Þjóðviljinn - 04.12.1977, Qupperneq 23
Sunnudagur 4. desember 1977 MÖÐVILJINN — SIÐA 23
kompan
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
Prinsessan og
bræöurnir þrír
Æfintýri eftir
Soffiu og
Katrínu
Einu sinni var prins-
essa. Margir menn komu
og báðu hennar. Og þar á
meðal þrír bræður. Eldri
bræðurnir höfðu yngsta
bróðurinn alltaf að háði.
Þannig hagaði til að
prinsessan lét hengja þá
sem ekki gátu leyst þrjár
þrautir.
Elsti bróðirinn fór inn.
Hann sá að salurinn var
fullur af fólki. Tveir
menn leiddu hann inn í
annað herbergi. Þar inni
var löng ábreiða sem
leiddi að hásæti prins-
essu. Hún bað hann að
setjast hjá sér. Hann
mátti ekki setjast hjá
henni/ en gerði það. Þá
hafði hann leyst fyrstu
gátuna vitlaust.
Önnur þrautin var
þannig að hann átti að
fara inn í herbergi og þar
átti hann að velja á milli
þriggja stúlkna/ en hann
mátti ekki kíkja bak við
tjaldið í herberginu. En
hann var svo forvitinn að
Hvenær byrja
áætlunarferðir
í Bláfjöll?
Ein fjórtán ára, sem
ekki vi11 láta nafnssíns
getið/ sendi Kompunni
þessa mynd. Hún spyr
hvort áætlunarferðir i
Bláfjöll séu byrjaðar.
Nei, þeir á Umferðar-
miðstöðinni sögðu, að
venja sé að byrja ekki
fastar áætlunarferðir i
Bláf jöll fyrr en eftir ára-
mót; þó geti það komið
fyrir að farnar séu ferðir
áður, ef alveg sérstak-
lega gott skiðafæri gefi
og veðráttan sé óvenju-
lega hagstæð. Þá eru
ferðirnar auglýstar.
hann gerði það. Þá komu
tveir menn og báru hann
út. Nú átti hann bara eina
þraut eftir. Hún var
þannig að hann átti að ná
i GULLSITRÖNU af
trénu á heimsenda. Og
hann átti að vera kominn
heim eftir einn mánuð
með sítrónuna með sér.
Hann byrjaði að undir-
búa sig fyrir ferðina.
Svo kom hinn mikli
dagur er hann átti að
leggja af stað. Hann gekk
lengi, lengi, þangað til
hann mætti héra. Hérinn
spurði hvort hann vildi
gefa sér mat. En hann
neitaði og borðaði sjálfur
nestið sitt. Að lokum var
hann kominn út á heims-
enda. En hann gat ekki
náð sítrónunni, hvernig
sem hann reyndi. Og þeg-
ar hann kom til borgar-
innar var hann hengdur.
Svo fór sá næst-elsti af
stað,og fór eins fyrir hon-
um.
Þá var komið að yngsta
bróðurnum.
Þegar hann kom inn í
herbergið til prinsessunn-
ar, bað hún hann að setj-
ast hjá sér, en hann gerði
það ekki. Þá hafði hann
leyst f yrstu þrautina. Svo
var farið með hann inn í
herbergið til stúlknanna.
Og hann valdi þá sem var
i miðjunni, og var það
rétt. Þá var hann búinn
að leysa aðra þrautina.
Þá var komið að þeirri
þriðju. Hann lagði af stað
og hitti hérann. Hann gaf
honum að borða. Og hélt
svo áfram þangað til
hann var kominn út á
heimsenda. Þar var þá
fyrir honum hérinn og
spurði hvers hann vænti.
Hann sagði honum vanda
sinn. Stökk hérinn þá upp
í tréð og náði í sítrónuna.
Fór hann siðan heim.
Stuttu seinna voru hann
og prinsessan gefin sam-
an í hjónaband og þau
eignuðust börn og buru.
Gagnrýni og
góð vísa
Kæra Kompa!
Mér finnst að það ætti
að hafa auðveldari skýr-
ingar á krossgátunni, því
ég botna hvorki upp né
niður eða til hliðar í
henni.
Ég sendi þér lika litla
vísu.
Ó, blessuð bliða sólin
hverfur bak við ský.
Bráðum byrjar skólinn
og námið á ný.
Nú verð ég að kveðja.
Vala Magnúsdóttir, 9 ára,
Barónsstig 65, Reykjavik.
I / /
HBRXfí KDVtn KiTíuyytVtfbZK Tflfl MHR.
fl ’BW&flr <rs«, flfl/fi/ aoe'/ffr 4
'fl Mfl-K/Zffrs.
óNToKR-r gíbtu. tz. teikX*®
$\SD VrflX if TBXKH’ffBx UrV-i flfíMbfl faETff- .
"Rí. «/• y ^
3
Utltsuts t/ETui.S'&órmz
ZvjflBflKKf?
foff A?sy*:jfl rín.
Böðvar á Akureyri
á margar kisur!
Systkinin Hildur og
Snorri hafa áður sent
Kompunni skemmtilegar
myndir. Kompan þakkar
þeim og öllum öðrum
krökkum sem eru dugleg
að skrifa.
En hvernig væri að
hann Böðvar á Akureyri
sendi okkur, þó ekki væri
nema eina vísu um kis-
urnar sínar? Það eru svo
margir krakkar, sem
haf a gaman af því að lesa
um kisur.
Hver
gleymdi að
skrifa
nafnið sitt?
Einhver, sem sendi rétt
svör við getraunum núm-
er 1 og 2, gleymdi að
skrifa nafnið sitt undir.
Sá, sem þetta gerði, gæti
verið 11 eða 12 ára eftir
skriftinni að dæma. Hann
hefur nýlega tekið upp á
því að hafa ,,öfugan
halla" á skriftinni, en það
er einkennandi fyrir þann
aldur. Hann er liklega
stelpa, því hann gerir
hring yf ir i í staðinn fyrir
punkt, en það finnst 12
ára stelpum smart. Hann
skrifar með frekar Ijós-
bláum kúlupenna.- Loks
teiknaði hann Ijómandi
snotra mynd af fyrirbær-
inu (úr getraun 2) að elta
hræddan krakka. Von-
andi getur viðkomandi
þekkt sjáifan sig af lýs-
ingunni, og sendir nafnið
sitt um leið og hann svar-
ar getraun 3.
35 krakkar
sendu svör
Nú er búið að birta allar
getraunirnir þrjár að
tölu. í næsta blaði birtum
við svo nöfn þeirra
þr
út
ggja sem verða dregin
í þessari viku komu svo
mörg bréf að ekki er
pláss i blaðinu fyrir öll
nöfnin. Það er leiðinlegt,
en þið getið treyst því að
bréfin ykkar hafa komist
til skila. Margir af þess-
um krökkum hafa aldrei
áður skrifað Kompunni
ogvonandi eiga þeir eftir
að skrifa henni oft. Það
er líka ánægjulegt hve
bréf in koma víðsvegar að
af landinu. Gaman væri
aðfá fréttabréf frá öllum
þessum stöðum.
Klippimyndin í dag
heitir Hjartaþjófurinn og
er eftir æfintýraskáldið
fræga Hans Christian
Andersen. Hann var
fæddur í Odense í Dan-
mörku 2. apríl 1805,en dó
sjötugur aðialdri 4. ágúst
1875.
Þegar hann dó hafði
hann öðlast frægð í
heimalandi sínu,og nokk-
ur æf intýra hans höfðu þá
verið þýdd á tungur stór-
þjóða, en seinna átti hann
eftir að verða eftirlætis-
skáld barna um allan
heim. Kannski ekki síst
vegna þess, að honum
datt ekki í hug, að börnin
væru litlir, saklausir
englar með eplakinnar og
himinblá augu og þyldu
ekki að heyra neitt nema
tæpitungutal og sussum
bí. Æfintýrin hans eru
verulega grimm eins og
ævintýri eiga að vera.