Þjóðviljinn - 26.01.1978, Qupperneq 3
Fimmtudagur 26. janiiar 1978. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
!~Hætta sögð á bráðnun Suöurskautsjökulsins
Holland og Flórída
í kaf innan 50 ára?
LUNDÚNUM 25/1 Reuter —
Áframhaldandi brennsla á ollu,
kolum og jarögasi til orkufram-
leiöslu gæti leitt til þess aö
isheilan á vesturhluta Suöur-
skautslandsins byrjaöi aö
bráöna innan 50 ára, meö mjög
alvarlegum afleiöingum fyrir
allt mannkyn, aö áliti banda-
risks jöklafræöings. Telur hann
aö þetta geti leitt til þess aö i
heimshöfunum hækki um fimm
metra, meö þeim afleiöingum
aö færa yröi núverandi hafnar-
borgir aö nokkru leyti úr staö og
láglendustu svæöin, eins og
mikiö af Flúrfda og Hollandi,
færu i kaf.
Jöklafræðiugur sá sem hér
um ræöir er John Mercer og
starfar hann við rikisháskúlann
i Ohio. Hann segir að ef haldiö
veröi áfram vaxandi brennslu á
umræddum efnum myndi þaö
hafa I för meö sér að kolefnis-.
dioxiö tvöfaldaðist i
andrúmsloftinu næstu hálfu öld-
ina. Þetta myndi hafa svokölluö
„góðurhúss-áhrif”, það er aö
segja aö meiri hiti frá súlinni
safnaöist fyrir i guguhvolfinu og
hitaöi loftslagiö. Telur Mercer
aö rannsóknir framkvæmdar
með gervihnöttum bendi raunar
til þess, að þessi þróun sé þegar
byrjuð.
Sérfræöingar um þetta efni
hafa verið mjög ósammála um
framtið loftslagsins á jöröinni
Bandarisk bækistöö á Suöur-
skautslandinu — er jökullinn þar
þegar farinn aö eyöast?
og spá sumir þvi aö aukning
kolefnis dioxiös i andrúmsloft-
inu muni kæla loftslagið og jafn-
vel valda minniháttar isöld. En
vaxandi fjöldi loftslagsfræðinga
er sagður hallast að svipuöum
skoðunum og Mercer.
J
Allsherjarverkfall vesturþýskra hafnarverkamanna:
Flestar hafnir lamaðar
HAMBORG 25/1 Reuter —
Flestar hafnir Vestur-Þýskalans
eru lamaöar I dag af völdum
verkfalls, sem er fyrsta verkfall
hafnarverkamanna þarlendis,
sem verkalýössamtökin boöa til i
yfir 80 ár. 20.000 hafnarverka-
menn i átta hafnarborgum mættu
ekki dl vinnu i morgun og er taliö
aö verkfalliö geti komiö illa viö
utanríkisverslun Vestur-Þýska-
lands, sem auölegö þess byggist
aö mjög miklu leyti á.
Hafnarborgir þær sem verk-
fallið nær til eru Hamborg,
Bremen, Bremerhaven, Cux-
haven, Emden, Lubeck.Norden-
ham og Brake. Um þessar hafnir
fara yfir þjrár miljönir smálesta
af farmi á viku. 1 höfn Ham-
borgar, sem er ein þeirra stærstu
á meginlandi Evrópu, lágu I dag
120 skip og biðu afgreiðslu. Verk-
falliö nær ekki til Flensborgar við
dönsku landamærin og Wilhelms-
haven, en i þessum borgum er
90% allrar þeirrar hráoliu, sem
Ástandið í
Indlandi
hrollvekja
NÝJU-DELHI 25/1 Reuter
— Nærri 80 af hundraöi 650
miljóna íbúa Indlands búa
viö kjör, sem eru undir
fátæktarlinu þeirri, er
stjórnarvöld hafa markað.
Þýðir það að þetta fólk
hefur mánaðartekjur sem
svara tæpum sjö dollurum
eða minna.
Ravindra Verma, verkamála-
ráöherra Indlands, upplýsti þetta
á landsráðstefnu landbúnaðar-
verkamanna, sem ekki eru i nein-
um stéttarsamtökum. Hann sagði
að ástandið væri svo óskaplegt,
að hrollur færi um hann er hann
hugsaði til þess. Ráðherrann gaf
einnig til kynna að litið væri i
Morarji Desai, forsætisráöherra
Indlands — 80% landsmanna lifa
viö sára fátækt.
raun gert til þess að bæta úr
ástandinu. Félagsmálastarfs-
menn og fulltrúar verkalýðssam-
taka ræddu þessi mál á ráöstefn-
um, en gleymdu þeim þess á
milli, sagði ráðherrann.
Verma sagði einnig, að hann
giskaði á að þrjár til fimm milj-
ónir manna lifðu sem ánauöugir
landbúnaðarverkamenn og væri
hrein hrollvekja að hugsa til
lifskjara þeirra.
Hrap sovéska gervihnattarins:
Fyrsta slys
af þessu tagi?
MOSKVU 25/1 — Sovéska utan-
rikisráöuneytiö tilkynnti settum
ambassador Kanada I Moskvu i
dag aö þaö myndi sjá Kanada
fyrir öllum nauösynlegum
tækniupplýsingum um gervi-
hnött þann, sem hrapaöi niöur I
gegnum gufuhvolf jaröar yfir
Kanada i gærmorgun, sérstak-
lega þú viövikjandi kjarna-
klúfnum sem var i gervihnett-
inum. Sagöi talsmaöur kana-
diska sendiráösins aö Sovét-
menn heföu veriö mjög sam-
vinnufúsir um þetta mál.
Gervihnötturinn hrapaði
niöur i gegnum gufuhvolfiö fyrir
dögun i gærmorgun yfir
óbyggöum nálægt Stóra Þræla-
vatni I Kanada norðvestan-
veröu, en þar er byggö mjög
strjál. Er þetta I fyrsta sinn,
sem vitað er með vissu aö
Kjarnorkuknúinn gervihnöttur
hafi hrapaö þannig. Tass-frétta-
stofan sovéska skýröi svo frá I
gærkvöldi að hnötturinn hefði
brunnið upp áður en nokkuð úr
honum komst til jarðar, og
sovéska utanrikisráöuneytið er
sagt sannfært um að þarna hafi
engin hætta veriö á ferðum.
Svipaö álit létu i ljós i gær þeir
Barney Danson, varnarmála-
ráðherra Kanada, og Zbigniew
Brzezinski, öryggismálaráöu-
nautur Bandarikjaforseta. Þó
munu Bandarikjamenn og
Kanadamenn ekki telja útílokað
að eitthvað af geislavirku drasli
úr hnettinum hafi náð til jaröar
eða að hann hafi skilið eftir sig
einhverja geislavirkni hátt i
loftlögum i fallinu, og hafa sér-
fræðingar veriö gerðir út af
örkinni meö útbúnaö til aö
ganga úr skugga um þaö.
Vestur-Þjóðverjar kaupa inn,
dælt i leiðslur.
Hafnarverkamenn hafa fengið
tilboð um 5,8% launahækkun, en
samþykktu meö miklum meiri-
hluta atkvæöa, aö hafna þvi aö
halda fast við kröfu um 9%
hækkun, sem þeir höföu lagt
fram. Allskonar útflutningsvarn-
ingur, sem efnahagur
Vestur-Þýskalands byggist á, er
þegar farinn aö hlaðast upp I fjöll
i vöruhúsum og á járnbrauta-
stöðvum, enda hafa menn ekki
vanist þvi i landinu aö hafnar-
verkamenn færu i verkfall.
álaugardag
A laugardaginn kl. 14.00 gangast ýmsir aðilar fyrir útifundi á Hall-
ærispianinu til stuðnings þvi að tekið verði tillit til gamalla húsa I
skipulagi Miðbæjarins. Aöalfrumkvöölar þessa útifundar eða karnivals
I Miðbænum eru menntaskúlanemar ásamt Torfusamtökunum, Ibúa-
samtökum Vesturbæjar ofl. Auk þeirra sem flytja ávörp munu fram
koma Spilverk þjúðanna, kúr Menntaskúlans við Hamrahlið, blásara-
kvintettog húpur leiklistarnema sem munu flytja leikþátt. Nánar verð-
ur sagt frá þessarisamkomu i blaðinu á morgun.
Methalli
hja EBE
og lapan
BONN 25/1 Reuter — Hans-
Dietrich Genscher, utan-
rikisráðherra Vestur-Þýska-
lands, lét I dag I ljús alvar-
legar áhyggjur út af úhag-
stæðum viöskipta jöfnuði
Efnahagsbandalags Evrúpu
viö Japan. Var yfirlýsingin
um þetta gefin út eftir við-
ræður Genschers og
Nobúhikú Úsjiba, utanrikis-
viðskiptaráðherra Japans.
Siðastliðið ár var við-
skiptajöfnuður Japans við
EBE hagstæður um nærri 4.7
miljarða dollara, sem er
meira en nokkru sinni fyrr.
Báðir aðilar eru sagðir hafa
viðurkennt I viðræðunum að
þetta gæti haft i för meö sér
hættu á viðskiptahöftum.
Búist við
atvinnuleysi
VtN 25/1 Reuter — Gerhard
Weissenberg, félagsmála-
ráöherra Austurrikis, til-
kynnti i dag að Austurriki
myndi banna erlendum
verkamönnum að koma til
landsins i atvinnuleit á þessu
ári. Er þessi ráðstöfun gerö
sökum þess, að búist er við
vaxandi atvinnuleysi i land-
inu.
Ráðherrann sagði enn-
fremur að erfitt myndi verða
fyrir þá erlendu verkamenn,
sem nú starfa i landinu, aö fá
atvinnuleyfi sin endurnýjuö
er þau rynnu út.
Vegna breytinga seljum við á OPIÐ Föstudag til kl. 7 s' Laugardag tll kl. 4
r~/ Vi Sófasett frá kr. 160 þús. r r -7U Stakir sófar frá kr. 40 þús. K r
Stakir stólar ^ ogborðstofustólar L^frá kr. 15 þús. ^ J r, Borðstofuborð frá kr. 35 þús. K_ r
H Margar stærðir af springdýnum og L L svampdýnum frá 10.500 þús. J
Við erum rétt við Hlemm MLtMWUW ! '—=3n i>€rL\<r ]ll il ]VC /f~\ Húsgagnaverzlun (pl) Reykjavíkur hf. 1y Braufarholti 2 — Símar 11940 -12691