Þjóðviljinn - 07.01.1978, Side 3
Laugardagur 7. janúar 1978 þjöÐVILJINN — SIÐA 3
Nýtt ávarp frá 77-hreyfingunni:
Baráttunni veröur
haldið áfram
VIN 6/1 Reuter —Tékkóslóvaskir
andófsmenn hvöttu til þess i dag
aö allir pólitiskir fangar í landinu
yröu látnir lausir og að öryggis-
lögreglan hætti að áreyta baráttu-
menn fyrir mannréttindum.
Askorunin var send út á eins árs
afmæli Mannréttindaskjals 77, en
flestir þeirra, sem að þvi skjali
stóðu, voru stuðningsmenn Alex-
anders Dubceks, fyrrum leiðtoga
Kommúnistaflokksins i Tékkó-
slóvakiu. Sovétrikin og önnur
Varsjárbandalagsríki hrundu
stjórn Dubceks frá völdum með
innrás i Tékkóslóvakiu árið 1968,
sem kunnugt er.
1 áskoruninni, sem birt var i
dag, hvetja talsmenn 77-hreyfing-
arinnar tékkóslóvösku stjórnina
til þess að taka upp viðræður við
andófsmenn. Avarpinu var dreift
á laun i Prag og efni þess simað
til tékkóslóvaskra andófsmanna i
Vin. 1 ávarpinu er meðal annars
skýrt svo frá, að andófsmenn hafi
i hyggju að stofna til táknræns
hungurverkfalls i Prag i næstu
viku, um leið og hæstiréttur
landsins tekur fyrir áfrýjanir
fjögurra andófsmanna, sem sak-
aðir voru um að grafa undan ör-
yggi rikisins og dæmdir i október
s.l. Avarpið er undirritað af
þremur talsmönnum mannrétt-
indahreyfingarinnar, Jiri Hajek,
sem var utanrikisráðherra i
stjórn Dubceks, Ladislva Hejdan-
Jiri Hajek — andófsmenn hafa
opnað augu almennings fyrir
ástandinu.
ek, heimspekingi, og söngkonunni
Mörtu Kubisovu.
í ávarpinu er viðurkennt að
hreyfingunni hafi mistekist að fá
fram breytingar á kerfinu i
Tékkóslóvakiu, en hinsvegar hafi
barátta hennar haft mikil áhrif á
almenning, sem hafi nú gert sér
ljóst hversu mannréttindi væru
litilsvirt i landinu. Þá segir að svo
virðist sem heldur hafi dregið úr
kúguninni, en kúgunaraðferðum
sé þó áfram beitt gagnvart stuðn-
ingsmönnum mannréttindahreyf-
ingarinnar, sem misst hafi at-
vinnu sina eða fái ekki vinnu.
Talsmenn hreyfingarinnar segja
aðalls hafi 832 menn skrifað und-
ir Mannréttindaskjal 77.
1 hinu nýja ávarpi er bent á að
samkvæmt tékkóslóvöskum lög-
um hafi menn rétt til að bera
fram kvartanir og einnig er visað
tilalþjóðlegra samþykkta um það
efni. Talsmenn andófsmanna
segjast hafa fengiö mikinn stuðn-
ing erlendis og muni þeir halda
starfi sinu áfram, hvað sem
gagnaðgeröum stjórnvalda liði.
Þeir telja að fremur fáir pólitiskir
fangar séu i landinu, en margir
andófsmenn hafi hinsvegar verið
ofsóttir á grundvelli ásakana um
ýmislegt athæfti utan stjómmála,
þar á meðal fyrir að hafa veitt
lögreglunni mótspyrnu.
Andófsmenn þeir, sem koma
fyrir hæstarétt i næstu viku, eru
Ota Ornest og Frantisek Pavli-
cek, fyrrum leikhússtjórar, leik-
ritahöfundurinn Vaclav Havel og
blaðamaðurinn Jiri Lederer.
Ornest var dæmdur til þriggja og
hálfs ársfangelsisvistar i október
og Lederer til þriggja árs fang-
elsisvistar. Hinir tveir fengu skil-
orðsbundna dóma. Allir skrifuðu
þeir undir 77-skjalið, nema Orn-
est.
Víetnamar sækja
inn í Kambódíu
Bidja Kínverja að stilla til friðar
SINGAPÚR 6/1 — Sendiráðs-
menn i Singapúr segjast hafa
frétt að vietnamskar hersveitir
hafi sótt allt að 64 kilómetrum inn
i Kambódiu og sé höfuðborg
landsins, Pnompenh, jafnvel I
hættu fyrir þeim. Otvarpið i
Pnompenh skýrði svo frá i dag að
Vletnamar hefðu þegar hernumið
allstórt svæði af kambódisku
iandiog sæktu nú að héraðshöfuð-
borginni Svay Rieng, sem er á svo
kölluðu „Páfagauksnefi”, kam-
bódiskri landspildu sem skagar
inn i Vietnam.
Útvarpið segir Vietnama einnig
sækja inn i Takeo-hérað fyrir
vestan Mekong og hafa tekiö mik-
ilvægan bæ að nafni Kaoh Andet,
sem er um 30 kilómetra frá
landamærunum. Kambódiumenn
segjast gera gagnárásir með góö-
um árangri, en liklegt er engu að
siður að Vietnamar hafi yfirleitt
betur, enda er her þeirra miklu
sterkari en sá kambódiski.
Vo Dong Giang, aðstoðarutan-
rikisráðherra Vietnams, sagði i
dag að Kambódiumenn bæru alla
ábyrgð á bardögunum á landa-
mærunum. Hefðu Kambódfu-
menn ráðist inn á vietnamskt
land og framið hryðjuverk á
vopniausu fólki, svo að Vietnam-
ar hefðu verið tilneyddir til gagn-
aðgerða. Hann sagöi einnig að ó-
friður þessi kæmi engum að gagni
nema sameiginlegum óvinum Vi-
etnams og Kambódiu og skoraði á
„bræðraþjóðir” að reyna að stilla
til friðar. Er talið að ráðherrann
hafi þar einkum átt við Kina.
Carter og Sadat
„fullkomlega sammála”
ASÚAN 6/1 Reuter — Búist er viö
þvi aö Anúar Sadat Egyptaforseti
muni innan fárra daga eiga viö-
ræöur viö þá Ilússein Jórdaniu-
konung og Múhameö Resa
Pahlavi transkeisara i þeim til-
gangi aö styrkja aöstööu sfna
fyrir viöræöur þær viö tsrael um
stjórnmái og hermál, sem nú fara
i hönd. Sagt er aö báðir þessir
þjóöhöföingjar muni koma til
Egyptalands innan skamms og
einnig Hassan Marokkókonung-
ur, sem varð hvaö fyrstur
leiötoga Arabarikja til þess aö
bregöast vinsamlega viö tsraels-
för Sadats i nóvember.
Viðræður Sadats við konungana
tvo og keisarann munu að miklu
leyti fjalla um viðræður hans við
Carter Bandarikjaforseta i Asúan
nýverið. Sagði Sadat eftir þær
viðræöur að þeir Carter hefðu
orðið „fullkomlega sammála.”
Þeir Jórdaniukonungur og írans-
keisari ræddu viö Carter nokkr-
um dögum áður i Teheran.
Fréttaskýrendur i Egyptalandi
telja að viðræður HUsseins og
Sadats muni einkum snúast um
Vesturbakkahéruöin, sem ísrael
heldur hersetnum. Egyptar
leggja áherslu á að Palestinu-
menn i Vesturbakkaherbúðun-
fái sjálfsákvörðunarrétt, en
Israel hafnar þvi og býður
Framhald á bls. 14.
Hvorugur myndi
vinna kjarnorkustríð
NEW YORK 6/1 Reuter — Banda-
riskir hernaðarsérfræðingar hafa
komist að þeirri niðurstöðu, að
hvorki Bandarikin né Sovétrikin
myndu hafa sigur, ef til kjarn-
orkustriðs kæmi á milli þeirra, að
sögn blaðsins New York Times.
Sérfræðingarnir telja að visu að
Bandarikin gætu hrundið af sér á-
rásum geröum með kjarnorku-
vopnum, en hinsvegar myndu
Bandarikjamenn og bandamenn
þeirra eiga erfitt með að standast
atlögur sovéskra herja, sem bún-
ir væru venjulegum vopnum, i
Evrópu og Austurlöndum fjær.
Einnig eru Sovétmenn taldir hafa
mikla möguleika á að hindra að
Vesturlönd komi að sér oliu.
ÁFRAM
ÍSLAND
Hópferð á
heimsmeistarakeppnína
í handknattleik
26. janúar — 5. febrúar
Verð kr. 98.100.-
Innifalið i verðinu: flug, rútuferðir, gist-
ing, morgunverður og aðgöngumiðar á
alla leikina. Beint flug til Árósa og heim
frá Kaupmannahöfn.
Samvinnuferðir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
Keppni i nútimafimleikum verður I
iþróttahúsi Kennaraháskóla íslands i dag,
7. janúar,kl. 15.00. Ný keppnisgrein á Is-
landi.
Fimleikasamband Islands
Auglýsið í
Þjóðviljanum