Þjóðviljinn - 10.11.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 10.11.1977, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 10. nóvember 1977 f ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA |S Hardar árásir ísraela á Líbanon: 100 sagðir hafa farist BEIRtJT 9/11 Reuter — israelski flugherinn gerðil dag haröar loft- árásir á ýmsa staði I Suður- Lfbanon og herma fréttir að nærri 100 manns hafi farist. Um S0 manns fórust I einu þorpi og álfka margir særðust. Þorp þetta heitir Azziyeh og er niu kilómetra frá landamærum israels og Libanons. Sex Israelskar herþotur steyptu sér yfir þorpið um morgun- verðarleytið .i morgun, köstuðu sprengjum og skutu af vélbyss- um, og var hvert einasta hús i þorpinu jafnað við jörðu eöa skemmt. Næst-mest varö tjónið samkvæmt fréttum, sem enn hafa borist, I Borj el-Shelali, palestinskum flóttamannabúöum nálægt hinni fornu hafnarborg Týrus, en þar fórust aö minnsta kosti um 30 manns. Israelsmenn skutu einnig af langdrægum fall- byssumá staði nálægtTýrus, sem var ein helsta hafnarborgin við Miðjaröarhafið á ti'mum Fönlka, sem á sinni tið byggðu strand- hðruð Libanons. Vorster gerir grín að vopnasölu- banni S.Þ. HEIDELBERG, Suður-Afrlku 8/11 Reuter — Jóhannes Vorster, forsætisráðherra Suður-Afriku, hæddist i dag að vopnasölubanni þvi, sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sett á Suður- Afriku og sagði að Suður-Afrlku- menn yrðu i engum vandræðum með að sjá við þvl, sem og öðrum refsiaögeröum sem S.Þ. kynnu að finna upp á. Sagði Vorster að Suð- ur-Afrlkumenn hefðu lengi átt von á slikum ráðstöfunum frá S.þ. og búið sig undir þær, þannig að þeir væru fyrir löngu orðnir sjálf- um sér nógir um framleiöslu vopna. Vorster sagöi einnig, aö Suöur- Afrikumenn væru að búa sig und- ir aö þaö ollusölubann yrði sett á þá, og myndu þeir standast það, enda þótt þaö ylli vissum erfið- leikum. En hann bætti þvl við að það bann myndi koma harðast niöur á blökkumannarikjum eins og Botsvana og Lesótó, sem fá mestan hluta olíu sinnar gegnum Suður-Afrlku. Glistrupar vilja daudarefsingu KAUPMANNAHÖFN 8/11 Reuter — Framsóknarflokkurinn I Dan- mörku (Glistrup-sinnar), Sem er stærsti stjórnarandstöðuflokkur- inn þarlendis, mæltii dag með þvi á þingi að dauöarefsing yrði á ný lögleidd I Danmörku og skyldu menn teknir af llfi fyrir hryðju- verk, sem hefðu manndráp i för með sér, svo og alvarlega hættu á manndrápum. — Dauðarefsing var numin úr lögum i Danmörku 1932, en nokkrir menn voru þó teknir afllfifyrirstriðsglæpi þar I landi eftir siðari heimsstyrjöld. I gærkvöldi fóru fram enn tveir leikir i meistaraflokki karla og áttust nú við Leiknir og Fram og Fylkir og Víkingur. Orslit urðu þau að Fram sigraöi Leikni meö 35:21 og Víkingur sigraði Fylki, með 22:18. —hól Israelsmenn segjast hafa gert þessar árásir i hefndarskyni fyrir eldflaugarárás á baöstaöinn Naharijá, sem er á tsraelsströnd skammt sunnan landamæranna. Otvarpið I Beirút segir ísraelska fallbyssubáta hafa skotiö á staði umhverfis Týrus. Allt athafnallf i borginni var lamað i dag, versl- anir lokaðar og götur fullar af fólki á flótta frá þorpum, sem orðið höföu fyrir árásum. Slðar um daginn er sagt að ísraels- menn hafi einbeitt árásum sinum aö þorpinu Khiam, sem er hern- aðarlega mikilvægur staður á þeirri landræmu Libanons næst tsrael, sem hægrisinnaðir Libanir hafa lengi barist um við vinstri- sinnaöa landa sina og Palestínu- menn. Libanskir vinstrimenn halda þorpinu ennþá. Israels- menn styðja hægrimenn og er haft eftir áreiðanlegum heimild- um að þeirhaldi áfram að styrkja aðstöðu slna þar á svæðinu, en alllangt er siðan tsraelsmenn komu sér upp sex vlggirtum stöðvum á libönsku landi. Llbanska stjórnin getur lítið gert i þessu máli, þar eð hún hefur eng- in völd á ræmunni næst landa- mærunum. Herstjórn Palestinumanna seg- ist hafa svaraö skothrið lsraels- manna yfirlandamærin og heldur þvi fram að tsraelsmenn dragi mikið lið að landamærunum, þar á meðal skriðdreka og vélaher- deildir. t tilkynningu frá PLO, aöalsamtökum Palestinumanna, eru Bandarikin gagnrýnd harð- lega fyrir stuöning þeirra við tsrael og sagt, aö stjórnin i Washington beri þunga ábyrgð á morðum á óvopnuðu libönsku fólki. Þetta eru hörðustu árásir tsraelsmanna á libanskt land i tvö ár, og er talið að þær stofni i stóra hættu vopnahlénu, sem gert var milli striðsaðila I Suður- Libanon 26. sept. s.l. Weizman — skref i átt til innlim- unar Vesturbakkahéraðanna? Jórdan orðin „landa- mæri 55 ALLENBY-brú á Jórdan 8/11 Reuter — tsrael gaf I dag til kynna að það liti á ána Jórdan sem landamæri milli Vestur- bakkahéraðanna hemumdu og Jórdaniu. Vekur þetta nokkra at- hygli, þar eð fram til þessa hafa tsraelsmenn skilgreint ána sem vopnahléslinu frá þvl 1 lok sex daga striðsins 1967. Þessi- afstöðubreyting tsraels var gefin til kynna i dag með þvi að setja upp nýtt skilti við Allen- by-brúna yfir Jórdan, en á skilt- inu eru menn boðnir velkomnir til „hinnar nýju landamærastööv- ar.” Um miljón manns fer yfir brú þessa árlega, og I dag var vlgö viö brúna ný umferðarmið- stöð að viðstöddum Ezer Weiz- man, varnarmálaráðherra tsra- els.oghundruðum annarra gesta, þar á meðal arabiskum framá- mönnum. Um Allenby-brúna fer mestur hluti viðskipta og umferð- armilli Jórdaiu og Vesturbakka- héraðanna. Weizman var aö því spurður, hvort hið nýja skilti ásamt með landamærastööinni þýddi, að tsraelsmenn hyggðust halda Vesturbakkahéruðunum til fram- búöar, en ráðherrann vildi ekki ræba það mál. ertendar fréttir / stutiu méti Slysahœtta vegna ófullnœgjandi flugumferðarstjórnar i Evrópu MAÓÁíÓ 9/11 Reuter — Einn af talsmönnum Alþjóöasam- bands flugfélaga (IATA) sagði I dag, aö flugumferðareftirlit væri mjög ófullnægjandi I Evrópu og fælist I þvi alvarleg slysahætta. Sagði talsmaöur- inn, Dick Shaw, að framfarir I flugumferöarstjórn og flugeft- irliti hefðu engan veginn haft undan aukinni flugumferö. Málið væri enn alvarlegra sökum þess, að mikið vantaöi á samræmingu milli farþega- og fhitningaflugs og umferöar herfhigvéla. Shaw sagði að hægt væri að auka öryggiö með þvl að koma á fót flugumferðarstjórnar- miðstöö fyrir alla Evrópu, i llkingu viö stofnun þá er hefur yfirumsjón með öllu flugi I Bandarlkjunum. En hann taldi óliklegt að það fengist fram I náinni framtið, vegna mismunandi pólitískra við- horfa evrópskra rlkisstjóma. A ársþingi IATA var lögð fram skýrsla, þar sem segir að stofnunin hafi nú til endur- skoöunar viðræður flugmanna og flugumferðarstjóra og orðaval þeirra. Er þar tekið fram, að mikilvægi þess, að ekkert fari milli mála i við- ræðum milli flugvéla og flug- turna hefði best sýnt sig þegar versta slys flugsögunnar varð áKanarieynni Tenerife imars s.l. Þar fórust nærri 600 manns. Dauöi lögreglumanns SUGAR HILLS, New Hamps- hire 9/11 — Willian Sullivan, fyrrum einn af háttsettustu mönnum bandarisku leyni- þjónustustofnunarinnar FBI, varð fyrir skoti og beiö bana er hann var á veiöum nálægt heimili sinu I New Hampshire i dag. Segir I fréttinni að hér hafi veriö um voðaskot að ræða. Sullivan var þriðji æðsti maður I FBI til ársins 1971, er hann var rekinn vegna opin- berrar gagnrýni á J. Edgar Hoover, þáverandi fram- kvæmdastjóra FBI, sem lengi var einn af valdamestu mönn- um Bandarlkjanna. Sullivan stjórnaði af hálfu FBI rann- sóknum viðvikjandi morðun- um á John F. Kennedy for- seta, Robert Kennedy bróður hans og blökkumannaleiötog- anum Martin Luther King. Mesta jarögasleiösla sögunnar WASHINGTON 8/11 Reu"ír — Carter Bandarikjaforseti gaf I dag endanlegt samþykki sitt til þess aö lögð yrði leiðsla fyr- ir jarðgas frá Alaska til Mið- vesturrikja Bandarikjanna. Leiðslan á að liggja yfir Kan- ada,og standa Bandarikin og Kanada i sameiningu að þess- ari framkvæmd, sem að sögn veröur sú mesta af þessu tagi I sögunni til þessa. Gert er ráö fyrir aö lagning leiðslunnar muni kosta 14 miljarða doll- ara. Kanadlska stjórnin hefur þegar samþykkt lagningu leiðslunnar, sem veröur 7680 kflómetra löng. Aætlað er að hún verði fullbúin áriö 1983 og að eftir henni muni streyma 3.6 miljarðar kúbikfeta af jarðgasi daglega. Gerið reyíarakaup V á UTSOLU- MARKAÐUR VINNUFATABUÐIN{ opnaði útsölumarkað í j Iðnaðarmannahúsinu i morgun Mlkið úrval af: í Iðnaðarmannahusinu við Hallveigarstíg Gallabuxum Flauelisbuxum Kuldaúlpum Blússum Vinnuskyrtum Pey sum ásamt miklu úrvali af öðrum fatnaði. Stórlækkað verð — Aðeins í nokkra VINNUF AT ABÚÐIN : daga: í Iðnaðarmannahúsinu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.