Þjóðviljinn - 15.03.1978, Blaðsíða 11
Miftvikudagur 15. mars 1978 ÞJÓÐVlLJINN — StÐA 11
Tímarit MSI:
N ýtt hefti Máhns
(;t er komiö fyrsta hefti tima-
ritsins MALMS á þessu ári. (Jt-
gefandi er Málm og skipasmiöa-
samband tslands.
t timaritinu.sem er 24 siöur aö
stærö^ritar Guöjón Jónsson for-
maöur MSl um árás rikis-
stjórnarinnar á gildandi kjara-
samninga og birtar eru ályktanir
miöstjórnar MSt og formanna-
ráöstefnu ASt um óiög rikis-
stjórnarinnar frá 16. febrúar s.l.
1 MÁLMI eru birtar einnig
ályktanir sambandsþings MSI en
þaö var haldið á Akureyri I
nóvember á siöasta ári. Þeirra á
meðal er ályktun um samninga-
mál, þar sem segir að „sam-
bandsstjórn MSI telji að niður-
stöður þriggja siðustu kjara-
samninga og reynsla af
s a m n i n g s g e r ð i n n i leiöi
óhjákvæmilega til endurskoðunar
á þátttöku málmiðnaðarmanna
og skipasmiöa i sameiginlegri
samningagerð verkalýðsfélag-
anna.” Þessi samþykkt var
kveikjan að hringborðsum-
ræðum, um launajöfnunarstefnu
framkvæmd hennar og
MÁLMIIR-
framkvæmd hennar og stöðu
MSI i kjarasamningum fram-
tiðarinnar og eru umræð-
urnar birtar i MÁLMl. I þeim
tóku þátt Guðjón Jónsson for-
maöur MSI, Guðmundur
Hilmarsson, formaður Félags
bifvélavirkja, Hákon Hákonar-
son, formaður járniðnaðarmanna
á Akureyri og Alþýðusambands
Norðurlands, Guðmundur Jónas-
son starfsmaöur Félags járn-
iðnaðarmanna i RVK og Helgi
Arnlaugsson starfsmaður MSI.*"
Þá er frásögn af heimsókn til
Akraness ásamt viðtölum við
Kjartan Guðmundsson, formann
Sveinafélags málmiönaðar-
manna þar, Einar Guðleifsson
trúnaöarmann félagsins i skipa-
smiðastöð Þorgeirs og Ellerts og
við Þorgeir Jósefsson stofnanda
og framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins.
1MALMI er einnig fjöldi greina
þýddra og innlendra. M.a. ritar
Guðjón Jónsson um aöbúnaö i
skipavinnu og birtar eru niður-
stööur sænskrar könnunar á
áhrifum eiturefna á starfsfólk i
máliðnaði.
Þá eru ýmsar fréttir i MALMI
t.d. er skýrt frá nýrri tegund
öryggishjálma sem hreinsa ryk
úr andrúmslofti og komið geta
málmiðnaðarmönnum til góöa.
Sjónvarpseigendur i Saurbœjarhreppi í Dalasýslu
Neita allir ad
afnotagjald
vegna lélegra sjónvarpsskilyrða
Þjóðviljanum hefur bor-
ist undirskriftalisti, þar
sem rita nöfn sin allir sjón-
varpseigendur í Saur-
bæjarhreppi í Dalasýslu
þar sem þeir segjast neita
að greiða afnotagjald af
sjónvarpi vegna lélegra
sjónvarpsskilyrða frá end-
urvarpsstöðinni að Reyk-
hólum. i bréfinu stendur:
„Vegna slæmra skilyrða og
tiðra bilana, neitum við undir-
rituð að greiða afnotagjöld af
sjónvörpum okkar nema fulln-
aðarviðgerð fari fram á endur-
varpsstöðinni á Reykhólum A-
Barðastrandarsýslu”.
Undir þetta rita svo allir sjón-
varpseigendur i hreppnum 27 að
tölu.
Axel Ólafsson innheimtustjóri
Rikisútvarpsins sagði i gær að
hann hefði fengið þetta bréf i
hendur og hefði hann gert allar
þær ráðstafanir sem i hans valdi
stæði til að kippa þessu máli i lag.
En það er sem kunnugt er Land-
siminn sem hefur með dreifingu
sjónvarps að gera.
Hörður Frimannsson, yfirverk-
fræðingur sjónvarpsins, visaði á
Landsimann, og þar varð fyrir
svörum Sigurður Þorkelsson yfir-
verkfræðingur. Hann kannaðist
ekki við málið, en sagði að Land-
siminn hefði enga kvörtun fengið
frá þessu fólki, en það væri vani
að fólk byrjaði að kvarta, þegar
það ætti að fara að greiða afnota-
gjöldin!! Hann lofaði siðan að
greiða
láta kanna málið og visaöi á Har-
ald Sigurðsson verkfræðing.
Hann sagði að stöðin hafi verið
biluð um daginn,en nú væri hún
komin i lag og Reykhólastöðin
væri sist verri en aðrar endur-
varpsstöðvar á landinu og sagðist
þvi ekki skilja þessi mótmæli.
—S.dór.
Sönglagahefti
eftir Skúla
Halldórsson
(Jt er komið eftir Skúla Hali-
dórsson, tónskáid, sönglagahefti
með 16 lögum i iéttri útsetningu
fyrir pianó eða orgel. —
Flest þessara laga hafa áður
verið prentuö, en hafa um árabil
verið ófáanleg.
Lögin eru prentuö i Siglu-
fjarðarprentsmiðju og til sölu hjá
íslensku tónverkamiðstöðinni,
Laufásvegi 40.
útflutningi
Mikil aukning í
á iðnaðarvörum
— á liðnu ári
Ctflutningur iðnaðarvara
nam á árinu 1977 22,3 miljörðum
króna og hafði þá aukist úr 17,6
miljörðum árið áður eða um
27%.
1 yfirliti frá (Jtflutningsmið-
stöð iðnaðarins kemur fram, að
af þessum útflutningi var ál og
álmelmi rúmlega 74 þúsund
tonn á 14,9 miljarða, en hafði
árið áður verið 79 þús. tonn á
12,4 miljarða. Verðmæta-
aukning nam þvi 20%.
Útflutningur annarra
iðnaðarvara nam samtals 7,4
miljörðum kr., en hafði verið
5,2 miljarðar árið 1976.
Útflutningsaukning hinna
ýmsu iðnaðarvara landsmanna,
annarra en áls, hefur þvi numið
42% og er þessi útflutningur nú
orðinn hálfdrættingur á við álið.
Langmesta aukningin, bæði i
magni og verðmæti, milli
áranna 1976 og 1977 var I lag-
metisiðnaði. Útflutningur lag-
metis tvöfaldaðist að verðmæti,
úr 599 milj. i 1206 milj. og jókst
um 76% að magni, eða úr 963
tonnum i 1702 tonn.
Ullariðnaðurinn er lang-
stærsta útfluntingsgreinin og
jókst útflutningur ullarvara, en
verðmætið jókst úr 2050 milj. i
3441 miljónir. Útflutningur
skinnavara dróst litillega
saman milli ára og kisilgúrút-
flutningurdróst saman. Af kisil-
gúr voru flutt út tæplega 21 þús.
tonn á 831 milj. kr.
Samtals nemur útflutningur
ofantaldra vörutegunda um 6,7
miljörðum. 0,7 miljarðar
skiptast svo milli 10 vöruhópa.
Stærstu vöruhóparnir þar eru
málning og lökk 258,7 milj.,
pappaöskjur 121 milj. og veiðar-
færi 106 milj., en útflutningur
siðastnefndu vöruflokkanna
jókst verulega á sl. ári.
—eös
Landkynning
Flugieiðir h/f efndu til blaða-
mannafundar á föstudaginn. Til-
efnið var tviþætt. Heimkoma
Jóhanns Sigurðssonar sem starf-
að hefur við kynningu á tslandi
svo áratugum skiptirog hins veg-
ar aö sýna nýja kynningarmynd
um tsland.
Jóhann Sigurðsson hefur dval-
ist erlendis i um 30 ár og þá einna
helst i Bretlandi og hefur hann
haft þann starfa aö kynna Island.
Jóhann rakti m.a. á fundinum
þau ár sem hann hefur starfað við i
landkynninguna og sagði að þeg-
ar hann byrjaði hefði hann aðeins
haft eina unga stúlku sér til að-
stoðar. Þaö varárið 1953. Þá átti
Flugfélag íslands aðeins eina
stóra flugvél af Dc-3 gerð. Sem
dæmi um öra þróun og vaxandi
í Bretlandi
kynningu Islands i Bretlandi
nefndi Jóhann að nú sem stæði
störfuðu 16 manns i London og 13
manns I Glasgow, við landkynn-
ingu.
Þá var kynnt ný myndasyrpa
um Islandsem bretinn Martin F.
Chillmaid hefur gert. Það er"
greinilegt að til þeirrar myndar
hefur veriö varið miklum tima og
miklu fé. Arangurinn hefur
greinilega ekki látiö á sér standa
þvi myndin er i alla staði góð
landkynning. Hún samanstend-
ur af 60 svokölluðum Slides —
myndum af hinum ýmsu fegurstu
stöðum landsins.
Martin þessi Gillmaid starfar
her á Islandi viö myndagerð og
rekur hér fyrirtækið Skyggnu h/f.
SK
erlendar
bækur
The fire & the sun.
Why Plato banished the artists.
Based upon the aromanes
Lecture 1976. Iris Murdoch.
Clarendon Press — Oxford 1977.
SkoðanirPlatós álistum eru vel
kunnar. Hann taldi vafasamt að
leyfa frumkvæði eða starfsemi
skálda i fyrirmyndarrikinu eins
og hann lýsir þvi i Lýðveldinu og
ástæðurnar voru margar. Fyrst
og fremst taldi hann að mikið af
svonefndri list, væri lélegt, ætlað
fólkiá lágu menningarstigi. Hann
var m jög andsnúinn leikhúsum og
taldi að þar væri vúlgarisminn
settur i hásætið. Hann amaðist
einnig við skárri list og kaus að
listræn starfsemi væri alveg á
snærum rikisvaldsins. Stefna
hans var sú að hinir bestu ættu að
meta hvað væri fólki hollt.
Iris Murdock rekur kenningar
Platós um listir i þessari
skemmtilega skrifuðu bók og
hversvegna hann hafði þessar
skoðanir. Kenningar Platós um
listir eru ekki ósvipaðar kenning-
um Freuds, að þvi leyti m.a. að'
listin sé fyrst og fremst til
ánægju, til skemmtunar og stund-
um til sýndar-menningarauka og
hafi þvi litla þýðingu fyrir
ástundan dygðarinnar og þess- i
vegna sé listin þegar allt kemur[
til alls, mannskemmandi, falsað-
ar hugmyndir um raunveruleik-
ann. Listin var á timaskeiði
Platós fyrst og fremst eftirmynd,
og Plató segir að þvi sé hún
skuggi, sem seðji aðeins hálflif.
Listin sem lif i sjálfu sér, Ijóð og
mynd sem sjálfstæð og lifandi
objekt, verandi og hvilandi. i
sjálfu sér er fyrirbrigði sem kem-
ur löngu siðar fram, þótt það örli
á hugmynd um þetta hjá Aristote-
les.
Frásögn Platós af hellinum I
Lýðveldinu 7. bók er lykilkafli um
skoðanir og heimspeki Platós.
Guðshugmynd hans varð til þess
að mennskir tilburðir urðu honum
fátkend villa, þýðingarlaust streð
og það eins sem skipti máli var
það sem stefndi að mótun rikis
dyggðanna og harin taldi að list
timabilsins hefti þá framtiðar-
mótun, þvi bæri að útiloka hana i
framtiðarrikinu i þvi formi sem
hún var um hans daga og átti
hann þá vib skáldin.
Músikin var ekki útlæg úr riki
Platós, né heldur byggingarlistin,
en það virðist mega skilja á
undirtitli bókarinnar, aö svo hafi
verið. Aftur á móti tortryggði
Plató mjög málara og taldi mikla
nauðsyn á aö þeim yröi ekki leyft
að starfa I Lýðveldinu.
Kver Murdocks er skrifuð af
skilningi og þekkingu og viða
snertir hún málefni sem nú eru
timabær og rædd eru á torgum.
Life and Tradition in Ruat
Ireland
by Timothy P.O’Neiil. With a
map 22 drawings m text and 142
photographs. J.M. Dent & Sone
1977. .
Monokúltur nútimans þrengir æ
meira að menningarlegri arfleifð
og heföum um allan heim. Lengi
vel héldust siöir og hátterni eins
og verið hafði um aldir á Irlandi,
en nú er þetta að breytast jafnvel
i einangruðustu byggðarlögum
eyjunnar grænu. Höfundurinn
hefur starfað við þjóðfræðadeild
irska Þjóðminjasafnsins og er
manna hæfastur til þess aö rita
um horfna siði og lifsmáta á ætt-
landi sinu. I bók sinni lýsir hann
lifsháttum og starfi alþýðunnar á
trlandi til sjávar og sveita, eink-
um i þeim byggðarlögum þar sem
enn eymir eftir af fyrri háttum
trú og lifsvenjum og atvinnuhátt-
um. Myndirnar eru mjög ti!
skilningsauka og sumar þeirra
minna óneitanlega á islenska
tisku og verkfæri fyrri tima
Fjöldi mynda er af amboðum og
tækjum, sem notuð voru ti!
skamms tima en eru nú safngrip
ir, höfundurinn lýsir starfsað
ferðum með þessum tækjum
þeirri tækni sem beitt var vif
gerð þeirra og notkun, lifnaðar
háttum, húsakynnum og dagleg
um störfum manna og kvenna
Kaflar bókarinnar eru átta
Byggingar, húsgögn, starfshætt
ir, klæðnaður, fæða, flutningar of
samgöngur og leikir.
Höfundi tekst að lýsa lifi fólks
ins á lifandi og skemmtilegar
hátt, en vitaskuld aðeins að mjöf
takmörkuðu leyti, eins og hanr
segir i formála, að þetta sé aðein:
inngangur að meira verki.
Ítalía:
Kommúnistar
í stórn og þó
ekki í stjórn
12/3 — Giulio Andreotti mun
kynna þinginu nýja rikisstjórm
ttaliu ásamt með stefnuskrá
j og stjórnarsáttmála á morgun
og er búist við að þingið veiti
stjórninni traust siðar i vik-
unni. Þetta er fertugasta
rikisstjórnin, sem ttaiir fá yfir
sig frá þvi að fasistum
Mussolinis var steypt af stóli.
Ekki er þessari stjórn almennt
spáð löngum lifdögum fremur
en hinum.
I stjórninni eru eingöngu
ráðherrar úr flokki kristilegra
demókrata, en auk þeirra eru
fjórir flokkar, kommúnistar,
sósialistar, sósialdemókratar
og lýðveldissinnar aðilar að
stjórnarsáttmálanum. Er þvi
litið á svo að þessir flokkar
eigi aðild að stjórninni, og
samkvæmt þvi er þetta i
fyrsta sinn sem kommúnistar,
annar stærsti flokkur landsins
sem fékk yfir þriðjung
greiddra atkvæða I s.l. þing-
kosningum, eiga aðild að
stjórn siðan 1947, er
kommúnistum var vikið úr
samsteypustjórn undir forustu
kristilegra demókrata.
L’Unita, dagblað á vegum
kommúnista, gagnrýndi i dag
kristilega fyrir það aö i nýju
stjórninni eru aöeins tveir nýir
ráðherrar. Sagði blaðið að full
þörf hefði verið á nýjum
ráðherrum með nýjar hug-
myndir i staö hinna, sem fyrir
löngu hefðu sýnt að engra
breytinga til batnaðar væri frá
þeim að vænta.
Með vi&tali við aðstandendur Leikbrúðulands, sem birtist I blaðinu á
laugardaginn, féil niður þessi mynd, þar sem Leikbrúðulandsfélagar
voru nafngreindir. A myndinni eru frá vinstri: Hallveig Thorlacius,
Erna Guðmarsdóttir, Helga Steffensen, Hólmfrfður Pálsdóttir og Þor-
björg Höskuldsdóttir.