Þjóðviljinn - 10.12.1977, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. desember 1977
úrlaupnum
Jólakort Barnah jálpar
Sameinuðu þjóðanna
Jólakort Barnahjálpar Sam-
einuöu Þjóöanna (UNICEF) eru
komin á markaöinn og fást i öll-
um helstu bókaverslunum
landsins. Kortin eru eins og
jafnan áður prýdd myndum eft-
ir fræga málara. Barnahjálpin
hefur i gegnum árin mjög aukið
starfsemi sina og tekur nú út yf-
ir öll þau svið sem eru mikilvæg
fyrir uppeldi barnsins og er enn
margt ógert. Kvenstúdenta-
félag tslands hefur séö um jóla-
kortasöluna hér á landi. Sem
dæmi um ágóðann má nefna að
fyrir hver 10 seld jólakort má
kaupa bóluefni gegn berklum
handa 50 börnum.
Símar Kvenstúdentafélagsins
eru 26740 og 34260.
Jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndar
Hin árlega Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar er nú haf-
in. Söfnunarlistar hafa verið
sendir i fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir i borginni svo sem
venja er. Það er eindregin von
nefndarinnar að enn einu sinni
verði vel brugðist við þessari
söfnun svo unnt verði að létta
undir með efnalitlum heimilum
i Reykjavfk. Enginn vafi er á
þvi aö nú sem fyrr er mikil þörf
fyrir aðstoð sem þessa, þvi
margur stendur höllum fæti,
þótt ekki beri mikið á þvi i dags-
ins önn. A siðasta ári gerði Jóla-
söfnun nefndarinnar kleift að
veita 280 efnalitlum heimilum i
Reykjavik fjárstyrki.
Skrifstofa nefndarinnar er að
Njálsgötu 3, Reykjavik, simi
14349. Fram að jólum verður
hún opin frá kl. 1-6 alla virka
daga.
VÖLUSKRÍN
í eigu Sumargjafar
Barnavinafélagið Sumargjöf
hefur fest kaup á versluninni
Völuskrin að Laugavegi 27, en
þessi verslun hefur sérhæft sig i
verslun með sérstaklega valin
leikföng fyrir börn. Forstöðu-
maður verslunarinnar er
Margrét Pálsdóttir, fóstra.
Markmiö verslunarinnar er
að hafa góö og þroskandi leik-
föng á boöstólum svo og ýmsar
föndurvörur. Sumargjöf vill
með rekstri þessarar verslunar
stuðla að þvi að börn landsins
fái i hendurnar góð leikföng;
leikföng sem þjóna uppeldisleg-
um tilgangi og örva börn til
hollra og þroskandi leikja.
Jólatónleikar
Háskólakórsins
Laugardaginn 10. desember
kl. 17.00 heldur Háskólakórinn
jólatónleika i Kristskirkju,
Landakoti. Sunnudaginn 11.
desember verða svo tónleikar i
Hveragerðiskirkju. Flutt verða
jólalög, bæði islensk og erlend,
en meginviðfangsefni tónleik-
anna verður ,,A Ceremony of
Carols’’ eftir Benjamin Britten.
Þessi flutningur er tileinkaður
minningu tónskáldsins, en hann
er nýlátinn. Ovenjulegt er að
Sunnudaginn 11. desember
n.k. mun Atli Heimir Sveinsson,
tónskáld, flytja opinberan fyrir-
lestur i boði Félagsvisindadeild-
ar Háskóla tslands.
Fyrirlesturinn nefnist
„Hvernig verður einleikskon-
sert til?” Spjallað verður um
flautukonsert Atla Heimis
Sveinssonar sem verður fluttur
á tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitarinnar þann 16. desember
n.k.
Fyrirlesturinn verður fluttur i
stofu 101 I Lögbergi, húsi Laga-
deildar Háskóla Islands og hefst
hann kl. 14.00.
Öllum er heimill aðgangur.
heyra verk af þessu tagi flutt
hér á landi. Kórfélagar hafa æft
þetta verk af miklu kappi siðan i
haust og aðstoð við flutninginn
veita Monika Abendroth, hörpu-
leikari og Guðfinna Dóra Ölafs-
dóttir, sópransöngkona.
Háskólakórinn var stofnaður
veturinn 1972-’73 og hefur starf-
að reglulega siðan og haldið
marga tónleika. Stjórnandi
kórsins frá upphafi hefur verið
Rut Magnússon.
Atli Heimir Sveinsson
Háskóla-
fyrirlestur
Elsa Waage
syngur jólalög
Ot er komin tveggja laga
hljómplata með tveim jólalög-
um fluttum af Elsu Waage
ásamt kór og hljómsveit. Platah
var unnin i Hollandi en það var
fyrir tilstilli Islandsvinarins
Louis Schuwer sem þessi plata
varð til. Þess má geta að platan
er einungis seld af æskulýðs-
félögum, sem sjálf njóta alls
ágóða af sölu hennar, einnig er
hún seld á skrifstofu K.F.U.M.
og K„ Bókabúðinni Grimu i
Garðabæ, Kirkjufelli, Ingólfs-
stræti 6, Bólstrun Ingólfs, Aust-
urstræti 3 og I Skóverslun
Steinars Waage, Domus
Medica. I Hollandi var platan
gefin út sem gjafaplata fyrir
stórfyrirtæki og hefur þegar
selst töluvert af henni þannig.
Lögin á plötunni eru Heims
um ból og Nýárssálmur (Green
sleeves) i þýðingu frú Lilju
Kristjánsdóttur. Umslagið
prýðir litmynd af kapellunni i
Vantaskógi og litil mynd af
Elsu.
Norræna húsiö
FYRIRLESTRAR
í LISTFRÆÐI
Sænski listfræðingurinn Allan
Ellenius, prófessor i listsögu við
Uppsalaháskóla, verður gestur
Norræna hússins dagana 9.-15.
desember og flytur þar tvo
fyrirlestra um listfræðileg efni.
Sunnudaginn 11. desember kl.
16.00 segir hann frá hibýlum
aðalsins á stórveldistimum Svi-
þjóðar. Aðallinn, sem komst til
valda i lok þrjátiu ára striðsins,
safnaði að sér gifurlegum auð-
æfum og liföi hátt. A stuttu
timabili reis röö halla og
„slota” umhverfis Malaren.
Þessi hibýli voru rikulega
skreytt og hafa nokkur þeirra
varðveist óbreytt fram á okkar
daga. Með fyrirlestrinum verða
sýndar litskyggnur frá höllunr
um.
Miðvikudaginn 14. desember
kl. 20.30 talar Allan Ellenius um
sænska málarannn og mynd-
höggvarann Torsten Renqvist,
einn sérstæðasta listamann Svi-
þjóðar um þessar mundir.
Framan af fékkst Renqvist
einkum viö að mála og teikna,
en á siðustu árum hefur hann
nær eingöngu snúið sér að högg-
myndum og annarri myndmót-
un.
Fyrirlestur sinn um Renqvist
nefnir Allan Ellenius „Torsten
Renqvist, humanist och
konstnar.
Slæmt ástand í
dagvistunarmálum i
Vestur-
bænum
Fyrir rúmri viku var haldinn
hverfisfundur I Vesturbæ á vcg-
um Dagvistunarsamtakanna.
t fréttatilkynningu um fundinn
segir að fundarmenn hafi sýnt
mikinn áhuga á að bæta ástandið i
dagvistunarmálum i Vesturbæn-
um. Starfshópur var myndaður til
þess að kanna i samvinnu við
Ibúasamtök Vesturbæjar hvaða
leiðir væru vænlegastar til úr-
bóta.
Fundurinn var vel sóttur og
átöldu fundarmenn skammarlega
lág framlög til þessara mála frá
hinu opinbera. Akveðið var að
skora á alþingismenn að hækka
fjárveitingar til dagvistarmála.
Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar
Hvaleyrin
verði varin
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sinum 6.
desember að lýsa yfir stuðningi
við þingsályktunartillögu Geirs
Gunnarssonar og fleiri þing-
manna Reykjaneskjördæmis um
aðgerðir til varnar ágangi sjávar
við sunnanverðan Faxaflóa. Bæj-
arstjórnin vekur sérstaka athygli
á hinni miklu landeyöingu á
Hvaleyri undanfarin ár og telur
brýna natðsyn bera til að hafist
verði handa um varnaraðgerðir
hið fyrsta.
Hartling
forstöðu-
maður
Flótta-
manna-
stofnunar
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM 7/12
Reuter — Poul Hartling, fyrrum
forsætisráðherra Danmerkur og
leiðtogi gamla miðjuflokksins
Venstre þar I landi, var I dag út-
nefndur forstööumaöur Flótta-
mannastofnunar Sameinuðu
þjóöanna næstu fimm árin. Tekur
Hartling við embættinu um ára-
mótin. Allsherjarþingið veröur að
visu að staðfesta útnefninguna,
sem er talið víst að það geri.
Hartling tekur við stöðunni af
Sadruddin Aga Khan fursta, sem
baðst lausnar frá henni i siðast-
liðnum mánuði. Hann hefur gegnt
stöðunni frá 1966.
Hamborgar-
jólatréð
Laugardaginn 10. desember
n.k. kl. 16.00 verður kveikt á
Hamborgarjólatrénu, sem
Reykjavíkurhöfn hefur nú eins og
mörg undanfarin ár fengiö sent
frá Hamborg.
Tréð er gjöf frá klúbbnum
Wikingerrunde, sem er félags-
skapur fyrrverandi sjómanna,
blaða- og verslunarmanna I
Hamborg og nágrenni.
Hans Hermann Schliinz er
hingaö kominn til þess aö afhenda
tréð, sem að venju veröur reist á
hafnarbakkanum viö Hafnarbúö-
ir. Viðstaddir afhendinguna
verða borgarstjórinn I Reykjavik,
sendiherra Vestur-Þýskalands
ásamt fleirum. Blásarakvintett
mun leika við Hafnarbúöir frá kl.
15.45.