Þjóðviljinn - 03.02.1978, Side 4

Þjóðviljinn - 03.02.1978, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. febrúar 1978 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Pálsson Kitstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Siðumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. Tillögur um fyrstu skref Eitt stjórnarblaðanna skýrði frá þvi fyrir nokkrum dögum, að rikisstjórnin hefði ákveðið að fella gengið. Þessi frétt blaðsins var ekki borin til baka með opin- berri tilkynningu, þannig að þögnin hefur staðfest efni hennar að fullu. Siðan frétt þessi birtist hefur kaupæðið verið i há- marki i verslunum sem selja innfluttar vörur og heildsalar og umboðssalar herja á gjaldeyrisdeildir bankanna sem aldrei fyrr. Þessi vinnubrögð rikisstjórnarinnar eru gjörsamlega siðlaus. Með þessum vinnu- brögðum er rikisstjórnin að gefa heild- sölunum gifurlegar upphæðir; þegar er farið að bera á þvi i verslunum að kaup- menn hafi nánast dagprisa á vörum sinum og þeir bera þvi við að gengissigið valdi hækkun á sömu vörunni á einni nóttu. Jafnframt ákvörðunum um gengis- fellingu hefur rikisstjórnin fjallað um að skerða kaupið. Af ályktunum verkalýðs- hreyfingarinnar, BSRB i gær til dæmis, er ljóst að hún mun taka á móti árásunum af fyllsta þunga og ekkert gefa eftir. Með þvi að ráðast á kjörin er rikisstjórnin að kalla yfir sig stéttastrið. Rikisstjórnin ber þvi við, að gera verði ráðstafanir til þess að leysa vanda sjávarútvegsins upp á 12 miljarða króna á þessu ári. Tölum þessum ber að taka með fyrirvara, þvi vitað er að stór hluti fisk- vinnslunnar var rekinn með ágætri afkomu á siðasta ári. Vafalaust er þvi raunverulegt vandamál sjávarútvegsins af allt annarri stærðargráðu. Vanda sjávarútvegsins vill rikisstjórnin leysa með ,,gömlu ihaldsúrræðunum”, með sömu aðferðum og hún hefur jafnan haft, þ.e. með þvi að stórauka verðbólgu- hraðann frá þvi sem nú er. Þessar aðgerð- ir hennar eiga að felast i þvi að fella geng- ið, sem aftur vefur upp á sig i öllu verðlagi og tilkostnaði atvinnugreina, leysir engan vanda nema til skamms tima, heldur magnar vandann sem við er að glima. Með þessu háttalagi er rikisstjórnin að margfalda efnahagserfiðleika þjóðarbús- ins þrátt fyrir einmuna góðæri, hátt verð á afurðum landsmanna erlendis og mikil aflaföng. Alþýðubandalagið ákvað á miðstjórnar- fundi sinum i siðustu viku að benda á leið til þess að vefja ofan af verðbólguhnyklin- um. Tillögur Alþýðubandalagsins eru ætl- aðar sem fyrsta skref til þess að draga úr verðbólguhraðanum i stað þess að magna hann, tillögur sem i framkvæmdinni ættu að auðvelda að taka á efnahagsvandan- um i heild. Vissulega skal það undirstrik- að, að hér er aðeins um að ræða fyrsta skref, en i þeim felst þó veruleg lækkun verðlagsins og það eru engin minniháttar tiðindi i þessu hrjáða þjóðfélagi óðaverð- bólgunnar. Tillögur Alþýðubandalagsins eru raun- hæfar úrbótatillögur. Þær eru settar fram með það i huga að skapa sem viðtækasta samstöðu allrar verkalýðshreyfingarinn- ar. Alþýðubandalagið er eini flokkurinn sem hefur sett fram slikar tillögur,og það er þvi miður sjaldgæft að stjórnarand- stöðuflokkur vinni með þeim hætti að hann komi frá sér öðru en gagnrýni. Geir Hallgrimsson forsætisráðherra hefur lýst fullri andstöðu við tillögur Al- þýðubandalagsins um niðurfærslu verð- lags; hann kýs heldur ,,gömlu ihaldsúr- ræðin”, enda færa þau stéttarbræðrum hans mest i aðra hönd eins og minnt var á i upphafi. Geir Hallgrimsson, fulltrúi versl- unarstéttar og milliliða, veit sem er, að verðbólgan er i senn baráttutæki gegn verkalýðshreyfingunni og gróðatæki auð- stéttarinnar. Verðbólgan er þannig i senn sókn og vörn afturhaldsins i landinu — og engin furða að andstaða þess við tillögur Alþýðubandalagsins sé einörð. Alþýðubandalagið telur að við lausn efnahagsvandans verði að ganga mun lengra en tillögurnar um fyrstu skref segja til um. Það er brýn nauðsyn að gera heildaruppskurð á öllum þjóðarbúskapn- um. Rikisstjórn hægriflokkanna hefur skapað fleiri vandamál en nokkur önnur stjórn á jafnskömmum tima, verðbólgan hefur aldrei verið hraðari, erlendu skuld- irnar aldrei meiri, gjaldeyrissukkið aldrei svakalegra, veisluhöld heildsalastéttar- innar og verðbólgubraskaranna hafa aldrei verið stórkarlalegri. Þessum efna- hagslegu staðreyndum verður að gefa gaum, til þess að komast áleiðis til lausn- ar vandanum -þó innan ramma auðvalds- skipulagsins sjálfs, sem auðvitað er und- irrótin. Alþýðubandalagið telur að eitt meginatriði efnahagsstefnunnar eigi að vera áætlunarbúskapur með fjárfesting- arskipulagi, virkt verðlagseftirlit, skatt- lagning fyrirtækja, skynsamleg lánastýr- ing, skipuleg notkun gjaldeyris. Spilling- unni verður að mæta með nýju skipulagi alls viðskiptakerfisins, þvi að viðskipta- kerfi auðstéttanna er forsenda og gróðrar- stia spillingarinnar. En nú, sem fyrstu skref, flytur Alþýðubandalagið eitt flokka tillögur um að fara nýja leið verðlækkana- leið, i stað verðhækkanaleiðar. —s. Rómarsendiherra Bandarikjanna og Carter skrafa um þafi hvenær lýöræhið sé i gildi og hvenær ekki. Kenning Carters Einhverngeginn er þaö svo afc þeir á Morgunblaðinu hafa verið hálffeimnir við að ræða hina nýju Carterkenningu. Hún er, eins og fréttalesendur muna, á þá leið, að Bandarikjastjórn tel- ur sig hafa vit fyrir Evrópuþjóð- um i stjórnmálum með þvi að beita áhrifum sinum til að koma i veg fyrir aðild kommúnista að rikisstjórnum. Það hefur þó aðeins verið minnst á ummæli i leiðara breska blaðsins Guardian um þetta mál, þar sem minnt var á það, að á íslandi hefðu „komm- únistar” tvisvar átt ráðherra i rikisstjórn. 1 þvi sambandi kom i ljós að Nató kvaðst hafa gert „sérstakar ráðstafanir” til að fyrirbyggja að sú stjórnaraðild yrði Nató skaðleg og hafa verið hafðar uppi ýmsar vangaveltur um það efni. En til þessa hefur ekki verið vitnað til þess hluta leiðara hins breska blaðs sem er þó sýnu merkastur, en þar er blátt áfram um það spurt, hvort lýðræðisreglur eigi að gilda eða ekki. Blaðið segir (Guardian Weekly, forsiöa 22. janúar): Hvenœr gilda reglurnar? „Tilmæli Bandarikjastjórnar til italska þingsins um að kommúnistum verði haldið utan stjórnar eru óheiðarleg og i and- stöðu bæði við rökfræði og póli- tískan veruleika. Þau eru óheiðarleg vegna þess, að það sem Bandarikin eru i raun að segja, er að allir trúum við á lýðræði sem hið göfugasta form stjórnskipunar — nema þegar kosningaúrslit eru okkur ekki að skapi.Að segja þetta jafngildir þvi, að lýsa þvi yfir að leikregl- ur lýðræðis séu heilagar — jafn lengi sem niðurstaðan samrým- ist hag Bandarikjanna.” Þetta er að sjálfsögðu einkar skýr og augljós afstaða hjá hinu breska borgarablaði, og væri reyndar tilbreytni að þvi, að hinir umburðarlyndu aðdáend- ur Carters á Morgunblaðinu hresstu sig upp i að gefa svip- aða yfirlýsingu. Guardian minnir og á það, að yfirlýsing Bandarikjastjórnar sé óheiðarleg vegna þess, að Kommúnistaflokkur Italiu, PCI, hafi unnið mikinn kosningasigur (34,4% atkvæða) i fullkomlega eðlilegum kosningum — en ekki vegna ofbeldisverkaógnana eða með hernaðarihlutun. Herra Berlinguer, segir blaðið, ber ábyrgð gagnvart kjósendum sinum, og hann er að standa við þá ábyrgð með þvi að gera til- kall til stjórnaraðildar. Ungir herskyldir menn Ennfremur segir blaðið á þá leið að í siðustu kosningum hafi kommúnistar hlotið meira fylgi meðal ungs fólks en helstu keppinautar þeirra, Kristilegir demókratar. „Það er þvi liklegt að meirihluti ungra manna i herskyldualdri kjósi kommún- ista. Og italski herinn er her- skylduher sem i eru i raun allir ungir menn á þeim aldri. Ef að herra Berlinguer væri sams- konar maður og Pinochet i Chile hefði hann firifsað til sin völdin fyrir löngu. Fyrir þá sem hneigjast að pólitisku ofbeldi eru 40-50% stuðningur i hernum valdaundirstaða sem er miklu meiri en nægileg til að steypa rikisstjórn. Hefði herra Ber- linguer verið á þeim buxum, þá myndum við vita allt um það nú þegar.” Morgunblaðið gefur litinn áhuga fyrir röksemdafærslum af þessu tagi. Þess i staö remb- ist það við að vitna i Josep Luns, framkvæmdastjóra Nato, sem hamast einnig gegn itölskum kommúnistum og segir að þeim sé aldrei hægt að treysta ,,að óreyndu”. 1 fyrsta lagi er þessi „reynsla” þegar fengin eins og Guardian bendir á. I öðru lagi felst það blátt áfram i mál- flutningi Luns, að þessi „reynsla” muni aldrei koma til greina. Með öðrum orðum: niðurstöður kosninga á ttaliu skulu fyrirfram dæmdar ómark ef Nató er ekki ánægt meö þær. Pólitiskar mútur og heiöarleiki Guardian minnir og á þá staðreynd, að Italir hafi fylkt sér i hraðvaxandi mæli um PCI „vegna þess að stjórn kommún- ista á borgum og héruðum er heiðarleg, en stjórn Kristilegra demókrata ekki”. Im ihlutun Bandarikjastjórn- ar segir einn af leiðtogum PCI á þessa leið: „Arið 1948 gátu Bandarikja- menn lagt á borðið ávisun upp á 300 miljónir dollara til að fá þvi framgengt, að kommúnistum yrði visað úr rikisstjórn, siðan vörðu þeir miljörðum til að byggja upp veldi Kristilegra demókrata. En þetta er ekki hægt lengur — itölsk efnahags- kreppa er stærra vandamál en svo, að hún verði leyst með ein- hverjum dollaragjöfum. Auk þess telur meirihluti stjórn- málamanna og þá ekki sist Ugo La Malfa, foringi Lýðveldis- flokksins, að kommúnistar Italiu séu ómissandi ef takast á að bjarga lýðræðinu i landinu, jafnvel þessu gamla frjáls- lyndislýðræði. En Bandarikja- menn tala eins og þeir hafi ekk- ert lært i þrjátiu ár, eins og þeir viti ekki að 34.5% ttala hafa kos- ið PCI, sett flokkinn yfir 2800 borga og bæjarstjórnir þar sem 60% ttala búa”. Marcelle Padovani, Rómar- fréttaritari franska blaðsins Le Nouvel Observateur, ' hefur þvi við þessa klausu aö bæta, að meðan hluti Kristilegra.Frjáls- lyndir og Nýfasistar komi fram sem erindrekar erlends valds (Bandarikjanna), séu kommún- istar að öðlast einkarétt á þjóð- legu sjálfstæði ttaliu. —áb.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.