Þjóðviljinn - 14.12.1977, Síða 1
Happdrætti Þjóðviljans
Miðvikudagur 14. desember 1977 —42. árg. 280. tbi.
Fjármálaráðherra sýnir í jólapakkann:
2 miljarðar í hækkun
s j úkratry ggingag j alds
Hækkun á lyfjum og sérfræðikostnaði, tvöföldun flugvallarskatts,
niðurskurður framkvæmda, lækkun á framlögum til Byggðasjóðs
ORÐSENDING til inn-
heimtu- og umboðsmanna
Vinsamlega Ijúkið innheimtu í þessari viku og kom-
ið skilagrein til skrifstofunnar að Grettisgötu 3/ sími
17 500.
Stefnt er að því að birta vinningsnúmer ekki síðar
en á Þorláksmessu.
Þeim sem fengið hafa heimsenda miða, er bent á að
enn er ekki of seint að gera skil, þar eð vinningsnúmer
hafa verið innsigluð hjá fógeta.
DJOÐVIUINN
Ríkisstjórnin gerir ráð
fyrir að hækkun á útgjöld-
um ríkissjóðs á næsta ári
verði um 18,3 miljarðar
króna umfram það sem
gert var ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpinu sem lagt
var fram sl. haust. Upp í
þessa hækkun telur rikis-
sjórnin að fáist auknar
tekjur um 10,7 miljarðar
króna með hærri skatttekj-
um af hærri launum
o.s.frv., en að mismuninn
verði að fá með sérstökum
hætti. Má segja að það
skiptist nokkuð til helm-
inga, annars vegar i niður-
skurð framkvæmda, en
hins vegar með nýjum
álögum á almenning. Mun-
ar þar mest um tvöföldun
sjúkratryggingagjaldsins
— hækkun þess um 2 milj-
arða króna. Þetta gjald
leggst sem „flatur" skatt-
ur á allar tekjur hvort sem
þær eru háar eða lágar.
Fyrir er 1% sjúkratrygg-
ingagjald sem núverandi
rikisstjórn kom á: nú tvö-
faldar hún gjaldið.
Sá mismunur sem er á hærri út-
gjöldum annars vegar og endur-
skoðaöri hærri tekjuáætlun hins
vegar er 7,6 miljarðar króna.
Þessi mismunur fæst með eftir-
greindum hætti samkvæmt upp-
lýsingum sem komu fram i ræðu
fjármálaráðherra á alþingi i gær:
1. Sjúkratryggingagjald verður
tvöfaldað og þar fást 1,9 miljarð-
ar króna.
2. Lagður verður 10% skyldu-
sparnaður á „hátekjur” en ekki
liggur fyrir við hvaða tekjumark
er þá miðað. Með þessum hætti
fæst um 1 miljarður króna.
3. Lagt verður á hærra flugvall-
argjald og það tvöfaldað. Er gert
ráð fyrir að hækkun þessa gjalds
nemi um 0,3 miljörðum króna.
Þannig eru hærri álögur 3-4
miljarðar króna.
Niðurskurðurinn verður svo 3-4
miljarðar króna og er þar meðal
annars að finna lækkun á þó Iög-
boðnu framlagi til Byggðasjóðs
um 330 millj. kr. og lækkun á
framlagi til ýmissa annarra
sjóðá, svo og lægri kostnaði við
ýmsar aukagreiðslur i rikiskerf-
inu.
Gert er ráð fyrir aö lækka út-
gjöld rlkisins um hálfan miljarð
með þvi að ætla sjúklingum að
greiða stærri hluta lyfjakostnað-
ar og sérfræðiþjónustu.
Lögboðið aukið framlag
Lifeyrissjóða
Rikisstjórnin gerir ráð fyrir þvi
að fyrirskipa lífeyrissjóðunum
með lagaboði að veita 30% af ráð-
stöfunarfé sjóðanna til þess að
fjármagna Framkvæmdasjóð og,
Byggingasjóð. Er þarna um að
ræða liðlega 5 miljarða króna af
lifeyrissjóðunum. Lántökur þess-
ar frá lifeyrissjóðunum verði að
fullu verðtryggðar.
Lægri skattvisitala —
hærri skattar
Við endurskoðun tekjuáætlunar
Grunnurinn á hæstu verslunarhöll I Reykjavik gægist upp ár moidinni.
Rúmlega 200 miljónir komnar
í „Hús verslunarinnar”
Kaupmenn reisa 40 þúsund rúmmetra
hús m.a. fyrir fjármagn launþega
t nýja miðbænum i Kringlu-
mýrinni i Keykjavik er að risa
enn eitt musteri islenskra kaup-
manna. Það er svonefnt „Hús
verslunarinnar”.
Nú er búið að steypa rúmlega
helming af steypumassa hússins,
skv. upplýsingum Hjartar Hjart-
arsonar, sem er stjórnarformað-
ur húsbyggingarnefndarinnar.
Hluti jarðhæðarinnar er kominn
upp, en alls verður húsið 6 hæðir
að viðbættri hárri turnbyggingu.
Á jarðhæð verður m.a. bila-
geymsla. Húsið verður alls rúm-
lega 40.000 rúmmetrar, eöa álika
og Hótel Saga.
Hjörtur sagði, að nokkrum
erfiðleikum hefði valdið, að mýri
reyndist þarna meiri en menn
áttu von á. Samkvæmt samningi
við verktaka átti húsið að vera
komið upp i júli sl„ en fram-
kvæmdir hafa legið niðri nú um
nokkurt skeið. f vor verður tekin
ákvörðun um framhald bygging-
arframkvæmda og sagði Hjörtur
að liklega yrði reynt að ljúka
smiði hússins á næstu þremur ár-
um. Verkefni húsbyggingar-
nefndarinnar er að koma húsinu
upp og ljúka frágangi þess að ut-
an, en siðan sjá þeir aöilar sem
kaupa hlut i húsinu um innrétt-
ingar, hver i sinu lagi.
Til byggingar þessa húss hafa
þegar runnið rúmar 200 miljónir
króna, en óvist er hvað húsið mun
kosta fullgerð. Byggingin er fjár-
mögnuð meö félagsheimilissjóös-
gjaldi, sem lagt er á kaupmenn og
verslunarmenn og innheimt i einu
lagi fyrir báða. Þá hefur verið
veitt lán til þessarar húsbygging-
ar úr Lifeyrissjóði verslunar-
manna.
—eös
rikissjóðs, sem talin er færa rlkis-
sjóði 10,7 miljarða, er gert ráð
fyrir hærri tekjusköttum. Er þar
reiknað með að skattvisitalan
verði óbreytt 131 stig miðað við
100 1977 þótt hækkun meðaltekna
verði mun meiri en 31% eða 42%.
Þetta hefur i för með sér hækkun
tekjuskatts um 300 miljónir
króna.
Gert er ráð fyrir að lánsfjár-
áætlun ríkisstjórnarinnar verði
lögð fram á alþingi i dag.
Síðustu tíu daga
fyrir jól í Máli
og menningu
Rit-
höfundar
árita
bækur
Til stuðnings
Málfrelsissjóði
1 dag byrjar fyrstl rlthöfundur-
inn að árita bækur til stuðnings
Málfrelsissjóði i Bókabúð Máls-
og menningar. Það er Tryggvi
Emilsson sem áritar bók sina
Baráttuna um brauðiö frá kl. 15
til 18, frá þrjú til sex.
Siðustu tiu daga fyrir jól ætla
nokkrir rithöfundar að styðja
Málfrelsissjóð með þvi að árita
bækur sinar og samtimis verður
framlögum i sjóðinn veitt viö-
taka.
Þeir sem vilja fá hinar árituðu
bækur og styðja um leið Málfrels-
issjóð komi i Bókabúö Máls og
menningar dagana 10.-23. desem-
ber kl. 3-6.
Þessi stuðningsaðgerð rithöf-
undanna við Málfrelsissjóð er i
Framhald á bls.) 14