Þjóðviljinn - 15.03.1978, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 15- mars 1978
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
Lausar stöður
Staða hjúkrunardeildarstjóra við
heimahjúkrun. Gert er ráð fyrir, að vænt-
anlegur deildarstjóri þurfi að kynna sér
málefni heimahjúkrunar á Norðurlönd-
um.
Staða deildarljósmóður við mæðradeild —
hlutastarf.
Staða meinatæknis og staða aðstoðar-
manns á rannsóknastofu.
Staða ritara við heilbrigðiseftirlit Reykja-
vikur — hálft starf. Umsóknum sé skilað
til framkvæmdanefndar Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavikur fyrir 29. mars n.k.
HEILSUVERNDARSTÖÐ
REYKJAVÍKUR
28. leikvika — leikir 11. mars 1978
Vinningsröð: 2 11 —X 12 —110 —111
1. vinningur: 11 réttir — kr. 57.500,- I
1199 3349 30085(1/10) 30132 33251 33538
1352 9106 30089 32180 33470 33926
2. vinningur: 10 réttir - - kr. 2.000.-
189 + 5862 30129 30890 + 32845 + 34129 40377(2/10)
303 6044 30131(2/10) 30918 + 33023 34139 40574(2/10)
466 6492 30192 30933 33115 + 34176(2/10)
689 6569 30187 31135 33116 + 34224 40641
742 6749 30276 31139 33190 + 34225 40702
755 7288 30361 31508 + 33243 34230 40782(2/10)
1046 8505 30364 31782 33303 34263 40806
1373 8509 30366 31805 + 33401 34351 40810
1424 8551 30499 31807 + 33462 34383 + 40831
1585 8734 30547 31917 + 33488 34495 40856
1699 + 9788 30557 + 32038(2/10) 33535 34573 40991(4/10)
2361 9790 3Ö569 + 32244 + 33547 + 34583 41003
2526 10421 30575 + 32466 33551 + 34741 41005
2647 30018 30577 + 32703 + 33650 34903 41116
3446 30088 30578 + 32746 40143(2/10)
3758 30111 30579 + 32801 33865(2/10) 41168(2/10)
4371 30112 30669 32814(2/10) 34036 40145(4/10) 41205(2/10)
4377 30114 30713 34084 40274(2/10) 41264(2/10)
4469 30120 30862 30830 34092 40284 + nafniaus
Kærufrestur er til 3. aprfl kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir
geta lækkað, ef kærur verða teknar til breina.
Handhafar nafnlausra seðla veröa að framvisa stofni eða senda stofninn og
fullar uppiýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag
vinninga.
GETRAUNIR — í þróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK
Tökum að okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
T r ésmí ða verks t æðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613
ugiysmg
í Þjóðvlljanum
ber ávöxt
ÍÁlyktanir bændafundar
! Búnaðarsamb. Austurlands
Landpóstur hefur veriö beð-
inn um að birta eftirfarandi til-
■ lögur, sem samþykktar voru á
1 almennum bændafundi
Búnaðarsambands Austur-
| lands. Fundurinn var haldinn að
■ Staðarborg f Breiðdal 12. des.
| s.l.
1. Fundurinn telur algjörlega
■ óviðunandi að tekjur bænda séu
• aðeins 2/3 af tekjum viðmið-
I unarstéttanna og krefst þess
I að farið verði að lögum
■ um að kaup bænda sé i
| sem nánustu samræmi við
■ kaup verkamanna, iðnað-
P armanna og sjómanna. Fund-
urinn telur brýna nauðsyn
bera til, að kjaramál bænda-
stéttarinnar verði lögð fyrir Al-
þingi strax að loknu jólaleyfi
þingmanna og látið reyna á það
þar hvernig hinir einstöku þing-
menn vilja snúast við þessum
vanda.
2. Fundurinn vitir harðlega
úrskurð yfirnefndar sem birtur
var nú nýlega. Telur fundurinn
það skýlaust brot á lögum um
sömu laun karla og kvenna, aö
yfirnefnd ætlar bændakonum
mun lægri laun en bændum fyrir
sömu störf. Þá telur fundurinn
að fjármagns- og vaxtakostnað-
ur visitölubúsins sé stórlega
vantalinn i sama úrskuröi.
3. Fundurinn krefst þess að
söluskattur af kjöti og kjötvör-
um sé tafarlaust felldur niður,
enda virðist það likleg leiö til að
auka kjötsöluna i landinu veru-
lega.
4. Fundurinn fagnar þvi að
Framleiðsla
og sala á
kindakjöti
Heildarframleiösla á kinda-
kjöti á s.l. ári var 13.694 lestir.
Þar af var dilkakjöt 12.450 lest-
ir. Þetta var 100 lestum meira af
dilkakjöti en árið áður en 122
lestum minna af kjöti af full-
orðnu. Sala innanlands á s.l. ári
var 7.492 lestir af dilkakjöti og
1.531 lest af kjöti af fullorönu.
Það var tæpu 1% minna en áriö
áður.
Flutt var út 5.191 lest af
kindakjöti. Þar af voru 4.726
lestir af dilkakjöti. Birgðir af
dilkakjöti 1. jan. sl. voru 9.076
lestir en. 1.142 lestir af kjöti af
fullorönu.
Á s,l. ári var slátrað 873.225
dilkum og 70.679 fullorönu fé.
Meðalfallþungi dilka reyndist
vera 14.26 kg. en það var 120 gr.
minna en árið áður.
Gert er ráö fyrir að flytja út
2.600 lestir af dilkakjöti til við-
bótar á þessu ári af framleiöslu
siðastliðins árs.
(Heimild: Uppl.þjón.landb.). —
mhg
Stéttarsambandiðhefur ákveðið
að verja nokkurri fjárhæð til
markaðsleitar fyrir land-
búnaðarafurðir erlendis, i sam-
vinnu við SIS og rikisvaldiö en
telur þá upphæð of lága og að
rikinu beri skylda til að leggja
fram eigi lægri upphæö i sama
skyni, þar sem það sé stórt
hagsmunamál fyrir alla þjóð-
ina, aö góður markaður finnist
fyrir þessa sérstæðu og ágætu
vöru.
5. Fundurinn fagnar þvi aö
loks skuli, eftir langa baráttu,
hafa náðst samkomulag um það
á fundum Stéttarsambandsins
að leggja niður sex-manna
nefndina og samið verði beint
við rikisstjórn um búvöruverð-
iö. Jafnframt þakkar fundurinn
fulltrúum bænda i nefndinni fyr-
ir mikið og gott starf i þágu
bænda, þótt þeir hafi ekki alltaf
haft erindi sem erfiði.
6. Fundurinn telur að endur-
tekin vilyrði landbúnaðarráð-
herra um aukningu rekstrar- og
afurðalána til bænda, svo að
sláturleyfishafar geti greitt 90%
af verði sauðfjárafurða við
móttöku, veröi að vera meira en
orðin tóm. Telur fundurinn að
rikisstjórnin verði að knýja
Seðlabankann til þeirrar fyrir-
greiðslu.
7. Fundurinn telur sjáifsagt
jafnréttismál bænda að þeir
greiði jafn hátt verð fyrir fóður-
vörur hvar sem er á landinu, á
sama hátt og nú er um áburð-
inn.
8. Fundurinn skorar á rikis-
stjórn og Alþingi að búa þannig
að graskögglaverksmiöjum
landsins aö þær séu sam-
keppnisfærar um fóðurfram-
leiöslu og bendir I því skyni á að
sanngjarnt virðist að orkuverð
til þeirra sé ekki hærra en til
stóriðju og fjármagnskostnaður
þeirra veröi geröur viðráöan-
legur.
9. Fundurinn telur brýna
nauösyn á að einhverskonar
jöfnun verði komið á i sambandi
við byggingar- og fjármagns-
kostnað siáturhúsa og mjóikur-
búa, sem nú eru í byggingu eða
byggð verða á næstu árum.
Bendir fundurinn á að Byggöa-
sjóður ætti að veita þeim fyrir-
tækjum sérstök rekstrarlán
með góðum kjörum, svo að
bændur á þeim svæðum þurfi
ekki aö búa við lægra afurða-
verð en hinir, sem fengu að
byggja vinnslustöövar sinar á
ódyrari tima og á meðan stofn-
lán voru með miklu betri kjör-
um en nú.
10. Fundurinn telur að eitt
brýnasta hagsmunamál margra
bænda sé, að lausaskuldum
þeirra verði breytt i föst lán nú i
vetur. Sérstaklega vill fundur-
inn undirstrika að þeir, sem
hafa byrjað búskap eftir 1970,
fái sem fyrst úrlausn i þessum
efnum, enda er ekki annað sýni-
legt en þeir flosni upp af jörðum
sinum á næsta vori, vegna hinna
óheyrilega háu vaxta, sem eru á
öllum lausaskuldum. Væri slikt
óbætanleg blóðtaka fyrir ýmis
byggðarlög, þar sem þarna er
um yngsta hluta bændastéttar-
innar að ræða.
11. Fundurinn telur það óvið-
unandi rangiæti að bændakonur
fái ekki fæðingarorlof eins og nú
tiðkast hjá öðrum stéttum og
beinir þvi til stjórnar Stéttar-
sambandsins aö vinna aö þvi að
svo verði sem allra fyrst. Enn-
fremur viljum viö vekja athygli
á, að húsfreyjur i sveitum sæta
öðrum og lakari kjörum i
skattamálum en aðrar kynsyst-
ur þeirra.
12. Fundurinn mótmælir
harðlega frumvarpi Alþýöu-
flokksþingmanna um eignaráö
rikisins á öllu landinu og telur
slika eignaupptöku hreint ger-
ræði við bændur.
13. Fundurinn skorar á land-
búnaðarráðherra að beita sér
fyrir að afnema innflutnings-
gjöld, tolla og söluskatt af vél-
um og varahiutum til land-
búnaðarins.
14. Fundurinn skorar á stjórn
Stéttarsambands bænda að
beita sér fyrir þvi, að tekin
verði upp veruleg niðurgreiðsla
á tilbúnum áburöi, þvi fundur-
inn álítur aö með lækkuðu
áburðarverði mundi draga
verulega úr kjarnfóöurnotkun
og framleiðslukostnaöur jafn-
framt lækka.
15. Fundurinn gerir sér ljósan
þann vanda, sem skapast hefur
nú I framleiðslu- og sölumálum
landbúnaðarins, en telur algert
neyðarúrræði að bændur þurfi
að taka á sig kjaraskerðingu i
formi kjarnfóðurgjalds eða á
annan hátt, þar sem viðurkennt
er að þeir eru tekjulægsta stétt
þjóðfélagsins.
16. Fundurinn skorar á Út-
varpsráð að taka að nýju upp
þáttinn: „Spjallaðvið bændur”.
Þá vitir fundurinn harðlega
þá hlutdrægni, sem gætir i
fréttaflutningi af málefnum
bændastéttarinnar I hljóðvarpi
og sjónvarpi, eins og nýliðin
dæmi um verðbreytingar á
landbúnaðarafurðum sanna.
Allar þessar ályktanir voru
samþykktar samhljóða.
Stjórnarfariö
Björn Sigvaldason kveður svo um stjórnarfarið:
Illa þokkuð auðvaldsstjórn
Ekki er hún til sóma.
Þeir, sem áttu að færa fórn
fella á hana dóma.
Björn Sigvaidason.
Umsjón: Magnús H. Gislason