Þjóðviljinn - 27.01.1978, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. janúar 1978.
Efnahagsráðstafanir ekki útræddar innan stjórnarinnar:
Abyrgist greiðslur úr
Verð j öf nunars j óði
„Það kemur að þvi að rikis-
stjórnin leggi fram heildarniður-
stöðu þeirrar miklu umræðu sem
átt hefur sér stað innan hennar á
síðustu vikum um efnahagsráð-
stafanir. En það verður ekki alira
næstu daga”, sagði Matthias
Bjarnason, sjá varút vegsráð-
herra í samtali við Þjóðviljann i
gær.
Ráðherrann sagði aö engin
endanleg niðurstaða lægi fyrir
innan stjórnarinnar enn i þessum
málum enda væru þau flókin og
margvisieg og „erfitt að finna
hagkvæmustu og jafnframt
mildilegustu leiðina út úr vand-
anum.”
Að þvi er Þjóðviljinn hefur
fregnað eru ræddar innan rikis-
stjórnar ýmsar leiðir til þess aö
mæta 12 miljarða fyrirsjáanleg-
um hallarekstri fyrstihúsanna, en
helst er á döfinni einhverskonar
skattlagning á loðnuveiðar og
vinnslu.
í dag verður haldinn fundur i
stjórn Verðjöfnunarsjóðs . og
ákveðið nýtt viðmiðunarverð fyr-
ir frystihúsin sem gildir frá 1.
janúar f samræmi við 13% hækk-
un almenns fiskverðs. bar sem
frystideild sjóðsins er tóm mun
rikisstjórnin ábyrgjast að Verð-
jöfnunarsjóður geti staðið viö
skuldbindingar sínar. Þetta hefur
rikissjóður gert áður og aöeins
tvisvar sinnum orðið að bera
skellinn sjálfur að sögn Matthias-
ar Bjarnasonar, sjávarútvegs-
ráðherra. Verðhækkanir erlendis
hafa i flestum tilfellum bjargaö
rikissjóði frá tapi vegna þeirrar
ábyrgðar sem hann hefur tekið á
sig fyrir greiðslum úr Verðjöfn-
unarsjóði. — e.k.h.
Matthias Bjarnason: Rfkissjóður
ábyrgist greiðslur úr Verðjöfn-
unarsjóði.
Fimm í
haldi
Fimm menn hafa verið úr-
skurðaðir i gæsluvarðhaid vegna
fikniefnasmygls. Aliir eru menn-
irnir um tvftugt.
Þetta ákveðna mál hefur veriö i
rannsókn i nokkrar vikur og hefur
ótrúlegur fjöldi manna veriö
kallaður til yfirheyrslu vegna
þess.
Þar sem ekki er séð fyrir end-
ann á rannsókninni hefur fikni-
efnalögreglan ekki viljað gefa
upp hversu mikið magn af fikni-
efnum sé um að ræða.
Bílainnflutn-
ingsmálið
Kaup-
maðurinn
áfram í
haldi
Kaupmaður Ásgeir Sigurðsson,
sem setið hefur i gæsluvarðhaldi
vegna ólöglegs innflutnings á not-
uðum bilum frá Vestur-Þýska-
landi i 6 vikur var úrskurðaður i
4ra vikna gæsluvarðhald til við-
bótar. Sá úrskurður hefur verið
kærður til Hæstaréttar.
Félagi hans i svindlinu, bif-
reiðaeftirlitsmaðurinn Páll Ingi-
marsson, hefur verið látinn laus
úr gæsluvarðhaldi og hafði þá set-
ið inni i 4 vikur.
Enn er mikið eftir að rannsaka
varðandi þetta mál.
Vilhjálmur Hjálmarsson: Ekki
haft tima til að gera skammar-
strik.
Hvernig skiptist 28% hækkunin?
Póstburðargjalds-
hækkun mótmælt
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Verðlagsstjóra hafa
borist þangað miklar kvartanir
vegna hækkunar á burðargjöld-
um fyrir blöð og timarit, en þau
gjöld voru f jórfölduð nú á dögum.
Þaðan eru og þær upplýsingar
að ætlunin sé að lfta á rökstuðning
fyrir þessari hækkun þegar hann
berst frá póst- og simamála-
stjóra, en samþykkt verðlags-
stjórnartil hækkunar var um 28%
meðaltalshækkun á póstburðar-
gjöldum, og vantar þangað upp-
lýsingar um það hvernig hækkun-
in var dreift á hina ýmstu liði
póstþjónustunnar, og þá hvort
hækkanirnar séu að meðaltali i
þeim 28% sem leyfð voru.
Viihjálmur Iljálmarssongegnir
embætti póstmálaráðherra i
fjarveru Halldórs E. Sigurðsson-
ar og spurði blaðið hann i gær
hvort hann hyggöist gripa inn i
þetta mál að einhverju leyti. Ráð-
herrann sagðist ekki hafa haft
tima til að gera skammarstrik i
málaflokkum Halldórs ennþá.
Halldór hefði gengið frá þessu
máli áður en hann hélt burt af
landinu, og af ráðuneytis hálfu
yrði ekkert gert i þvi fyrr en hann
komi aftur til landsins. —úþ
Kynnum okkur allt varöandi
loðnubræðslu á Norðurlöndum
segir Oskar Vigfússon formaður Sjómannasambands Islands
Eins og Þjóðviljinn skýrði
fyrstur blaða frá var ákveðið á
fundi ioðnuveiðisjómanna á fundi
þeirra á Akureyri fyrr i þessum
mánuöi, þegar þeirræddu um hið
lága ioðnuverð, að fá skipaða
nefnd tii að fara utan til Norður-
landanna, þar sem greitt er
margfalt hærra verð fyrir ioðnu
og annan fisk tii bræðsiu en hér á
landi, til að kynna sér þessi mái.
Nú hefur þessi nefnd verið skip-
uð og heldur hún utan nk. sunnu-
dag og fer fyrst til Færeyja, það-
an til Danmerkur og loks til
N-Noregs.
„Við munum kynna okkur allt
varðandi þessi mál” sagði Óskar
Vigfússon formaður Sjómanna-
sambandslslands,ervið ræddum
við hann i gær en Óskar á sæti i
nefndinni. En auk hans fara utan
Gamaliel Sveinsson frá Þjóð-
hagsstofnun, Einar Ingvarsson,
aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra, Agúst Einarsson hag-
fræðingur Líti, Haraldur Gisla-
son frá loðnukaupendum.
„Við munum fyrst skoöa
bræðsluna i Fuglafirði i Færeyj-
um og eiga fund með forráða-
mönnum hennar, sjómannaog út-
gerðarmanna. Siðan verðurhald-
ið til Danmerkurog rætt viö aöila
i Hirtshal og Skagen og siðan
munum við fara til Norður-Nor-
egs, þar sem mikið er af fisk-
bræðslum og kynna okkur málin
þar”,sagðióskar, Fyrirhugað er
að þessi ferö taki 8 daga og að
menn verði komnir heim I tima,
áður en nýtt loðnuverð verður
ákveðið 15. febrúar nk. — S.dór
óskar Vigfússon
Boöaö tíl baráttuskemmtunar
áskorun frá undirbúningsnefnd
„Arið 1971 stóðu umræöur og
deilur um Bernhöftstorfu,
„danskar fúaspýtur”. Tæpum sjö
árum siöar, i janúar 1978, ná um-
ræðurnar yfir öil gömul hús i
Kvosinniog Grjótaþorpi og viöar.
t staö „fárra spýtna” er deilt um
heila borgarhluta, mál sem
mætti virðast smátt er orðiö að
stórmáli.
Borgaryfirvöld hafa kynnt til-
lögur um niðurrif 10 húsa sem
standa i röðaustan Aðaistrætis og
eru þau fiest frá 19. öld. f stað
þeirra eiga að risa firnamiklar
byggingar, þriggja til fimm hæða
háar.
Baráttumenn fyrir varðveislu
Bernhöftstorfu og húsa I Grjóta-
þorpi berjastnúeinnig fyrir varð-
veislu gamalla húsa austan Aðal-
strætis og hafa fengið til
liðs við sig fjölmarga ný-
liöa. Viö I þessari sam-
fylkingu baráttufólks boðum
viö baráttuskemmtunar á lóö
Hótels íslands (Hallærisplani)
laugardag 28. janúar kl. 14.00.
Þarviljum viðmótmæla harðlega
framkomnum niðurrifstillögum
og gagnrýna hin nýju byggingar-
áform.
Við teljum að niðurrifsmenn
borgarstjórnar sýni litilsvirðingu
fyrir gömlum verðmætum, hand-
verki horfinna kynslóða. Með til-
lögunum er miskunnarlaust
höggvið á ómetanleg tengsl við
liðna tima eða stefnt aö þvi. Við
teljum að nýttlif verði ekki glætt i
gamla miðbænum án náinna
tengsla við fortiöina. Við mæl-
umst eindregið til þess að gamla
byggðin fái aö halda sér í aöalatr-
iðum, að ný byggð verði felld aö
hinni gömlu, að mynduð sé sam-
ræmd heild.
Við hörmum að borgaryfirvöld
skuli aftur og aftur loka augum
fyrirþokka og gildi gamalla húsa
og ljá eyru viö málflutningi
þeirra sem virðast ekki geta lært
að tengja gömul hús við annað en
ryð og fúa. Við krefjumst nýrra
viöhorfa, eigendum heillegra,
þokkafullra timburhúsa sé gert
kleift aö mæta kröfum um bruna-
varnir og hollustuhætti, skipulag
sé miðað við að auka veg slikra
húsa og notagildi þeirra,greitt sé
gata eigenda sem reyna aö halda
þessum húsum við og bæta þau.
Við lýsum vantrú á tillögu um
smiði blokka með 80 ibúöir við
Aðalstræti og Veltusund, teljum
hagkvæmara og heppilegra að
fólki sé gert kleift að búa i göml-
um húsum i miðbænum, i Þing-
holtum, Skuggahverfi og vestur-
bæ. Við fögnum öllum skyn-
samlegum tillögum um eflingu
mann- og félagslifs i miðbænum,
geti það orðið án þess gömul hús
falli og steinbákn risi.
Við höfum áhyggjur af hversu
mikiö rúm stál, steypa og stöðlun
eiga i hjörtum skipuleggjenda.
Viö skorum á þá aö opna augun og
skynja fjölbreytileika gamalla
timburhúsa meö útskurði sinum,
bognum linum, „brotnum” þök-
um og sérislenskum bárujárns-
stil. Við neitum að láta bruna-
gafla steinsteyptra skrifstofu- og
verslunarhúsa segja okkur fyrir
verkum. Við höfnum mjög ein-
hliöa rökum reiknistokks og
tölvu. Við vörum ákaft við áróðri
peningaafla og fordæmum lóöa-
brask I hjarta þess bæjar sem viö
eigum ifll.”
Hluti af undirbúningsnefnd baráttuskemmtunar sem haldin veröur á
Hallærisplani á morgun kl. 14.00.