Þjóðviljinn - 04.12.1977, Blaðsíða 2
Móttaka ávörum
til útlanda f lutt i
Bíldshöfda 20
í dag flytjum við vörumóttöku okkar, fyrir vörur til
útlanda, frá Reykjavíkurflugvelli í vöruafgreiðslu
Flugfraktar að Bíldshöfða 20.
Afgreiðslan verður opin mánudaga-föstudaga
kl. 9-12og 13-17.
Símanúmerið er 82855 - Biðjið um vörumóttöku.
LOFTLEIDIfí
ISLAJVDS
ífDoaffrakt
Einn merkasti
fornleifafundur
síðari tíma
RÓM 24/11 Reuter —
Stytta af rómversku visku-
gyðjunni Mínervu, úr
brenndum leir og i fullri
líkasmsijerð, hefur fundist
i helli skammt frá stæði
borgarinnar Lavíníum um
30 kílómetra suður af Róm,
og telja fornleifafræð-
ingar þetta einn mikil-
vægasta fornleifafund á
síðari árum. I hellinum
fundust um 50 aðrar stytt-
ur, meira eða minna brotn-
ar.
Hellir þessí er i aðeins nokkur
hundruð metra fiarlægð frá graf-
hýsi Eneasar Trójukappa, sem
samkvæmt sögnum á að hafa ráð-
ið rikjum á þesum slóðum og
Rómverjar hinir fornu röktu ættir
sinar til. Eneas á að hafa tekið
land á þessum slóðum, þegar
hann kom til ftaliu eftir mörg
ævintýri að Tróju eyddri. Min-
erva var talin dóttir Júpiters,
aðalguðs Rómverja, og samsvar-
aði Pallas Aþenu hjá Grikkjum.
Lavinium var helg borg Lat-
verja, ibúa héraðsins Latium um-
hverfis Róm. Fornfræðingar telja
ekki ólíklegt að stytturnar hafi
verið lagðar i hellinn til geymslu
um það leyti, sejp Latverjar
hættu dýrkun á Minervu um
hundrað árum fyrir upphaf okkar
timatals.
Mínervustytta fundin:
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. desember 1977
íbúðir fyrlr fatlaða
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra aug-
lýsir hér með eftir umsóknum um leigu-
ibúðir i Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, R.
íbúðirhar eru ætlaðar fötluðu fólki. Aðeins
þeir einstaklingar og/eða hjón koma til
greina, sem hafa ferlivist og geta séð um
sig sjálfir.
Að öðru jöfnu sitja þeir fyrir ibúð, sem eru
á aldrinum 16-60 ára.
Ibúðirnar eru 2ja herbergja með eldhúsi
og baði og 1 herbergja með eldunarað-
stöðu og baði.
Gert er ráð fyrir að fyrstu ibúðirnar verði
tilbúnar til afhendingar i janúar 1978.
Umsóknar eyðublöð afhent á skrifstofu
Sjálfsbjargar (Eyðublöðin verða einnig
send þeim, sem þess óska).
Umsóknarfrestur er til 31. des. 1977.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
Hátúni 12, Reykjavik
Simi 29133.
Vélstjórar -
Aðalfundur
Aðalfundur Vélstjórafélags Islands verð-
ur haldinn laugardaginn 10. desember
næst komandi i Tjarnarbúð (uppi) klukk-
an 14:00
Stjórnin »
Tóku Spánverjar upp
torfbæjarstílinn?
Svo segir i Vatnsfjarðarannál
ynngri:
„Sumir af þeim fóru til Dýra-
fjarðar og gerðu margir af þess-
um miklar óspektir, rændu og
stálu og ógnuðu fólki, hvar fyrir
þeim voru dæmdir dræpir og frið-
lausir af Ara Magnússyni, sem þá
haföi kóngsins lén yfir Isaf jaröar-
og Strandasýslum og sá dómur
siðan samþykktur i lögréttu. Lét
Ari Magnússon slá i hel þessa
ránsmenn, sem voru úr Byskaen,
eftir kóng Majestatis bréfi og be-
faling, og var hann sjálfur fyrir-
liði i þvf slagi. Voru 18 af þeim
drepnir i Æðey og á Sandeyri. 14
af þessum strákum komu inn i
Dýrafjörð og frömdu þar og sinn
ránskap og aðra óhlutvendni, og
þar lét hann slá i hel 13 af þeim,
en einn komst undan. Skeði það á
Skaga vestra, og virtist gert til
landhreinsunar, þá fyrir lögréttu
kom, og hafa þvilikir siöan ekki
aftur komið”
Nei, þvilikir hafa ekki siðan aft-
ur komið. Hins vegar hlaupa nú
islenskir strákar suður i Byskaen
i þúsunda tali á hverju ári og gera
sumir miklar óspektir, drekka,
serða og æpa á spænska. Ekki eru
þeir þó farnir að úthellla manns-
blóði þar enn svo að nokkru nemi
— aðeins nautablóði. Hitt er ann-
að mál hvort ekki fer að liða að
þvi að upp risi einhver Arinn
þeirra Spánverja.
Islendingar hafa ekki gert það
endasleppt þar suður frá um ald-
ir. Fyrir 700 árum fóru héðan
vigalegir Sturlungaaldarmenn til
grafar Jakobs postula i Santiago
de Compostela til að gera bænir
sinar — en þó aðallega til að
drepa mann og annan án vafa.
Hvort spænskir, þeir Ari drap,
sungu Heimsósómakvæði eða
Ljómur á þvi herrans ári 1616 er
vafamál en altént syngja Islend-
ingar nú hástöfum: A
Spaaaáááni.
Ekki er þess heldur getið að
spænskir sjómenn sem urðu hér‘
skipreika ellegar þurftu á kinda-
kjöti eða vettlingum að halda
tækju upp torfbæjarstilinn i
spænskri byggingarlist.
Hins vegar eru nú sólsleikjend-
ur og businessmenn i óða önn að
klambra saman einhvers konar
Alhömbrum og Generalifum uppi
á lslandi. Þjóðflutningarnir
miklu suður á Spán eru farnir aö
sjást á húsum i Reykjavik.
Gakktu suður á Arnarnes, inn i
Laugarás, upp að Háteigi eða inn
i Stóragerði. Og þú munt sjá!
—GFr