Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 7. febrúar 1978 Laus staða Laus er til umsóknar staða læknis við heilsugæslustöð i Hveragerði. Staðan veit- ist frá 1. mars n.k. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 25. febrúar n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 2. febrúar 1978. MÓDEL Myndlistaskólinn óskar að ráða módel (fyrirsætu), helst iþróttaeða ballettfólk, á aldrinum 18—25 ára. Upplýsingar i skól- anum frá kl. 14 til 18 Simi: 11990 Myndlistaskólinn i Reykjavik, Mimisveg 15 Ásmundarsalur. Kúpavogskaupstaiur I----------- JWj Barnagæsla í heimahúsum Námskeið Félagsmálastofnun Kópavogs gengst fyrir námskeiði i uppeldis- og fræðslumálum fyrir dagkonur i heimahúsum, sem hafa nýfengið leyff og fyrir þær, sem óska eftir leyfi á næstunni. Námskeiðið verður haldið 2svar i viku á timabilinu frá fimmtudeginum 9. febrúar til fimmtudagsins 2. mars n.k. Þátttaka óskast tilkynnt og allar nánari upplýsingar verða veittar i Félagsmála- stofnun Kópavogs. Félagsmálastofnun Kópavogs. J3 OOO 81 HJ ~ % Allsherjar- atkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trún- aðarmannaráðs i Félagi starfsfólks i veit- ingahúsum, fyrir næsta starfsár. Frestur til að skila tillögum rennur út kl. 16.00 föstudaginn 10. febrúar n.k. Tillögur eiga að vera um 7 menn i stjórn og 4 til vara, 4 i trúnaðarmannaráð og 2 til vara. Tillögum skal skila til kjörstjórnar á skrifstofu félagsins að Óðinsgötu 7, 4. hæð ásamt meðmælum a.m.k. 40 fullgildra fé- lagsmanna. Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs ligg- ur á skrifstofu F.S.V. Stjórnin. Leikendur Kröflu I Orrustunni á Hálogalandi s.l. vor. Guðjón Björnsson frá Hrísey sendir Nokkrar fréttaglefsur frá liðnu ári Nýlega barst Landpósti eftir- farandi fréttabréf frá tiðinda- ínanni Þjóðviljans i Hrisey, Guðjóni Björnssyni: Árið 1977 mun á margan hátt hafa verið Hriseyingum fremur hagstætt og jafnframt stórvið- burðalitið Snjóalög voru ekki mikil, hvorki nú i vetur né sið- astiiðinn, en vorið var kalt og hretagjarnt sem viðar og gróður kom seint til. Miðsumarrigning- ar voru mun algengari en á nokkrum næstliðnum sumrum. Aflamagn til vinnslu í Hrisey var um 3400 tonn. Þar af landaði skuttogarinn Snæfell um 2340 tonnum en það landaði ekki öll- um afla sinum hér. Nánari tölur birtar siðar. Ástralskar Til aðstoðar við vinnslu þessa afla voru ráðnar sex ástralskar stúlkur og virðast þær una hag sinum allvel hér. Ekki er kannski laust við að þær hafi ýtt við áður blundaðri rómantik, svona hjá manni og manni, og hinir yngri æfi með þeim tungu- mál af nokkrum dugnaði. Byggingaframkvæmdir A s.l. hausti var hafist handa um byggingu þriggja grunna undir ibúðarhús, á vegum sveit- arfélagsins. Húsin sjálf eru keypt hjá Húseiningum á Siglu- firði og átti það fyrsta raunar að koma i byrjun desember, en einhver dráttur varð þar á og nefna menn nú miðjan janúar. Þá voru steyptar undirstöður undir 420 ferm. stækkun á fisk- verkunarhúsi KEA á staðnum og skal þar fram haldið á þessu ári. Gatna- og hafnarframkvæmdir Á árinu voru steyptir liðlega 100 m af götu, sem tengir hafn- arsvæðið við þorpið og svarar það til þess að hvert mannsbarn á eynni hafi lagt af mörkum h.u.b. 35 sm af 8 m breiðri götu. Siðla árs var hafist handa við byggingu 50 m. langrar trébryggju innan á varnargarð norðanvert við höfnina. Á sama stað byggðu smábátaeigendur bryggju fyrir nokkrum árum. Kemur hún að góðu haldi við byggingu þeirrar nýju, en fellur siðan niður. Skoskrar ættar Um mánaðamót júni-júli fæddist fyrsti kálfurinn i ein- angrunarstöð rikisins i Hrisey og i árslok var þarna orðinn álitlegur hópur, sumir með verulegan svip feðra sinna i Skotlandi. Félagslíf Framan af árinu var félagslif með besta móti og má þar nefna, að þá nýlega stofnaður leikklúbbur, Krafla, sýndi sitt fyrsta verk, Orrustuna á Há- logalandi. Rjúpan í hámarki Er liða tók á haust kom rjúp- an að vanda niður i þorpið með unga sína. Var hún með almesta móti og spigsporaði um göturn- ar alls óhrædd við hina tvifætl- ingana, mennina, sem þó er valt að treysta. En þótt Hriseyingar séu i raun hreint engir fuglavin- irumfram aðra,þá nýtur rjúpan sérréttinda og unir hag sinum innan um mannfólkið þar til snjóa tekur og hún leitar nýrra heimkynrta i landi. En þá er veiðitiminn einmitt á næsta leiti og hætt við að spök rjúpan frá Hrisey sé þægileg bráð. Margir til útlanda lægt 10% eyjarskeggja hafi far- ið til útlandi á árinu. Otflutn- ingsverðmæti frá Hrisey nam um 370 milj. kr. árið 1976. Kannski er þetta framlag, um 1,2 milj. kr. á ibúa, hvati svo mikilla ferðlaga. Bátaf lotinn Bátaflotinn minnkaði á árinu þar sem hinn happasæli bátur, Eyrún, sem er 24 tonn, var seld- ur til ólafsvikur. Þrir ungir menn gerðu þennan bát út, en skipstjórinn er nú i stýrimanna- skóla að afla sér aukinna rétt- inda. Námsflokkar t haust hófu starfsemi náms- flokkar og eru kennslugreinar enska og spænska. Fast að 40 manns stundar nám, ýmist i annarri eða báðum greinum. Kennari er Inger Laxdal Ein- arsdóttir, sem einnig kennir við grunnskólann á staðnum. Ýmislegt fleira mætti tina til en sennilega þætti það ekki markvert á landsmælikvarða og þá ekki heldur það, sem hér hef- ur verið upp talið. Verður þvi ekki fleira látið á þrykk út ganga að þessu sinni af siðasta árs annálum, og þvi næst tekur timans tönn við, margt gleym- ist, jafnvel flest, en i hugskoti allra geymist eitthvað. Ýmist eru það sárar minningar eða ljúfar, og reynsla, sem mótar manninn, vonandi á betri veg um ókomna framtið. Frá heimkynnum holdanautablendinganna i Hrisey. Hitaveita 1 haust var ráðinn fastur starfsmaður við hitaveituna. Hans fyrsta verk var að skipta um heimæðar i þónokkur hús, en þær voru orðnar meira og minna stiflaðar. A árinu voru gerðar mjög jákvæðar tilraunir með að eyða súrefni úr vatninu með iblöndun natrium sulfit, en talið er að súrefnið sé búið að vera mikill skaðvaldur á rör og ofna þau fjögur ár, sem hita- veitan hefur verið rekin. Ekki mun fjarri sanni að ná- Guðjón Björnsson. Umsjón: Magnús H. Gíslason J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.