Þjóðviljinn - 10.12.1977, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 10.12.1977, Blaðsíða 15
Laugardagur 10. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 V erslunin Geysir opnar á ný Verslunin Geysir hefur nú opn- að að nýju eftir brunann i sumar. Nýja búðin verður nokkru stærri en sú gamla, og er nú innangengt milli hennar og teppa og dregla- deildar og veiðafæradeildarinn- ar, sem eftir sem áður verða i húsinu. Við endursmiðina var reynt af fremsta megni að við- halda svip verslunarinnar sem best, og tekið var fullt tillit til langrar sögu húsanna einkum varðandi ytra útlit. Verslunin Geysir var stofnuð árið 1919. Stofnendur voru Krist- inn J. Markússon, Guðjón ólafs- son, Sigurður Jónhannsson, ólaf- ur Johnsen og Arent Claessen. Þeir eru nú allir látnir. Geysir var fyrst til húsa að Hafnarstræti 1, en árið 1956 var verslunin flutt að Aðalstræti 2, þar sem hún er nú. Þar er talinn vera elst versl- unarstaðurinn i Reykjavik, en þar stóðu hús konungsverslunar- innar eftir að hún hafði verið flutt i land úr örfirisey, á árunum 1779-1780. Framkvæmdastjóri Geysis frá stofnun til dauðadags árið 1973 var Kristinn J. Markússon. Þá tók við starfinu Sigurður Guð- jónsson og gegndi þvi i tvö ár eða þar til hann lést fyrir aldur fram árið 1975. Siðan þá hefur Helgi Eysteinsson verið framkvæmda- stjóri fyrirtækisins. Starfsmenn Geysis eru nú 25 talsins, og stjórn fyrirtækisins skipa nú: Ólafur 0. Johnson, stjórnarformaður, Sjöfn Kristinsdóttir, Helgi Eysteinsson og Asdis Guðjónsdóttir. Stjórn Gcysis h.f. BARATTAN UM BRAUÐIÐ Stórmerk heimild um lifsbaráttu á fyrstu áratugum aldarinnar Mál og menning hefur sent frá sér bókina Baráttan um brauðið, annað bindi æviminninga Tryggva Emilssonar verka- manns. Fyrsta bókin Fátækt fólk kom út i fyrra og vakti mjög mikla cftirtekt og fékk lofsam- lega dóma. Fyrir Fátækt fólk hlaut Tryggvi heiðursviðurkenn- ingu Verkamannaféiagsins Dags- brúnar og bókin var tilnefnd af ts- lands hálfu til Bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs. Baráttan um brauðið segir frá vinnumennsku höfundar i Skaga- firði og siðan frumbýlingsárum á eigin vegum. Drjúgur helmingur bókarinnar fjallar um dvöl Tryggva á Akureyri á timum atvinnuleysis og algers réttleysis vinnandi manna. Jafnframt segir frá upphafi verkalýðsbaráttunn- ar á Akureyri sem Tryggvi tók þátt i af lifi og sál. 1 þessari bók segir frá öllum helstu vinnudeil- um á Akureyri og þar er að finna margar frábærar lýsingar á sam- ferðamönnum sem birta tiðar- andann betur en margar lærðar ritgerðir mundu gera. Bókinni lýkur þar sem Tryggvi er að flytj- ast frá Akureyri 1947. 1 forlagskynningu segir m.a.: Baráttan um brauðið er i senn Tryggvi Emilsson stórmerk heimild um lifsbaráttu alþýðu á fyrstu áratugum aldar- innar og glæsilegt bókmennta- verk. Einstæð frásagnargáfa höf- undar nýtur sin ekki siður hér en i fyrri bókinni: helsti munurinn er sá að i Baráttunni um brauðiðber meira á kimilegum atburðalýs- ingum en i Fátæku fólki. Sú breyting sprettur beint upp af hinum breyttu aðstæðum sögu- manns þrátt fyrir allt. Æviminn- ingar Tryggva Emilssonar hafa þegar áunnið sér óumdeilanlegan heiðurssess i islenskri bókmenntasögu. Frá Sjálfsbjörg Reykjavík Félagsfundur Sjálfsbjargar, þingi sem nú situr, að mikið fatl- félags fatlaðra i Reykjavik, hald- aðir ökumenn fái talstöðvar i inn 1. nóvember 1977, beinir þeim bifreiðir sinar, þeim að tilmælum til hæstvirts Alþingis, kostnaðarlausu. að unnið verði að þvi, á þessu Al- Vilborg Tryggvadóttir, ritari Bragi Hannesson og Haukur Dór eiga verk á samsýningunni „Vetrarmynd” I Norræna húsinu. Samspil ólíkra listgreina í Norræna húsinu V etrarmynd Dagana 10-18 desember verður haldin i Norræna húsinu samsýn- ing er nefnist „Vetrarmynd” og er allóvenjuleg fyrir það hvað ólikir sýnendur eru. Markmið sýningarinnar er einmitt það að tefla saman mjög ólikum list- greinum, til að sjá hvernig þær spjara sig saman og einnig að leggja áherslu á það að sama skapandi aflið er á bak við alla góða myndlist og þvi ættu flokka- -drættir eftir „stefnum” ekki að þurfa að eiga sér stað. Sýnendur eru þeir Atli Heimir Sveinsson tónskáld sem sýnir nótur, Baltas- ar sem sýnir ný málverk, Bragi Hannesson sem sýnir vatnslita- myndir, Haukur Dór sem sýnir málverk, teikningar og leirverk, Magnús Tómasson sem sýnir kassaverk þau sem hann nefnir „sýniljóð”, Ófeigur Björnsson gullsmiður sem sýnir eins konar Framhald á bls. 14. Canon BÝÐUR upp áótal 'ÆJlgaQ. ^ÖGULEIKA: • 25 gerðir linsa. • Mótor, sem knyr áfram filmuna. • Alsjálfvirkt flash. • Dagsetningarstimpil á filmuna. Verð aðeins kr. 104.330.- AUSTURSTRÆTI 7 Simi 10966. HÉR ER DR0TTN/NG DRAUMA ÞINNA Aldrei áður hefur ný myndavélartegund valdið slíku fjaðrafoki sem Canon í landi tœkninnar, Þýskalandivar hún valin MYNDAVÉL ÁRSINS A Star is Born....Æl BUSINESS WEEK kallar hana tímamótasprengju og valda gjaldþroti fjölda keppinauta. NEWSWEEK kallar hana stór- kostlegasta tækniundur í sögu myndavélarinnar. er rafeindastýrð SLR myndavél, Canon ÆiE-a sem svo sannar lega gerir ÖLLUM kleift að taka frábærar myndir. er 30% ódýrari, CailOH 30% léttari og 30% /n n 5°aT| meðfærilegri en cLSTiiLEa dii aörar myndavélar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.