Þjóðviljinn - 03.02.1978, Side 3

Þjóðviljinn - 03.02.1978, Side 3
Föstudagur 3. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Kambódía og Taíland sátt Enn ósamið um landamœri BANKOK 2/2 — Kambódía og Tailand hafa samið um að taka upp verslunarviðskipti milli land- anna, skiptast á ambassadorum og „láta það liðna vera gieymt,” samkvæmt tilkynningu birtri i höfuðborg Tailands i dag. Er þá svo að sjá, að sættir hafi tekist milli rikjanna eftir að nærri fullur fjandskapur hefur verið með þeim i yfir tvö ár, og raunar hafa þessar þjóðir lengst af sögu sinn- ar eldað grátt silfur. Þessar sættir tókust er úpadit Patsjirajangkún, utanrikisráð- herra Tailands, brá sér til Kambódiu og ræddi við Ieng Sary aðstoðarforsætisráðherra og hitti einnig að máli Pol Pot forsætis- ráðherra. Lét Úpadit vel yfir þeim viðræðum við heimkomuna. Þetta er fyrsta heimsókn tai- lensks ráðherra til Kambódiu frá þvi að kambódiskir kommúnistar og stuðningsmenn þeirra unnu borgarastriðið þar i landi vorið Regnbogamálið til umræðu í borgarstjórn: Geðþóttaákvörðun ræður gjaldinu Þrenns konar reglugerðir í gildi um greiðslur af bifreiðastœðum Borgarstjórinn i Reykjavik, Birgir isleifur Gunnarsson, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á fundi borgarstjórnar i gær, og gerði að umtalsefni frétt Þjóðvilj- ans um greiðslur kvikmynda- hússins Regnbogans til borgar- sjóðs vegna bilastæða, sem ekki er nóg af við kvikmyndahúsið. Hélt borgarstjóri þvi fram, aö samkvæmt nýjum skipulagsregl- um væri Regnboganum aðeins skylt að greiða fyrir umrædd bilastæöi 1,6 miljónir króna, en ekki 6 miljónir eins og segir í Þjóðviljanum i gær. Sagði borg- arstjóri að mál Regnbogans hefði fcngið eðlilega afgreiðslu i alla staði. Sigurjón Pétursson, borgar- ráðsmaður Alþýðubandalagsins, sagði að borgarstjórnarmeiri- hlutinn væri búinn að koma sér upp þremur reglugerðum varð- andi innheimtu gjalda sem þess- ara, svo og óeðlilega rýmilegum reglum um það hversu há gatna- gerðargjöld skuli innheimta af verslunar- og iðnaðarhúsnæði. Taldi Sigurjón slikt fyrirkomulag i hæsta máta óeðlilegt, þar sem meö þvi td. að hafa fjölda slikra reglugerða í gildi væri það nánast geðþóttaákvörðun meirihluta borgarstjórnar eða einstakra em- bættismanna hvaða reglum skuli beitt i hvaða tilviki og hægt væri þannig að mismuna einstakling- um og fyrirtækjum, auk þess sem slikt fyrirkomulag gæfi alls kyns sögusögnum um mismunun byr undir vængi. Það kom og fram i máli Sigurjóns að á borgarráðs- fundi fyrir tvcimur dögum hefði borgarstjóri ekki haft svar sem hann gæfi nú á reiðum höndum, og ekki þá túlkun á þvi, sem Regnboginn skyldi greiða, sem hann hefði orðið sér úti um siðan. Séu gjöld Regnbogans reiknuð út samkvæmt einni af þeim þremur reglugerðum, sem i gildi eru, bæri kvikmyndahúsinu að greina 6 miljónir eins og fram kom i Þjóðviljanum i gær, en ekki l,6miljón eins og borgarstjóri úr- skurðar nú eftir nýákvarðaðri reglugerð. Nánar verður skýrt frá umræð- um um þetta mál i Þjóðviljanum á morgun. — úþ Pol Pot, forsætisráöherra Kam- bódlu. Stjórn hans hefur ærna þörf á bættri sambúð við Tailand, nú þegar striðsástand er á landa- mærum Kambódiu og Víetnams. 1975. Kambódiumenn hafa sam- þykkt að láta lausa tailenska fiskimenn, sem kambódiskir varðbátar hafa handtekið á Tai- landsflóa, en þar greinir rikin á um yfirráðasvæði sem viðar. Hinsvegar sagði Úpadit að ennþá hefði ekki verið reynt að ná samkomulagi um landamæri rikjanna, en það deilumál er mjög viðkvæmt.og gera bæði riki tilkall til margra svæða meðfram hinni 500 kilómetra lögnu landa- mæralinu á milli þeirra. Að sögn Tailandsstjórnar voru yfir 150 Ti- lendingar drepnir i landamæra- skærum við Kambódiumenn á s.l. ári. Úpadit sagði, að ekki yrði byrjað á þvi að reyna að leysa þetta deilumál fyrr en rikin hefðu komið sér upp sendiráðum hvort i annars höfuðborg. GENF 1/2 Reuter — úm 5000 ein- tök af Bibliunni á þýsku hafa verið send mótmælendasöfnuðum á austursvæöum Sovétrikjanna samkvæmt samkomulagi við þar- lend stjórnarvöld, að sögn Lút- herska heimssambandsins. Lögðu Lútherstrúarmenn i Austur-Þýskalandi þar af fram um 2000 eintök. Svo er að heyra á fréttinni að bibliur þessar fari einkum til lútherskra safnaða þýskumælandi manna, en nærri tvær miljónir Þjóðverja munu vera i Sovétrikj- unum. Enginn árangur af hermála- viðrœðum TEL AVIV 2/2 Reuter — Annarri umferð hermálavið- ræðna Egypta og tsraels- manna lauk i gærkvöldi án þess að nokkur árangur næð- ist. 1 viðræðunum neituðu israelsmenn sem fyrr að leggja niður nýbyggðir sinar á Sínaí og kváðu sér nauð- synlegt að viðhalda þeim af varnarástæðum. Agreiningur er og um mörg atriði önnur viðvikj- andi Sinai. Haft er eftir heimildum i Israel að her- málaviðræðurnar sem fóru fram i Kairó, verði ekki hafnar þriðja sinn fyrr en i fyrsta lagi eftir að Sadat Egyptaforseti er kominn heim úr leiðangri sinum um sjö riki, en hann er nýlagöur upp i þá ferð. I þvi ferðalagi mun hann meðal annarra hitta Carter Bandarikjafor- seta að máli. Hlerunar - hneyksli BONN 2/2 Reuter — Helmut Schmidt, sambandskanslari Vestur-Þýskalands, ráðfærði sig i dag við leiðtoga frjáls- demókrata, sem ásamt með sósialdemókrötum, fiokki Schmidts, standa að núver- andi rfkisstjórn, vegna al- varlegs njósnahneykshs sem valdið hefur þvi að varr.ar- málaráðherra landsins, Georg Leber, hefur boðist til þess að segja af sér. Málið er þannig vaxið að komist hefur upp að leyni- þjónusta hersins hefur stundað viötækar og ólögleg- ar persónunjósnir með hler- unartækjum. Leber viður- kenndi i gær að hafa gefiö þinginu rangar upplýsingar um málið og bauö þá fram afsögn sina. Hið sama hafa nú tveir ráðherrar i viöbót gert, af öðrum ástæðum þó, að sögn. Danir saka nú Breta um heimsvaldastefnu Sjálfhelda i fiskveiðimálum EBE HANSTHOLM, Jótlandi 1/2 — Einn af forustumönnum danskra útgerðarmanna, Svend Heisel- berg, sakaði Bretland i dag um heimsvaldastefnu i fiskveiðimál- um á Norðursjó. Eins og kunnugt er slitnaði nýlega upp úr viðræð- um aðildarríkja Efnahagsbanda- lags Evrópu i Briissel, er Bretar harðneituðu að gefa eftir viövikj- andi sinum sjónarmiðum um fiskveiðar á Norðursjó og viðar. Standa Bretar fast við það að all - breið „einkafiskveiðilögsaga” út frá ströndum Bretlands sé tekin frá fyrir breska fiskimenn eina. Heiselberg sagði að nú væri framtið danskra fiskveiða öll i óvissu vegna þessarar afstöðu og að hvorki fiskimenn né útgerðar- menn vissu hvað þeir ættu að gera gagnvart fiskveiðitakmörk- unum Breta. Danmörk er mesta fiskveiðiriki EBE og landaði s.l. ár um 1.8 smálestum af fiski. Mikiö af aflanum fór i fiskimjöl, lýsi og niðursuðu. Reykjavíkurskákmótið: Deilan við íslensku stórmeistarana leyst Eins og Þjóðviljinn skýrði fyrstur blaða frá, sl. laugardag kom upp deila milli islensku stór- meistaranna annarsvegar og stjórnar skáksambandsins hins- vegar vegna þess að til stóð að greiða erlendu stórmeisturunum dagpeninga meðan á mótinu stæði, en ekki þeim íslensku. Þetta vildu þeir ckki samþykkja og úr varð deila. Nú hefur þessi deila verið leyst og er úr sögunni. Farin var sú leið, að fella alveg niður dagpen- ingagreiðslur til allra stórmeist- aranna. Þess i stað mun Skák- samband Islands greiða fæði fyrir erlendu stórmeistarana og einnig fyrir þá islensku, þegar þannig stendur á, eins og forseti SSt komst að orði i samtali við Þjóð- viljann i gær. Eins og annarsstaöar er sagt frá i Þjóðviljanum hefst Reykja- vikurskákmótið að Hótel Loftieið- um á morgun kl. 18.00 — S.dór. Satöahangikjöt bragömikíð og ljuffengt heildsölubirgðir $ Reykhús Sambandsius S.14241

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.