Þjóðviljinn - 26.01.1978, Síða 10
10 SÍDA — ÞJ6ÐVILJINN Fimmtudagur 26. janúar 1978.
Einar Karlsson
Ijósmyndari
Skaðabóta krafist
af íslenska landsliðinu
800 áhorfendur voru sviknir um æfingaleik milli Islands
og Árhus KFUM, að sögn danskra blaða
Danska liðið Arhus
KFUM hefur krafist
skaðabóta af islenska
landsliðinu vegna þess að
það neitaði að leika í Filke-
borg § þriðjudagskvöldið
gegn Arhus KFUM.
Danska blaðið Politiken
birtir eftirfarandi frétt um
málið: Islendingar neituðu
að leika æfingaleik gegn
danska liðinu Arhus
KFUMskömmu eftir kom-
una til Danmerkur í gær-
kvöldi. Sovétmenn höfðu
tilkynnt að þeir hyggðust
mæta á leikinn og fylgjast
þar með íslenska liðinu. En
islendingarnir vildu ekki
leika fyrir fullu húsi
áhorfenda og sögðust
raunar aldrei hafa sam-
þykkt neinn æfingaleik.
//Allt sem við báðum urri/
var falið í því að halda lið-
inu í æfingu;" sagði Birgir
Björnsson landsliðsþjálf-
ari i viðtali við danska
blaðiö.
Danska liðiö Árhus KFUM
hafði fyrir leikinn selt um 800 að-
göngumiöa, að þessum leik og
hyggst nú gera fjárkröfur á hend-
ur islenska landsliðinu vegna
svikanna um æfingaleikinn.
Danska blaðið Berlingske Tid-
ende sagði að fyrsta hneykslið á
HM keppninni hefði nú séð dags-
ins ljós og fer mjög hörðum orð-
um um islensku forráðamennina.
I viðtali við blaðið segir Erik Lar-
sen einn af forráðamönnum
mótsins:
Islenska landsliðið bað um æf-
ingaleik þann 24. janúar á móti
dönsku félagsliði og ég hafði sam-
band við ^rhus KFUM og siðan
við Islendingana þar sem ég sagði
þeim að allt væri klappað og
klárt. Þeir fengu siðan heimilis-
fang og simanúmer félagsins og
allt virtist i stakasta lagi. Við
auglýstum leikinn. Troðfylltum
iþróttahöllina en islenska liðið
mætti ekki. Ég hitti meira að
segja islenska liðið á flugvellin-
um við komuna til Danmerkur kl.
14.30 þennan sama dag og talaði
þá um leikinn um kvöldið. Engar
athugasemdir voru gerðar þá. ís-
lenska liðið var tilbúið til að.ieika
i Filkeborg. Forráðamenn Arhus
KFUM höfðu siðan komið fyrir
langferðabil við hótel íslending-
anna kl. 18.15. Einnig vissi ég að
Islendingarnir höfðu pantað
nestispakka til að hafa með sér i
rútunni á leiðinni. En íslending-
arnir neituðu að fara. Þeir gáfu
upp þá afsökun að einn leikmanna
þeirra Ólafur Einarsson hefði
handarbrotnað og þeir hættu ekki
á frekari meiðsli. A þennan hátt
er ekki hægt að hlaupa frá gerð-
um samningum. Þetta var léleg
afsökun og léleg framkoma hjá
islenska liðinu.”
En blaðið ræðir einnig við
Kjartan Steinback framkvæmda-
stjóra HSl og sagði hann m.a. að
tsíendingarnir hefðu aldrei beðið
um æfingaleik i Danmörku. Þaö
sem þeir hafi beðið um voru æf-
ingar i iþróttahöllinni umrætt
kvöld. Þetta voru óskir okkar.
Okkur datt aldrei i hug að fara að
spila fyrir fullu húsi áhorfenda
eftir erfiða ferð til Noregs. Og ef
Arhus KFUM hefur selt 800 miða
á þennan leik éru það þeirra mis-
tök,ekki okkar.
íslendingar hafa aldrei
unnið Dani
á danskri grund
Islendingar hafa aldrei unnið
Dani á heimavelli og verður
örugglega erfitt að breyta þeirri
reglu nú þvi Danir eru i hörku-
formi á meðan undirbúningur ts-
lenska landsliðsins hefur að
meira eða minna leyti verið i
molum fyrir HM-keppnina að
þessu sinni. Orslit i leikjum Is-
lendinga og Dana á danskri grund
eru þessi:
1950 K.höfn 20:16
1959 Slagelse 23:16
1966 Nyborg 17:12
1969 Helsingör 17:13
1973 Randers 18:18
1975 Brunby 17:15
1975 Randers 17:16
1976 Brunby 19:16
Alls eru þetta átta leikir og hafa
Danir unnið sjö sinnum og einu
sinni hefur leik lokiö með jafn-
tefli. Alis hafa Danir og íslend-
ingar leikið 22 leiki og hafa Danir
unnið 17 sinnum,gert eitt jafntefli
og Isiendingar hafa unnið fjórum
sinnum. úrslit i leikjum íslend-
inga og Rússa eru þessi:
Alls eru þetta nú niu leikir og
hafa Rússar sigrað sex sinnum,
Islendingar tvisvar og einu sinni
hefur leik lokið með jafntefli.
Úrslit i leikjum Islendinga og
Spánverja eru þessi:
1963 Bilbao 17:20
1964 Keflavik 22:13
1964 Keflavik 23:16
1968 Alicante 17:29
1968 Madrid 18:17
1969 Reykjavik 24:21
1969 Reykjavik 15:17
1977 Linz 21:17
Alls eru þettá átta leikir og hafa
Islendingar sigrað sex sinnum en
Spánverjar tvisvar.
1965 Reykjavik 17:18
1965 Reykjavik 14:16
1970 Paris 15:19
1970 Tiblisi 17:32
1973 Reykjavik 23:19
1973 Reykjavik 19:17
1975 Lubljana 19:24
1976 Reykjavik 13:13
1976 Reykjavik 15:19
Rúmenar fallandi
st j ömur?
Það var árið 1961 sem
Rúmenar skutust upp á toppinn
i handknattleiksiþróttinni og
sigruðu Tékka i úrslitaleik HM-
keppninnar með 9:8.
Allar götur siðan hafa
Rúmenar haft ótviræða forystu.
Þeir unnu titilinn i annað sinn
1964 en hlutu svo „aðeins”
bronsið 1967 en hirtu svo guilið
aftur 1970 og 1974.
I tveimur siðustu úrslitaleikj-
unum þurftu Sovétmenn að lúta
i lægra haldi fyrir Rúmenum.
Fyrri leiknum lauk með 13:12 og
hinum síðari með 14:12.
En vörn titilsins verður erfið
að þessu sinni. Fæstir hafa
raunar trú á þvi að Rúmenar
hafi nokkra möguleika á gullinu
og þeir sjálfir viðurkenna að
liöið þeirra hefur daiað mikið.
Ennþá hefur rúmenskur hand-
knattleikur nær allur byggst
upp á léttleika og lipurð en t.d. i
úrslitaleiknum gegn Sovét-
mönnum á siðustu Ólympiu-
leikum var það einmitt likams-
styrkur Sovétmanna sem var
mun meiri en Rúmena og orsak-
aði tap Rúmena öðru fremur.
Rúmenar hafa haft það fyrir
venju að fara i fimleika á milli
stórmótanna svo ekki er gott að
segja hverju þeir tefla fram hér
i Danmörku.
Kraftaverk raun þurfa til að
þeir geti rifið sig upp og haldið
gullinu sem þeir hafa svo Iengi
geymt i Rúmeniu. Hitt er vist aö
Rúmenar munu berjast til
siðasta blóðdropa til að varð-
veita þann heiður sem þeir hafa
skipað i handknattleiks-
heiminum.
Danskur draum-
ur um brons-
verðlaun á HM
„Tíminn er of stuttur og
vandamálin of mörg til
þess að við getum gert okk-
ur nokkrar vonir á HM i
handknattleik"sögðu Danir
hver við annan eftir
ólympíuleikana í Montreal
í Kanada fyrir tveimur ár-
um, en þar biðu Danir mik-
ið afhroð og náðu sér að-
eins í stig gegn Japan og
Kanada.
Þaö gekk allt á móti Dönum þá.
Toppleikmenn hættu og danskir
fjölmiðlar og danskur almenning-
ur gáfu upp alla von um afrek á
HM. En ungur og ódrepandi þjálf-
ari Leif Mikkaelsen lét þessa spá-
dóma sem vind um eyrun þjóta og
hann tók við landsliðinu haustið
1976 til þess að rifa það upp. Hann
hefur ekki endurnýjað verulega
landsiiöshópinn heldur hefur
hann unnið með sömu menn eftir
nýjum leiðum og árangurinn hef-
ur ekki látið á sér standa. Menn
gera sér góðar vonir um brons-
verðlaun og dönsku fjölmiölarnir
hafa ekki látið sitt eftir liggja i að
ýta undir þá trú. Danska liöið er
leikreynt i meira lagi og meðal-
aldur er 24 ár og meðallands-
leikjafjöldi er hvorki meira né
minna en rúmlega 57 landsleikir.
Og Leif Mikkaelsen þjálfari
þeirra er borubrattur. Hann segir
m.a. „Við höfum unnið 12 lands-
leiki af 22 á timabilinu eftir siö-
ustu ólympiuleika. Tvisvar höf-
um við gert jafntefli og aðeins
átta sinnum tapað þrátt fyrir það
að við höfum leikið gegn þjóðum
eins og Ungverjum, Rúmenum,
V-Þjóðverjum og Júgóslövum.
Stærsti íþróttaviðburður í
sögu Danmerkur
Heimsmeistarakeppnin er að
áliti gestgjafana, Dana, stærsti
iþróttaviðburður sem haldinn
hefur verið i þeirra heimalandi.
Alis verða leikirnir i þessum 16
liða úrsiitum 42 talsins og verða
þeir leiknir á 11 dögum i 23
iþróttahöllum, sem staösettar eru
á við og dreif um aila Danmörku.
Islenska liðið sem hefur bæki-
stöðvar i Arósum þessa dagana
leikur fyrsta leikinn i kvöld gegn
Sovétmönnum, og fer hann fram
hér i Arósum og hefst klukkan
19:30 að islenskum tima. Næsti
leikur er svo á laugardaginn
klukkan 16:00 að islenskum tima
og verður þá leikið gegn heima-
mönnum og fer sá leikur fram i
Randers og er sá bær skammt
fyrir utan Arósa.
Þriðji leikurinn fer svo fram á
sunnudeginum klukkan 13:00 og
verður þá leikið gegn Spán-
verjum.
Þeir svartsýnustu segja að þar
séeina vonin um islenskan sigur i
keppninni. Leikurinn fer fram á
vsturströnd Jótlands,Thiested en
þangað er um þriggja tima akstur
frá Árósum.
Hvað svo tekur við er óvist
ennþá en segjum svo að islenska
liðið lendi i þriðja sæti i sinum
riðli t.d. með vinningi yfir Spán-
verjum verður leikið um 9. og 10.
sætið við þau liö sem verða no. 3 i
a, b og c riðli. Liðin sem lenda á
botninum i sinum riðli geta hins
vegar fariö beint til sins heima.
Fyrir þau verður ekkert meira að
gera á HM-keppninni.
Við skulum hins vegar vera
bjartsýn. Lið númer eitt og tvö
komast áfram úr riðlinum og
þangað hefur Island sett stefnuna
þótt þaö sé ef til vill þvert ofan i
þá spádóma og þá svartsýni sem
lesa má um i dönsku blöðunum.
Betra en silfurliðið frá ’67
Danska landsliðið er nú talið
af mörgum helstu forráða-
mönnum Dana betra en nokkru
sinni fyrr. Er danska liðið sem
vann silfurverðlaunin á HM ’67
jafnvel ekki talið jafnsterkt og
það lið sem nú á að tefla fram.
Að visu viöurkenna Danir að
öðrum þjóðum hafi einnig farið
fram, þannig að bronsverð-
launin verði ekki auðsótt. En
engu að siður er ætlast til stór-
afreka af hálfu Dana og áhorf-
endur eru óspart hvattir til að
ýta undir sina menn. Sten
Sveinsson segir m.a. i viötali við
danska blaðið Politiken i gær:
Við fengum silfurverðlaunin
með nákvæmri taktikspila-
mennsku en ekki sökum mikils
likamsstyrks eða stórvaxinna
leikmanna. Nú viröist taktikin
aftur vera sett á oddinn og að
minu áliti hefur danskt landsliö
aldrei verið betra en nú. Aldrei
hafa verið fleiri strengir til að
spila á og ekki hvað sist munar
um hinar frábæru dönsku lang-
skyttur.