Þjóðviljinn - 04.12.1977, Qupperneq 5
Sunnudagur 4. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
af erlendum vettvangi
Sigur sósíalista í Grikklandi
Leikkonan heimsfrcga, Melina Merkúri, er ein af þingmftnnum sósfalista.
heimsins. Innan þeirrar heims-
myndar rúmast einnig uppgjör
við erfðafjandann tyrkneska —
sem er að sönnu liðfleiri og her-
styrkari en Grikkir.
Papandreú skrifar nýlega I Le
Monde Diplomatique, að timi sé
til þess kominn að Grikkir losi
um tengsli sin við bandariskt og
vesturevrópskt, einkum þó vest-
urþýskt, fjármagn. Hann litur á
Grikkland sem „útibú” frá efna-
hagslegum stórveldum Vestur-
landa 1 ætt við t.a.m. Suður-
Kóreu.
Hann litur á það sem stórslys ef
Grikkir gangi i Efnahagsbanda-
lagið og vitnar i þvi samhengi til
sænska hagfræðingsins Gunnar
Myrdals, sem segir, að þegar til-
tölulega vanþróað land gengur i
bandalag við tiltölulega vanþróað
land, þá muni innbyrðis munur
ekki jafnast, heldur aukast.
Gegn
herstöövastefnu
Hörð gagnrýni sósialistaleið-
togans á Bandarikin nýtur mjög
eðlilegra vinsælda i Grikklandi.
Allt frá þvi um 1950 hafa Banda-
rikin haft einskonar yfirstjórn á
griska hernum, og enginn neitar
staðhæfingum Papandreus um að
Bandarikin hafi náð geysisterk-
um tökum á grisku efnahagslifi.
Þá er öllum Grikkjum i fersku
minni hið ljósfælna hlutverk sem
Bandarikin gegndu á öllum ferli
herforingjastjórnarinnar. Hið
sama má segja um harmleikinn á
Kýpur 1974 — Bandarikin eru með
góðum rökum grunuð um að hafa
þar teflt djarft i þvi skyni að
breyta hlutleysisstöðu Kýpur —
og þau töpuðu, eins og menn vita,
á kostnað griskættaðra ibúa eyj-
arinnar.
Þessi mál gáfu sósialistaflokk-
inum byr i seglin. Einnig það, að
Karamanlis gerði i júli samning
við Bandarikin um herstöðvar.
Þessi samningur er einhverskon-
ar „aronska” — fyrir hann fá
Grikkir peninga. En Grikkir eru
stoltari en reykviskir ihaldskjós-
endur: kröfur sósialista um taf-
arlausa uppsögn þessa samnings
njóta mikils fylgis. Þá hefur
Karamanlis i fyrsta sinn siðan
1974 leyft Nato að athafna sig á
grisku landi vegna heræfinga.
Papandreu vill hinsvegar að
Grikkland gangi úr Nato og engar
refjar.
Öflugri andstaöa
Karamanlis hefur að sönnu
hreinan þingmeirihluta sem fyrr
segir, og getur þvi látið sam-
þykkja allt sem hann hefur haft á
prjónunum. En stjórnarandstað-
an er nú miklu sterkari og öflugri
en fyrr. Miðflokkur Mavrosar er
á hraðri niðurleið einmitt vegna
þess, hve mjög hann hefur neglt
sig upp við Karamanlis i ýmsum
greinum. Og eins og próf. Tsúka-
las skrifar nýlega i Le Monde
Diplomatique, þá standa efna-
hagslegar framfarir i Grikklandi
á mjög veikum fótum, aðlögum
grlsks landbúnaðar og iðnaðar að
EBE verður ekkert gamanmál:
það getur komið til átaka utan
þings einnig, sem yrðu Karaman-
lis mjög erfið.
Sósialistaflokki Papandreús er
svo lýst, að hann sé að verulegu
leyti flokkur vinstrisinnaðra
menntamanna sem njóti alþýðu-
fylgis. Hann skorti stuðning af
sósialiskri hefð i verkalýðshreyf-
ingu. Hinir tveir kommúnisku
flokkar hafa samtals um 12% at-
kvæða, en ekki höfum við i bili
spurnir af sambúð þeirra við
sósialistaflokkinn Pasok. Ef að
Karamanlis fylgir eftir hug-
myndum sinum um að sniða
griskt kosningafyrirkomulag enn
meir en áður eftir franskri fyrir-
mynd, getur vel komið upp sú
staða, aðþessir aðilar og ef til vill
einhver hluti núverandi miðju-
manna verði að smiða sér stóra
vinstrifylkingu, hvort sem þeim
likar betur eða verr. Sú fylking
hefur nú þegar a.m.k. 37% at-
kvæða.
Árni Bergmann tók saman.
Papandreú foringi Pasok; kröfur um félagsiegt réttlæti og uppsögn
herstöðvasamnings við Bandarfkin.
Þegar herforingjastjórnin féll
áttu menn fleira sameiginlegt en
fyrr. Það var ekki andspyrnu-
hreyfingin sjálf sem gat fellt her-
foringjana, þeir féllu fremur á
eigin aumingjaskap i efnahags-
málum og misheppnuðum ævin-
týrum á Kýpur. I kosningunum
1974 lék Karamanlis óspart á þá
strengi að eina ráðið til að koma i
veg fyrir nýtt fasistabrölt væri aö
kjósa flokk hans, Nýja lýðræðið.
Þessu trúðu griskir kjósendur:
stuðningsmenn herforingjanna
mundu ekki þora til við þann
gamla foringja borgaralegs i-
halds, Karamanlis.
Stjórn Karamanlisar hefur með
ýmsum hætti bætt efnahagslegt
ástand i landinu — enda var ekki
af miklu að státa þegar hún tók
við. En um leið hefur hægristjórn
hans gefið litinn gaum að félags-
legu misrétti: stéttaandstæður
eru hinar sömu og fyrr. Þvi var
ekki nema eðlilegt að i nýlegum
kosningum efldust vinstrisinnar,
og þá einkum sósialistaflokkurinn
Pasok, flokkur sem um leið er
þjóðlegur i viðhorfum og mjög
andvigur Nato sem fyrr segir.
Stefna Karamanlisar
Karamanlis boðaði nú til kosn-
inga ári fyrr en ætlað var til að
tryggja sér umboð til eftirfarandi
málalausna:
Hann vill breyta stjórnar-'
skránni, efla forsetavald að
franskri fyrirmynd — og sjálfur
mun hann hafa fullan hug á að sjá
Það hefur ekki farið
mikið fyrir því i fréttum,
að í nýafstöðnum kosning-
um í Grikklandi varð mikil
vinstrisveif la. Sósíalista-
flokkur Papandreús, Pas-
ok, tvöfaldaði fylgi sitt,
fékk 25.2% atkvæða, hafði
13.5% — og sexfaldaði
þingmannatölu sína. Pasok
berst gegn aðild að Efna-
hagsbandalagi og Nato.
Aðrir vinstrif lokkar fengu
12% atkvæða, en örfáa
þingmenn, vegna óhag-
stæðra kosningalaga.
Fylgi flokkanna
Pasok hefur nú 91 þingsæti en
hafði 15. Hinn stóri hægriflokkur
Karamanlisar forsætisráðherra
fékk 42.2% atkvæða og 174 þing-
sæti af 300 — og heldur þar með
meirihluta á þingi. Flokkurinn
hafði hinsvegar áður 54% at-
kvæða og 220 þingmenn. Miðju-
samband Georgios Mavros beið
mikið afhroð fékk 15 þingsæti en
hafði 57. Þessar stóru sveiflur á
fylgi eru m.a. tengdar þvi, að
grisk kosningalöggjöf er mjög
sniðin eftir þeirri frönsku: hún
refsar smáflokkum en ýtir undir
stærri flokka. Kommúnistar
fengu t.d. niu prósent atkvæða en
fá aðeins 11 þingsæti. Nýfasistar,
sem vilja konung heim og náða
forsprakka herforingjastjórnar-
innar sem steypt var 1974, fengu
7% atkvæða og fimm þingsæti.
Evrópukommúnistar fengu tæp
3% og tvö þingsæti.
Af hverju
vinstrisveifla?
Það voru vinstrisinnar sem
stjórnuðu andspyrnu gegn herfor-
ingjaeinræðinu griska, en það
voru hægrimenn sem unnu fyrstu
kosningarnar eftir að sú fasista-
stjórn hrökklaðist frá völdum
1974. Það eru hægrisinnar sem
hafa stjórnað endurreisn
'borgaralegs lýðræðis siðan, 'en
vinstrimenn sem unnu stóra sigra
i kosningunum.
Þetta er ekki eins undarlegt og
virðast kann. Eftir strið hófst
heiftarleg borgarastyrjöld i
Grikklandi sem skildi eftir sig
djúp sár og aíar stirða sambúð
vinstriafla og hægraliðs. Þær and
stæður komu m.a. fram í þvi að
það þingræði sem steypt var með
valdaráni herforingja 1967 var
mjög gallað — og spillt. En her-
foringjaárin, hin sjö mögru ár
Grikklands, 1967-74, drógu að
ýmsu leyti úr andstæðum milli
fylkinga. Það voru fyrst og
fremst vinstrisinnar, sósialistar
og kommúnistar, sem sátu I fang-
elsum og pyntingaklefum herfor-
ingjanna, en þar voru einnig
frjálslyndir andfasiskir borgarar
af ýmsu tagi. Hefðbundnir and-
stæðingar eignuðust nú sameigin-
legan óvin.
sig i hlutverki einskonar de
Gaulles Grikklands. Sterkur for-
ingi mun eitt einkenni þess sem
hann telur vera lýðræði; á hinn
bóginn hefur hann farið niðrandi
orðum um „kjaftæði á kosninga-
fundum”.
Karamanlis vill koma Grikk-
landi i Efnahagsbandalagið, hann
vill að griski herinn gangi aftur
undir yfirherstjórn Nato, hann
hefur lofað Bandarikjunum her-
stöðvum i Grikklandi. Og hann
vill semja við erkióvininn Tyrk:
land um landamæri á Eyjahafi,
þar sem von er á oliu, og um Kýp-
ur — og er þá talinn lfklegri til
málamiðlana en hörku.
Hart á móti höröu
Andreas Papandreú, leiðtogi
helleniska sósialistaflokksins
Pasok, hefur allt aðrar skoðanir á
þessum málum öllum en Kara-
manlis.
Hann er andvigur þvi að Grikk-
land gangi i Efnahagsbandalagið.
Og að þvi er Tyrkland varðar þá
erhann fylgjandi þvi, að láta hart
mæta hörðu og vikja hvergi frá
hans skilningi á griskum rétti.
Eins og að likum lætur er sú þjóð-
ernisafstaða mörgum að skapi i
landi mikillar sögu.
Karamanlis vill binda Grikk-
land sem fastast við Vestur-
Evrópu. Papandreú vill hinsveg-
ar sjá land sitt sem einskonar
miðstöð i nýju bandalagi milli
Balkanrikja og landa þriðja
erlendar
bækur
The New France.
A Society in Transition 1945-1977.
John Ardagh. Penguin Books
1977.
Höfundurinn stundaði nám i
Oxford og hefur siðan fengist við
blaðamennsku og greina- og bók-
askrif. Hann var lengi fréttamað-
ur i Frakklandi og Alsir og frá
þeim tima er áhugi hans á Frökk-
um og franskri menningu, sem er
i rauninni sérgrein hans auk kvik-
mynda og matargeröar.
Hann gaf út þessa bók i fyrstu
1968 en hefur oft endurskoðað
hana og skrifað upp ýmsa kafla.
Þessi þriðja útgáfa i Penguin er i
rauninni ný bók. Höfundurinn
hefur ferðast vitt um Frakkland
og haft tal af fjölda manna og
segja má að annað föðurland
hans sé nú Frakkland. Athuganir
hans á breyttum háttum og mati
á Frakklandi á þessu timabili eru
skýrt fram settar og lýsingar
hans á stúdentaóeirðunum og að-
draganda þeirra og afleiðingum
eru með þvi besta sem fram hefur
komið um þau efni i stuttu máli.
Þeir sem áhuga hafa á franskri
menningu og Frakklandi ættu að
lesa þessa skemmtilega skrifuðu
bók.
Introducing Sociology
Peter Worsley... Penguin Books
1976.
Nokkrir félagsfræðingar hafa
sett saman bókina, vegna þarfar
fyrir slikt rit, eins og þeir segja i
formála. Bókin er ætluð byrjend-
um i faginu. Höfundarnir rekja
hér söfnun heimilda og úrvinnslu-
aðferðir félagsfræðinga, fjalla
nokkuð um þróun þessarar fræði-
greinar sem sjálfstæðs fags og
rekja siðan þýðingarmestu þætt-
ina, sem eru höfuðefni félags-
fræðilegra rannsókna, svo sem
fjölskyldugerð, fræðslu, starf og
samfélag. Þessi upptalning er
mjög við og greinist auðvitað i
margvislega þætti. Höfundarnir
skýra helstu hugtök félagsfræð-
innar og kenningar ýmissa fé-
lagsfræðinga og stefna. Þetta er
handhægt rit og hentugt sem inn-
gangur að frekari lesningu i
greininni. Agætar bókaskrár
fyigja.
The Story of the Stone
Cao Xueqin. 2. Volume. Translat-
cd by David Hawkes. Penguin
Books 1977.
Skáldsaga þessi verður i fimm
bindum og eru nú tvö komin út.
Þetta bindi er framhald fjöl-
skyldusögunnar og nær yfir 257
daga. Höfundurinn lifði á 18. öld
og lýsir i þessari löngu skáldsögu
örlögum eigin ættar. Sagan er
fremur langdregin, höfundurinn
er humoristi og lýsingarnar eru
nokkuð svo annariegar i augum
Vesturevrópubúa, en forvitnileg-
ar. Skýringar þýðandans fylgja
og i bókarlok er skrá yfir þær per-
sónur sem koma fyrir i sögunni,
og eru þær fjölmargar.
The Penguin Dorothy
Parker
With an introduction by Brendan
Gill. Penguin Books 1977.
Dorothý Parker var alþekkt
sem einhver hittnasta og fyndn-
asta manneskja, sem setti saman
kvæði og sögur, en hún var jafn-
framt daprasta kona heimsins,
eins og útgefandinn segir i inn-
gangi að þessu safnriti hennar..
Hún fæddist 1893 og dó ein og yfir-
gefin á hótelherbergi i New York
1967. Hún hafði flutt frá Holly-
wood til New York 1963 og lagðist
þar i drykkjuskap, aðrir úrkostir
voru ekki fyrir hendi eins og kom-
ið var. útgefandinn skrifar ágæt-
an inngang.