Þjóðviljinn - 10.11.1977, Síða 12
12SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. nóvember 1977
Borgfirðingar
Akurnesingar
Alþýðuleikhúsið
Skolialeikur
Logalandi Reykholtsdal föstudag kl.
21:00. Bióhöllinni Akranesi laugardag kl.
21:00. Miðasala frá kl. 20:00 sýningar-
daga.
Járniðnaðarnemar
Félagsfundur verður haldinn fimmtudag-
inn 10. nóvember kl. 20.00 á Skólavörðu-
stig 19. Fundarefni:
1) Framtið félagsins.
2. ) Kosning fulltrúa á 35. þing INSl.
3. ) önnur mál.
Stjórnin.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skai vakin á
þvi, að 25% dráttarvextir falla á launa-
skatt fyrir 3. ársfjórðung 1977 sé hann ekki
greiddur i siðasta lagi 15. nóvember.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir til háskólanáms i Danmörku
Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki
handa Islendingum til háskólanáms i
Danmörku námsárið 1978-79. Einn styrkj-
anna er einkum ætlaður kandidat eða
stúdent, sem leggur stund á danska tungu,
danskar bókmenntir eða sögu Danmerkur,
og annar er ætlaður kennara til náms við
Kennaraháskóla Danmerkur. Allir styrk-
irnir eru miðaðir við 8 mánaða námsdvöl
en til greina kemur að skipta þeim ef
henta þykir. Styrkfjárhæðin er áætluð um
2.131,- danskar krónur á mánuði.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 15. desember n.k. —
Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
4. nóvember 1977.
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur*
tiverskonar biikksmíði.
Gerum föst verötilboð
SÍMI 53468
STYKKISHÓLMUR
Íi »
Stykkishólmur
Síldarsöltun í
HÓLMINUM
Fyrir skömmu hafði
Landpóstur tal af Hall-
dóri S. Magnússyni/
framkvæmdastjóra í
Stykkishóimi og innti
hann tíðinda úr Hólmin-
um. Halldóri sagðist svo
frá:
Frá útgerðinni
Hér var jöfn og stööug atvinna
I allt sumar. Bátarnir hafa
stundað skelfiskveiöi, eins og aö
undanförnu og sú veiöi helst
alltaf nokkuö jöfn. Svo hafa þeir
róiö meö linu og einn hefur veriö
á síldveiöum svo aö hér hefur
veriö söltuð sild undanfarnar
vikur en þaö hefur ekki átt sér
staö I f jölda mörg ár. Smábátar
hafa stundaö lúöuveiðar meö
haukalóö og hefur sú veiði geng-
iö mjög vel og talsvert mikiö
veiöst af stórlúöu.
Félagsstofnun um
slátrun
Slátrun er nú lokiö fyrir
nokkru. Tók hún heldur
skemmri tima en undanfarin ár
Frá Alþýðu-
bandalaginu
í Hveragerði
Fyrir skömmu var haldinn aö
Bláskógum i Hverageröi óvenju
fjölsóttur aöalfundur Aiþýöu-
bandalagsins þar. Sex nýir
félagar bættust i hópinn.
Garöar Sigurösson, alþingis-
maöur, sat fundinn og einnig
var Bergþór Finnbogason
gestur fundarins.
Fulltrúar á landsfund voru
kjörnir þau Halldór Höskuld-
sson, Sigurður Sólmundsson og
Þórgunnur Björnsdóttir og i
kjördæmisráö Auöur
Guöbrandsdóttir, Guömundur
Stefánsson og Valdimar Ingva-
son.
þb/mhg
Hefur ekki
gerst í fjöl-
mörg ár
þó að tala sláturf jár væri svipuö
og áöur eöa tæp 13. þús. fjár. En
fólk smá þjálfast i vinnubrögö-
unum. Slátrun er sameiginleg á
vegum fjögurra sláturleyfis-
hafa i Stykkishólmi og Grundar-
firöi. Eru þessir fjórir aöilar nú
búnir aö stofna meö sér félag
um kaup á sláturhúsinu, Slátur-
félag Snæfellsness heitir þaö,
og er hugmyndin að gera tals-
veröar endurbætur á húsinu.
Búiö er aö teikna viöbyggingu
viö húsiö og veröur trúlega
bráðlega byrjaö aö vinna viö
endurbæturnar eöa svo fljótt
sem fjármagn fæst.
Félagslíf
Félagslif er aÖ færast i auk-
ana eftir sumardvalann, hér
eins og annarssaöar. Arshátiö-
irnar eru byrjaöar og svo hefur
verið talsvert um þaö, að
ákveönir starfshópar taki sig
saman og fari til Reykjavfkur i
leikhúsin. Ég hygg þó aö stund-
um hafi starfsemi félaganna hér
veriö meiri en núna. Leikfélagið
hefur t.d. hætt störfum en þaö er
lengi búiö aö vera viö liði og er
sjónarsviptir aö þvi. Mér skilst,
aö ástæöan sé sú, aö þaö skorti
starfskrafta. Nýtt fólk virðist
ekki hafa vaxið upp til þess aö
taka viö af hinum eldri.
Hótelreksturinn
Hótelið, sem hér var opnaö I
vor, haföi töluvert aö gera i
sumar en þó munu nú steöja aö
þvi einhverjir rekstrarerfiöleik-
ar, einkum yfir veturinn. Þó
bætir nokkuö úr skák, aö gagn-
fræöaskólinn er til húsa I hluta
af hótelbyggingunni og er hún
þó a.m.k. aö þvi leyti nýtt yfir
veturinn. Annars mun þaö yfir-
leitt svo, aö hótelrekstur útum
land er erfiöur yfir veturinn þvi
feröamenn eru þá litiö á ferli en
viöa þannig ástatt, aö hótelun-
um þarf þó samt aö halda opn-
um ef mögulegt er.
Sveitarstjórnar-
framkvæmdir
Talsveröar framkvæmdir
hafa verið á vegum sveitarfél-
agsins i sumar, bæöi viö gatna-
gerö og svo viö aö ljúka hótel-
byggingunni. Framkvæmdirnar
hafa hinsvegar leitt til erfiörar
fjárhagsaöstööu fyrir sveitar-
sjóöinn og þvi hefur oröiö aö slá
öðrum á frest um sinn, sem'
æskilegt væri að geta gert.
Prófkjörin eru nú hér I fullum
gangi meö tilheyrandi funda-
höldum og smölunum.
hsm/mhg
Benóný Benediktsson
Benóný
Benediktsson
sextugur
Einn af lesendum blaösins sá,
að á dögunum átti Benóný
Benediktsson sextugsafmæli.
Hann sendir konum eftirfarandi
stöku:
Þekkti ég áöur þrekinn strák
sem þolinn var og slyngur,
garpur bæöi í giimu og skák,
giidur Húnvetningur.
Ingimundur gamli
Umsjón: Magnús H. Gíslason