Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 07.02.1978, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 7. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 STENMARK TVÖFALDUR HEIMSMEISTARI Ingemar Stenmark frá Svíþjóð sigraði i svigi í heimsmeistarakeppninni á skíðum sem haldin var « Garmisch Partenkirchen í Vestur-Þýska landi á sunnudaginn. Hlaut hann timann 1.39.54 mín. Annar varð Piero Gros frá Italiu á 1,40.20 ,,Ég vissi að um erfiða keppni yrði að ræða”, sagöi hinn ungi Svii eftir sigurinn. ,,bað var tiu keppendur sem sigurmöguleika höföu”. Það var greinilegt að hljóðið i Ingemar Stenmark var gott, enda ekki að furða þar sem þetta var hans annar titill i keppninni, og er hann þvi heims- meistari i svigi og stórsvigi. Maria Epple frá V-Þýskalandi sigraði i svigi kvenna. Skaut hún mörgum af bestu skfðakonum heimsins ref fyrir rass og hlaut Úrslitaleikur HM í handknattleik: V-Þjóðverjar heimsmeistarar Sigruðu Sovétmenn 20:19 í úrslitum Heimsmeistarakeppn- inni í handknattleik er nú lokið. V-Þjóðverjar eru heimsmeistarar 1978. Þeir sigruðu Sovétrfkin í úrslitaleik með 20 mörk- um gegn 19. A-Þjóðverjar urðu í þriðja sæti og Danir í þvi fjórða. En lítum nánar á úrslitin: Orslitaleikurinn: V-Þýskaland-Sovétríkin 20:19. Flestir voru þeirrar skoðunar að Sovétrikin yrðu heimsmeist- arar 1978, en V-Þjóðverjar gerðu vonir þeirra að engu. Leikurinn fór fram i Brönby Hallen að við- stöddum um sjö þúsund áhorf- endum. Fyrri hálfleikur var mjög jafn, og voru varnir beggja lið- anna mjög sterkar. Staðan i leikhléi var 11:11. 1 siðari hálf- leik tóku V-Þjóðverjar öll völd á vellinum og sterkur varnarleik- ur varð Rússum að falli. Kom- V alsarar meistarar Valsmenn urðu tslands- meistarar i innanhússknatt- spyrnu 1978. Keppnin fór fram i Laugardalshöll um helgina, og i úrslitum mættu Valsmenn Skagamönnum og sigruðu 6:3 að þvi er við best vitum. Þaö var nefnilega sá háttur- inn hafður á fyrir þetta mót, aö aðeins einu dagblaðanna var til- kynnt um mótið, og er þvi ekki hægt að skýra meira frá þvi, þvi miður. Eru vinnubrögð af þessu tagi fyrir neðan allar hellur, og er vonandi að hlutir sem þessir endurtaki sig ekki i framtiðinni. SK. ust rússnesku risarnir ekkert áleiðis. Um tima i siðari hálfleik voru Þjóðverjarnir fjórum mörkum yfir, en Sovétmönnum tókst að minnka fengið forskot Þjóðverja niður i aðeins eitt mark undir lokin. 3. -4. sætið. Danmörk-A-Þýskaland 19:15 Danir hafa komið mjög á óvart i keppninni. Ris liðsins hefur hækkað með hverjum leik, en að þessu sinni mættu þeir ofjörlum sinum. A-Þjóð- verjarnir léku mjög vel og unnu verðskuldað, eftir að staðan i leikhléi hafði verið 9:7 A-Þjóð- verjum i vil. 4. -5. sætið. Júgóslavía-Pólland 21:19 Enn eitt áfallið fyrir Pólverja og Janus Cherwinzky. Skyldi sá maður ekki vilja gleyma þess- ari HM-keppni sem fyrst? Stað- an i leikhléi var 10:8 Pólverjum i vil, en i siðari hálfleik tóku Júgóslavar sig til, og með mjög góðum leik tókst þeim að sigra eins og áður sagði 21:19. 6.-7. sætið. Rúmenia-Svíþjóð 25:17 Sviar hafa staðið sig mjög illa að þessu sinni. Það hafa Rúm- enar einnig gert, en þeir hafa fjórum sinnum tekið við gull- verðlaunum i keppninni. Þeir höfðu ávallt forustuna i þessum leik og höföu náð yfirburðastööu i leikhléi 13:7. Eftirleikurinn var þeim auðveldur og þeir sigruðu eins og áður sagði 25:17. Sjö efstu þjóðirnar i þessari 8- liða keppni hafa tryggt sér þátt- tökurétt i lokakeppni Ólympiu- leikanna sem næst fara fram i Moskvu, höfuðborg Sovétrikj- anna. En i lokin skulum við lita á lokaröðina i heimsmeistara- keppninni 1978. 1. Vestur-Þýskaland 2. Sovétrikin 3. Austur-Þýskaland 4. Danmörk 5. Júgóslavia 6. Pólland 7. Rúmenia 8. Sviþjóð 9. Ungverjaland 10. Spánn 11. Tékkóslóvakia 12. Japan. — SK Lið Vals sem um helgina tryggði sér islandsmeistaratitilinn i inn- anhússknattspyrnu. Valur sigraði Akranes i úrslitum 6:3. ISDANS Þau hjónin, Irina Moiseyeva og Andrei Minenkov urðu Evrópu- meistarari isdansi en keppnin fór fram i Strassburg I Frakklandi um helgina. Hlutu þau Sovéthjón 206.40 stig. i öðru sæti uröu einnig hjón frá Sovétríkjunum þau Natalia Linichuk og Gennadi Karponosov og hlutu þau 204,58 stig. Bronsið hnepptu svo þau Krisztina Regoczy og Andras Sally frá Ungverjalandi, og hlutu þau 201,58 stig. SK timann 2:41,15. Onnur varð fyrr- verandi heimsmethafi Liese Marie Morerod frá Sviss og hlaut hún timann 2:41,20 svo ekki mun- aöi það miklu. 1 þriðja sæti hafn- aði svo Anne Marie Pröll Moser frá Austurriki meö timann 2:41,90 min. Austurriki hlaut flest verðlaun GIsli vann Dóra á afmælismótinu Siðari hluti afmælismóts Júdósambands Isiands var haldinn á sunnudaginn. t flokki 60 kg og léttari sigraði Einar Ólafsson úr júdó- félaginu Reyni frá Hnifsdal. t flokki 63 kg til 70 kg. sigraði Þórarinn Ólafsson Ginnbjörn Jóhannesson einnig úr júdófélaginu Reyni frá Hnifsdal, varð annar, en i opna flokknum sigraöi Norðurlanda- meistarinn Gisli Þorsteinsson Halldór Guðbjörnsson i úrslitum. Athygli vekur frammistaða strákanna frá Reyni i Hnifsdal. Þar er aðstaða nánast engin til júdóiðkana, og er greinilegt að langt má komast á viljanum einum saman. SK. á heimsmeistaramótinu að þessu sinni eða sjö talsins. Fjögur gull og þrjú brons voru i öðru sæti, fengu fimm verðlaun. Eitt gull og fjögur silfurverölaun. Smárikið Lichtenstein hafnaði svo i þriðja sæti, einnig meö fimm verðlaun. Ein gull-, tvenn silfur- og tvenn bronsverðlaun. , SK. UMFN vann Þór í körfu á Akureyri Njarðvikingar sóttu Þórsara heim á föstudagskvöldið og léku við þá i Islandsmótinu i körfuknattleik. Leiknum lauk með sigri UMFN sem skoraði 69 stig gegn 63 stigum Þórsara. Veröur þetta aö teljast mjög góður árangur hjá norðanmönnum þarsem UMFN er nú sem stendur efst i deildinni en Þórsarar mjög neöarlega. Mark Christiansen var að venju bestur Þórsara og skoraði mest eða 20 stig. Stigahæstur hjá UMFN var Þorsteinn Bjarnason sem skoraði 16 stig en Gunnar Þorvarðarson kom næstur honum með 15 stig. SK. ÍS stefnir að meistaratitii Einn leikur var háður i M.fl. kvenna i körfuknattieik um helgina. Attust þar við liö 1S og KR og lauk ieiknum með sigri 1S sem skoraöi 54 stig gegn 45 stigum KR. Staðan i leikhléi var 27:27, en i siöari hálfleik voru stúdinurnar harðari af sér og tókst þeim að sigra að lokum, og nálgast þær nú lslandsmeistaratitilinn hröðum skrefum. Bestan leik hjá 1S átti Guðný „litla” Jónsdóttir, og var oft skemmtilegt að fylgjast með þvi, er hún lék KR-inganá sundur og saman. Einnig átti Kolbrún Jónsdóttir góðan leik. Fyrir KR lék Linda Jónsdóttir best. Einnig átti Salina Kristjáns- dóttir góðan leik. SK. Hamburger tapaði illa í Þýskalandi úrslit i v-þýsku knattspyrnunni um helgina urðu þessi: Schalke04 — Köln 2:0 Borussia Dortm. — St. Pauli 1:1 Borussia Munch. — vbg Stuttgart 3:1 1. fc Saarbruecken — Werder Bremen 1:1 msv Duisburg —Eintr. Frankfurt , 3:0 Hertha Berlin — Kaiserslautern 2:1 Fortuna Dusseld. — Hamburgersv 3:0 1860Munchen —Bochum 2:0 Eintr. Braunschweig — Bayern Munch. 1:1 SK Finnar sigursælir Finnar urðu sigursælir á Rallyaksturskeppni sem þar var haldin um helgina. Keppnin er liður i Evrópukeppninni og aðeins 19 þátt- takenduraf 46 sem keppnina hófu komust á leiðarenda. Sigurvegari varð Finninn Ari Vatanen á Ford Escort bifreið og hlaut hann 23.103 refsistig. I öðru sæti lentu landar þeirra, þeir Henri Toionen og Martti Kivimaeki á Fiat, og hlutu þeir 23.324 refsistig. I þriöja sæti voru Finnar einnig, þeir Markku Alen og 1 ekka Kivimaeki einnig á Fiat, og hlutu þeir 23.780 stig. — SK. Hollendingar unnu A meðan augu og eyru allra handknattleiksunnenda beindust að Danmörku léku Holland og Finnland vináttuleik i handknattleik. Fórleikurinn fram i Karjaa i Finnlandi, og máttu Finnar þola tap. Leiknum lauk meö sigri sigri Hollands 22:20 eftir að staðan i leik- hléi var 14:14. Flest mörk i leiknum skoraöi Hollendingurinn Piet Kivit eða 8 talsins. — SK. Leiðrétting Þann 1. febrúar skrifaði undirritaður grein hér á siðunni um úthlutun úr afreksmannasjóði ISt. Þar hafði orðið leiöinlegur mis- skilningur milli undirritaðs og Gunnlaugs Briem formanns sjóð- stjórnar. Það var nefnilega ekki KSIsem fékk 1 miljón úr sjóðnum, heldur FRl, og er það vel. En gagnrýni min vegna hlutar JSl og LSI stendur ennþá. SK.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.