Þjóðviljinn - 27.01.1978, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 27.01.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 27. janúar 1978. Rekstrar- og afuröalán greidd beint til bœnda: Nauðsynleg skipu- lagsbreyting sagði Lúðvík Jósepsson Langar umræður urðu i sam- einuðu Alþingi i gær um rckstrar- og afurðalán til bænda. Voru tvær þingsályktunartillögur til um- ræðu, önnur frá Eyjólfi K. Jóns- syni og Jóhanni Hafstein varö- andi formbreytingu á lánakerf- inu, en hin frá Ragnari Arnalds og fleiri þingmönnum Alþýðu- bandalagsinsum hækkun þessara lána. Verður hér greint frá um- ræðum um fyrrnefndu tillöguna, en skýrt er frá hinni á öðrum stað hér á siðunni. Tillaga Eyjólfs K. Jónssonarog Jóhanns Hafsteins er þess efnis að rikisstjórninni er falið að hlut- ast til um, að viðskiptabankar greiði rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins beint til bænda. Ekki að ósk bænda Eftir að Eyjólfur haföi gert grein fyrir tiilögunni tók Ingi Tryggvason til máls og sagöi að hagur bænda myndi ekkert vænk- ast við það að þessi lán yrðu greidd beint til þeirra. Sagðist hann ekki muna eftir þvi að fund- ir bænda hefðu snúist um það að fá þessa breytingu fram. Besta kjarabótin til bænda i dag væri hins vegar að hækka rekstrar- og afurðalán til landbúnaðarins. Páll Pétursson tók næstur til máls og taldi ýmsa anmarka á til- lögunni, t.d. myndi þessi breyting hafa i för með sér aukna skrif- finsku. Nauðsyn skipu- lagsbreytinga Lúðvik Jósepsson minnti á að þingsjé þegar þessi tillaga kom upphaf- lega fram á siöasta þingi, þá hefði hann verið sammála meginhugs- un hennar, en hins vegar kæmu ekki öll nauðsynleg atriði fram i þessari tillögu. Hann væri þeirrar skoðunar að nauðsynlegt væri að lánin væru borguð beint til bænda en samhliða þvi yrðu aö koma ákveðnar skipulagsbreytingar. Lúðvik lagði áherslu á að skilja yrði milli rekstrarlána til bænda og afurðarlána til afurðasala. Veitt yrðu rekstrarlán beint til bænda, en afurðalán til þeirra fél- aga er hefðu með afurðasölu að gera. Rekstrarlánin þyrftu að vera meö þeim hætti að bændur fengju lánin frá byrjun framleiðslutimans og þar til afurðum yrði skilað, yrðu þau veitt i nokkrum áföng- um og það rikulega, þannig að þeir sem að framleiðslu stæöu fengju nægilegt fjármagn til að standa undir launa- og rekstrar- kostnaði. Afurðafélögin fengju siðan afurðalán (mest á haustin) til að kaupa afurðir bændanna. Með þessu fyrirkomulagi fengju bændur laun sin greidd strax i' peningum og hefðu fjár- magn til að greiða óhjákvæmileg rekstrarútgjöld, og myndu lika losna við það innskriftafyrir- komulager nú væri rikjandi. Lúö- vik sagðist ekki telja erfitt að skipta um form á þessum lánum. Otibú bankanna ættu að geta ann- ast þessar greiðslur og bankarnir myndu fá áætlun um afurðainn- legg bændanna. Sagði hann að þetta kerfi myndi ekki auka skriffinsku, heldur draga úr henni, þvi það væri skriffinska að þurfa að ganga i gegnum inn- skriftafyrirkomulagið. Sammála Lúðvík Eyjólfur K. Jónsson sagðis^ sammála Lúðvik i þvi að þetta nýja fyrirkomulag sem fælist i beinum greiðslum til bænda i stað þess að lánin færu til afurðasölu- félaganna er kæmu þeim til bændanna, myndi minnka alla skriffinsku. Jafnframt tók hann fram að hann hefði heyrtmargar raddir meðal bænda sem legðu áherslu á þessar skipulagsbreyt- ingar. Páll Pétursson sagðist undr- andi á ræðu Lúðriks og kallaði hanaeinkaframtaksræðu. Sagðist Lúðvik Jósepsson hann telja að reikningsviöskiptin við kaupfélögin heföu reynst bændum vel, enda nægðu sumum ekki rekstrarlánin. Jón Helgason beindi þeirri fyrirspurn til Lúðviks hversu mikla hækkunhann hefði beitt sér fyrir á þessum lánum meðan hann var bankamálaráðherra 1971-1974. Hliðstæð breyting í sjávarútvegi Lúðvik Jósepsson sagði varð- andi fyrirspurn Jóns að i stefnu- Eyjólfúr K. JóntBOa yfirlýsingu rikisstjórnarinnar hefðu veriö ákveðin fyrirheit i þessum efnum. Hann hefði falið Seðlabankanum að hækka af- urðalánin og lækka vextina og það hefði verið framkvæmt. Hins vegar hefðu þær breytingar er þáverandi landbúnaðarráðherra stóð að verið þess eðlis að ekki hefðuaðeinskomið útúr þeim lág rekstrar- og afurðalán, heldur fóðurbætislán, uppgjörslán o.fl. Þetta átti að vera til bóta, en hefði flækt máliðsvo að nú vissi enginn maður hvernig þessi mál raun- verulega stæðu. Frh á 13. siðu Ragnar Arnalds: Rekstrar- og afurdalán til bænda þurfa að hækka Þegar umræðu þeirri um rekstrar- og afurðalán til bænda er greint er frá annars staðar hér á siðunni var lokið þá hófet umræða um tillögu er lýtur aö hækkun á rekstrar- og afuröalán- um til bænda. Flutningsmenn til- lögunnar eru Ragnar Arnalds, Stefán Jónsson, Kjartan ólafs- son, Helgi Seljan, Garðar Sigurðsson og Jónas Arnason. Láninþurfaaðhækka Ragnar Arnalds gerði grein ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Bjarnfriður Baldur Ragnar Hvað er í húfi — Hvað er framimdan? Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Alþýðu- húsinu í Siglufirði laugardaginn 28. janúar kl. 13.30 Fyrir svörum sitja: Bjarnfriður Leósdóttir Hannes Baldvinsson Baldur óskarsson Ragnar Arnalds Fundurinn verður i fyrirspurnarformi og áhersla lögð á spurningar og svör, frjáls orðaskipti og stuttar ræður. Hvernig má vernda kaupmátt launa og réttindi verka- fólks gegn þeim árásum á kjörin sem yf ir vofa? Getur það gengið til lengdar að verðlag sé látið tvö- faldast á hverjum tveimur árum? Er efnahagslegt hrun framundan? Er verðbólgan óstöðvandi? Hvers konar stjórn verður mynduð eftir næstu kosn- ingar Hvaða framfaramál staðarins verður að leggja þyngsta áherslu á? FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN Frjálsar umræður fyrir tillögunni og benti á að þessi tillaga er hann og fleiri þingmenn Alþýðubandalagsins flyttu væri nokkuð annars eðlis en tillaga þeirra Eyjólfs og Jóhanns Hafsteins. Sagðist hann telja slæmt að umræðan stæði einhliða um formsatriði, um ákv. form- breytingar sem þó vissulega ættu rétt á sér i ákv. tilvikum, en aðal- atriðið væri að þessi lán væru ófullnægjandi og þyrftu að hækka. Ragnar minnti á að þingmenn Alþýðubandalags hafa flutt um þetta mál tillögur margsinnis áð- ur og þar gert ráð fyrir að bænd- um yrði tryggð viðunandi rekstr- arlánafyrirgreiðsla, og miðað við að lánin yrðu veitt frá ársbyrjun til ágústloka ár hvert og yrðu þá orðin 75% af væntanlegum afurðalánum. Tillaga þeirra hefði þó ekki náð fram að ganga og sagðist hann vona að þeir þing- menn stjórnarinnar sem mest hefðu talað um nauðsyn á þvi að hækka rekstrar- og afuröalán styddu þessa tillögu. Ályktun Stéttasam- bands bænda Umræða um þessi mál hefði aukist mjög enda mikil verðbólga rikjandi sem hefði haft áhrif á rekstrarafkomu bænda auk þess sem almenn lán væru lika orðin óhagstæðari og vextirnir komnir upp í 30%. Fundir bænda viðsveg- ar um landið heföu sett fram kröfur um auknar lánagreiöslur og vitnaði hann i þvi sambandi i ályktun aðalfundar Stéttasam- bands bænda sem haldinn var i ágúst 1977. Fundurinn taldi „það ástand sem nú rikir i lánamálum landbúnaðarins, óviðunandi og gerir kröfur til þess, að úrbætur verði gerðar i þessum efnum. Vegna verðbólgu og einnig vegna stóraukinnar tæknivæðingar i landbúnaði hefur þörfin fyrir lánsfjármagn vaxið hröðum skrefum og þær lagfæringar sem gerðar hafa verið hvergi nærri fullnægjandi, og bendir fundurinn sérstaklega á rekstrar- og afurðalán og lán til þeirra, sem eru að hefja búskap, i þvi sam- bandi”. Tillagan Sjálf tillaga þeirra Alþýðu- bandalagsmanna tæki miö af ályktun Stéttasambandsins og væri eftirfarandi: „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að gera ráðstafanir til að tryggja bændum viðunandi rekstrar- og afurðalán. Rekstrarlán til sauðfjárbú- skapar verði aukin þannig, að þau verði a.m.k. 60% af skilaverði við upphaf sláturtiðar og séu veitt jöfnum höndum eftir þvi sem rekstrarkostnaður fellur til. Afurðalán miðist við að sölu- félögumsé kleiftaðgreiða minnst 90% af grundvallarverði við mót- töku afurðanna. Lánin skulu breytast i samræmi við heildsölu- verð, eins og það er i maimánuði á ári hverju. Fóðurbirgðalán (hafislán) mið- ist við, að nægar birgöir fóður- varaséu tryggöar á hafissvæðinu til sex mánaða frá áramótum”. Siban rakti Ragnar hvernig hægt væri að tryggja nægilegt rekstrarlán til bænda og lagöi áherslu á að hér væri stórmál á ferðinni er þyrfti að fá afgreiðslu á þessu þingi. Þegar þetta er ritað var umræðu um tillöguna ekki lokið og nokkrir á mælendaskrá. Alþýðubandalagið i Vesturlandskjördæmi — Kjördæmisráðsfundur Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Vesturlandskjördæmi heldur fundí Snorrabúð i Borgarnesisunnudaginn 29. janúar kl. 14. Dagskrá: 1. Ákvörðun um framboð. 2. Kosning æskulýðsnefndar. 3. Kosningaundirbúningur. 4. Önnur mál. Stjórnin. Hvergerðingar og nágrannar — Spilavist Spilað verður 2. kvöldið i 3-ja-kvölda spilavistinni hjá Alþýðubandalag- inu i Hveragerði laugardaginn 28. janúar kl. 20.30 i Félagsheimili ölfusinga (við hliðina á Eden). Góð kvöldverðlaun. Aðalverðlaun: Vikudvöl i Munaðarnesi. Góð skemmtun. Allir velkomnir. — Nefndin. Alþýðubandalagið í Kópavogi — Árshátið Munið árshátiðina i Þinghól laugardaginn 4. febrúar. Þorramatur. Miðasaia og borðapantanir i Þinghól þriðjudaginn 31. janúar kl. 20.30 til 22.30. — Skemmtinefndin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.