Þjóðviljinn - 10.11.1977, Qupperneq 9
Fimmtudagur 10. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Sigurveig Jónsdóttir og Aöalsteinn Bergdal i
söngleiknum Lofti.
Sverrir Hólmarsson
skrifar um
/eikhús
Dýrmæt
reynsla
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
sýnir
Söngleikinn LOFT
eftir Odd Björnsson
Tónlist: Leifur Þórarinsson
Söngtextar: Kristján Árnason
Leikstjórn:Brynja
Benediktsdóttir
og Erlingur Gisiason
Leikmynid: Sigurjón Jóhannsson.
LeikfélagiAkureyrar hefur bæst
góbur liösauki þar sem eru þau
Brynja Benediktsdóttir og
Erlingur Gislason, en Brynja hef-
ur nú tekið við starfi leikhús-
stjóra. Það er sérstakt happ fyrir
félagið aö fá til starfa með sér
jafn dugandi hæfileikafólk og þau
hjónin. Og þau hafa svo sannar-
lega látið hendur standa fram úr
ermum siðan þau komu noröur.
Það hlýtur að teljast nokkuö
djarft leikið að ráðast I eins viða-
mikiö og flókið verkefni og þessi
sýning er, en árangurinn er
undragóður, einkum miöað við
aðstæður.
I þessari sýningu koma fram
nærri þrjátiu manns, hópur sem
að mestu leyti er tindur saman
héðan og þaöan. Verkið er auk
þess margbrotið i uppsetningu,
atriði mörg, miklar skiftingar og
mörg tónlistaratriði. Þegar á allt
er litið verður að teljast undra-
vert hversu mikilli nákvæmni og
góðum heildarsvip leikstjórunum
hefur tekist að ná fram. Sýningin
gengur hratt og snurðulaust, og
það er viða i henni töluverður
kraftur. Hér kemur mikiö til
hjálpar tónlist Leifs Þórarinsson-
ar, sem er frábærlega unnið verk,
margbreytileg, falleg, sterk og
með ósviknu stuöi. Hún var lika
býsna vel flutt af fjögurra manna
hljómsveit, leikurunum og kór
sem Jón Hlöðver Askelsson
stjórnar. Rétt er að benda hér á
að Leikfélagið hefur brugðið á
það snjalla ráð að gefa tónlistina
út á kasettu, og get ég óhikað
mælt með henni.
Það eru þvi margvisleg
ánægjuleg tiðindi á feröinni i
þessari sýningu. Hins vegar fer
ekki hjá þvi að heildaráhrif henn-
ar séu nokkuð óljós, en það stafar
fyrst og fremst af þvi hversu
veikburða texti verksins er.
Loftur er nútimaútgáfa af
Galdraloftssögunni. Loftur særir
djöfulinn upp til jaröar með raf-
eindatækni i þeim tilgangi að
bæta heiminn — hann hljóti að sjá
að sér þegar hann sjái framan i
þann vonda. En þaö fer á annan
veg, þvi að hin djöfullegu öfl eru
of langt fram gengin: djöfsi verð-
ur vinsælt fjölmiðlaefni og aðeins
fámennir hópar mótmæla uppi-
vööslusemi hans. Tvifari djöfuls-
ins úr viðskiptaheiminum tælir
Loft útí bisness og hann segir
skilið við stúlkuna sem elskar
hann og móður sina — sem hann
reyndar lætur skjóta úti geiminn
þangaö sem hann fæst við upp-
finningar sinar i geimstöð á braut
um jörðu.
Eins og vill brenna viö hjá Oddi
Björnssyni er hér margt nýti-
legra hugmynda, en mikið skortir
á að úrvinnslan sé nægilega góð.
Verkið er sundurlaust og megnar
aldrei að gæða persónurnar lifi né
vekja áhuga áhorfandans á örlög-
um þeirra. Það sem eftir stendur
eru nokkrar snjallar svipmyndir.
Söngleikurinn Loftur er unninn
upp úr Hornakóralnum, sem
fluttur var I Þjóðleikhúsinu áriö
1967. Ég sá aö visu þá syningu á
sinum tima, en er hún einhvern-
veginn einkennilega litið minnis-
stæð, þannig að óhægt er um sam-
anburð. Ég hygg þó að texta-
Framhald á 14. siðu
Grafikmynd eftir Andrej NOWACKI
Mynd eftir Stanislaw Wejman
Listráö Kjarvalsstada kynnir nýja pólska grafík
PÓLSK GRAFÍK ER í SÉRFLOKKI
Þeir sem fylgjast meö grafiklist eru almennt sammála
um að fáar þjóðir standi Pólverjum jafnfætis I þeirri
grein, en einn angi hennar er plakatagerð þar sem þeir
eru i aigjörum sérflokki. Grafiklistamenn þaðan vinna
regiuiega til helstu verðlauna I alþjóðlegum sýningunt
viða um heim, kennarar frá listaskólum þeirra eru fengn-
ir til að haida námskeið i grafik i akademium Vesturlanda
og verk þeirra má finna i söfnum allra Evrópulanda.
Astæður fyrir þessum yfirburðum þeirra eru margþætt-
ar, en þar er kannski mikilvægust hin langa hefð grafikur I
Póllandi, en þeir hal'a lagt rækt við hana frá þvi fyrir sið-
ustu aldamót og eftir heimstyrjöldina siðari fékk hún byr
undir báða vængi sem alþýðleg og auðskiljanleg listgrein.
Listráði að Kjarvalsstöðum þykir þvi viö hæfi að kynna
blóma pólskra grafiklistamanna, þar sem almenningur
hér á landi hefur nú fengið innsýn I framleiðslu annarra
landa á þessu sviði, á þéim mörgu og glæsilegu grafiksýn-
Sýning/ fyrirlestrar, pólsk nútímatónlist
og kvikmyndir um pólska grafik
Laugardaginn 12. nóv. kl. 15 —
Sýningin verður opnuð
Þriöjudaginn 15. nóv. kl. 20.30. —
Fyrirlestur: Ryszard Otreba
Sunnudaginn 20. nóv. kl. 20 —
Pólsk nútimatónlist
Miðvikudag 23. nóv. kl. 20.30
Kvikmyndir um pólska grafík.
Fimmtudag 24. nóv. kl. 21 —
Um pólska vef jalist-----
Hrafnhildur Schram.
ingum sem haldnar hafa verið i Reykjavlk undanfarin ár.
Þessi sýning sem nú fer i hönd er hingað komin fyrir til-
stilli pólska menningarmálaráðuneytisins og er valin af
listamanninum Ryszard Otreba sem er einn kunnasti
grafiklistamaður þar i landi. Kemur hann hingaö og mun
flytja erindi um grafik og rannsóknir sinar á táknum og
læsileika þeirra. Listamennirnir á sýningunni eru 34 tals-
ins og verkin eru 130 alls og má finna margskonar tækni,
m.a. ætingar, akvatintur, mezzotintur, tréristu, dúkristu,
þurrmál og gifsþrykk. Afstaða listamannanna er sömu-
leiðis margskonar. Flestir þeirra halda sig við einhvers
konar tilbrigði um veruleikann og fjalla um stöðu manns-
ins i nútimaþjóðfélagi, en aðrir einbeita sér aö öðrum
vandamálum myndræns eðlis. Eins og áður er nefnt verða
erindi flutt meðan á sýningunni stendur, kvikmyndir
verða sýndar og einnig verður pólsk tónlist flutt.