Þjóðviljinn - 04.12.1977, Blaðsíða 15
Sunnudagur 4. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR skrifar:
tir „Sautján svipmyndir á vori”
Sjónvarpsnöldur
Lyfting sem hvarf
Þá erum við loksins laus við
krummann af skjánum — i bili,
að minnsta kosti. Hann verður
vist aftur kominn á kreik fyrren
varir, ef að likum lætur. Þvi
fremur sem menningar — og
bókaþjóðin mikla liggur f löt fyr-
ir flatbröndurum hans og aftur-
haldsbulli. Fólk sem ég tek
mark á fullyrðir, að annað eins
skemmtiefni og „Undir sama
þaki”hafi islenskur almenning-
ur ekki barið augum, og séu nú
uppi ráðagerðir um að hefja
gerð myndaflokks sem endist
okkur næstu áratugina, i stil við
Coronation Street i Bretlandi.
Undir stjórn Hrafns Gunnlaugs-
sonar, náttúrulega. (Ég sel
þennan þó ekki dýrar en ég
keypti hann).
Ég minntist á „Undir sama
þaki” fyrir þremur vikum, og
hef svosem engu við þau skrif a ð
bæta. Þeir þættir sem þá voru
ósýndir reyndust mjög svipaðir
hinum fyrri. Bankaræninginn
kom i leitirnar og hafði sem bet-
ur fer ekki verið brenndur á
báli. I lokaþættinum var m.a.s.
gerð tilraun til að lengja svolitið
brandarann um bankaránið, en
langsóttara og aumara þvaður
hef ég sjaldan komist i tæri við.
Og vel á minnst, var ekki búið
að lýsa þvi yfir að þættimir ættu
að „lyftast á hærra plan” eftir
þriðja eða fjórða þátt? Ekki
varð ég vör við þá lyftingu.
Utanbókar-
lærdómur
1 siðasta sjónvarpspistli min-
um kvartaði ég undan eldgöml-
um barnatimum. Nú eru tvær
eðaþrjárvikur siðan byrjað var
aö flytjaStundina okkari nýjum
búningi. Mér er það fjarri skapi
að fella harðan dóm yfir nýlið-
um sem auðsjáanlega gera sitt
besta og eiga áreiðanlega eftir
að standa sig ágætlega þegar
fram liða stundir. En mér datt i
hug, hvort það væri nauðsyn-
legt, að aðstandendur barna-
timans væru sifellt að þylja ut-
anlærðar setningar? Sérstak-
lega er þetta hvimleitt þegar
börn eru að hafa yfir texta, sem
greinilega er saminn af full-
orðnum. Mætti ekki eyða ofur-
litið meiri tima i undirbúning
þáttanna og láta utanbókarlær-
dóminn lönd og leið? Oft finnst
mér lika gæta furðulitils
hugmyndaflugs þegar framleitt
erefni fyrir börn. Ballettskólar
eru auðvitað allra góðra gjalda
verðir, en það eru kannski tak-
mörk fyrir þvi hversu oft venju-
legir krakkar nenna að horfa á
sömu æfingarnar, framkvæmd-
ar i hinum ýmsu ballettskólum
borgarinnar.
Búinn Strindberg
Þá er Strindberg allur. Mikið
hvein i siðferðispostulum um
landiðþvertog endilangt meðan
á sýningum þessara fjögurra
hjónabandsþátta stóð. Var helst
á bréfriturum siðdegisblaðanna
að skilja að Sviar hefðu nú i
vonsku sinni ákveðið að gera öll
islensk börn að kynvillingum.
Mér finnst áberandi hve sumt
fólk virðist varnarlaust gagn-
vart kössunum sinum — já og
gagnvart börnunum sinum lika.
Af hverju skrúfar það ekki fyrir
kassann og fer að spila Olsen —
ólsen við börnin þegar svona
stendur á? Annars held ég, að
börn hafitalsvertmiklu'verra.af
að horfa á þætti einsog Undir
sama þaki en Varnarræðu vit-
firrings. Þau hafa nefnilega
a.m.k. fæst forsendur til að
skilja hvað fram fer á heimili
Strindbergs, og það sem maður
skilur ekki hefur ekki jafnmikil
innrætingaráhrif og hitt sem
maður skilur, i þessu tilviki
smekklaust og lágkúrulegt bull-
ið i „Undir sama þaki”.
Kúgari - kúgadur
Þegar á heildina er litið finnst
mér „Varnarræða vitfirrings”
vandað og gott innlegg i jafn-
réttisumræðuna. Það besta við
þættina er liklega sú staðreynd,
að höfundar þeirra draga ekki
taum annars aðila þessa voða-
lega hjónabandsá kostnað hins.
Bæði hjónin eru sýnd i talsvert.
miskunnarlausara ljósi en
gengur og gerist i sjónvarps-
þáttum. Hjónabandið sem borg-
araleg stofnun stuðlar að eyði-
leggingu tveggja einstaklinga,
sem skiptast á um að leika hlut-
verk kúgarans og hins kúgaða.
Engin mannleg samskipti eru
eins niðurlægiandi og þau sem m
byggjast á lög’máli einkaeignar- í
innar. Til þess að sýna fram á
þetta var nauðsynlegt að taka
kynlifið með i spilið, annars
hefði ekki verið um neitt upp-
gjör við hjónabandið að ræða.
Það er þvi mjög út i hött að tala
um klám i sambandi við þessa
þætti, einsog óspart hefur verið
gert. Hitter svo annað mál, að
mér fannst óþarflega mikið af
svo góðu — einfaldlega vegna
þess að stundum var um
ástæöulausar endurtekningar
að ræða.
Rússneskur áróöur
Þá er ótalinn sá myndaflokk-
urinn sem mestum fiðringi virð-
ist valda um þessar mundir, sá
sovéski. Það er mjög þakkar-
vertað sjónvarpið skyldi loksins
þora að taka hann til sýninga,
eftir nær tveggja ára umhugs-
unartimabil. Þegar þetta er rit-
að hafa tveir þættir verið sýnd-
ir. Það fyrsta sem við tökum
eftir er að rytminn i þessum
þáttum er allur annar en við
eigum að venjast i þeim engil-
saxnesku kvikmyndum sem við
erum ofmötuð á árið um kring.
Atburðirnir koma ekki hlaup-
andi fyrirvaralaust á móti
manni, heldur eiga þeir sér að-
draganda, forsendur og afleið-
ingar. Við fáum tækifæri til að
hugsa, melta það sem borið er á
borð fyrir okkur. Sumir kunna
þessu vel, aðrir hafa ekki þolin-
mæðitil að hugsa.Og tileru þeir
sem i vandlætingu skrúfa fyrir
tækin áður en þátturinn hefst og
segjast ekki horfa á „rússnesk-
an áróður”. Þvifólki finnst eng-
Framhald á bls. 22 .
Júdas frelsaöi heiminn.
Ég held að Júdas Iskariot hafi
verið trúaður og góður maður og
hlýðinn frelsara sinum, en Jesús
dó vegna þess að hann vildi deyja
fyrir okkur.
Morgunblaðið.
Málsvörn
fyrir lítilmagnann
Hvers á Stalin að gjalda?
Matthias i Reykjavikurbréfi.
Hiö sanna þjóöarstolt.
garðinum
Sælir eru útskúfaðir,
þyí Magnús mun þeim
fagna.
Hef ekki ennþá skoðað skips-
höfnina — segir Magnús Torfi
(um Pétur Sigurðsson stýri-
mann). Dagblaðið.
Lifi Krafla/ ofveiðin
og veröbólgan.
„Ekkert er okkur jarðarbúum
eins áriðandi, og að komast i
nánari tengsl við hin miklu
alheimssambönd lengra kominna
mannkynja annarra lifsstjarna
og njóta þaðan lifmagnandi
áhrifa og leiðsagnar til batnandi
lifs á jörðu okkar.
Hér gætu Islendingar verið i
broddi fylkingar, þvi hvergi ann-
ars staðar i heimi hefur jarðveg-
urinn verið undirbúinn á sama
hátt og hér.
Það er hinn islenski heims-
skilningur sem hér gæti ráðið
úrslitum.” Morgunblaðið.
Lífskjarabyltingin
nartar í börnin sin
— Velferðarriki skammtar
honum beinakex og egg i öll mál
og hitaveituvatn að drekka með.
Svo getur hann vel leyft sér eitt
epli i eftirmat. Alþýðublaðið.
Maöur er manns gaman.
Ég gæti sjálfur látið mér detta
ýmislegt skemmtilegra i hug en
að búa til krossgátu á bakhlutann
á þessari stúlku, en hvað um það
— smekkur manna er svo marg-
vislegur. Timinn.
— Og hver stjórnar svo bylt-
ingunni?
— Hann heitir vist Lenin
— Er hann Ungverji?
— Nei.
— Það var leiðinlegt.
— Já vist er það. En við getum
ekkert gert i þvi. Ekki geta allir
verið Ungverjar.
Ný smásaga eftir István
Örkeny.
sími VÍSIS er
86611
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Þórsgötu Kvisthaga
Laufásveg Efri -
Lambastaðahverfi (Seltj.) Skúlagata
Efri-Laugavegur Miðtún
Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera i
þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráða-
birgða i nokkrar vikur.
uúmium
Vinsamlegast hafið samband viö afgreiðsluna
Siöumúla 6 — sími 81333.
Móðir okkar
Kristin ólafia Einarsdóttir
sem lést föstudaginn 25. nóvember á Elliheimilinu Grund,
verður jarðsett þriðjudaginn 6. desember kl. 13.30 frá
Dómkirkjunni.
Gústaf Ófeigsson Dagbjört Guðbrandsdóttir
Einar Guðbrandsson Margrét Guðbrandsdóttir
Sigurður Guðbrandsson