Þjóðviljinn - 10.11.1977, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 10.11.1977, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 10. ndvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13; lslenskir einþáttungar í útvarpinu í kvöld i kvöld verða fluttir I útvarpinu Odd Björnsson og „Upp Ur efstu hefst klukkan 20.10, en þess sið- tveir islenskir einþáttungar, skúffu” eftir ömölf Amason. ara kl. 21.00. Hvort leikritið er Sónata fyrir tvo kalla” eftir Flutningur fyrrnefnda verksins um hálfrar stundar langt. Leik- ” stjóri er Benedikt Arnason. Við upptöku á Islensku einþáttungunum sem fluttir verða I útvarpinu I kvöld: Frá v. til h. Oddur Björns- son, Friðrik Stcfánsson tæknimaður, örnólfur Arnason, Benedikt Arnason leikstjóri. Upp úr efstu skúffu EFTIR ÖRNÓLF ÁRNASON „Upp úr efstu skúffu” er ein- leikur og fer Helga Bachmann með hlutverk konunnar i leikn- um, sem kemur I fæbingarþorp sitt eftir langa fjarveru. 1 hús- inu þar sem hún ólst upp sér hún gamla muni, húsgögn og annað, og hún fer að hugsa um liðna tið og bera hana saman við það sem er. ömólfur Arnason er fæddur f Reykjavik áriö 1941. Að loknu stúdentsprófi frá M.R. 1960 stundaöi hann lögfræöinám um skeiö, en gerðist siðan blaöa- maöur. Hann stundaöi nám i ensku og enskum bókmenntum viö Háskóla íslands og leik- listarnám viö háskólann i Barcelona. Hann hefur um margra ára skeiö veriö farar- stjóri íslenskra feröamanna- hópa á Spáni og skrifaö tvær upplýsingabækur um landiö. Meðal leikrita ömólfs eru sjón- varpsleikritið „Samson” 1972 og „Viötal”,sem fluttvar I útvarp- inu 1975. Þá hefur örnólfur þýtt fjölda leikrita, bæöi fyrir útvarp og leikhús. Hann er nú formaöur Félags islenskra leikritahöf- unda. Sónata fyrir tvo EFTIR ODD BJORNSSON I „Sónötunni” segir frá tveimur mönnum, sem hittast- uppi við Leifsstyttuna á köldum vetrardegi, báöir svipaö á sig komnir. Þeir fara að rifja upp þaö sem á dagana hefur drifiö og leggja út af „lifsins þema”. Þorsteinn ö. Stephensen og Rúrik Haraldsson leika kallana. Oddur Björnsson er fæddur áriö 1932 aö Ásum I Skaftár- tungu. Hann varö stúdent frá M.A. 1953 og stundaöi háskóla- nám I Reykjavík 1954-55 og i 7.00 M o r g u n ú t v a r p . Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Valdimar örnólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbænkl. 7.50. Morgunstund barn- anna kl. 8.00: Þórunn Magnea Magnúsdóttir heldur áfram aö lesa söguna „Klói segir frá” eftir Annik Saxegaard (4). Tilkynn- ingar kl. 9.30. Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög milli atr. Tannlæknaþáttur kl. 10.25: Stefán Finnbogason tann- læknir talar um skólatann- lækningar. Tónleikar kl. 10.40. Morguntónleikar kl. 11.00: Fílharmoniusveitin i Vinarborg leikur „Ana- créon” forleik eftir Cheru- bini, Karl Munchinger stj./Filharmoniusveit Berlinar leikur Sinfóniu nr. 2 i D-dúr op. 36 eftir Beet- hoven, Herbert von Karajan stj./Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur Slavneska dansa eftir Dvorák, Willi Boskovský stj. 12.00 Dagskráin, Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frlvaktinni Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miödegissagan: „Skakkt númer — rétt númer” eftir Þórunni Elfu Magnúsd. Höfundur les (4). 15.00 Miðdegistónleikar: Vinaroktettinn leikur kammertónverk Sextett I D- dúr op. 110 eftir Felix Mendetssohn — og Nónett i F-dúr op. 31 eftir Louis Spohr. 16.00 Fféttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tó leikar. 17.30 Lagið mitt. Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál. Gisli Jóns- son flytur þáttinn. 19.40 isiensk sönglög 20.00 Leikrit: „Sónata fyrir tvo kalla” eftir Odd Björns- son. Leikstjóri: Benedikt Arnason. Persónur og leik- endur: Fyrsti kall: Þor- Vinarborg 1955-57. Hann hefur veriö kennari frá 1961, lengst af I Reykjavik, en siöustu árin á Þórshöfn á Langanesi. Hann hefur skrifaö mörg leikrit, bæöi fyrir leiksviö, útvarp og sjón- varp. Auk þess skrifaöi hann skáldsöguna „Kvörnina” 1967, og „I Krukkuborg”, ævintýri handa börnum, 1969. steinn ö. Stephensen. Annar kall: Rúrik Haraldsson. 20.40 Samleikur i útvarpssaL Camilla Söderborg leikur á blokkflautu, Snorri Snorra- son á gitar og Helga Ingólfs- dóttir á sembal tónverk eftir Telemann, van Eyck og Vivaldi. 21.00 „Upp úr efstu skúffu” einleikur fyrir útvarp eftir örnólf Arnason. Leikstjóri: Benedikt Arnason. Flytj- andi: Helga Bachmann. 21.30 Tónlist eftir Satie, Saint- Saens og Chabrier. Franski pianóleikarinn Cécile Ousset leikur.22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöld- sagan: „Dægradvöl” eftir Benedikt Gröndal. Flosi ólafsson les (30). 22.40 Kvöldtónleikar: Frá Norska útvarpinu. A. Birgitte Grimstad syngur lög eftir Geir Tveitt. Erik Stenstadvold leikur á pianó. B. Norska útvarpshljóm- sveitin leikur Norska rapsódiu nr. 2 eftir Johan Svendsen, Sverri Bruiand stj. C. Frantisek Vesalka og Milena Dratova leika Sóna- tinu fyrir fiðlu og pianó eftir öisten Sommerfeldt. D. Norska útvarpshljómsveitin leikur Gamla norska rómönsku eftir Edvard Grieg, Sverre Bruland stj. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Stjórnlaus síldarfrysting setur strik í reikninginn „Þvl miður er það svo, að nán- ast engin yfirstjórn er á frystingu sildar og þvi veit enginn aðili um þaö meö vissu hve mikiö af sild er búið að frysta hér á landi I ár. Við giskum á að það sé á milli 6 og 7 þúsund lestir, sem er alltof mikið magn. Af þvl myndi ekki nema um 3 þúsund lestir vera fluttar út, en 3-4þúsund lestirfæru þá i beitu og árleg notkun okkar tslendinga á beitusild er um eitt þúsund lest- ir. Þaö hafa þá veriö frystar 3ja til 4ra ára birgðir I haust og þetta setur okkur I Siidarútvegsnefnd I mikinn vanda”, sagði Gunnar Flóvents framkv æmdastjóri nefndarinnar er við ræddum við hann i gær. Gunnar sagði aö þar sem ljóst væri aö allir hringnótabátarnir, sem fengu leyfi til sildveiða myndu dtki nota leyfiö, taliö er aö þeir veröi 9 af 86 sem upphaflega fengu leyfi, þá er ekki vlst aö tak- istað salta uppi geröa samninga, þar sem svo mikiö af sild hefur veriö fryst. Þegarleyfitilsildveiöa viö Suð- urland voru veitt sl. sumar var gertráö fyrir aö veidd yröu 27.200 tonn af sild í ár. Af því máttu rek- netabátar veiða 10 þúsund lestir. Framhald á 14. siðu ^ Afgreiðslu- og sölustarf Óskum eftir að ráða starfsmann til að annast afgreiðslu og sölu á fóðurvörum. Umsóknir sendist starfsmannastjóra, sem gefur nánari upplýsingar, fyrir 18. þ.mán. Samband isl. samvinnufélaga BLAÐBERAR óskast í eftirtalin hverfi: Hverfisgata- Lindargata Laufásvegur Kaplaskjól- Meistaravellir Ytra-Seltjarnarnes ÞJOÐVILJINN Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsluna Síðumúla 6 — simi 81333 Háskólanemi og óskar eftir atvinnu. Helst kvöld helgarvinnu eða næturvörslu. Upplýsingar i sima 32848 milli kl. 5 og 7 i kvöld, fimmtudag. Persónuleg málefni Munaðarlaus 18 ára stúlka utan af landi, óskar eftir að kynnast góðu fólki, sem gæti leigt henni herbergi og veitt nokkurn per- sónulegan stuðning. Tilboð óskast sent blaðinu merkt ,.Stuðn- ingur 911”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.