Þjóðviljinn - 10.12.1977, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. desember 1977
Ályktun frá Sveina-
félagi skipasmida
A fundi i Sveinafélagi skipa-
smiða, sem haldinn var 29.
nóvember s.l. var samþykkt
ályktun til að mótmæla þeirri
grundvallarbreytingu sem gert
er ráð fyrir i frumvarpi til iðn-
laga, sem lagt hefur verið fyrir
Alþingi. Þessi breyting er fólgin
i þvi að unnt verði að ráða til
iðnaðarstarfs óiðnlært fólk, án
samráðs við viðkomandi félög
iönsveina og án nokkurrar frek-
ari skilgreiningar. 1 núgildandi
lögum um iðju og iðnað er heim-
ild til slíkrar undanþágu i sér-
stökum tilvikum og þá með
samþykki bæði meistara og
sveina. Enn fremur segir i til-
lögunni að með þessum breyt-
ingum sé verið að forsmá verk-
lega menntun, sem ráðamenn
þjóðarinnar hafa þó haldið fram
að nauðsynlegt væri að efla.
Skák
Framhald af 11. siðu.
33. cxd8+ = D - Hxd8
34. Hc7 - Dal +
35. Kh2 - e4
Þetta er auðvitað beint oní, en
hvernig átti að valda peðið á g7 ?
36. Dxe4 - Df6
37. f4 - Df8
38. Ha7 - Dc5
39. Db7 - Dc3
40. De7 - Hf8
41. e4 - Dd4
Ekki 41. - Hxf4 vegna 42. e5 og
hvitur vinnur strax
Hér fór skákin i bið.
Möguleikar Kortsnojs verða að
teljast mjög góðir.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Ví FILSST AÐ ASPÍ TALI
AÐSTOÐARMAÐUR óskast til
starfa á spitalann. Þarf að geta haf-
ið störf nú þegar.
Upplýsingar veitir umsjónarmaðuf
i sima 42800
Reykjavik 9. desember 1977.
SKRIFSTOFA
RIKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru minntir á að
greiða framlag sitt til fiokksins fyrir árið 1977 hið
fyrsta.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Reykjanes-
kjördæmi —
heldur fund i Þinghóli, Kópavogi, laugardaginn 10. desember kl.
15.30.
Dagskrá: 1. Framboðslisti fyrir alþingiskosningarnar 1978. 2. Forvalið.
Reynslan af framkvæmd þess. 3. önnur mál. Stiórnin
Alþýðubandalagið Neskaupstað — Helgarerindi:
Annað helgarerindi Alþýðubandalagsins i Neskaupstað i vetur verður
sunnudaginn 11. des. n.k. kl. 16 i fundarsalnum i Egilsbúð. Umfjöll-
unarefni verður:
Málefni aldraðra.
Framsögumenn:
1. Stefán Þorleifsson, sem ræðir um húsnæðismál og þjónustu viö aldr-
aða.
2. Valur Þórarinsson, sem fjallar um félagsmál aldraöra.
AHir velkomnir. Stjórn ABN
Herstöðvaa ndstæöi nga r
Umræðuf undiir
Samtök herstöðvaandstæðinga i Smá-
ibúðahverfi — Hliðum og Leiti halda fund
mánudaginn 12. desember að Tryggva-
götu 10. Umræðuefni: Nýlendustefna
Dana á Grænlandi. Framsögumenn
Guðmundur Þorsteinsson og Benedikt
Þorsteinsson.
Umræðufundurinn hefst kl. 20.30.
Félagar úr öllum hverfisdeildum eru
velkomnir.
Rannsóknir
Framhald af 1
allan ferilinn frá jarðvegi og
áburði, plöntu, uppskeru og
vetrarfóðrun, þannig að hægt sé
að hafa stjórnun á öllum þáttum
framleiðslunnar. Er reynt að
koma upp aðstöðu til slikra rann-
sókna á sumum tilraunastöðv-
anna.
Matvælarannsóknir
Rannsóknir á leiðum til að nýta
skyrmysu til drykkjar. Þegar eru
komnar fram ýmsar gómsætar
tegundir drykkja, með litlu súr-
bragði. Aformað er að rannsaka
gerjun mysuþykknis i þvi skyni
að framleiðsla vinanda.
Þá eru loks rannsóknir á ýms-
um hollustuþáttum dilkakjöts, —
Bragðgæði, fituprósenta, magn
fjölmettaðra fitusýra, vöðvapró-
senta, magn nitrats og nitrits i
saltkjöti .
—mhg
14,5 miljónir
Framhald af 1
innistæðum skattskyldar tekjur.
Eftir áðurnefnda könnun hefði þvi
bankareikningum útlendinga
verið lokað og yfirvöldum hlutað-
eigandi landa verið tilkynnt um
málið. Þar sem slikar bankainni-
stæður væru brot á islenskum lög-
um, ráðlögðu fulltrúarnir frétta-
manni að snúa sér til islenskra
skattyfirvalda; þeim væri kunn-
ugt um málið.
Miklar fjárhæðir
Varðandi þá upphæð, sem
nefnd var i Politiken, vildu full-
trúarnir ekkert segja, en sögðu þó
að þarna væri um miklar fjár-
hæðir að ræða. Sögðust þeir telja
að eigendur bankareikninganna
væru aðallega kaupsýslumenn,
sem fengju umboðslaun sin
greidd með þessum hætti. Er þar
þá væntanlega um að ræða kaup
sýslumenn, sem flytja inn frá
Danmörku og öðrum rikjum
Efnahagsbandalags Evröpu.
1 Danmörku eru innlánsvextir
hærri en i nokkru öðru EBE-
landi, eða 7-10%. Finansbanken
mun greiða hærri vexti en flestir
bankar aðrir.
Innstæður gerðar upptæk-
ar
Þessir fulltrúar dönsku skattyf-
irvaldanna sögðu að þeirra rann-
sóknir beindust að þvi að komast
að raun um, hvort um brot á
dönskum lögum væri að ræða.
Hinsvegar fengju islensk yfirvöld
upplýsingar um málið jafnharðan
og eitthvað kæmi i ljós. Allar upp-
lýsingar um þá bankareikninga
fslendinga, sem þegar hefðu
fundist, væru þegar komnar til Is-
lands, en likur væru á að fleiri
reikningar ættu eftir að koma i
leitirnar.
Ef skattsvik handhafa banka-
reikninga i Danmörku sönnuðust,
ættu eigendur þeirra á hættu að
innstæðurnar yrðu gerðar upp-
tækar og væru allar likur á þvi að
það yrði gert.
Breiöholt
Framhald af 2 0 siöu.
febrúar. Með þvi að eiga þinglýst
lögtak i fasteign vegna þessarra
skulda teljum við að krafan sé
eins vel tryggð og mögulegt er.
En hvað með skuldirnar frá
þessu ári?
— Fyrir þeim höfum við gert
lögtak i vinnuvélum og öðrum
slikum eignum fyrirtækisins,
sagði gjaldheimtustjóri.
Ég vil gjarna taka það fram,
sagði Guðmundur, að það er regla
hjá okkur að tala ekki við fjöl-
miðla um stöðu einstakra gjald-
enda. En þar sem framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins I þessu tilviki
Pípulagnir
Nylagnir. breyting-
ar, hitaveítutenging-
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og ' og eftir kl. 7 á
kvoldm)
hefur þegar skýrt frá málinu, þá
tel ég það allt i lagi. Annars er
óljóst með lagaheimild varðandi
upplýsingaskyldu okkar. Það er
ekki svo að skilja að ég hafi neinu
að leyna og meira eð segja væri
það mjög æskilegt að fjölmiðlar
birtu sem oftast yfirlit yfir
skuldunauta vora, sagði Guð-
mundur að lokum.
Vanskil á söluskatti
Við höfum það eftir nokkuð
áreiðanlegum heimildum að
fyrirtækið Breiðholt h.f. skuldi
miljónir i söluskatt, eins og getið
var um hér i blaðinu s.l. miðviku-
dag. Við höfðum því samband við
Björn Hermannsson til að reyna
að fá frekari upplýsingar um þá
skuld. Svörin sem við fengum hjá
honum voru þau að tollstjóraem-
bættinu væri óheimilt, samkvæmt
skattalögunum, að gefa nokkrar
upplýsingar um einstök fyrirtæki.
Aðspurður sagði tollstjóri að inn-
heimta gjaldfallinna skulda hefði
yfirleitt gengið vel að undanförnu
og að útistandandi skuldir væru i
lágmarki. —igg
Tillaga
Framhald af7. siðu.
Hins vegar er ljóst, að eftir að
núverandi rikisstjórn kom til
valda hefur rikissjóður fengið
varanlegt rekstrarlán hjá Seðla-
banka tslands sem numið hefur 13
— 14 þús. milj. kr. i seinni tið. Ef
aðeins helmingi þessa fjár hefði
verið varið til að auka rekstrar-
lán til atvinnuveganna og þá
einkum iðnaðar og landbúnaðar
hefði vandi þeirra verið leystur á
fullnægjandi hátt.
Að þvi hlýtur að koma, að rikis-
sjóður hefji greiðslu þessara
miklu skulda við Seðlabankann,
og virðist sjálfsagt að það fjár-
magn verði að einhverju leyti
hagnýtt til að stórauka rekstrar-
lán til atvinnuveganna.
Stokkseyri
Framhald af 9 sfðu.
Hér hefði ekki þurft nema mjög
smávægilega fyrirgreiðslu pen-
ingastofnana t.d. til að hægt væri
að taka afla togarans til vinnslu
og linufisk af einum til tveimur
linubátum. En svar þeirra sem
peningamálum ráða er eitt nei.
— Hvar er afli togarans unninn
nú?
— Togarinn Bjarni Herjólfsson
landar einmitt i dag, 130-140 tonn-
um af úrvalshráefni til Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar. Togarinn
er sameign sveitarfélaganna
þriggja, Selfoss, Eyrarbakka og
Stokkseyrar. 1 togarann hafa
sveitarsjóðir þessara kauptúna
og ibúar þeirra látið tugi miljóna
hvert, i þeirri góðu trú að þar með
væri verið að tryggja fiskvinnslu-
stöðvunum hráefni þann tima
sem bátar hafa erfiðasta aðstöðu
til að stunda veiðar.
— Þyrfti ekki atvinnulifið hér á
Stokkseyri aö vera fjölbreyttara
en nú er?
— Jú, að sjálfsögðu, segir
Grétar. — Það byggist allt á þess-
um 8 bátum, sem hér eru gerðir
út, og togaranum. Nokkrir menn
eru i vinnu hjá hreppnum og örfá-
ir vinna við húsbyggingar. Salt-
fisk- og skreiðarverkun er á veg-
um frystihússins og verið er að
byggja hér harðfiskverkunarstöð,
sem er i einstaklingseigu. En
sveitarfélagið er fámennt. Tæp-
lega 600 manns eru hér á ibúaskrá
og hefur heldur fjölgað á siðustu
árum. Hér hefur verið mjög gott
atvinnuástand undanfarin ár, þar
til núna.
— eös.
Vetrarmynd
Framhald af 15. siðu.
skart-skúlptúra og svo Þorbjörg
Höskuldsdóttir sem sýnir teikn-
ingar og klippimyndir. Alls eru
verkin nálægt eitt hundrað og eru
öll til sölu og er verði þeirra jafn-
framt stillt i hóf þannig að þeir
sem leita jólagjafa geti fundið
eitthvað við sitt hæfi. 1 tilefni af
þessari samsýningu mun sérstak-
ur blaðkálfur fylgja dagblaðinu
Visi um helgina sem er einnig
sýningarskrá. Við bjóðum öllum
að koma á sýninguna og skoða
verkin án allra fordóma og at-
huga hvort samspil hinna óliku
listgreina kveiki ekki einhvern
neista i hugum þeirra.
—Frá sýnendum
SKJALDHAMRAR
i kvöld kl. 20.30
GARY KVARTMILJÓN
sunnudag kl. 20.30
Siðasta sinn
Miðar á sýninguna sem féll
niður 4. desember gilda sunn-
udag 11. des.
Siðasta sýning fyrir jól.
Miðasala i Iðnó kl. 14 — 20.30.
Simi 16620.
Miðnætursýning i Austur-
bæjarbió i kvöld kl. 23.30.
Miðasala i Austurbæjarbió kl.
16 — 23.30, simi 11384.
ÞJÓÐLEIKHÚSIB
DÝRIN 1 HALSASKÓGI
Laugardag kl. 15.
Sunnudag kl. 15.
Siðustu sýningar.
TVNDA TESKEIÐIN
Laugardag kl. 20.
STALIN ER EKKI HÉR
Sunnudag kl. 20.
Litla sviðið
FRÖKEN MARGRÉT
Sunnudag kl. 20.
Siðustu sýningar fyrir jól.
Miðasala kl. 13,15-20.
Nemendaleikhús
Leiklistarskóla
Islands
Sýnir leikritið:
/,Við eins manns borð"
eftir Terence Rattigan í
Lindarbæ
3ja sýning sunnudaginn
11. desember kl. 20:30.
4ða sýning mánudaginn
12. desember kl. 20:30.
Leikstjóri: Jill Brooke
Árnason.
Miðasala í Lindarbæ frá
kl. 17 daglega.
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið sýnir
Skollaleik
á Húsavík sunnudaginn
11. desember kl. 17:00.
Miðasala frá kl. 15
sýningardag.
• • • RAFAFL
framleiðslusamvinnu-
félag iönaöarmanna
Skólavöróustig 19. Reykjavík
Símar 217 00 2 8022