Þjóðviljinn - 03.02.1978, Síða 5

Þjóðviljinn - 03.02.1978, Síða 5
Föstudagur 3. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Skáksambandið i eigið húsnæði í gær flutti Skáksamband íslands i eigið húsnæði að Laugavegi 71 i Reykjavik, en sambandið festi kaup á 3ju hæð i húsi sem þar er i byggingu. Húsnæði þetta er 140 fermetr- ar að grunnfleti og kostaði tilbú- ið undir tréverk 15 milj. króna en fullbúið um 20 miljónir króna. Þarna mun i framtiðinni verða bækistöð sambandsins, auk þess sem þarna mun verða aðal-miðstöð FIDE, Alþjóða- skáksambandsins, ef Friðrik Ólafsson verður kjörinn forseti þess næsta haust, en sem kunn- ugt er iýður hann sig fram til forsetakjörs hjá FIDE með stuðningi SSÍ. Þá er möguleiki á að halda skákmót i aðal-sal húsnæðisins og mun keppni i landsliðsflokki skákþings íslands fara þarna fram i vor. —-S.dór Tilboð í Hrauneyjarfossvirkjun opnuð i dag 1 dag 3. febrúar verða opn- uð tilboð þau, sem borist hafa Landsvirkjun i vélar.rafbúnað, lokur, þrýstivatnspipur og stöðvarhúskrana Hrauneyjar- 'fossvirkjunar. Fer opnun tilboð- anna fram opinberlega á Hótel Sögu, hliðarsal á annarri hæð og hefst kl. 15:00. Þeim, sem gert, hafa tilboð, er heimilt að fylgjast með opnuninni eða að láta full- trúa sina mæta þar. 1. Tilboð verða opnuð samkvæmt eftirgreindum tveim útboöum: a) Útboð á vélum og rafbúnaöi samkvæmt útboösgögnum nr. 304. b) Útboð á lokum, þrýstivatns- pi'pum og stöðvarhúskrana samkvæmt útboðsgögnum nr. 305. 2. Útboðin eru miðuð við fyrir- I huguð kaup Landsvirkjunar á J vélum, búnaði, tækjum og efni j fyrir 140 MW virkjun með ■ tveim vélasamstæðum, sem I hvor verði 70 MW. Ennfremur , er i útboðunum gert ráð fyrir að i Landsvirkjun sé gefinn kostur ■ á að festa kaup á þriðju véla- ! samstæðunni, sem einnig yrði I 70 MW, komi siðar meir til 1 stækkunar virkjunarinnar, að | fengnum nauðsynlegum leyf- • um. | ■ Tilboðin gilda i 6 mánuði frá | opnunardegi, auk þess sem > Landsvirkjuneráskilinnrétturtil | að festa kaup á þriðju vélasam- , stæðunni innan 48 mánaða frá þvi I að tilboði er tekið. —mhfJ 8. mars-hreyfíng stofnuð I fréttatilkynningu frá „frum- kvæðisnefnd” 8. marshreyf- ingar, segir: ,,8. mars hefur verið alþjóðlegur dagur verka- kvenna allt frá 1910. Staða hans i sögu alþjóðakvennahreyf- ingarinnar er sambærileg við 1. mai. Á Islandi hefur dagurinn ekki skipað háan sess i jafn- réttisbaráttunni undanfarna áratugi.” Hópur kvenna sem kalla sig einfaldlega „frumkvæðis- nefnd”, hefur einsett sér að breyta þessu, og boðaði i gær til stofnfundar 8. mars-hreyfingar- innar. Til fundarins var boðað á eftirfarandi grundvelli: — Gerum 8. mars að baráttu- degi! — Kvennabarátta á grund- velli stéttabaráttu! — Gegn allri heimsvalda- stefnu — gegn striðsfyrirætlun- um risaveldanna, Bandarikj- anna og Sovétrikjanna. Blaðið Stopp er komið út Þann 1. febrúar kom út á veg- um Islenskra ungtemplara blaðið Stopp. Blaðinu, sem fjallar um vimu- gjafa, verður dreift i 20 þúsund eintökum til allra nemenda i 8. bekk grunnskóla og þar fyrir of- an. Ungtemplarar ræddu við nem- endur i nokkrum skólum Reykja- vikur þennan dag. Að kvöldi þess 1. febrúar kynntutemplarar starfsemi sina i Templarahöllinni við Eiriksgötu. Sá kynningarfundur hófst kl. 20.30. Meðal þess sem kynnt var, er stofnun starfshópa um ýmis málefni tengd vimugjöfum. Þátttaka i starfshópunum er opin öllum áhugasömum ungling- um. Gjafír til rannsókna i dulsálarfræði Eftirfarandi gjafir hafa borist Sjóði til rannsókna i dulsálarfræði frá þvi hann var stofnaður árið 1975: N.N. 100.000 (stofnfé), Minningarsjóður séra Sveins Vik- ings 244.481, J.E. 4.400, Sálar- rannsóknafélag Hafnarfjarðar 20.000, M.G. 1.000, J.K. og B.K. 10.000, A.J. og A.Ó. 2.000, N.N. 400.000, Sálarrannsóknafélag Sauðárkróks 5.000, N.N. 118.000. Stjórn sjóðsins þakkar þessar rausnarlegu gjafir. Gjöfum til sjóðsins sem eru frádráttarhæfar við skattafram- tal er varið til styrktar rannsókn- um i dulsálarfræði við Háskóla íslands. Giróreikningur sjóðsins er 60600-6. Stjórn sjóðsins skipa Erlendur Haraldsson, Jón Auð- uns og Þorsteinn Þorsteinsson. Fréttatilkynning Frumvarp til þinglýsingalaga Lagt hefur verið fram frum- varp til þinglýsingalaga. Er hér um stjórnarfrumvarp að ræða, samið að tilhlutan dómsmálaráðherra. Frum- varp þetta miðar að þvi að greiðar og öruggar upplýs- ingar megi fá um réttindi yfir fasteignum og að reglur um réttaráhrif þinglýsingar séu sem skýrastar. Stefnir frum- varpið að gleggri og öruggari skráningu fasteignaréttinda en verið hefur og að bættum háttum að vörslu skjala. Samhliða þessu frumvarpi eru lögð fram 9 hliðarfrum- vörp til að samræma önnur gildandi lög við þær megin- reglur er fram koma i þing- lýsingarfrumvarpinu. Borgarfjardarbrúin: Ekkert að óttast segir Helgi Hallgrimsson verkfræðingur um ótta Borgnesinga um að stöplar brúarinnar séu of lágir 1 stórstraumi I siöustu viku, sýndist mörgum Borgnesingum, sem stöplar hinnar nýju Borgar- fjarðarbrúar væru of lágir og að þeir hefðu farið í kaf á flóðinu. Við inntum Helga Hallgripis- son, verkfræðing hjá Vegagerð- inni. eftir þessu og sagði hann að fólk þyrfti ekkert að óttast i þessu sambandi. Reiknað hefði verið út að i það minnsta 3,5 m. væru uppá brúargólfið i mesta hugsanlegum stórstraumi, sem talið er að geti komið einu sinni á 100 ára fresti. Og Helgi sagði ennfremur að stöplarnir hefðu alls ekki farið i kaf á flóðinu i siðustu viku. Hitt væri annað mál að á þeim hefði eflaust brotið eitthvað og þvi gæti sýnst sem svo að þeir hefðu farið á kaf. En sem sagt, þessi ótti Borg- nesinga er ástæðulaus, eftir þvi sem Helgi segir. — S.dór Sjávarafurðadeild SÍS: Utflutningsvelta 14,2 miljarðar A árinu 1977 varð heildarút- flutningur Sjávarafurðadeildar SÍS 14.172 milj. kr. að cif-verð- mæti á móti 8.214 milj. kr. árið 1976. Aukning útflutningsins nem- ur þannig 5.958 milj. kr„ eða 72.5 af hundraði. Þýðingarmestu afurðir deildar- innar eru hraðfrystar sjávaraf- urðir og lýsi og mjöl, en deildin flytur einnig út skreið og söltuð hrogn. Útflutningur frystra sjávarafurða nam 10.672 milj. kr. og hafði aukist um 54.3% af cif- verðmæti, en um 15.7% að magni. Útflutningsverðmæti mjöls og lýsis nam 2.838 milj. kr. og var þar um að ræða rúmlega tvöföld- un í magni en þreíöldun í verð- mæti. —mhg Alþýðubandalagið á Vestfjörðum Haraldur Kjartan Ólafur Ragnar Stefán Hvað er í húfi? Hvað er framundan? ísafjörður — Súgandaf j örður Almennir stjórnmálafundir Almennir stjórnmálaf undir veröa haldnir i Góðtemplarahús- inu á isafiröi laugardaginn 4. febrúar klukkan 5 síðdegis og i Félagsheimilinu Súgandafirði sunnudaginn 5. febrúar klukkan 4 siðdegis. Málshef jendur á fundinum á ísa- firði verða: Haraldur Steinþórs- son, framkvæmdastjóri BSRB, Kjartan Ólafsson, ritstjóri og Ólafur Ragnar Grímsson, prófessor. Málshef jendur á fundinum í Súg- andafirði verða: Kjartan ólafsson, ritstjóri og Stefán Jónsson, alþingismaður. Stuttar framsöguræður— Fyrir- spurnir og frjálsar umræður Á fundunum verður m.a. rætt um úrræði Alþýðu- bandalagsins í efnahags- málum, um yfirvofandi árásir ríkisstjórnarinnar og flokka hennará launa- kjör almennings og varn- ir gegn þeim árásum, um islenska atvinnustefnu Alþýðubandalagsins og um orsakir fjármála- spillingarinnar í islensku þjóðfélagi. Fundirnir eru ölBum opnir

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.