Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriOjudagur 7. febrúar 1978 Þriðjudagur 7. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Korarnir syngja vio unairieiu uiais uuomunassonar. Frá afmælishátiOinni á Hvanneyri Búvísindadeildin á Hvanneyri 30 ára Magnús B. Jónsson, skólastjóri Gunnar Bjarnason Bjarni Arason Siðastliðin laugardag var þess minnst með mynd- arlegri samkomu að Hvanneyri i Borgarfirði,að 30 ár eru nú liðin siðan framhaldsnám i búvisindum hófst þar við skólann. Hugmynd um framhaldsnám i búfræöi aö loknu almennu bú- fræöinámi komfyrstfram i erindi Páls Zóphoniassonar, sem hann flutti á árinu 1921. Benti Páll á þrjár leiðir, sem til greina gæti komiö að fara: Aö stofnaöur yrði búnaðarhá- skóli. Að framhaldsnámið yrði sér- stök deild við bændaskólana. Að það yrði deild í tengslum við Búnaðarfél. Islands og taldi hann það viðráðanlegustu leiðina vegna kostnaðar, til að byrja með. Páll var um margt á undan sinni samtiö og hér hafði hann hreyft viðdraumi, sem langt átti i land með að rætast. Næst gerðist það, að „rödd frá Hvanneyri”, (eins og Guðmundur Jónsson, fyrrv. skólastjóri orðaði það i afmælishófinu), minnti á þessa hugmynd o'g komst hún á dagskrá hjá þáverandi rikis- stjórn. Varð það til þess, að Þor- steinn Briem flutti frumvarp um framhaldsnám á Hvanneyri á Al- þingi 1934 og áfram á þingunum 1935, 1936, og 1937 en það hlaut ekki afgreiðslu. A Búnaðarþingi 1943 flutti As- geir L. Jónsson, ráðunautur, er- indi um málið og lagöi til að efnt yrði til eins árs framhaldsnáms. Búnaðarþing sendi málið til rikis- stjórnarinnar og skipaði i það milliþinganefnd. Nefndin lagði til, að framhaldsnámi yrði komið á og færi það fram i Reykjavik. Arið 1947 lagði þáverandi land- búnaðarráðherra, Bjarni As- geirsson til,að hafið skyldi fram- haldskennsla i biívfsindum á Hvanneyriogyröiþað2 veturog 1 sumar. Var þessi ákvörðun tekin i samráði við forráðamenn skól- ans. Þar með var hrundið af stað. fyrsta og hingað til eina visi að háskólanámi i búfræði hérlendis. Ofter sagt, að peningarnir séu afl þeirra hluta, sem gera skal. Stundum dugar þó áhuginn einn. Framhaldsnámið var hafið á Hvanneyri 1947. En fjárveiting til þess fékkst þó engin fyrr en 1949. Hlutverk og markmið Upphaflegt markmið með framhaldsnámi i búfræði á há- skólastigi var að bæta úr brýnni þörf landbúnaðarins fyrir leið- beinendur i sveitum landsins. Bú- visindanámiö er skipulagt sem hagnýt og fræðileg menntun i bú- vfeindum og undirstöðugreinum þeirra. Skal kennslan einkum miðuð við það, að nemendur geti orðið virkir leiðbeinendur og tek- ið aö sér trúnaðarstöður i þágu bændastéttarinnar, svo sem störf ráðunauta, kennslu við bænda- skóla, tilraunastörf o.fl. Þá er gert ráð fyrir tengslum milli búvisindanámsins c® rann- sóknarstarfsemi skólans. Auk kennslustarfa sinna kennarar ýmiss konar rannsóknarstörfum. Þróun námsins Upphaflega var framhalds- námið tveggja ára nám, að loknu búfræðiprófi meö einkuninni 8.0. Lögð var megináhersla á undir- búning nemenda i búfræðigrein- um og reynslu i bústörfum. Almennt undirstöðunám var siðan aukið og 1956 var komið á sérstöku eins árs undirbUnings- námi i islensku, stærðfræði og er- lendum tungumálum. Smám saman vorugerðar auknar kröfur til hins almenna undirbUnings- náms, nýjum námsgreinum bætt við og kennsla aukin i þeim, sem fyrir voru. Siðasta undirbúnings- deildin var starfrækt veturinn 1973-1974. Frá og með árinu 1974 eru inn- tökuskilyröi i búvisindanámið raungreinadeildarpróf frá Tækni- skóla Islands eða stúdentspróf, auk búfræðiprófs. Námstiminn var lengdur Ur 2 árum i 3 ár með reglugerð frá 1965 og með nýrri reglugerð frá árinu 1974 voru enn gerðar form- breytingar á námi og námstilhög- un. BUvísindanám við Bænda- skólann á Hvanneyri tekur nú þrjá vetur og standist nemendur prófin útskrifast þeir sem bU- fræöikandidatar (B.Sc.). Starfs- timi hvern vetur er um 32 náms- ogprófvikurog stendur frá lokum sept. til fyrri hluta júni. Þar að auki eru verkleg námskeið á sumrin milli námsvetranna, og einnig verða nemendur að stunda sjálfstæðar rannsóknir og skila ritgerð um þær. Nám i BUvisindadeild er mjög sambærilegt námi við Liffræði- skor Háskóla íslands. Nemendur hafa frá upphafi verið teknir inn i deildina annað hvort ár. Næst verður tekið inn i deildina haustið 1979. Nú stunda 8 nemendur nám í Búvisindadeild. Kennsla og kennslukraftar í upphafi var ráðinn einn kenn- ari að Bændaskólanum til að sinna kennslu við framhaldsnám- ið. Að öðru leyti var kennsla sótt til sérfræðinga hinna ýmsu stofn- ana landbúnaöarins. Brátt tókst að ráða fleiri kennslukrafta að skólanum með þarfir framhaldsnámsins i huga. Aukin rannsóknarstarfsemi fylgdi i kjölfarið. Avallt hefur verið reynt að skapa hverjum kennara nokkra rannsóknarað- stöðu. Arið 1955 var komið á fót tilraunastarfsemi i jarðrækt. NU eru jarðræktartilraunir i um 1400-1800 reitum árlega. Helstu verkefni eru tilraunir með köfn- unarefni, fosfór, kali, brenni- steinsáburð,kalk og búfjáráburð, tilraunir með stofna grasa og grænfóðurs, meðferð tUna og til- raunir meö jarðvinnslu. 1 bUfjárrækt hefur einkum verið unnið að rannsóknum á kynþroska og frjósemi sauðfjár, svo og ræktun á alhvitu fé. I samvinnu við BUtæknideild Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins eru stundaðar rann- sóknir i heyverkun og nokkrum þáttum bútækni. Þrátt fyrir það, að kennslu- kröftum hafi fjölgað samhliða efl- ingu bUvisindanámsins, er nauö- synlegt að fá til liös kennara utan skólans. Er þá leitað til sérfræö- inga i landbúnaöi, svo og til kenn- ara viðHáskóla Islands. Þessiað- fengna kennsla er einkum i smærri búfræðigreinum og einnig i nokkrum grunngreinum. ^ Með reglugerð frá 1974 var gerð sú breyting, að sérstakur yfir- kennari var skipaður við búvis- indadeild, er skyldi starfa með skólastjóra við skipulagningu kennslu. Viöfangsefni nemenda aö námi loknu Siðan framhaldsnám i búfræði hófst á Hvanneyri hafa alls 117 búfræðikandidatar brautskráöst. Flestir þeirra stunda ýmis störf i þágu landbUnaðarins. Þess má geta, að flestir héraðsráðunautar landsins eru kandidatar frá Hvanneyri. Af öörum störfum má t.d. nefna kennslu, rannsóknir og störf hjá verslunarfyrirtækjum, sem þjóna landbúnaðinum. Nokkrir stunda búskap. Aðeins 12-15 kandidatar munu nú stunda störf, sem ekki eru tengd land- búnaði á einhvern hátt. Þessberað geta, að nokkrir bú- fræðikandidatar frá Hvanneyri hafa stundað sérnám i bUvfeind- um við erlenda háskóla, einkum á Norðurlöndum, i Bandarikjunum og á Bretlandseyjum, og er það m.a. til marks um þá viðurkenn- ingu, sem framhaldsnám á Hvanneyri hefur nú þegar hlotið. Fyrstir til að viðurkenna náms- brautina voru Norðmenn, sem geröu það upp úr 1960. Það, sem hér hefur verið rakið, koma að mestu fram i ræöum þeirra Magnúsar Jónssonar, skólastjóra á Hvanneyri, en hann setti afmælishátiðina og bauð gesti velkomna, og Guðmundar Jónssonar, fyrrverandi skóia- stjóra, sem flutti aðalræðunaJ Ræöuhöld og söngur — Ég kaus fremur aö nefna deildina i upphafi framhaldsdeild en búvfeindadeild, sagði Guð- mundur Jónsson. — Það er stórt orð Hákot. Enginn vissi i upphafi hvernig til tækist þótt allir von- uðu hið besta. Nafnið framhalds- deild gaf minni fyrirheit en efnd- irnar liggja þá siður eftir. Það fer i taugarnar á mér þegar ég heyri talað um að við þurfum fullkom- inn bUnaðarháskóla, sagði Guð- mundur. Skóli verður aldrei full- kominn og hér höfum við orðið búnaöarháskóla, sem hlotið hefur viðurkenningu. „Það er svo bágt aðstanda i stað, mönnunum mun- ar annað hvortaftur á bak ellegar nokkuð á leið”. Ég held, að ekki verði um það deilt , að hér hefur okkur munað „nokkuð á leið”, sagði Guðmundur Jónsson að lok- um. Halldór E. Sigurðsson, land- búnaðarráðherra,flutti skólanum þakkir og óskir. Borgarfjörður og landið allt hefði notið góðs af starfi Búvisindadeildarinnar. Is- lenskur landbúnaður væri betur tæknivæddur en landbúnaður flestra annara þjóða og væri það ekki hvað sist Búvisindadeildinni að þakka. Nú væri verið að endur- skoða löggjöf um búnaðar- fræðslu, sagði ráðherrann og verða þar gerðar sömu kröfur til búvisindanáms hérlendis sem annarsstaðar tiökast. Lér ráð- herrann þá von i ljós að málið yrði afgreitt á yfirstandandi þingi. Bjarni Arason, ráðunautur í Borgarnesi talaði fyrir hönd þeirra nemenda, sem fy rstir gistu framhaldsdeild, en þeir voru'8. Rifjaði Bjarni upp ýmsar skemmtilegar minningar frá þessum árum. Taldi hann að ekki hefði verið laust viö að nemendur Guðmundur Jónsson, fyrrv. skólastjóri Jón Gislason framhaldsdeildar findu nokkuð til sin og mátti ekki láta það ásannast, að þeir bæru ekki af öðrum nemendum á Hvanneyri. Til dæmis hefðu þeir forðast átök við „bus- ana” nema vera þess full- vissir fyrirfram að bera hærri hlut. Bjarni sagði, að brautryðj- endur deildarinnar heföu skilið, að hún yrði að þróast smátt og smátt en þeir hefðu haft fyrir augum langtimamarkmiö. Það mundu nemendur hennar vonandi einnig hafa skilið þvi fátt væri verra veganesti ungum mönnum en telja sig vita allt. Búvisinda- menntun hérlendis yrði að taka mið af innlendum aðstæðum. Deildin hafði notið þess að eiga á að skipa i upphafi ágætis kenr.ur- um þar sem voru þeir Guðmund- ur Jónsson, skólastjóri, Hauk- ur Jörundsson, Gunnar Bjarna- son og Stefán Jónsson. Það, sem áunnist hefði,væri þó ekki sist að þakka þrautseigju og dugnaði Guðmundar Jónssonar. Lauk Bjarni máli sinu með árnaðar- óskum til skólans og núverandi skólastjóra, Magnúsar B. Jóns- sonar. Næstur talaði Jón Gislason, einn af nemendum Búvisinda- deildar. Fagnaði hann frumvarp- inu um endurskoðun búnaöar- námsins, þótt nemendur Búvis- indadeildar væru ekki allskostar ánægðir með það. Brýnast hvað Jón að efla rannsóknastarfsem- ina. Og þótt vel hefði miðaö áleið- is að undanförnu ætti þó deildin eftir að skila enn meiri árangri næstu 30 ár, ef vel væri að henni búiö. Gunnar Bjarnason flutti líflega ræðu, sem aö mestu snérist um minningar frá störfum hans við skólann og hugleiðingar út frá þeim. Minnti hann á, að þótt framhaldsdeildin hefði aðeins byrjað meö 8 nemendur, þá hefði aðeins 1 nemandi sótt um skólann fyrsta starfsár hans, 1889. Til að byr ja með var kennslan við fram- haldsdeildina ólaunað aukastarf, sagði Gunnar. Okkur var bara sagt að við yrðum að bæta þess- um störfum á okkur fyrir ekki neitt og við gerðum það. Og sama var að segja um annað starfsfólk skólans. En þarna heföi rikt heimilisbragur eins og bestur gerist á sveitaheimilum. A Hvanneyri var bara ein stór fjöl- skylda. Þar rikti andi fórnfýsi og samhjálpar. Minntist Gunnar sérstaklega á hvern þátt Ragn- hildur, kona Guömundar skóla- stjóra, hefði átt i þvi góða and- rúmslofti. Gunnar Guðbjartsson, formað- ur Stéttarsamb. bænda, ræddi um nauðsyn þess aö tengja búnaðar- námið menntakerfi þjóðarinnar. Færði búvisindadeildinni þakkir og óskir frá bændasamtökunum. Ragnar Olgeirsson bóndi á Oddsstöðum i Lundareykjadal flutti á sama hátt þakkir frá Búnaðarsambandi Borgfirðinga. Kynnu borgfirskir bændur vel að meta þá starfsemi.sem fram færi á Hvanneyri. A milli ræðanna söng Kirkjukór Hvanneyrarsóknar og Hvanneyr- arkórinn við undirleik og undir stjórn Ölafs Guðmundssonar, kennara. Að endingu þakkaði Magnús B. Jónsson, skólastjóri, gjafir, skeyti.hlý orö og árnaðaróskir og bauð til kaffidrykkju. —mhg F er ðaáætlun Ferðafélagsins Ferðaáætlun F.i. fyrir 1978 kom út um sl. mánaðamót. Eins og undatifarin ár er reynt að hafa ferðir við ailra hæfi, sem áhuga hafa á að ferðast og kynnast land- inu I raun. Aætlanunin er fjórþætt: t fyrsta legi eru sumarleyfisferðirnar, eða þær ferðir, sem standa i fjóra daga eða lengur. Þær ferðir eru alls 23. Á Hornstrandir verða farnar 5 ferðir fjórar i júli og ein i ágúst. Tvær ferðir veröa i Kverk- fjöll, ein I Lónsöræfi, svo eitthvað sé nefnt. Ætlunin er að hefja skipulagðar gönguferðir milli Landmannalauga og Þórsmerkur i sumar, ef tekst að koma göngu- brú á Syðri-Emstruá, en vonir standa til að það verði gert I vor. I öðru lagi eru helgarferðir. Þær standa að jafnaði yfir frá föstudagskvöldum til sunnudags- kvölds. Farið verður i Þórsmörk, Landmannalaugar og á KjöÍ.Gist er i sæluhúsum Ferðafélagsins á þessum stöðum. Einnig er stefnt að þvi að fara eina eða tvær ferðir vikulega til annarra staða og dvelja þar við náttúruskoðun og gönguferðir m.a. til Heklu, gönguferð á Eiríksjökul, Snæ- fellsjökul, Kerlingar I Vatnajökli o.fl. o.fl. í þriðja lagi eru dagsferðir, þær standa yfir heilan dag eða hluta úr degi. Þessar ferðir eru farnar alla sunnudaga árið um kring. 1 áætluninni er getið um ca. 100 slikar ferðir, en bætt verður við ferðum eftir þvi sem ástæður gefa tilefni til. Einnig eru fyrir- hugaðar fræðslu og kynningar- ferðir á náttúru- og sögu landsins, eins og undanfarin ár. A sl. sumri hóf félagið ferðir á Esju og voru farnar 25 ferðir á fjallið með um 1700 þátttakend- um. Þar sem þessar ferðir gáfu svo góða raun, var ákveðið að skipuleggja ferðir sem sama hætti á VifilsfeH næsta sumar. Eru nokkrar ferðir þangaö aug- lýstar I áætluninni, en verður fjölgað ef ástæða þykir. Einnig eru nokkrar ferðir fyrirhugaöar á Esju, þótt þeirra sé ekki getið sérstaklega i áætluninni. t fjórða lagi eru svo ferðir deilda F.I. fyrir noröan og aust- an. Þetta nýmæli var tekið upp i áætluninni fyrir tveimur árum og mæltist vel fyrir. Asl. ári urðu ferðir F.t. fleiri en nokkru sinni áður eða 234 og far- þegafjöldinn varð 8021 eða 34 að meöaltali i ferð, sem er mjög gott. Og má segja að það sé við hæfi þvi árið 1977 var 50 ára af- mælisár Ferðafélagsins. Eldvarna- vika í Reykjavík Féiagsskapurinn Junior Chamber i Reykjavlk gengst fyrir eldvarnaviku i samráði við Siökkviliðið i Reykjavik 5.—11. febrúar. Tilgangur eldvarnavik- unnar er að koma af stað umræð- um i þjóðfélaginu um eldvarna- mál, sem leiði til þess að eldvarn- ir verði efldar og fræðsia á þessu sviði stóraukin. t sambandi við eldyarnaviku þessa verða m.a. auglýsingar i helstu f jölmiðlum og fræðsluefni i útvarpi og sjónvarpi um eldvarn- ir. Veggspjöldum hefur verið dreift um borgina, og Slökkviliðið mun sýna reykköfunartæki og handslökkvitæki i flestum grunn- skólum Reykjavikur. Jafnframt verður sýnikennsla I notkun þess- ara slökkvitækja á skólalóðunum. Um miðjan janúar hófst rit- gerðasamkeppni i 6. bekk flestra grunnskóla i Reykjavik um efnin: 1. Hvers vegna verða eldsvoðar? og 2. Hvernig má koma i veg fyrir eldsvoða? Verða þrjár ritgerðir valdar til verðlauna. —eös Merk heimild um samvinnusöguna Eins og kunnugt er hefur Samband isl. samvinnufélaga nú um meira en þriggja áratuga skeið gefið árlega út prentaða ársskýrslu um rekstur sinn árið á undan, og er hún lögð fyrir aðal fund. Hin fyrsta af þessum skýrslum kom út árið 1941, en fyrir þann tima höfðu ársreikn- ingar Sambandsins oftlega verið lagðir fram prentaðir á aðalfund- um. Þessir reikningar, sem og elstu ársskýrslurnar, eru nú ýmist uppgengnar eða aðcins til I örfaum eintökum. Fyrir nokkru var ákveðið að láta ljósprenta þetta efni, með þaö fyrir augum, að gera það að- gengilegt að nýju. Jafnframt þvi var svo safnað saman fjárhags- áætlunum og reikningum Sambandsins frá byrjun, þ.e. því, sem aldrei hafði verið prentað, og einnig voru gerðir útdrættir úr fundargerðum aðalfunda frá þeim tima, sem prentuöu árs- skýrslurnar ná ekki yfir. Þetta verk annaðist Gunnar Grimsson, skjalavörður Sambandsins, og er prentun þess nú nýlokið. Liggur þar fyrir í tveim bindum yfirlit um rekstur og framkvæmdir á vegum Sambandsins á árabilinu frá stofnun þess 1902 og allar götur til ársins 1947. Það er mikill sögulegur fróöleikur, sem þarna hefur verið gerður aðgengilegur á einum stað, og er ekki að efa, aö hann á eftir að koma sagnfræð- ingum og áhugamönnum um söguleg efni að góðum notum. —mhg. Laus prestaköQ Biskupinn yfir tslandi hr. Sig- urbjörn Einarsson, hefur auglýst eftirtalin prestaköll laus til um- sóknar og er umsóknarfrestur til 15. mars n.k.: Arnesprestakall 1 Húnavatns- prófastsdæmi; Bildudalspresta- kall i Barðastrandarprófasts- dæmi; Hólaprestakall i Skaga- fjarðarprófastsdæmi; Miklabæj- arprestakall, Skagafjarðarpró- fastsdæmi; Raufarhafnarpresta- kall, Þingeyjaprófastsdæmi; Reykhólaprestakall, Barða- strandarprófastsdæmi; Reynivallaprestakall, Kjalarnes- prófastsdæmi; Sauðlauksdals- prestakall, Barðastrandarpró- fastsdæmi; Seyðisfjarðarpresta- kall, Baröastrandarprófasts- dæmi; Staðarprestakall i Súg- andafirði, tsafjarðarprófasts- dæmi og annað prestsembættið i Vestmannaeyjum, Kjalarnespró- fastsdæmi. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.