Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 7. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Örlög Portúgals, ábyrgð Evrópu Það fór ekki milli mála að Vesturlönd fylgdust af ýtrustu athygli með þróuninni i Portú- gai þá atburðariku átján mán- uði, sem komu i kjölfar hinnar óvæntu stjórnarbyltingar hers- ins 25. april 1974. Allmjög hefur dregið úr þeirri athygli eftir ósigur róttækustu vinstriafi- anna og sérstaklega portú- galska kommúnistaflokksins ,,hið heita sumar” og haust 1975. Þetta er eðlilegt og venjulegt fyrirbæri á sviði heimsstjórn- málanna. En þessi minnkandi athygli getur verið stórhættuleg fyrir möguleika Portúgals á að viðhalda lýðræðislegri stjórn. Ennþá einu sinni hefur leið- toga Sósialistaflokksins tekist að mynda rfkisstjórn. Það tókst eftir stjórnarkreppu, sem stóð i fimm vikur og var þannig til- tölulega stutt. En myndun nýrr- ar stjórnar undir forustu So- aresar hefur ekki leyst þau vandamál, sem urðu stjórn hans að falli i byrjun desembermán- aðar eftir nákvæmlega 500 daga valdatið hennar. Vandamál Portúgals eru slik, að i saman- burði við þau gætu vandamál ýmissa annarra Vestur- Evrópulanda litið út sem létt krossgáta. Enginn bjóst að visu við að ævi Portúgala eftir „nell- iku-byltinguna” yrði dans á rós- um. Stjórnarbyltingin hratt frá völdum fasistastjórn, sem ráðið hafði rikjum i 48 ár. Sú stjórn rikti þannig fjórfalt lengur en stjórn Hitlers i Þýskalandi og dugleysi hennar umfram Hitl- er-stjórnina var miklu meira en sem svaraði þeim timamismun. Salazar skildi að visu ekki við land sitt i rústum eins og Hitler, en löngu úreltar hugmyndir hans um einkakapitalisma og trúarbragðalegir einfeldnis- þankar um ,,náð fátæktarinnar (að graca de ser pobre) höfðu jafnvel enn skaðvænlegri áhrifi Mario Soares, forsætisráðherra Portúgals. Hann hefur fulla ástæðu til að vera hugsjúkur um framtiðina, þótt honum hafi tek- ist að klambra saman nýrr stjórn. Þessi ef nahagsstef na hélt Portúgal föstu i ástandi vanþró- aðs lands i þriðja heiminum, og það þarf fórnir heillar kynslóðar og gifurlegar fjárfestingar til þess að rífa landið upp úr þeirri vesöld. Glöggur vitnisburður um þessa afturför duglegrar og ið- innar þjóðar, sem einu sinni sendi landkönnuði sina og kara- vellur út fyrir endamörk hins þekkta heims Evrópumanna til þess að uppgötva helming hnattarins, er smáþáttur úr skýrslum Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD): 1970 voru útgjöld portúgalska rikisins til fræðslu- mála 2% af vergri þjóðarfram- leiðslu, en 7% i Danmörku sama ár. Þegar ' ibúafjö'ídí þessara tveggja landa er tekinn meö I reikninginn, kemur í ljós að framlag Dana til fræðslumála var I raun tuttugu sinnum meira en Portúgala. Til þess að leið- rétta annað eins og þetta i fyrir- sjáanlegri framttð dygði ekkert minna en „kúbanskt” átak. Úrelt ástand framleiðsluat- vinnuvega Portúgals gerir að verkum, að helstu útflutnings- vörur þesserunú vefnaðarvara, portvin, sardinur og korkur. (Um vefnaðarvöru er það að segja að hún er illseljanleg á heimsmarkaðnum um þessar mundir og Noregur, Sviþjóð og Bretland stemma stigu við henni með innflutningshöftum.) t staðinn verður Portúgal að flytja inn hráefni, orku — og matvörur. Gifurlegur halll á viðskiptajöfnuðinum við útlönd helst óbreyttur ár eftir ár, og þrátt fyrir mikinn gróða á túr- isma og þó sérstaklega gjald- eyrinn, sem portúgalskir verka- menn erlendis senda heim, hefur greiðslujöfnuðurinn sem fyrr orðið óhagstæður 1977. t janúarskýrslu OECD er gert ráð fyrir að hann sé 1.2 miljarðar dollara. 011 evrópsku nýlenduveldin urðu fyrir áföllum, þegar þau (Holand fyrst þeirra) urðu að láta af höndum nýlendur sinar handan hafa eftir siðari heims- styrjöld. En ekkert' þessara rikja fór svo illa út úr þvi sem Portúgal. Það missti ekki ein- ungis aðganginn að hráefnum, sem voru i óeðlilega lágu verði miðað við heimsmarkaðsverð. Þar að auki flæddu yfir Portú- gal yfir 750.000 flóttamenn (retornados) frá nýlendunum, og rikið flutti þá heim og kom þeim fyrir á hótelum og gisti- stöðum á sinn kostnað. Það var slikt framlag, að munað hefði úm minna fyrir hvaða riki sem var. Fyrir Portúgal, sem hefur tæpar niu miljónir ibúa, er þetta niöþung byrði. Enn verra er þó það að engin atvinna er til að bjóða hinum heimsnúnu. Atvinnuleysið i Portúgal mun vera um 15%, og enn fleiri hafa ekki fulla atvinnu. Þetta getur haft geigvænlegar afleiðingar. Hinir heimsnúnu nýlendubúar eru fullir haturs og beiskju yfir örlögum sinum og þar að auki markaðir af þvi fas- iska samfélagskerfi, sem veitti þeim mikla möguleika i nýlend- unum. I nóvember var sett á stofn svokölluð landsnefnd, sem á að vinna að þvi að hægrisinn- inn Antonio Spinola fái aftur bershöfðingjaembætti, með það fyrir augum að hann fari að nýju að hafa áhrif á stjórnmál. Ennþá er ekki um að ræða grimulausar tilraunir til þess að endurnýja ástandið fyrir byltinguna. En slik þróun gæti fengið byr i seglin ef ekki tekst að rétta stefnu þjóöarskútunnar i þvi efnahagslega óveðri, sem stöðugt verður iskyggilegra. Portúgal siglir fullum seglum i áttina til rikisgjaldþrots. Um helmingurinn af þeim rúmlega 800 smálestum gulls, sem Sala- zar hafði nurlað saman með þvi að halda efnahags- og félags- málum þjóðarinnar niðri á svi- virðilega lágu stigi, er nú veð- settur fyrir lánum, sem þegar hafa verið tekin erlendis. Talið er að afgangurinn verði farinn sömu leið fyrir júni i ár, svo fremi að önnur lönd rétti Portú- gal ekki hjálparhönd. Erlendir aðilar hafa brugðist við með þvi' að segja, að portú- galska stjórnin geti hér engum um kennt nema sjálfri sér, þar eð hún hafi leyft glæfralegar launahækkanir til handa portú- gölskum verkamönnum. Launahækkanir voru talsverðar fyrst i stað eftir stjórnarbylt- inguna (en ekkert stórkostlegar með tilliti tíl þess, að kaupgjald i Portúgal hafði lengi verið langt fyrir neðan það, sem þekktist annarsstaðar i Evrópu.) Þar að auki hefur verðbólgan, sem er griðar- leg, etið hækkanirnar upp. Siðastliðið ár var verðbólgan um 30%, en raunveruleg hækk- un kaupgjalds i þau nærri fjögur ár, sem liðin eru frá stjórnar- byltingunni, er ekki nema 10%. Þaðer ekkert til að hrópa húrra fyrir. Alþjóðlegi gjaldeyrissjóður- inn (IMF) hefur, eins og vænta mátti frá þeirri stofnun, sett mjög ströng skilyrði fyrir þvi að veita Protúgal 50 milján dollara lán — annað lánið i röð, sem landið fengi frá sjóðnum. IMF krefst þess að Portúgalar komi á hjá sér mjög íhaldssamri fjár- málastjórn með miklum niður- skurði. Þessháttar stjórnar- stefna hlyti að hafa afleiðingar fyrir þá stjórn, sem að völdum sæti i Portúgal þegar ráðstafan- irnar færu að verka á kjör al- mennings. Hið mikilvægasta í þessu sambandi er, að hin ellefu riku rfki Vesturlanda hafa lofað Portúgal 750 miljón dollara láni ef það fallist á skilyrði Alþjóð- lega gjaldeyrissjóðsins — að öðrum kosti fær Portúgal ekki skilding frá þessum rikjum. Jafnvel Lundúnablaðið The Economist, sem heldur sér yfir- leitt við hefðbundin viðhorf vestrænna fjármálamanna, hefur út af þessu gagnrýnt Alþjóðlega gjaldeyrissjóðinn og Vesturlönd harkalega og sakað þessa aðila um að bjóða meö þessu heim skipbroti lýðræðis- ins í Portúgal. Fyrir aðeins tveimur árum hlupu leiðtogar og þingmenn Vesturlanda hver fram fyrir annan til þess að fullvissa lýð- ræðissinnuð öfl i Portúgal um að þau ættu visan frá Vestur- löndunu þann stuðning, sem þyrftí til þess að koma frelsi landsins öruggu i höfn. Þegar Porúgalar reyndust færir um að afgreiða hina pólitísku hlið mál- anna, létu Vesturlönd þá sigla sinn sjó. Þeir fengu þegar til kom ekki annað frá V esturlönd- um en smávegis vasapeninga og heilmikið af herðaklappi. Breytist þessi afstaða til Portúgals ekki, er þar um að ræða bein svik. Iialldór Sigurðsson Páll Líndaly fyrrverandi borgarlögmaður: „Ekki ómerkur þáttur af sögu Reykjavíkur” Pall Lindal, fyrrverandi borg- arlögmaður, hefur beðið Þjóðvilj- ann að birta meðfylgjandi grein- argerð sina, en hún er tekin sam- an vegna skýrslu borgarendur- skoðunar sem birtist i Þjóðviljan- um a laugardaginn. Þegar mér þann 3. febrúar barst i hendur fréttatilkynning ásamtsyrpu af gögnum frá skrif- stofu borgarstjóra dags. 3. febrú- ar 1978, var klukkan tæplega 17.00. Þessi tilkynning hefur verið meiraog minna birt i dagblöðum. 1. Það kom i ljós að maður sem hefur verið samstarfsmaður minn lengi og að ég hélt góður vinur# Jón G. Tómasson skrif- stofustjóri borgarstjórnar virðist hafa sent alla syrpuna, sem ætlað er að sverta mig á undan tíl dag- blaðanna, sennilega um kl. 15.00. Hann veit sem er að það er ekki auðvelt að koma við svari i blöðum undir kvöld á föstudegi. Þaðátti sem sé að minu mati að nota helgina til að ósannindin i fréttatílkynningunni gróðursett- ust vel i hugum manna. 2. Ég hafði þegar samband við Björn Jóhannsson fréttastjóra Morgunblaðsins og bað hann að koma i blaðið athugasemd frá mér og hét hann þvi. Það loforð var ekki efnt. Ég hef ekki tök á að sanna þetta frekar en annað sem sagt er i sima. Hins vegar hef ég enga ástæðu tíl að kenna honum um. Einhver virðist hafa kippt i spotta. Kæruna á borgarendur- skoðanda afhenti ég aftur á móti Styrmi Gunnarssyni að viðstödd- um Kjartani Gunnarssyni for- manniHeimdallar.Mig minnir að ég hafi lika ámálgað þetta við Styrmi. Hefði ég satt að segja haldið að athæfi það(semégkærði,innbrot i læstar hirzlur minar undir for- ustjn borgarstjórans i Reykjavik hefði ef til vill þótt fréttaefni á borð við fréttatfikynninguna frá Jóni Tómassyni sem er á útsiðu Morgunblaðsins með stærsta letri en kæra min er hálffalin á 5. siðu við hliðina á bilaauglýsingu. 3. Næsti áfangastaður minn i dreifingu á kæru minni var Þjóð- viljinn. Þar hitti ég Úlfar Þor- móðsson blaðamanna og lét hann fá ljósrit af bréfi þvi sem ég hafði Újósar fregnir af að væri til og hef minnzt á. Bréfið hljóðar á þessa leið: ,Um skipulag „Hallærisplans”. Fyrir nokkrum dögum skrifuðum við bréf til borgar- stjórnarinnarog óskuðum eftír að hún frestaði þvi að afgreiða mál sem borgarráðið hafði samþykkt bæði með mótatkvæði og alls kon- ar fyrirvörum frá a.m.k. tveim mönnum i ráðinu. Orsökin tii að við fórum aö skrifa þetta bréf var aðallega sú að við álitum að einn eða fleiri embættismenn hefðu sagt bæði borgarráði og skipulagsnefnd ósatt frá undirbúningi og gangi málsins. Þess vegna væri sjálf- sagt að fresta málinu. Þessi ósannindi getum við sannað. Það átti með pukri að svikjast aftan að okkur. Við álitum að eig- andi Aðalstrætis9 hafi notað allan þann byggingarrétt sem hann á. Við bentum á að þetta væri ólög- legt þvi það striddi móti gildandi skipulagi i Reykjavik. Þróunar- stjórinn telur allt i lagi með vinnubrögðin i viðtali við Visi á laugardaginn og bætir þvi við að við kunnum náttúrlega ekkert i lögum. Zophonias Pálsson skipu- lagsstjóri hefur lýst annarri skoðun og trúum við honum bet- ur. Sama lét Aðalsteinn Júliusson skrifa i fundarge'rð skipulags- nefndarinnar i júh' s.l. ár. Um lagakunnáttu okkar Þróunar- stjóra verður kannski skorið úr fyrir dómstólum á sinum tima. Við ætlum að minnsta kosti ekki að gefast upp i þessu máli. Margt fleira mættí segja um framkomu þeirra sem stjórna skipulaginu á bak við tjöldin en það mun biða betri tima. Af þvi að borgarstjórnin frestaði afgreiðslu málsins bara hálfan mánuð er okkur afskap- lega nauðsynlegt að fá að kynna okkur gögnin sem borgarráð og aðrir hafa byggt afstöðu sina á. Það hlýtur hreint og beint að flokkast undir mannréttindi. Égfór þvi til borgarstjóra strax á föstudagsmorgun til að biðja um að fá gögnintafarlaust. Fyrsti maður i viðtalstima og næstur á undan mér var sjálfur Ragnar Þórðarson og fræddi mig án þess að ég bæði um ýmislegt fróðlegt um samskipti sin við yfirmenn skipulagsmálanna. Borgarstjóri sagði fulltrúa sin- um sem heitir Ölafur Jónsson að ég ætti að fá umbeðin gögn. Mér var sagt að ég mætti koma kl. 3. Ég var viðstaddur þegar Ölafur tók við fyrirmælum borgarstjóra. Þegar égkom aftur til að sækja gögnin kl. 3.30 voru engin gögn til og beið ég til kl. r ösklega 4. Óla fur gerði allt sem hann gat til að hjálpa mér. Þróunarstjóri var „týndur” engin gögn fundust i Þróunarstofnuninni þegar þangað var hringt, þeir bentu á skjalasafnið i Austurstræti. Ólaf- ur hafði athugað það. Þeir sem þar erusögðuað Þróunarstofnun- in væri nýbúin að fá öll gögnin. Ólafi tókst með dugnaði að fá eitt- hvað hrafl hjá teiknistofu Gests i Garðastræti, og ársskýrslu skipu- lagsnefndar frá Skipulagsstjóra i Skúlatúni 2. Þetta er allt sem ég hefi fengið og i dag er 24. janúar. Mér er ekkert ánægjuefni að þurfa að kæra svona háttarlag fyrir borgarráði en okkur þykja þessi vinnubrögð svoleiðis að það sé skylda okkar. Borgarráð er blekkt, fyrirmæli borgarstjóra hundsuð.skjöl látin hverfa og em- bættismennirnir „týnast”. A meðan þetta gerist eru að renna út möguleikar okkar til að gæta hagsmuna okkar. Ætlar æðsta stjórn höfuð- borgarinnar að láta svonalagað liðast? Við gerum enn kröfu um að staðið verði við loforð borgar- stjóra — að við fáum að kynna okkur öll gögnin frá þróunar- stofnununni og einhverjum sam- vizkusömum ogkurteisum manni eins og ólafi Jónssyni sem við treystum fullkomlega verði falið að afgreiða gögnin i okkar hendur. Égefastekki um að hann muni staðfesta að hér sé rétt greint frá okkar samskiptum. Með vinsemd og virðingu f.h. eigenda Aðalstrætis 8-16 Þorkell Valdimarsson Hvort bréfritarar eru nú ánægðir með þau gögn sem þeir hafa fengið veit ég ekki en það er ekki ofmælt að með tUlögunni um Hallærisplanið sé verið að fjalla um hundruð milljóna og einhverj- irhljótaað hagnast mjög mikið á þvi að fá allt i einu margfalda nýtingu á lóðum i Miðbænum. Þaö þekkja allir lóðaverðiö þar. 1 fréttatilkynningu Jóns G. Tómas- sonar er talað ,,um óljósar að- dróttanir i garð borgaryfirvalda” isambandið viðþetta mál. Hverj- ar eru þær? 4. Það er athyglisvert að i fréttatilkynningunni eru hvergi nefndir heimildarmenn. Það er sagt að ég hafi „neitað van- skilum”. Hver segir það? Siðan hafi ég greitt umræddar fjár- hæðir. Stendur það i bókhaldinu? Ekki kannast ég við að hafa greitt borgargjaldkera neitt 9. des. 5. Enn stendur: „Var honum Framhald á 14. siðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.