Þjóðviljinn - 15.03.1978, Page 7
Miðvikudagur 15. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
JÞad er i öllum aöalatriöum viöurkennt aö verkalýös-
hreyfingin hafi rétt til aö boöa til verkfalla gegn
stjórnvöldum útaf atriðum, sem eru viökomandi hinni
eiginlegu kjaradeilu í þrengri merkingu og beinast
ekki aö stjórnvaldi sem aöila kjarasamnings.
Arnmundur
Backman,
lögfræðingur:
Um lögleg og
ólögleg verkföll
Hvað er löglegt,
hvaö ólöglegt?
i umræðu um reglur verk-
fallsréttar hér á landi hefur
greinilega komið i Ijós að menn
gefa sér undantekningarlitið, að
verkfallsréttur sé takmarkaðri
en hann hugsanlega er sam-
kvæmt vinnulöggjöfinni.
Ef verkalýðshreyfingin gríp-
ur til annara aðgerða en þeirra
venjulegu hefðbundnu verk-
falla, eru þær samstundis
stimplaðar ólöglegar. Þannig
var það nú 1. og 2. mars þegar
siðlausum og rammpólitiskum
kjaraskerðingarlögum var mót-
mælt með verkfalli. Bæði
atvinnurekendur og rikisvald
slógu sér samstundis á lær og
úthrópuðu aðgerðirnar sem
ólöglegar og refsiverðar. Jafn-
vel innan verkalýðshreyfingar-
innar var sú skoðun áberandi að
verkfallið 1. og 2. mars væri
ólöglegt og brot á leikreglum
vinnulöggjafarinnar. En er það
svo? Hversu viðtækur er raun-
verulega verkfallsrétturinn
samkvæmt vinnulöggjöfinni?
Hinn almenni verk-
fallsréttur
Við skulum hafa það i huga i
þessu sambandi, að vinnulög-
gjöfin islenska frá árinu 1938
var i öllum aðalatriðum sniðin
eftir vinnulöggjöf annarra
Norðurlanda, sér i lagi norskri.
t hinni samnorrænu vinnulög-
gjöf nær verkfallsréttur fyrst og
fremst til þess að knýja fram
nýjan kjarasamning eftir að
samningslaust er orðið.
Eftir að kjarasamningi er
náð, gildir nokkurs konar frið-
arskylda milli aðila vinnumark-
aðarins. Ágreiningur um efni og
gildi kjarasamnings skal eftir
það borinn undir úrskurð Fé -
lagsdóms.
Hin dæmigerða ólöglega
vinnustöðvun er þvi það þegar
ágreiningur um túlkun eða gildi
kjarasamnings er leystur með
verkfalli stéttarfélags eða verk-
banni atvinnurekanda i stað
þess að leggja deiluefnið undir
úrskurð Félagsdóms.
1 öðru lagi nær hinn samnor-
ræni verkfallsréttur til samúð-
arverkfalla. Samúðarverkfall
er að þvi leyti undantekning frá
friðarskyldunni að stéttarfélag
sem s jálft er bundið kjarasamn-
ingi við viðsemjanda sinn, getur
allt að einu boðað til samúðar-
verkfalls með öðru stéttarfélagi
sem á i löglegu verkfalli.
Um framangreind verkföll,
sem til þess eru háð, að knýja
fram samning um kaup og kjör,
gildir samkvæmt 16. gr. vinnu-
löggjafarinnar að þau skulu
boðuð með 7 sólarhringa fyrir-
vara.
Eru pólitisk verk-
föll lögleg?
En verkfallsrétturinn i
nágrannalöndunum nær lengra
en þetta. Þar er i öllum aðal-
atriðum viðurkennt að verka-
lýðshreyfingin hafi rétt til að
boða til verkfalla gegn stjórn-
völdum útaf atriðum, sem ekki
eru viðkomandi hinni eiginlegu
kjaradeilu i þrengri merkingu
og beinast ekki að stjórnvaldi
sem aðila kjarasamnings.
Verkföll af þessu tagi hafa verið
nefnd pólitisk verkföll i þeim
skilningi að þau heimila verka-
lýðshreyfingunni að beita verk-
fallsvopninu til að hafa áhrif á
stjórnvöld, stjórnarstefnuna
sjálfa eða stjórnkerfið.
Pólitisk verkföll af þessu tagi
eru algeng og vel þekkt fyrir-
bæri i nágrannalöndum okkar.
Þannig hefur efnahagsstefnu,
atvinnustefnu og utanrikis-
stefnu stjórnvalda verið mót-
mælt með verkföllum. Undirrit-
aður tók m.a. þátt i einu sliku i
Noregi árið 1970 þegar Alþýðu-
sambandið norska boðaði til
klukkustundar langs verkfalls
um landið allt til aö mótmæla
efnahagsstefnu stjórnar Per
Borten. Þátttakan var alger og
verkfallið löglegt.
Heimildin til að boða til
pólitisks verkfalls gegn stjórn-
valdi byggist á þvi grundvallar
viðhorfi i lýðfrjálsum löndum að
menn hafi rétt til að leggja niður
vinnu i hagsmunaskyni og að sá
réttur verið aðeins takmarkað-
ur með lögum.
Þannig segir m.a. islenska
vinnulöggjöfin i 14. gr.: „Heim-
ilt er stéttarfélögum, félögum
atvinnurekenda og einstökum
atvinnurekendum að gera verk-
föU og verkbönn i þeim tilgangi
að vinna að framgangi krafna
sinna i vinnudeilum til verndar
rétti sinum samkvæmt lögum
þessum, með þeim skilyrðum og
takmörkunum einum, sem sett
eru i lögum”. Og um rétt stétt-
arfélaga segir i 1. gr. vinnulög-
gjafarinnar „Rétt eiga menn á
aðstofna stéttarfélög og stéttar-
félagasambönd i þeim tilgangi
að vinna sameiginlega að hags-
munamálum verkalýðsstéttar-
innar og launtaka yfirleitt”.
Enda er það svo, að höfundar
islensku vinnulöggjafarinnar
hafa vissulega gert ráð fyrir
þvi, að i hinni rúmu verkfalls-
heimild 14. gr. sbr. 1. gr. vinnu-
löggjafarinnar fælist m.a. rétt-
ur tÚ pólitiskra verkfalla. Þess
vegnagripu þeirtil þessúrræðis
að takmarka þá heimild með
lögum. En spurningin er auðvit-
að sú, hversu viðtæk sú tak-
mörkun sé.
1 2. tl. 17. gr. vinnulöggjafar-
innar er nefnilega að finna eftir-
farandi ákvæði, sem mér er
ekki kunnugt um að nein alvar-
leg tilraun hafi verið gerö til að
kanna hvað merkir: „Óheimilt
er að hefa vinnustöðvun ef til-
gangur hennar er að þvinga
stjórnvöldin til að framkvæma
athafnir, sem þeim lögum sam-
kvæmt ekki ber að framkvæma,
eða framkvæma ekki athafnir
sem þeim lögum samkvæmt er
skylt að framkvæma, enda sé
ekki um að ræða athafnir þar
sem stjórnvöld eru aðili sem
atvinnurekandi.
Gildandi lög um opinbera
starfsmenn haldast óbreytt
þrátt fyrir þetta”. (Þá voru i
gildi lög sem bönnuðu opinber-
um starfsmönnum að fara i
verkfall).
Hvað merkir þetta ákvæði
laganna?
Samkvæmt orðanna hljóðan
virðist það merkja, að með
verkfalli sé óheimilt að þvinga
stjórnvöld til að gera eitthvað,
sem annað hvort er lögbrot eða
lagaheimild skortir til, enda sé
ekki um að ræða að stjórnvöld
séu atvinnurekandi i þvi tilfelli.
Bannið snertir m.ö.o. pólitlskt
verkfall sem þvinga á stjórn-
völd til lögbrota eða löglausra
aðgerða.
— 0 —
En hvað um þau tilvik þegar
verkfalli gegn stjórnvöldum er
ætlað að þvinga þau til að fara
að lögum? Slik verkföli ættu að
>era lögleg samkvæmt þessu.
Ef stjórnvöld ætluðu sér t.d.
að afsala einhverjum hluta
landsins i þendur útlendingum
og brjóta þar með ákvæði
stjórnarskrárinnar. Væri þá
ekki pólitiskt verkfall gegn slíku
löglegt?
Nú á t.d. lægra sett stjórn-
vald, Verðlagsráð sjávarút-
vegsins, að ákveða opinbert
fiskverð fyrir ákveðin dag 3
sinnum á ári. Oft dregst verð-
ákvörðun þessi ólöglega. Hafa
islenskir sjómenn ekki heimild
til aö beina verkfalli tii að
þvinga stjórnvald þetta til að
fara að lögum? Þetta hafa
sjómenn gert. Og hvað er lög-
’brot og hvað er stjórnvald I
skilningi 17. gr. 2. tl. vinnulög-,
gjafarinnar? Enda þótt ekki
hvili bein lagaskylda á stjórn-
valdi aö forðast óðaverðbólgu
með tilheyrandi eignaráni og
siðleysi þá hvilir sú lagaskylda
á öllum þingmönnum að láta
sjórnast af sannfæringu sinni
fyrst og fremst, með hagsmuni
lands og lýðs fyrir augum.
Spillt stjórnarstefna á rætur að
rekja til spillingar stjórnvalda.
Má verkalýðshreyfingin grlpa
til verkfalla til að berjast gegn
óðaverðbólgu, skattsvikum,
gjaldeyrissvikum, spillingu i
stjórnkerfinu, spillingu og lög-
brotum einstakra þingmanna
eða ráðherra ef um þau væri að
ræða?
Og svo litið sé til aðgerða
verkalýðshreyfingarinnar 1. og
2. mars, Hefur verkalýðshreyf-
ingin með stoð i vinnulöggjöf-
inniheimild til að beita verkfalli
til verndar hagsmunum sinum
til að mótmæla þvi að sett verði
lög sem ganga i berhögg við
ákvæði vinnulöggjafarinnar um
frjálsan samningsrétt og eru
svik við nýgerða kjarasamn-
inga alls islensks launafólks?
— 0 —
Framangreind tilvik og mörg
önnur sem til mætti tina, eru
auðvitað tekin sem dæmi. En
stóra spurningin er sú, hvað
merkja ákvæði 2. tl. 17. gr.
vinnulöggjafarinnar. Og ef við
viðurkennum að orðalag grein-
arinnar veiti heimild til ákveð-
inna pólitiskra verkfalla, hvar
eru þá mörkin?
Ekki verður gerð tilraun til
þess hér að svara þvi. Hugleiö-
ingar þessar eru fyrst og fremst
til þess ætlaðar að vekja athygli
á lagagrein sem kann að skipta
talsverðu máli þótt fyrirferðar-
litil sé og óljós. En eitt er
kannski ljóst að islenskur verk-
fallsréttur er rýmri en almennt
er álitið. Arnmundur Backman
Dönsku bæjar- og sveitarstjórnakosningarnar:
Öflug vinstrisveifla
Margrét Guðmundsdóttir og Bessi Bjarnason i hlutverkum slnum I „A
sama tima að ári”, eftir Bernard Slade.
Gamanleikur Þjóðleikhússins
Troðfullt níu sinnum á
Húsavík
Leikflokkur Þjóðleikhússins er
nú kominn til Reykjavikur eftir 9
sýningar á Húsavik á bandaríska
gamanleiknum „Á sama tima að
ári”, sem frumsýndur var þar á
dögunum. Sýningin vakti mikla
hrifningu, sýnt var fyrir troðfullu
húsi og urðu margir frá að
hverfa, en ekki var unnt að hafa
fleiri sýningar að sinni, þar eð
heimamenn þurftu á húsnæöinu
að halda undir sýningar á Skjald-
hömrum, sem þeir eru að æfa.
Um næstu helgi verða sýningar
á leikritinu i Vestmannaeyjum, á
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Siðan veröur leik-
ferðinni haldið áfram. Sýnt
verður á menningarviku á Sel-
fossi annan dag páska, þá verða
sýningar viða á Suöurlandi; i
april verður sýnt á Vesturlandi og
Vestfjörðum og I mái er ráögert
að sýna á Norður- og Austurlandi.
Leikstjóri gamanleiksins er
Gisli Alfreðsson, leikmynd er
eftir Birgi Engilberts og með
hlutverkin tvö i leiknum fara þau
Bessi Bjarnason og Margrét
Guðmundsdóttir.
öflug vinstrisveifla varö i bæja-
og sveitarstjórnakosningunum I
Danmörku, sem fóru fram
nýverib. Sósialdemókratar og
flokkarnir þrir til vinstri við þá
bættu samtals við sig 200 full-
trúum, en hægri- og miöflokkar
samanlagt töpuðu 148 og listar
óháðir stjórnmálaflokkum 32.
• ••
Sósialdemókratar unnu mikinn
sigur, bættu svið sig 170 sætum og
flokkarnir þrir til vinstri við þá
30. Af þeim vann flokkur vinstri
sósialista mestan sigur og bætti
við sig 21 sæti, Kommúnistaflokk-
urinn vann einnig verulega á en
Sósialiski vinstriflokkurinn hélt
þvi sem næst i horfinu. Radi-
kalar, Kristilegi þjóðarflokk-
urinn, Venstre og miðdemókratar
töpuðu miklu, en Ihaldsflokk-
urinn, Framsóknarflokkur Glist-
rups og Réttarsambandið unnu
mikið á. Við það bætist að
sameiginlegir listar borgara-
flokkanna, sem Venstre áttu mest
i, voru ekki boðnir fram að þessu
sinni, en á hinn bóginn komu nú
fram ýmsir óháðir listar með
vinstrisvip, meðal annars af hálfu
umhverf isverndarsinna og
kvennasamtaka. Þar að auki
fengu óháðu listarnir nú 32 full-
trúum færra en i næstu bæja- og
sveitastjórnakosningum á undan,
en þær fóru fram 1974.
Fulltrúafjöldi listanna er eftir
kosningarnar sem hér segir, og er
Réttarsambandið 6 (3), Sósíaliski
þjóðarflokkurinn 77 (78),
Kommúnistaflokkurinn 56 (46),
miödemókratar 11 (24), Kristilegi
þjóðarflokkurinn 29 (37), Venstre
1148 (1277), vinstrisósialistar 25
(4), Framsóknarflokkurinn 347
tulitruaijoidi þeirra ettir kosning-
arnar 1974 hafður með i svigum:
Sósialdemókratar 1702 fulltrúa
(1532), radikalar 196 (311),
Ihaldsflokkurinn 505 (439),
(29/t, aiesviKurtiokkunnn, sem
þýski þjóðernisminnihlutinn á
Suður-Jótlandi stendur að 14 (16)
og aðrir listar 639 (671).
(Information)
BlikkicSjan
Asgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468