Þjóðviljinn - 10.12.1977, Page 3

Þjóðviljinn - 10.12.1977, Page 3
Laugardagur 10. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA3 Vance til Austurlanda nær: Hefur vart erindi sem erfiði Sadat og Begin i hátíðaskapi við heimsókn þess fyrrnefnda til Jerúsalem. Enn er óséð hver eftirleikurinn verður. Assad í liðsbón til oliurikja Fær að líkind- um dræmar undirtektir KAIRÓ 9/12 Reuter — Cyrus Vance, utanrikisráðherra Banda- rikjanna, kemur til Karfró i kvöld og hefst þar með leiðangur hans um Austurlönd nær i þeim tilgangi að fá Arabaríki til fylgis við friðarumleitanir Sadats Egyptaforseta gagnvart ísrael. Takmarkaðar likur eru þó taldar á þvi að Vance hafi erindi sem erfiði, þar eð svo er að sjá að við- leitni Hússeins Jórdaniukonungs til þess að béra sáttarorð á milli Egypta og Sýrlendinga hafi ekki borið mikinn árangur. Hússein kom til Kairó i gær eftir að hafa fyrst farið til Dam- askus, en fór frá Kairó fyrr en bú- ist hafði verið við, og var aflýst siðari viðræðufundi af tveimur, sem til stóð að þeir Sadat ættu með sér. Sagt er að Sýrlendingar 350.000 undirskriftir gegn nevtrónu- sprengju HAAG 8/12 Reuter — Hollenskir andstæðingar hinnar umdeildu nevtrónusprengju segjast hafa safnað um 350.000 undirskriftum undir áskorun, þar sem þess er krafist að sprengjan sé ekki framleidd né fengin herjum i hendur. Samtökin, sem standa að undirskriftasöfnuninni, hafa og lýst þvi yfir að þau hyggist bjóða andstæðingum nevtrónusprengj- unnar I öðrum löndum, þar á meðal i Bandarikjunum og Kanada, til mótmæTaráðstefnu i Amsterdam i mars næstkomandi. Fráfarandi Hollandsstjórn hefur ekki tekið afstöðu til þess, hvort nevtrónusprengjan verði fengin i hendur herjum i Evrópu. KOVÆT 9/12 Reuter — Hafes al- Assad Sýrlandsforseti er kominn til olíurikisins Kúvæt við Persa- flóa; hafði áður verið i Saudi- Arabiu,og fer að sögn frá KUvæt til Sameinuðu Arabafurstadæm- anna og Katar. Er erindi Assads að likindum að fá oliuriki þess til liðs við sig i reiptoginu við Sadat Egy ptalandsforseta, sem upphófst við ísraelsför Sadats á dögunum. Egyptaland, Sýrland og Jórdania, grannriki fsraels þrjú sem átökin við Israelsmenn hafa einkum mætt á, eru f járhagslega kominupp á oliurikin. Óliklegt er talið að Assad fái miklar undir- tektir hjá smárikjunum við Persaflóa, enda þóttþau hafi látið i ljós nokkra óánægju með ísraelsför Sadats. Þau hafa jafn- framt forðast að taka eindregna afstöðu með þeim rikjum, sem harðast hafa snúist gegn Sadat i þessu máli. Orðrómur er á kreiki um að Kúvæt og Saudi-Arabia reyni að brúa bilið milli Egyptalands og andstæðinga þess meðal Arabarikja, en ekki hefur stað- festing fengist á þvi. séu áfram andsnúnir ráðstefnu þeirri sem Sadat hefur boðað til i Kairó til undirbúnings friðarvið- ræðum i Genf. Sádat báuð til ráð- stefnunnar Sýrlandi, Jórdaniu. Libanon, Palestinumönnum, Israel, Bandarikjunum, Sovét- rikjunum og Sameinuðu þjóðun- um. Aðeins Israel, Bandarikin og Sameinuðu þjóðirnar hafa til þessa þegið boðið. Sýrlendingar eru sagðir vilja að friðarviðræður verði teknar upp annarsstaðar en i Kairó, og þá helst i Genf, undir vernd Sam- einuðu þjóðanna. Bandarikjanna SALISBURY 9/12 — Ian Smith, forsætisráðherra stjórnar hvitra manna i Ródesiu, sagðist i dag búast við þvi að Joshua Nkomo, annar aðalieiðtoga Föðurlands- fylkingarinnar, myndi brátt snúa aftur h'cim til Ródesiu, þar eð hann gerðisér Ijóstað útlegð hans gæfi keppinautum hans sem i landinu dveljast, og þá einkum Abel biskupi Muzorewa, góð tæki- færi til þess að auka fylgi sitt meðal blökkumanna landsins á hans kostnað. Sagði Smith að Nkomo myndi fljótlega gera sér ljóst, að engin von væri til þess að Bretland og Bandarikin myndu styrkja hann til valda i Ródesiu, eftir að blökkumenn hefðu náð þar vöidum. Smithsagðiað stjórn sln myndi taka til athugunar að leyfa Smith að snúa aftur til landsins, svo fremi hann léti af skæruhernaði. Virðist Smith með þessu vera að reyna að valda klofningi í Föður- landsfylkingunni, sem saman- og Sovétrikjanna, en þesskonar fyrirkomulag var haft á Genfar - ráðstefnunni um déilumál Austurlanda nær 1973. Það var Sadat ekki reiðubúinn að sam- þykkja. Sadat hefur gefið i skyn áð Assad muni hafa tekið þessa afstöðu með hliðsjón af innan- landsmálum. Frá Kairó fer Vance til Jerúsal- em, Beirút, Damaskus, Amman og Riad. Sagt er að hann muni leggja fast að lsraelsmönnum að gera aröbum einhver álitleg til- boð, til þess að styrkja aðstöðu Sadats meðal araba. stendur af tveimur hreyfingum undir stjórn Nkomos og Roberts Mugabe. Samtök þau er Nkomo stjórnar hafa griðland i Sambiu og hafa til þessa verið heldur athafnalitil i skæruhernaðinum, gagnstætt samtökúm Mugabe, sem hafa g-iðland í Mósambik og að eigin sögn örugga fótfestu i Ródesiu sjálfri. Viðræður eru hafnar i Salisbury milli Smithstj. og fulltrúa blökku mannasamtaka undir forustu Muzorewa, séra Ndabaningi Sithole og Jeremiah Chirau ætt- bálkshöfðingja. Föðurlandsfylk- ingin á engan þátt að þeim við- ræðum og hefur fordæmt þær. I viðræðunum er gengið út frá því að fram fari i landinu kosningar með jöfnum kosningarétti hvitra manna og svartra, en þeir siðar- nefndu eru tuttugu og fjórum sinnum fleiri en hvitir landar þeirra. — Talsmaður samtaka Nkomos hefur þegar lýst þvi yfir að enginn fótur sé fyrir þvi, að Nkomohafiihyggjuað snúa heim úr útlegð. Sameinudu þjóðirnar: Nefnd skipuö til aö framfylgja vopnasölubanni SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM 9/12 Reutcr — öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti einróma I dag að skipa sérstaka nefnd til þess að fylgjast með framkyæmd vopnasölubannsins á Suður- Afriku. Tillagan um þetta var lögð fram af Afrfkurikjunum Benin, Libiu og Máritlus, og er i henni hvatt tii þess að rannsakað verði hvernig bannið megi ná tilgangi sinum. Vopnasölubannið var samþykkt i s.l. mánuði og er þetta i fyrsta sinn, sem Sameinuðu þjóðirnar gripa til slikra ráðstafana gegn aðildarriki sinu. Bannið var samþykkt eftir mikla ofsóknar- hryðju suðurafriskra stjórnar- valda gegn pólitiskum andófs- mönnum þar i október. Samkvæmt samþykki öryggis- ráðsins verða öll riki krafin upplýsinga um það, hvað þau hafi gert til þess að framfylgja bann- inu. Samkomulag um ályktunina náðist i einkaviðræðum milli fulltrúa i ráðinu. Fulltrúar Vesturlanda höfðu áðurlátið i ljós tregðu á að samþykkja tillöguna. Leiðrétting Ranghermt var i blaðinu i gær, að Kirkjukór Akraness syngi i Menntaskólanum i Hamrahlið i dag. Kórinn syngur i Hamra- hliðarskólanum á morgun, sunnudag, kl. 16. Morgunblaðið blað segir Albert 1 útvarpsþættinum „Spurt I þaula” i fyrrakvöld gagnrýndi Albert Guðmundsson, þingmað- ur, Morgunblaðið mjög harð- lcga fyrir stöðu þess til ýmissa mála. i samtali hans og Péturs Guðjónssonar, formanns Félags áhugamanna um sjávarútvegs- mál, i þættinum kom fram sú skoðun að ef til vill væri þörf á þvi að stofna sérstakt flokksblað til þess að meirihlutaskoðun Sjálfstæðismanna Sengi að koma fram, en ekki eingöngu skoðanir sértrúarhóps innan flokkscigendafélags flokksins. Albert var m.a. spurður um álit hans á afstöðu Morgun- blaðsins til úrslita prófkjörsins i Reykjavik. Albert —„Morgunblaðið er blað sem vill láta taka sig alvarlega eins og flest blöðin sækjast nú eftir. En við skulum ekki gleyma þvi, að Morgunblaðið er jú blað forsætisráðherra. Hann er stjórnarformaður Morgun- blaðsins. Þannig að það er ekki hægt að lita fram hjá þessum skrifum. Og ég sem einn af þátt- takendum i prófkjörinu er al- varlega að hugsa um að biðja opinbera aðila um að rannsaka mina þátttöku i prófkjörinu. Mér er ekki kunnugt um að hafi farið einn einasti eyrir út úr minum buddum i prófkjörið. Ég lét ekki dreifa myndum af mér eða bæklingum. Hitt er annað mál að það voru margir sem unnu fyrir mig og gerðu það myndarlega og ég er þeim af- Guðmundsson skaplega þakklátur. Það er á sama hátt gert fyrir hina kandi- datana. Ég veit ekki til þess að neinn prófkjörskandidatinn hafi eytt miklum fjármunum i próf- kjörið. Ég veit ekki um það. En ég hef ekki eytt einni einustu krónu.” EKH —„Þú ert semsagt alvar- lega að hugsa um það að krefj- ast opinberrar rannsóknar á þvi svo hægt verði að hreinsa ykkur frambjóðendur af þeim áburði Morgunblaðsins að þarna hafi peningar ráðið úrslitum?” Albert — ,,Ja, dettur Morgun- blaðinu i hug að við viljum liggja undir þvi að við séum að kaupa okkur inn eða á óheiðar- legan hátt að troða okkur inn á Alþingi íslendinga?” B.ó. ,,Ja, það segir það beint á sunnudaginn var, eða sunnu- daginn 4. desember. Það stend- ur hér á þá leið, að það sé um mjög alvarlegt mál að ræða þegar peningarnir séu farnir að skipta mjög verulegu máli við að tryggja mönnum sæti á framboðslistum flokka. Og við hljótum að spyrja: Hvert stefn- ir? Þeir stjórnmálaflokkar sem fyrir prófkjörum standa hljóta að taka þessi mál til mjög gagn- gerar ihugunar og athugunar hvort einhver leið sé til út úr þvi öngþveiti sem prófkjörin stefna i. Assó, þarna er það alveg skýrt að þeir telja, og telja sig þá væntanlega hafa heimildir fyrir þvi, þvi þú varst að lýsa þvi yfir að þú teldir Morgunblaðið ábyrgt blað, að það hefði verið varið verulegum fjármunum i þetta prófkjör.” Albert — ,,Já, já, mér er ekki kunnugt um það. Aftur á móti kom Þjóðviljinn i leiðara með það að ég og Vilmundur Gylfa- son frá Alþýðuflokknum og Friðrik Sophusson hefðum varið einhverjum peningum i próf- kjörið. Það er rangt hvað mig snertir. Ég veit ekki um hina, en ég reikna með að það sé líka rangt hvað þá snertir. En að sjálfsögðu verða blöðin að koma með eitthvað annað en fullyrð- ingar.” B.ó. — „Nú sagðir þú hér áðan að Morgunblaðið væri blað for- Geirs sætisráðherrans. Morgunblaðið hefur nú viljað halda þvi fram hingað til,að það væri ekki háð neinum aðila.” Albert. — ,,Ja, það má nú segja að það sé blað forsætisráðherr- ans, sem er formaður stjórnar Árvakurs og Arvakur hefur engu öðru hlutverki að gegna en að gefa út Morgunblaðið.” B.ó. — „Þannig að Morgun- blaðið túlkar fyrst og fremst og eingöngu stefnu Geirs Hall- grimssonar." Albert — ,,Ég vil ekki segja að það túlki eingöngu stefnu Geirs Hallgrimssonar.” B.ó. — ,,En það er blað hans semsagt?” Albert — „Já, það hlýtur að segja sig sjálft.” B.Ó. — ,,Já, það hefur vakið mikla athygli varðandi Morgun- blaðið að það dregur mikið úr og segir reyndar, og Geir Hall- grimsson hefur sagt það sömu- leiðis,að það sé ekkert að marka þær skoðanakannanir sem voru i sambandi við prófkjörið þegar spurt var t.d. um kaupin á Við- ishúsinu og aronskuna. Hvernig er það þegar Morgunblaðið og Geir hafa afneitað þessum úr- slitum i skoðanakönnuninni? ” Albert —„Morgunblaðið er ekki i aðstöðu til að afneita einu eða neinu fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn bað kjósendur sina að ganga að kjörborði I prófkjöri, og það er ekki hægt fyrir Geir Hallgrims- son eða mig,og sérstaklega ekki utanaðkomandi aðila eins og Morgunblaðið, að neita að taka tillit til þess sem yfir 80% af fólkinu sem kemur eftir beiðni flokksins að kjörborðinu.” Ródesia: Smith gerir Nkomo tilboð

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.