segir að umræð- ur um utanrikismál á Islandi hafi löngum verið kappræður en ekki rökræður og að brýna nauðsyn beri til að ungt fólk, sem hefur fáar ákvaröanir tekið i stjórnmálum, geri sér fulla grein fyrir rökum sem hniga að utanrikisstefnu Islendinga, að- ildinni að NATO, varnarsam- vinnunni við Bandarikjamenn og annarri samvinnu við vestrænar lýðræðisþjóðir. Þremenningarnir hafa gefið út blað, sem ber nafn samtaka þeirra og verður þvi dreift i framhaldsskólum landsins. I blaðið rita þeir þrir greinai; en fleiri eru til kallaðir. Má þar nefna Björn Bjarnason og Jónas Haralz, en spurningunni „Hvers vegna kýst þú samvinnu Vesturlanda?” svara þeir Davið Oddsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, Jón B. Hannibalsson og Sigurbjörn Magnússon. Blaðið segja þeir kostað með frjálsum samskotum einstakl- inga. 1 fréttatilkynningunni segir einnig að þremenningarnir séu tilbúnir til þess að koma á fundi i framhaldsskólum landsins i nóvembermánuði um utanrikis- mál, ef málfundafélög skólanna halda þá, og hafa þeir skorað á Samtök herstöðvaandstæðinga að mæta sér á þeim. Á blaðamannafundi sem þeir þremenningarnir héldu fyrir skemmstu kom fram að þeir Hannes og Skafti eru báðir fé<- lagar i Varðbergi, félagi ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, og einnig i Sjálfstæð- isflokknum. Þeir vildu ekki meina, að Varðberg hefði brugðist i þvi að halda'uppi vörnum fyrir utan- rikisstefnu núverandi stjórn- valda, en þótti samt brýna nauðsyn bera til þess að efla umræðurum hana og sýna ungu fólki fram á mikilvægi hennar. —AI. Samtök herstöðvaanstæðinga: Vid fögnum frum- kvæöi herstöðvasinna segir formaöur midnefndar Ásmundur r Asmundsson Þjóðviljinn leitaöi til for- manns miðnefndar Samtaka herstöðvaandstæðinga, Ás- mundar Ásmundssonar, og spurði hann um viðbrögö her- stöövaandstæðinga viö hinum nýju samtökum herstöövasinna. — Samtök þremenninganna eru vafalitiö stofnuð vegna þess að fylgi herstöövasinna i fram- haldsskólum landsins og Háskóla íslands hefur farið dvinandi á siðustu árum, sagði Ásmundur. — Ungt fólk hefur hafnað stefnu þeirra I utanrikismálum og fylkt sér um stefnu her- stöövaandstæöinga. Samtök herstöðvaandstæðinga eiga vaxandi fylgi að fagna og ekki sist meðal yngri kynslóðarinn- ar. Þetta sviður herstöðva- sinnum að sjálfsögðu og þeir hugsa sér þvi að rétta hlut sinn með þessu frumkvæöi. Mér skilst þeir hafi tekið sér góðan tima til undirbúnings, enda ekki vanþörf á. Asmundur Asmundsson Samtök herstöðvaand- stæðinga fagna þessu frum- kvæði enda hefur lengi verið beöiö eftir þvi að herstööva- sinnar eins og félagar i Varð bergi eða Vörðu landi fengjust til rökræðu um þessi mál. Samtök herstöðvaand- stæðinga hafa lýst sig reiðubúin til þess að greiða fyrir umræðu um herstöðvamálið á allan hugsanlegan máta. Við höfum tjáð þremenningunum að samtökin sem slik muni ekki mæta þeim á fundum i skólum. Hinsvegar munu þau benda á herstöðvaandstæðinga, sem fáanlegir væru til þess, sé þess óskað. Samtök herstöðvaand- stæðinga eru samfylking manna sem að mörgu leyti hafa ólikar stjórnmálaskoðanir en eru ein- huga um þau meginmarkmið, að tsland segi upp aðildinni að Nato og hér skuli engar her- stöðvar vera. Um önnur atriði utanrikis- mála geta þessir einstaklingar verið ósammála, og hljóta þeir þvi að túlka sinar eigin skoðanir ef þau ber á góma. Tvö nemendafélög, Mennta- skólans I Hamrahlið og gamla skólans I Reykjavik, hafa þegar leitað til samtakanna um fundi nú i vikunni. Þeim var bent á nokkra menn, og hafa þeir leitað til Sigurðar Tómassonar og Péturs Tyrfingssonar um framsögu á móti þeim Davið Oddssyni og Hannesi Gissurarsyni. Þessir fundir eru haldnir að frumkvæöi skólafélaganna sjálfra og ber vott um vaxandi áhuga manna á utanrikis- málum. Það teljum við her- stöðvaandstæðingar góðs viti og vonum að fleiri skólum fari eins. —AI Sigurvissa eða dularfull prentvilla? í kennsluskrá Háskóla Islands sem kom út i miðjum september s.l. er að finna meinlega villu. A lista yfir háskólaráðsmenn er próf. Ólafur Bjarnason, forseti læknadeildar, titlaður varaforseti háskólaráðs. Þvi embætti hefur hann hinsvegar aldrei gegnt og þegar kennsluskráin kom út var próf. Bjarni Guðnason, forseti heimspekideildar, varaforseti ráðsins. Nokkrum dögum eftir að skráin kom út fór hins vegar fram árlegt kjör varaforseta háskóla- ráðs og þá hlaut próf. Ólafur Bjarnason 6 atkv. i embættið en próf. Sigurjón Björnsson, forseti félagsvisindadeildar, 8 atkv. og var réttkjörinn. Nú vaknar óneitanlega sú spurning hvort framboð próf. Ólafs Bjarnasonar hafi verið undirbúið með löngum fyrirvara og stuðningsmenn hans hafi verið svo sigurvissir að þeir hafi látið skrá hann i kennsluskrá sem varaforseta háskólaráðs áð- ur en kosning fór fram. Stúdentum þætti vænt um ef umsjónarmenn kennsluskrárinn- ar útskýrðu hvernig á þessari meinlegu villu stendur. (Úr Stúdentablaðinu) Happdrætti Herstöðvaandstæðinga Dregid 15. nóvember Senn líður að þvi að dregið verði í Happdrætti Samtaka herstöðvaand- stæðinga, 15. nóvember n.k. Fjöldi útgefinna miða er 15.000 og verð hvers miða er 250 krónur. Vinningar i happdrættinu eru 250 talsins samtals að andvirði kr. 853.000. Þeir eru: Myndlistaverk: 1. Asgerður Búadóttir: Vefnaður. Verð 80000 kr. 2. Sigurður Thoroddsen: Mynd. Verð 50000 kr. 3. Messiana Tómasdóttir: Mynd- verk. Verð 40000 kr. 4. Guðrún Svava Svavarsdóttir: Teikning. Verð 40000 kr. 5. Jón Reykdal: Dúkrista. Verð 19000 kr. Til góðra nota: 6-25. Keflavikurgönguskór, sterkir og endingargóðir. Verð 4500 kr. samtals 90000 kr. Ritverk: 27-50. Málverkabækur Máls og menningar, 6 bindi. Verð hvers flokks 3600 kr. samt. 90000 kr. 51-75. Þórbergur Þórðarson: Ólikar persónur. Verð 3600 kr. samtals 90000 kr. Hljómplötur: 76-100. Jóhannes úr Kötlum: Sóleyjarkvæði. Verð 2400 kr. samtals 60000 kr. 101-150. Þokkabót: Fráfærur. Verð 2290 kr. samtals 114500 kr. 151-200. Olga Guðrún: Kvöld- fréttir. Verð 2790 kr. samtals 139500 kr. 210-250. Böðvar Guðmundsson: Þjóðhátiðarljóð 1974 + plakat um Varið land, verð 800 kr. samtals 40000 kr. Enn eru til óseldir miðar á skrifstofu samtakanna i Tryggvagötu 10, og upplýsinga má leita i sima 17966. Sinfónían í kvöld I kvöld, fimmtudag 10. nóvember heldur Sinfóniuhljóm- sveit tslands sina 3. áskriftartón- leika, og eru þeir eins og að venju i Háskólabiói kl. 20.30. Efnisskráin er að þessu sinni: Jón Asgeirsson: Lilja, Paganini: Fiðlukonsert i D-Dúr, Nielsen: Sinfónia nr. 2. Einleikari er Aaron Rosand, stjórnandi Eifred Eckert-Hansen. Lilja Jóns Asgeirssonar hefur verið flutt hér einu sinni áður, i nóvember 1971, og fóru gagnrýn- endur blaða mjög lofsamlegum orðum um verkið og höfundinn. Fiðlukonsert Paganinis og sin- fóniur Nielsens hafa einnig verið flutt hér áður. Eifred Eckert-Hansen er danskur og kom fyrst fram sem hljómsveitarstjóri 1949. Hann var nemandi Victor de Sabata við Scala óperuna i Milanó á árunum 1953-54, og eini erlendi nemandi þessa fræga hljómsveitarstjóra. Eckert-Hansen er nú aðalhljóm- sveitarstjóri i Tivoli i Kaup- mannahöfn, en hefur stjórnað mikið i Þýskalandi, Italiu, Bandarikjunum, Canada og Skandinaviu. Fiðluleikarinn Aaron Rosander bandariskur. Hann stundaði nám m.a. hjá Efrem Zimbalist og kom fyrst fram á sjálfstæðum tónleik- um i New York árið 1948. Hin sið- ari ár hefur hann leikið með öll- um helstu hljómsveitum i Ameriku og Evrópu. Aaron Rosand kom fram sem einleikari með Sinfóniuhljómsveit Islands I mai 1975. Megas med Spilverki á nýrri hljómplötu Á bleikum náttkjólum nefnisa ný hljómplata sem Iðunn hefur sent frá sér. Hún hefur að geyma Ijóð og lög Megasar, f jölbreytt að efni og búningi. Það er Megas og Spilverk Þjóð- anna sem standa að gerð plötunn- ar og annast útsetningar, söng og hljóöfæraleik. Auk þeirra félaga kemur Karl Sighvatsson allmikið viö sögu á plötunni og leikur á hljómborð, Helgi Guðmundsson á munnhörpu, Eggert Þorleifsson flautuleikari og Viðar Alfreðsson trompet. Þess má geta, að nú gefst i fyrsta skipti tækifæri til að hlýða á Megas sjálfan leika á hljóðfæri á hljómplötu. Þessi nýja plata Megasar og Spilverksins er óllk fyrri plötum Megasar að þvi leyti að hann sýn- ir á köflum meiri bliðu og hlýju en áður. En á þessari plötu er einnig að finna efni og flutning sem vafalaust mun hneyksla marga, svo sem tvö lög sem flokkast gætu undir svonefnt „ræflarokk”. Hönnun plötuumslags og texta- bæklings var i höndum Kristjáns Kristjánssonar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.