Þjóðviljinn - 26.01.1978, Page 7
Fimintudagur 26. janúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Það er þvi miöur hætt vid þvi að sálin verði ekki
með í leiknum þegar að framkvæmdum kemur við
múrverkið á Hallærisplaninu — heldur einmitt
það sem sist skyldi: bankaveidið!
Líf í múrverkinu
„Borg er i eðli sinu múrverk
og malbik, en hún þarf lika að
hafa sál”. Þó deila megi um
réttmæti ofangreindrar stað-
hæfingar um eðli borga sem
leiðarahöfundur Visis setur
fram i upphafi leiðara sins þann
21. þ.m. — þá fór ekki hjá þvi, að
maður læsi út úr setningunni
upphaf röksemdafærslu gegn
þvi, að sál miðbæjarins yrði eytt
með niðurrifi 10 góðra timbur-
húsa.
— Og enn styrktist trúin, þegar
á eftir fylgdu falleg orð um
nauðsyn þess að byggja upp hin
illa förnu, viðhaldslausu og
hálfbrunnu (dönsku) hús á
Bernhöftstorfu — enda „mikil-
vægur þáttur i þeirri viðleitni að
gera borgarsamfélagið mann-
legt, að unnt sé að tengja saman
nútið og fortið”.
Og það var stutt i tárin, þegar
eftirfarandi gataðlita: „Gamli
miðbærinn hefur verið að vesl-
ast upp mörg undanfarin ár.
Þar eru gömul hús i niðurniðslu
og allt mannlif að verða úr sög-
unni eftir lokun bankanna. Að
öllu óbreyttu heldur þessum
kjarna gömlu Reykjavikur
áfram að hnigna, og þeir sem
lita á gamla miðbæinn sem
hjarta borgarinnar þurfa að
horfa uppá að það hætti að slá”.
Þetta voru orð i tima töluð, og
nú hlutu að fylgja tillögur um
raunhæfar aðgerðir til að
bjarga gömlu Reykjavik. Og
þær komu lika. En hvern skyldi
hafa órað fyrir þvi, að þær væru
i þvi fólgnar, að rifa 10 góð
timburhús — full af iðandi lifi og
starfi — sem standa kringum
„Hallærisplanið” svonefnda, til
að „hjarta gömlu Reykjavikur
(geti) farið að slá eðlilega á
ný”!!! Hvort á maður nú að
gráta eða hlæja?
En skyldi ekki leiðarahöfundi
þrátt fyrir allt vera vorkunn —
hann er ekki sá fyrsti er fellur
fyrir fallegum perspektifmynd-
um, þar sem sólin skin, fuglarn-
ir syngja og allir eru úti að
spásséra. Hann er ekki heldur
sá eini, sem trúir á þá kenni-
setningu, að leiðin til aukins lifs
i miðbænum liggi gegnum
jiyngjur lóðaeigenda þar. Það
gera nefnilega höfundar tillög-
unnar lika að meðtöldum Davið
Oddsyni borgarfulltrúa ihalds-
aflanna i Reykjavik, sem telur
það ofstæki og öfgar að fara
fram á, að ástand og saga hús-
anna sé kannað og siðanathug-
að hvort og þá hvernig megi
nyta húsin. Fyrr i viðtalinu i.
Visi 21 þ.m. hafði hann þó sagt:
„áður en hús eru rifin eða
fjarlægð á að ihuga vel, hvort
ekki sé mögulegt að láta þau
standa áfram og jafnvel nyta
þau til gagnlegra hluta”. Það er
akkúrat það, sem ekki hefur
verið gert — Davið! öfgarnar
eru þær, að farið er fram á
þessa athugun. Það getur varla
talist annað en sanngjarnt, þeg-
ar haft er i huga, að það eru um
5000 m*- sem á að rifa til að
byggja aftur 5000 m1,+ um 6000
rtfo ibúðum. Eða m.ö.o. það á að
byggja 11000 fm, þar af eru um
6000 fm. i ibúðum — eftir eru um
5000 fm, sem koma i stað þeirra
5000 fm, sem gömlu húsin
rúma!!
Og hver þekkir ekki sönginn
um niðurniddu og hálfónýtu
húsin úr umræðunni um Grjóta-
þorpið á sinum tima? Skýrsla
Árbæjarsafns um ástand húsa
þar sýndi fram á allt annað. En
umræöan um Grjótaþorp minn-
ir á fleira. Hún minnir okkur á
það, að þá var reynt — eins og
nú — að slá ryki i augu almenn-
ings með þvi að höfða til dauða
miðbæjarins — allt myndi lag-
ast ef aöeins yrði byggt nógu
mikiö i Grjótaþorpi. Það var
lika sagt, að tillagan að skipu-
lagi Grjótaþorps sýndi ekki end-
anlegt útlit, það ætti eftir að
breytast við endanlega út-
færslu. Þá var i örvæntingu —
eins og nú — reynt að telja fólki
trú um, að tillagan gerði það
ekki nauðsynlegt að rifa öll hús-
in — að unnt væri að láta einstök
hús standa þó önnur yrðu rifin.
Manni verður á að spyrja:
Halda þessir menn, að fólk sé
almennt fifl?
Höfundar tillögunnar reyna
að klóra i bakkann — eins og i
Grjótaþorpi forðum — með þvi
að tala um viðtækar athuganir á
hugsanlegri framtiðarþróun
svæðisins hafi leitt i ljós, að
gömlu húsin hefðu ekki nægi-
legt listrænt byggingargildi til
þess að verðskulda lif — og það
sé ókleift að endurhæfa þau til
að rúma öll þau skemmtileg-
heit, sem veita eigi lifi i miðbæ-
inn. Ætli niðurstaðan hafi ekki
raunverulega verið sú, að
pyngja lóðaeigenda svæðisins
yrði ekki nógu þung fyrir bragð-
ið, þvi það er ljóst og lengi vitað,
að engin fagleg könnun hefur
farið fram á ástandi og notagildi
húsanna, heldur nefið rekið inn
um gáttina i mesta lagi. Var
skipulagsnefnd enginn kostur
gefinn á þvi að skoða niðurstöð-
ur höfunda um notagildi hús-
anna.
Höfundar segja i Visi 21. þ.m.
að einn þeirra möguleika, sem
þeir hafi kannað, varað ekkert
yrði byggt á svæðinu, en núver-
andi byggingar aðeins lagfærð-
ar. Má vera; en hver hefur sagt,
að það sé eini möguleikinn
gagnvart þeirri tillögu, er valin
var? Var kannski athugað
hvernig koma mætti ibúðunum
fyrir með öðrum hætti á svæð-
inu og án þess að rifa 10
timburhús með alls kyns sér-
verslunum? Var kannski sá
möguleiki athugaður að koma
ibúðum fyrir á hinum óbyggðu
lóðum Grjótaþorps — að sjálf-
sögðu með fullu tilliti til gömlu
húsanna þar? Hver hefur sagt,
að ekki megi byggja á svæðinu
að hluta — án niðurrifs?
En hvers vegna skyldu allt i
einu skemmtistaðir, kaffihús og
önnur skemmtilegheit spretta
upp einmitt á þessum stað? Hef-
ur verið skortur á plássi undir
slikt fram til þessa? Ég veit
ekki annað en öll slik starfsemi
hafi einmitt flúið miðbæinn úr
jafnvel ágætu húsnæði. Hvað er
það i hinni nýju tillögu, sem
breytir aðstæðum slikrar starf-
semi? Það hljóta hönnuðir til-
lögunnar að hafa kannað.
Það er þvi miður hætt við þvi,
að sálin verði ekki með i leikn-
um, þegar að framkvæmdum
kemur við múrverkið á
Hallærisplani — heldur einmitt
það sem sist skyldi: bankaveld-
ið!
Sigurður Harðarson
Landið lesið
með Kiarval
A Kjarvalsstööum stendur nú
yfir sýning á 59 verkum Jóhann-
esar Sveinssonar Kjarvals sem
öll eru i eigu Reykjavikurborgar.
Sýningin er opin um helgar frá
14-22 og þriðjudaga til föstudaga
kl. 16 til 22, en lokað er á mánu-
dögum.
Aðgangur og sýningarskrá er
ókeypis. Uppsetningu á myndun-
um annaðist sýningarnefnd sem I
eiga sæti Jóhannes Jóhannesson,
Alfreð Guðmundsson og Guð-
mundur Benediktsson.
1 sýningarskrá ritar Indriði G.
Þorsteinsson um Kjarval og segir
m.a. i niðurlagi:
„Jóhannes S. Kjarval bjó lengst
af sinnar löngu starfsævi i
Reykjavik og andaðist þar 13.
apríl 1972. Þótt hann heföi vinnu-
stofu sina i Austurstræti 12, með
nokkrum frávikum siðar á æv-
inni, var Island allt einskonar
starfsvettvangur hans. Hann
gerðitiðförult á einstaka staði, og
upp úr 1930 byrjaði hann komur
sinar austur i fæðingarbyggð
sina, þar sem hann málaði af og
til á sumrin og svo að segja á
hverju sumri eftir 1945. Að með-
töldum kjörnum stöðum á Siðu,
Fljótshverfí og I Eldhrauni, batt
hann mikla tryggð við Borgar-
fjörö eystra, Þingvelli og Snæ-
fellsnes.
Kjarval var stórgjöfull á verk
sin, og bera myndir á bæjum
eystra þess gleggstan vott. Stund-
um var honum ekið i bil á
ákveðna staði með trönur og liti,
en oftar en hitt var ekki komið á
leiðarenda, þegar hann bað að
stansa. Þá hafði einhverja þá fyr-
irmynd borið fyrir augu sem ekki
var hægt að sleppa. Aöra daga
stóð hann kannski i heyverkum
með heimilisfólki þar sem hann
hélt til þá stundina.
Kjarval var einstakur snilling-
ur aö lesa i landið. Þaö rann sam-
an i' myndir fyrir augum hans,
sem aörir höfðu ekki tekið eftir,
þótt þeir hefðu lifað langa ævi i
Framhald á bls. 14.
6 tbl. 1978 kr. 2970
6 tbl. 1978 kr. 2475
Heimilisfang:
simi:
TIZKUBLAÐIÐ LIF — SIMI 82300
r
TÍZKUBLAÐIÐ líí*
er nær uppselt hjá útgefanda
örfá eintök eftir sem aöeins veröa send til nýrra áskrifenda.
Tízkublaðiö Líf þakkar frábærar móttökur og minnir á að blaðið kemur út annan
hvern mánuð.
Til tizkublaðsins Lif Armúla 18
Óska eftir áskrift