Þjóðviljinn - 27.01.1978, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 27.01.1978, Qupperneq 13
Föstudagur 27. janúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 sjónvarp Hver fyrir sig og guö gegn öllum: Uttekt á borgara- legu samfélagi Það er ekki á hverju kvöldi sem sjónvarpsáhorfendum gefst kostur á aö berja augum svo nýlega og jafnframt ágæta kvikmynd eins og þá sem verft- ur á skjánum klukkan tiu i kvöld. ÞaO er þýska myndin „Hver fyrir sig og guö gegn öll- um” (Jeder fiir sich und Gott gegen alle) eftir Werner Her- zog, sem gerö var áriö 1974. Myndin var sýnd hér i Háskóla- bíói i desember 1976 og var þá nefnd ,,Gátan um Kaspar Haus- er”. Aöaihlutverkiö, Kaspar Hauser, leikur Bruno S. Leikstjórinn, Werner Herzog, fæddist 1942 i Miinchen. Fyrsta kvikmyndahandrit sitt skrifaöi hann 15ára, en var oröinn 21 árs þegar hann fór aö fást viö gerö stuttra heimildarkvikmynda i fullri alvöru og á eigin kostnaö. Áöur en hann geröi myndina um Kaspar Hauser hafði hann stjórnaö fjórum leiknum mynd- um: Lifsmerki (tekin i Grikk- landi 1967), Fata Morgana (Afrika 1968-70), Dvergar hafa einnig byrjaö smátt (i Mexikó og á Spáni 1969-70) og Aguirre — reiði guðs (Perú 1971-72). En þaö var fyrst meö tilkomu KasparsHausers,aö menn fórui fúlustualvöru aö taka ofan fyrir Werner Herzog. Þetta er fyrsta leikna myndin sem hann stjórn- ar i Þýskalandi. Nafn myndar- innar, Hver fyrir sig og guð gegn öllum, fer langt meöaö út- skýra efni hennar, sem er úttekt á borgaralegu samfélagi, for- dómum þessog „siömenningu”, Náttúrubarniö andspænis siö- menningunni: Bruno S. i hlut- verki Kaspars Hausers. yfirborðsmennsku og tilfinn- ingakulda. Enginn skyldi þó ætla að hér væri um þurra á- deilumynd aö ræöa, heldur er hér kominn magnaöur skáld- skapur, listaverk sem höföar meira til tilfinninga manna en annarra skilningarvita. Kaspar Hauser nefnist maöur oghefur aliö aldur sinn i dimm- um kjallara, hlekkjaöur viö gólfiö, svo lengi sem hann man eftir sér. Allt i einu er hann dreginn út úr kjallaranum, út i sólina semhannhefur aldrei séð áður, og skilinn eftir á torgi. Stendurþar hreyfingarlaus meö nafnlaust sendibréf i útréttri hendi. Hann kann ekki aö tala og varla aö ganga. Yfirvöldin taka hann aö sér og hefja rann- sókn i málinu.en hún leiðir ekki til neins, uppruni Kaspars Hausers er og veröur gáta. Yfir- völdin telja aö honum beri aö leggja fram sinn skerf til greiðslu á uppihaldskostnaöi, og koma honum i sirkus. Þar er hann hafður til sýnis ásamt 3 öörum „gátum”: tveimur dvergum og indiána. Síöan lendir hann i höndum velunn- ara, Daumer að nafni, og flend- ist hjá honum. Kaspar lærir aö lesa og skrifa og getur brátt orö- aö hugsanir sinar. En hugsanir hans eruekki isamræmi viö það sem menn vænta sér af honum. Hann fellur ekki inn í myndina af rómantiska náttúrubarninu. Hann er opinn og hreinskilinn.en fólkið i kringum hann er fullt af hræsni og sýndarmennsku. Þessvegna fær hann ekki svör við spurningum sinum. Ein- semd hans er geigvænleg. „Eg stend utan við allt”, segir hann, „mér finnst mennirnir vera úlf- ar.” Hann neitar að trúa á guö. Hvaö hefur hann aö gera viö þann guö sem borgararnir hafa fundiö upp sér til huggunar? Kaspar kann ekki neitt þegar hann kemur i þetta umhverfi. Honum er kennt — upp aö vissu marki. Honum er ætlaö aö leika ákveöiö hlutverk, hegöa sér i samræmi við ákveöið munstur. Þegar hann fer út fyrir þessa þröngu ramma, leitar i abrar áttir, bregst samfélagiö illa við. Það var ekki ætlast til aö hann færi aö leita sannleikans eöa raunverulegrar lifsfyllingar. A endanum er hann drepinn, og gátaner jafn óleyst og hún var i myndarbyrjun. 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustngr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Þórhallur Sigurðsson les „Marx bragöaref” eftir Sven Wernström (4). Til- kynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriöa. Ég man þaö enn kl. 10.25: Skeggi Asbjarnarson sér um þáttinn. Morguntón- leikarkl. 11.00: Hubert Bar- washer og Sinfóniuhljóm- sveit Lundúna leika Flautu- konsert i D-dúr (K314) eftir Mozart, Colin Davis stj. / Sinf óniuhl jómsveitin i BostonleikurSinfóniu nr. 2i D-dúr op 36 eftir Beethoven, Erieh Leinsdorf stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og frettir. Tilkynningar. Vib vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Maður uppi á þaki” eftir Maj Sjö- wall og Per Wahlöö.ólafur Jónsson byrjar lestur þýöingar sinnar. 15.00 Miödegistónleikar. Bernard Goldberg, Theo Salzman og Harry Franklin leika Trió i F-dúr fyrir flautu, selló og pianó eftir Jan Ladislav Dusik. Heinz Holliger og félagar úr hljómsveit Rikisóperunnar i Dresden leika Konsert i G-dúr fyrir óbó og strengja- sveit eftir Georg Philipp Telemam* Vittorio Negri stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 Ótvarpssaga barnanna: „Upp á lif og dauöa" eftir Ragnar Þorsteinsson. Björg Arnadóttir les (3). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Söguþáttur Umsjónar- menn: Broddi Broddason og Gi'sli Agúst Gunnlaugsson. 1 þættinum veröur rætt um sögukennslu á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. 20.05 Tónleikar Sinfónfu- hljómsveitar lslands i Háskólablói kvöldiö áöur, — fyrri hluti. Stjórnandi: Steuart Bedford frá Bretlandi Einleikari: Arve Tellefsen frá Noregi a. „Brottnámiö úr kvennabúr- inu”, óperuforleikur eftir Wolfgang Amadeus Mozart. b. Fiðlukonsert i D-dúr op. 61 eftir Ludwig van Beet- hoven. — Jón Múli Arnason kynnir tónleikana — 21.05 Gestagluggi Hulda Valtýsdóttir stjórnar þætti um listir og menningarmál. 21.55 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla” eftir Virginiu M. Alexine-Þórir Guöbergsson les þýðingu sina (5). 22.20 Lestur Passhisálma (4) Dalla Þóröardóttir stud. theol. les. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Áfangar Umsjónarmenn: Asmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Prúöu leikararnir (L) Þýöandi Þrándur Thoroddsen. 21.00 Kastljós (L) Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maöur Sigrún Stefánsdóttir. 22.00 Hver fyrir sig og guö gegn öllum. (Jeder ftir sich und Gott gegen alle) Þýsk biómynd frá árinu 1974. Höfundur handrits og leik- stjóri Werner Herzog. Aðalhlutverk Bruno S., Walter Ladengast og Brigitte Mira. Arið 1828 fannst ungur maður á torgi i Niirnberg. Hann gat hvorki talað né gengið, en hélt á bréfi, þgr sem sagði ab hon- um hefði verið haldiö föngn- um i kjallara alla ævi, án þess að hann hefði haft hug- mynd um heiminn fyrir ut- an. Hann gat sagt eina setn- ingu: „Mig langar aö veröa riddari eins og faðir minn var — og skrifað nafn sitt, Kaspar Hauser. Höfundur myndarinnar, Werner Herzog, hefur látið svo um- mælt, aö Kaspar Hauser sé „eini maöurinn, sem vit- aber til aö „fæöst” hafi full- orðinn. Hann hélt sig vera einan i heiminum og leit á hlekkina sem eðlilegan lik- amshluta”. Þýðandi Vetur- liöi Guönason. 23.45 Dagskrárlok á Snæfellsnesi Garnaveiki hefur nú í fyrsta sinn fundist á Snæ- fellsnesi/ — f Böðvarsholti í Staðarsveit, — vestan girðingarinnar, sem liggur þvert yfir Nesið. — Við erum enn i óvissu um hvort sýking er aöeins á þessum eina bæ á Nesinu, sagði Sigurður Sigurðarson, dýralæknir i viðtali við blaöið i gær. — Það hefur að visu um alllangt skeiö verið fylgst vel meb liffærum úr sláturfé i Borgarnesi en hluta af fénu er slátrab i Stykkishólmi og þaðan bárustekki sýni i haust. Þvi kann aö hafa verið slátrað þar garna- veikri kind. Viö þurfum nauðsyn- lega að fá upplýsingar um heilsu- far fjárins undanfariö. Sjúkdóm- urinn er mörg ár að búa um sig, einkenni ógreinileg og i byrjun ber aðeins á einr.i og einni kind. Þaö varö að samkomulagi við Snæfellinga, að við sendum mann til allra fjáreigenda á svæöinu, sem aflaöi sér upplýsinga um vanhöld, skobaöi féö og tæki frá grunsamlegar kindur. Þeim yrði siðan slátraö og gengiö úr skugga um hvort um garnaveiki væri að ræöa eöa ekki. tJtlit ormaveikra kinda getur verið likt og garna- veikra en meö rannsókn á saur- sýnum má skera úr um hvort heldur er. Við höfum blóöprufaö féð i Böðvarsholti og á næstu bæjum en 1973 var byrjað að bólusetja þarna viö garnaveiki. Eldra féð er þvi óbólusett og bólusettar kindur svara jákvætt við blóö- prúfu. Þaö getur þvi valdið erfið- leikum séu fjáreigendur ekki á þvi hreina með hvað er bólusett og hváð ekki. Garnaveiki fannst ekki i öörum kindum, sem slátrað var frá Böövarsholti og úr ná- grenni. Erfitt er aö segja um hvernig veikin hefur borist inn á svæðið. Viö góö skilyröi getur sýkillinn lifað utan kindarinnar jafnvel meira en ár og allt, sem saur- mengast og verst á milli felur i sér hættu. Nokkuö hefur verib slakað á vörnum upp á siökastiö . Ákveðiö hefur veriö aö leggja niöur hluta af varnarllnunum en halda öörum við til frambúðar. Þeim þarf aö halda sem best viö. En girðingar veröa aldrei fullkomin vörn og þá reynir á aö fé sé ekki sammerkt, en sammerkingar hafa aukist i skjóli girðinganna. Markaskrár á aö gefa út um allt land 1979 og þá veröa umsjónarmenn marka- skránna að hafa gott samstarf um aö útrýma sam- og námerk- ingum. Það er skylda að sláturhúsin láti taka garnasýni úr öllu full- orönu fé og nautgripum, sem þar er slátraö. Um þaö eiga slátur- hússtjórar og sláturleyfishafar aö sjá. Þaö vill svolitið bregöast en er þó yfirleitt i góöu lagi. í Stykkishólmi vildi svo til i haust að dýralæknirinn var veikur og gat þvi ekki sinnt starfinú, en út- lendingur mun hafa veriö fenginn i hans staö. Bólusetning er áhrifamesta vörnin gegn garnaveiki en þaö er lika nauðsynlegt að viðhafa mikið hreinlæti við fóbrun og hirðingu og að ormahreinsa féö reglulega. Eftir þvi, sem aðbúnaður fjárins er betri verður mótstööuafliö meira. Garnaveikin er alltaf heldur að breiðast út, enda ekki bólusett um allt land. Og svo eru menn alltof kærulausir meö flutn- ing á fé milli stað, sagöi Siguröur Sigurðarson aö lokum. —mhg Þingsjá Framhald af bls. 6 Varöandi ummæli Páls Pét- urssonar að ræða sin hefði verið einkaframtaksræöa, þá sagðist hann vilja spyrja hvort þaö gæti verið einkaframtakssjónarmið aö standa að þvi að bændur geti fengið afurðir sinar greiddar. Vegna þeirra orða Páls að sumir þyrftu meira en aðrir, þá væri það vitaskuld rétt að bændur stæðu ekki allir eins aö vigi frem- ur en sjómenn og verkamenn. En um slikar úthlutanir til bænda yrðu þá að gilda ákveðnar reglur en ekki vera háö dyntum kaup- félagsstjóra. Lúðvík sagðist vilja minna á að hliðstæð formbreyting heföi verið gerð i sjávarútvegi og fælist i til- lögum hans, og myndi nú enginn i þeirri atvinnugrein vilja snúaaft- ur til fyrra fyrirkomulags. Stefán Valgeirsson lýsti þeirri skoðun sinni að bændur hefðu ekki áhuga á þvi að breyta nú- verandi fyrirkomulagi. Fuiltrúar bænda eða umboðsseljenda? Albert Guömundsson lýsti yfir stuöningi viö þingsályktunartil- löguna og taldi þetta mál vera hluta af sjálfstæðisbaráttu bænda. Bændur hefðu ekki þekkt eigið frelsi i fjármálum i langan tima. Sagöist hann ekki skilja málflutning fulltrúa bænda, nema þá aö þeir telji sig frekar fulltrúa þeirra er sjá urn umboössöluna en bænda. Páll Pétursson, Jón Helgason og Eyjólfur K. Jónsson töluöu all- ir tvisvar. Atkvæðagreiðslu um nefnd var frestaö.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.