Þjóðviljinn - 15.03.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 15. mars 1978
Islandsmótið í handknattleik:
Fram og Haukar
í Firðinum i kvöld
Haukar verða að vinna leikinn ætli þeir
sér að vera með á toppnum.
Pálmi Pálmason leikur
ekki meö Fram i kvöld, en
hins vegar mun hann leika
með liðinu í næstu leikjum.
Vikingur
Haukar
Valur
FH
IR
Fram
KR
Armann
tslandsmótið i handknattleik
heldur áfram i kvöld og leika þá
Fram og Haukar i Hafnarfirði.
Leikur þessi er afar mikilvægur
fyrir bæði liðin.
Haukarnir eru nú við topp
deildarinnar og með sigri i kvöld
blanda þeir sér enn hraustlegar i
þá baráttu. Fram er hins vegar á
botninum, og er þessi leikur afar
mikilvægur fyrir liðið ætli það sér
endanlega að forðast fall i 2.
deild. En svona i lokin skulum við
lita á stöðuna i 1. deild eins og hún
er i dag:
w
staðan
Námskeið
Knattspyrnusamband tslands
gengst á næstunni fyrir
námskeiði fyrir stjórnendur
knattspyrnudeilda.
Námskeiðið fer fram i
iþróttahúsi Kennaraháskóla
tslands og hefst laugardaginn
18. mars. kl. 10.00 f.h.
Allir þeirsem hug hafa á þátt-
töku á námskeiðinu eru beðnir
að snúa sér að skrifstofu KSI
sem er til húsa i tþróttamið-
stöðinni.
SK.
Aðalfundur
Breiðabliks
Aðalfundur Ungmennafélags-
ins Breiðabliks verður haldinn i
Félagsheimili Kópavogs fimmtu-
daginn 16. mars kl. 20.00. Venju-
leg aðalfundarstörf. Allir félags-
menn velkomnir.
Reykjavíkurmót barna á skíðum:
Góður árangur
hjá þeim yngri
Reykjavikurmótið i barnaflokk-
um á skiðum fór fram um helg-
Sveinn Rúnarsson var sigursæll
i Reykjavíkurmótinu.
ina og var keppt i Skálafelli.
Veður var gott þegar keppni fór
fram og luku allflestir keppni.
Úrslit urðu sem hér segir:
SVIG:
Stúlkur 10 ára og yngri:
sek.
1. Bryndis Ýr Viggósd. KR 89,49
2. Sigrún Kolsöe KR 103,30
Drengir 10 ára og yngri:
1. Sveinn Rúnarsson KR 9i,08
2. Kristján Valdimarss. IR 91,47
Stúlkur 11—12ára:
1. Þórdis Jónsdóttir KR 88,03
2. Tinna Traustadóttir A 90,43
Drengir 11—12 ára:
1. Asmundur Þórðarson
KR 88,91
2. Haukur Þorsteinss. A 97,51
STÓRSVIG.
Stúlkur 10 ára og yngri:
sek:
1. Bryndis Ýr Viggósd. KR 99,15
2. Sigrún Kolsöe KR 110,19
Drengir 10 ára og yngri:
1. Kristján Valdimarss. IR 94,62
2. Sveinn Rúnarsson KR 96,19
Stúlkur 11—12ára:
1. Þórdis Jónsdóttir KR 90,11
2. Tinna Traustadóttir Á 91,87
Drengir 11—12 ára:
1. Asmundur Þórðarson
KR 92,12
2. Haukur Þorsteinss. A 93,01
Sigurvegarar i alpatvikeppni
urðu þessir:
Stúikur 10 ára og yngri:
Bryndis Ýr Viggósdóttir KR
Drengir 10 ára og yngri:
Kristján Valdimarsson IR
Stúlkur 11—12ára:
Þórdis Jónsdóttir KR
Drengir 11—12ára:
Asmundur Þórðarson KR
SK.
Umsjón: Stefán Kristjánsson
Deildarkeppnin í badminton:
TBR hefur
forustu í
1. deildinni
Deildakeppni B.S.i er nú
hálfnuð, en fyrstu leikirnir
fóru fram þann 7. jan.
Að þessu sinni er aðeins
leikin ein umferð. Úrslit
eru sem hér segir:
KRb - TBRa 1-12
TBRc - TBRb 3-10
TBRa - TBRb 10-3
KRb - KRa 3-10
TBRa - TBRc 13-0
KRb - TBEb 3-10
KRa - TBRa 4-9
TBRc - IA 8-5
TBR a hefur tekið mikla
forystu, hefur unnið alla sina leiki
og er með 8 stig. Næst kemur
TBR b með 4, siðan KR a og TBR
c með 2 stig, en KR b og IA ekk-
ert.
Úrslit úr annarri deild eru þau
að Valur er með forystu og hefur
unnið alla sina leiki og hefur 6
stig, næst kemur TBR d með 4,
siðan Vikingur með 2, en BH og
Gerpla hafa ekki hlotið stig.
Liðakeppninni lýkur 16. april.
Víkingur-Valur 4-9
BH-TBR d 1-12
Vikingur-Gerpla 9-4
Valur-TBR d 10-3
TBR d-Gerpla 11-2
Valur-BH 10-3
íslandsmótið 1. apríl
Islandsmeistaramót 1978
verður haldið 1. og 2. april 1978, i
Iþróttahöllinni i Laugardal. Hefst
mótið kl. 10 f.h. þann 1. april og
úrslitaleikir hefjast kl. 2. e.h. 2.
april. Keppt verður i meistara-
fiokki, A-flokki og öðlingaflokki i
öllum greinum karla og kvenna.
Þátttökugjöld eru:
1.000.- pr mann i tviliðaleik og
tvenndarleik.
1.500.- pr. mann i einliðaleik.
Þátttökutilkynningar skulu
hafa borist B.S.I. fyrir 15. mars
n.k. og skal senda hjálagt
greiðslu fyrir þátttökugjöld.
Rétt til þátttöku hafa þeir sem
verða 16 ára á árinu.
Keppendur geta aðeins keppt i
einum flokki.
Þessi myndasyrpa birtist i a-þýsku Iþróttablaði fyrir stuttu og er úr leik
FC Magdeburg og PSV Eindhoven, en leiknum lauk með 1:0 sigri
Magdeburg. Leikurinn fór fram i UEFA-keppninni og var lcikið í
Þýskalandi. A myndunum sést Joachim Streich skora eina mark leiks-
ins.