Þjóðviljinn - 10.11.1977, Page 11
Fimmtudagur 10. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
BORGARSTJÓRN:
Tillögu um lán til kaupa
á gömlum íbúðum vísaö frá
Ekki okkar hlutverk heldur rikisins, sagði Magnús L. Sveinsson
.Sigurjón Pétursson.
A slöasta fundi borgarstjórnar
Reykjavikur lagöi Sigurjón Pét-
ursson fram svofellda tillögu:
„Borgarstjórn Reykjavlkur
samþykkir aö stofna sérstaka
lánadeild viö Byggingasjóö
borgarinnar er hafi þaö markmiö
aö lána ungu fólki fé til kaupa á
gömlum Ibúöum I þeim hverfum
borgarinnar sem fólksfækkun
hefur oröiö mikil I og meöalaldur
Ibúa er hár.
Lánin skulu vera aö breytilegri
upphæö eftir stærö ibúöa, ástæö-
um. umsækjenda og eftir nauösyn
fólksfjölgunar I hverju hverfi fyr-
ir sig til aö þjónustumannvirki
borgarinnar nýtist sem best.
Viö gerö fjárhagsáætlunar árs-
ins 1978 skal stefnt aö þvi aö ráö-
stafa allt aö 200 miljónum króna
til þessa verkefnis.
Borgarráö skal ákveöa mörk
hverfa, lánsfjárhæöir, vaxtakjör
og lánstima og setja aörar þær
reglur er þarf um lán þessi.”
Misjöfn aldursdreifing i hinum
ýmsu hverfum borgarinnar hefur
oft veriö til umræöu hér I borgar-
stjórn, sagöi Sigurjón, er hann
fylgdi tillögunhi úr hlaöi. Þá hef-
ur oft veriö bent á skort á skólum,
leikrými, strætisvagnasamgöng-
um og fleiri þjónustustofnunum I
nýbyggöum hverfum þar sem
ungt fólk flykkist saman á
skömmum tima, oftast fólk sem á
mörg börn.
Þjónustustofnanir
standa auðar
Á sama tima hækkar aldur Ibúa
I eldri hverfum borgarinnar,
skólar tæmast og aörar þjónustu-
stofnanir eru litiö og illa nýttar.
Sigurjón tók dæmi af íbúafækk-
un I tveimur hverfum borgarinn-
ar, Þingholtunum og gamla Vest-
urbænum.
Ariö 1945 bjuggu i Þingholtun-
um 19.844 manns.áriö 196014.201 ,
áriö 1970 10.127 og áriö 1975 8.485
manns.
A síöustu 15 árum hefur ibúum
þar þvi fækkaö um tæp 6000.
Meöalaldur iteúa er 39.9 sem er
nokkru hærri aldur en meöaltaliö
I borginni sem er 32,6 ár.
26,2% Ibúa Þingholtanna eru
yfir 60ára aldri, en I borginni allri
er 14,7% yfir 60 ára aldri. Yngri
en 17 ára eru 19,4% I Þingholtun-
um en 29,7% I borginni allri.
Þessi fólksfækkun veröur jafn-
vel meir áberandi ef litiö er á ein-
stakar götur, sagöi Sigurjón. Viö
Laufásveg bjuggu t.d. áriö 1945
896 manns, áriö 1975 bjuggu þar
312 manns. Meöalstærö hverrar
fjölskyldu þar er 1,57.
1 gamla Vesturbænum og Þing-
holtunum eru 5.352 fjölskyldur
þar sem fjölskyldumeölimur er
aöeins 1.
Þessi þróun, sem ég hef rakiö,
sagöi Sigurjón, hefur oröiö vegna
þess aö hentugt húsnæöi fyrir
aldraöa vantar i borginni, en
einnig er hún vegna skorts á láns-
fé til kaupa á gömlum Ibúöum.
Eftirspurn eftir eldra
húsnæði mikil
Eftirspurnin eftir húsnæöi i
gömlum og grónum borgarhverf-
um er mikil. Þar getur fólk geng-
iö aö skólum, strætisvögnum,
verslunum, trjám og göröum vis-
um og þessi eftirspurn hefur leitt
til þess aö verölag á gömlum hús-
um er svipaö og á nýju húsnæöi.
Lánafyrirgreiösla til kaupa á
gömlum Ibúöum er hins vegar
mjög lftil. Húsnæöismála-
stjórnarlán til kaupa á nýjum
ibúöum er 2.7 miljónir króna en ef
fólk vill kaupa gamla ibúð er lán-
iö aðeins 600 þúsund krónur. Ef
fólkiö á ibúö fyrir og vill selja
hana og kaupa abra, er lánib ekki
nema milii 400 og 500 þúsund
krónur.
Þetta veldur þvi aö mun hag-
kvæmara er aö festa kaup á nýj-
um Ibúðum heldur en gömlum,
sagöi Sigurjón og þvi gera þaö
flestir. Gömlu hverfin tæmast,
dýrar þjónustustof nanir
borgarinnar nýtast illa eöa ekki,
meðan alger skortur rikir I nýjum
hverfum borgarinnar á sömu
þjónustu.
Þaö yröi mikil hagræöing og
sparnaöur fólginn I þvi fyrir borg-
ina, sagöi Sigurjón, ef ungu fólki
yröi auðveldað aö festa kaup á
eldra húsnæöi, þvi borgin hefur
fest umtalsveröa fjármuni I
hverri ibúö borgarinnar, fyrir ut-
an allar þjónustustofnanir sem
svo nýtast illa fyrir vikiö.
Hver ný íbúð kostar
borgina 1,7 miljónir
Hann tók siðan dæmi þess hve
dýrar einstaka þjónustugreinar
borgarinnar eru fyrir hverja
ibúð.
Vatnslögn I hverja ibúö aö
meðaltali kostar sem svarar 800
þúsund krónum, raflögn kr. 370
þúsund, hitaveita kr. 335 þúsund.
Ef þessar tölur eru lagöar saman
sést aö stofnkostnaður borgarinn-
ar viö hverja ibúö er 1.7 miljónir
króna.
Þá eru ekki taldir skólar, leik-
vellir, dagvistunarstofnanir,
strætisvagnar og fþróttamann-
virki i hverfinu.
Þessi dæmi sýna, sagöi Sigur-
jón, aö þaö yröi ekki kostnaöar-
auki fyrir borgina aö lána sem
svarar allt að tveimur miljónum
króna til þeirra sem vilja kaupa
sér gamla Ibúð. Þaö myndi ein-
ungis tryggja aö sú fjárfesting
sem borgin hefur lagt í ibúöina
yröi nýtt betur.
Sigurjón vék siðan aö nýlegri
samþykkt húsnæöismáiastjórnar,
sem skýrt er frá á öörum staö í
blaöinu i dag, þar sem lögb er
áhersla á aö endurbygging gam-
alla hverfa dragi úr þörfinni fyrir
nýbyggingar og komi þvi til meö
aö spara mikib fé.
RilíiA K«r"5
— ekki við
Magnús L. Svcinsson flutti frá-
visunartillögu Sjálfstæöisflokks-
manna viö tillögu Sigurjóns. í til-
lögunni segir eftir itrekun á þeirri
þróun sem Sigurjón rakti:
„Borgarstjórn Reykjavikur telur
mjög brýnt að lán úr Bygginga-
sjóöi rikisins til kaupa á eldra
ibúöarhúsnæöi veröi hækkuö
verulega og lán til endurbóta á
eldri ibúöum veröi aukin og látin
ná til fleiri aöila en nú er og skor-
ar á Alþingi aö gera I þvi sam-
bandi nauösynlegar breytingar á
lögum um Húsnæöismálastofnun
rikisins.
Borgarstjórn samþykkir einnig
aö leita eftir samstarfi viö Hús-
næöismálastjórn um uppbygg-
ingu og endurnýjun Ibúöa I eldri
borgarhverfum I þeim tilgangi aö
auka nýtingu þeirra þjónustu-
stofnana sem þar hefur veriö
komiö upp. Á méöan ofangreind-
ar viðræöur fara fram, telur
borgarstjórn ekki éfni til aö
stofna sérstaka lánadeild viö
Byggingasjóö borgarinnar og vis-
ar tillögu Sigurjóns Péturssonar
frá.” v
1 ræöu Magnúsar L. Svemsson-
ar sem hann flutti meö frávis-
unartillögunni sagöi hann aö efni
tillögu Sigurjóns væri stórmál, og
þaö væri aö auðvelda ungu fólki
aö kaupa ibúöir i eldri hverfum
borgarinnar.
Hann sagöi aö tilfærsla borgar-
búa úr eldri hverfum segöi ekki
aila söguna, þar sem einnig þyrfti
aö athuga nýtingu Ibúöanna en
þróunin væri sú aö hún færi si-
minnkandi.
I Reykjavik voru 2.93 ibúar I
hverri ibúö á slðasta ári, sagöi
Magnús, og er þaö minna en i
Noregi og Sviþjóö. Þaö er þó ekki
komib niöur I þaö hlutfall, sem
taliö er aö metti nýbygginga-
markaöinn, en þaö er talib vera
2.5 einstaklingar i Ibúö.
Stefna
borgaryfirvalda
Þaö er yfirlýst stefna borgar-
yfirvalda, sagöi Magnús , aö
sporna viö þeirri þróun aö þjón-
ustufyrirtæki borgarinnar nýtist
ekki. Má þar benda á samþykkt
aöaiskipulagsins frá i vor, þar
sem lögb er áhersla á aö f jölga
Ibúum eldri hverfanna verulega,
sérstaklega fjölskyldum meö
börn.
Ég hef samt ekki trú á þvi aö
þær 200 miljónir sem gerö er til-
laga um aö lánaðar veröi til
kaupa á þessu húsnæöi skili sér
strax meö fækkun nýbygginga.
Þaö gerist ekki fyrr en
markaöurinn er mettaöur, og þar
til aö þvl kemur veröum viö aö
gera okkur grein fyrir hvaðan á
aö taka peningana, sagöi
Magnús.
Þess vegna tel ég aö á þessu
stigi málsins eigi aö leggja höfuö-
áherslu á þaö aö Byggingasjóöur
rikisins láti aukiö fé i uppbygg-
ingu og kaup á gömlum Ibúöum
I Reykjavik.
Eru lán til kaupa á
eldra húsnæði of há?
Siöan bar Magnús saman
heildarlán til kaupa á gömium og
nýjum ibúðum og komst aö þeirri
niöurstööu aö lán til kaupa á eldri
Ibúöum væri mun hærra en lán til
kaupa á nýju húsnæði þar sem
hluti kaupverösins væri lánaö.
Hann tók slðan vara viö þvi aö
auka lán til kaupa á eldri ibúöum,
þar sem sllk lánapólitik heföi
áhrif á markaösverö þeirra og
myndi þess vegna valda hækkun
á söluveröi þeirra.
Sigurjón Pétursson tók aftur til
máls og mótmælti röksemdum
Magnúsar fyrir frávlsunartillög-
unni, þar sem hann heföi i byrjun
ræöu sinnar lýst sig fyllilega
sammála tilgangi hennar, og
viöurkennt þörfina á slikum lán-
um, en endað i þvl að það væri
hlutverk rikisins en ekki Reykja-
vikurborgar aö greiða götu
borgarbúa i sambandi viö kaup á
eldri Ibúöum.
Kristján Benediktssontók einnig
til máls og rakti hann tilgang og
þróun Byggingasjóðs bo.rgarinn-
ar en aö máli hans loknu voru
borgarfulltrúar Sjálfstæöis-
flokksins kallaöir aftur inn i
fundarsalinn þar sem Magnús og
forseti höföu setiö einir þeirra
meirihlutamanna meöan umræö-
an fór fram og samþykktu þeir
þar tillögu sina um frávisun.
—AI.
.. a.6. Aoaua.,.
• ••
Laugavegi 59 — simar 16975 & 18580
Höfum opnað
husgagnaverslun
í Kjörgarði, Laugavegi 59, kjallara (áður Skeifan).
Þar verða á boðstólum húsgögn
af öllum stærðum, gerðum og verðflokkum.
Verið velkomin í nýja verslun... og njótið
góðra kjara og fyrirgreiðslu.
20%
Næstu daga seljum við örfá
sófasett með 20% afslætti
og veitum jafnframt greiðslukjör.
Tilboð sem erfitt er að hafna
ef leitað er að fallegu sófasetti
á afbragðs góðu verði
HUSGAGJ^kKJÖIL
Laugavegi 59 — simar 16975 & 18580