Þjóðviljinn - 30.03.1978, Page 1
Fimmtudagur 30. mars 1978—43. árg. 63. tbl.
Nettóskuld ríkissjóðs við Seðlabankann
Ætla þeir að rœða
við ASÍ í alvöru?
t gær hélt 10 manna nefnd
ASt fund, þar sem staban 1
samningamálunum var rædd,
en sem kunnugt er, eru allir
samningar aöildarfélaga ASt
lausir frá miOnætti á morgun.
Undanfariö hefur 10 manna
nefndin átt nokkra fundi meö
fulltrúum vinnukaupenda, en
þeir hafa allir veriö til einskis,
enda virðist svo sem vinnu-
kaupendur séu ekki til viötals
um eitt eöa neitt. Næsta föstu-
dag kl. 10.00 á enn aö halda
fund, og var samþykkt á fundi
10 mannanefndarinnar i gær
aö láta þá reyna á þaö til fulls
hvort vinnukaupendur vilja
ræða málin eða ekki.
Þess má og geta, aö i dag
veröur annar fundur hjá 10
mannanenfndinni og siðan
verður haldinn miöstjórnar-
fundur ASl á eftir. —S.dór.
Er nú 25 miljarðar kr.
Samkvæmt heimild-
um sem Þjóðviljinn hef-
ur aflað sér nemur
nettóskuld rikissjóðs við
Seðlabankann nú um 25
miljörðum króna, eða
16—17% af fjárlögum
þessa árs. Hér er um að
ræða yfirdráttarskuldir
rikissjóðs á hlaupa-
reikningi, verðbréfa-
skuldir og gengisbundin
og óbundin lán, sem sum
hver hafa verið endur-
lánuð til rikisstofnana
og sveitarfélaga.
t janúar nam nettóskuldin 17.2
miljöröum,en hefur nú veriö upp-
skrifuö vegna gengisbreytingar
um 2,5 miljarOa og ný lán á fyrstu
tveimur mánuöum ársins nema
4.5 til 5 miljöröum króna. Þar
meö eru taldir svokallaöir rlkis-
sjóösvíxlar sem rlkissjóöur slær
hjá viöskiptabönkum og spari-
sjóöum I upphafi árs meöan þeir
hafa útlánagetu og endurgreiöir I
árslok, en teljast formlcga skuld
viö Seölabankann.
A-hluti rikisreikningsins veröur
lagöur fram i næsta mánuöi og
þar leggur fjármálaráöuneytið
fram yfirlit um hallastöðu rikis-
sjóðs gagnvart Seölabankanum. 1
dag hefur ráöuneytið ekki þessar
tölur handbærar. Þess er hins-
vegar aö vænta aö i næsta hefti
Hagtalna mánaðarins og á árs-
fundi Seðlabankans verði skulda-
mál ríkissjóös höfuðviðfangs-
efnið.
Aö undanförnu hafa veriö
haldnir tveir fundir með full-
trúum Seölabanka og fjármála-
ráðuneytisins um stööu rikissjóös
gagnvart bankanum. Höskuldur
Jónsson, ráðuneytisstjóri, sagöi i
gær aö þessar viöræöur væru nú á
lokastigi, og heföu þær snúist um
skuldir liöins árs, notkun rikis-
sjóös á yfirdráttarheimildum,
vaxtakjör á innheimtureikning-
um ríkisstofnana og á lánum til
rikissjóðs og um fleiri atriði.
Höskuldur benti á,aö ekki væri
nóg að afgreiöa fjárlög hallalaus,
þvi að meö þvi væri ekki séö fyrir
rekstrarvanda rikissjóös. Yfir-
dráttarskuldin viö Seölabankann
heföi veriö 6—7 miljaröar á sl. ári,
og væri miðaö viö aö það væri
eðlilegt rekstrarfé „fyrirtækis” á
borö við rikissjóö, mætti segja aö
reikna þyrfti um 5% af fjárlaga-
upphæöinnii veltufé til rikissjóös,
ef leysa ætti rekstrarvanda hans.
Við þetta má bæta aö svo viröist
sem nokkur ágreiningur sé uppi
um hin ýmsu vaxtakjör ríkissjóðs
hjá Seölabankanum, svo og um
„uppskrifun” skuldarinnar viö
bankann.
Málsmetandi menn tala um
„fen” i sambandi við viöskipti
Seðlabankans og rikissjóðs, og aö
erfitt sé uppúr aö komast.
—ekh.
Fagurt i Þorsmorkinni
Feröafélag tslands fór i fimm
daga ferö um páskana. Fariö
var á skirdag og komið heim að
kvöldi annars dags páska.
Þátttakendur voru 107 á öllum
aldri. Fariö var i Þórsmörk, en
þar er veöursæld mikil eins og
menn vita. Enda þótt veöur væri
ekki sérstaklega gott annars-
staðar á landinu var t.d. 4 stiga
hiti, logn og sólskin i Þórsmörk
á sunnudag. Fariö var I göngu-
feröir á degi hverjum, og er
þessi mynd tekin á laugardag
þegar feröalangarnir fóru út i
Þórsmerkurrana. Mynd j.e.
Hitaveitan aftur úr sambandi í Siglufírði:
RISASNJÓFLÓÐ
Féll í gœr á hitaveituhúsið i Skútudal
1 annaö sinn á skömmum tima
féll snjóflóð á dæluhús hitaveit-
unnar á Siglufirði i gær og er
þetta snjóflóö mun meira en þaö
sem féll á dögunum og skemmdi
hitaveituna. Að sögn Gunnars
Rafns Sigurbjörnssonar skóla-
stjóra á Siglufirði var fyrra snjó-
flóðið rétt smá spýja á móti þvi
sem féll I gærdag.
Það var á milli kl. 13.00 og 14.00
aö snjóflóöiö féll I gær og um leið
fór hitaveitan úr sambandi og
voru menn i óöaönn siödegis I gær
aö aftengja hús sin hitaveitunni
og þeir sam hafa oliukyndingu aö
koma henni á, en þvi miður eru
margir sem hafa stólað eingöngu
á hitaveituna og hafa þvi ekki
oliukyndingartæki og þeir veröa
aö hýrast i einu herbergi I húsum
slnum meö rafmagnsofn. Og þaö
er lán I óláni að eftir litiö rafmagn
og miklár truflanir var komið nóg
rafmagn á i Siglufiröi i gær.
Gunnar Rafn sagöi aö búast
mætti við aö þaö tæki langan tima
aö gera viö hitaveituna aftur.
Bæöi er svo margfalt meira snjó-
lag ofan á dæluhúsinu og enn veit
raunar enginn hve illa þaö er far-
iö, og svo tók snjóflóöið lokiö ofan
af litlum miölunargeymi og fyllti
hann af snjó.
Ofan á þetta bætist aö svo mik-
ill snjór er á Siglufiröi aö elstu
menn muna vart annað eins, auk
þess sem tiö hefur veriö meö
eindæmum rysjótt. Ekkert hefur
veriö hægt að fljúga til Siglufjarð-
ar siöan á skirdag, og aö sögn
flugvallarstjórans á Siglufirði er
þaö ekki minna en 10 tima vinna
aö ryöja veginn út á flugvöll og á
vellinum er griöarlega mikill
snjór. Snjóruöningstækiö, sem
heldur veginum til Siglufjaröar
opnum, er bilað I Skagafiröi,
þannig aö hvorki verður komist
til Siglufjaröar á lofti eöa á landi
um þessar mundir. 1 gær var 2ja
stiga frost á Siglufiröi, en ekki
mjög hvasst, en veðurspá var
slæm.
Einn ljós punktur er varöandi
þessa bilun hitaveitunnar, en það
er aö mjög margir hafa enn ekki
tekiö oliukyndingartæki sin úr
notkun siðan á dögunum þegar
fyrra snjóflóðiö féll. Auk þess
fengu menn þá vissa æfingu viö
aö bregðast rétt viö atburöi sem
þessum, þannig aö búast má við
að fljótar og betur gangi nú en
um daginn aö koma hitamálum
húsa i lag og taka vatn af þeim
húsum, sem ekki hafa oliukynd-
ingartæki til aö forðast frost-
skemmdir. —S.dór
Fjármá 1
| RARIK
Ræd í rík Id is-
stjórn
í dag
Neyöarástand fyrir
dyrum á AustQöröum
Hin hrikalega fjármálastaöa
Rafmagnsveitna rikisins hefur
veriö mál málanna undanfarna
daga, sérstaklega eftir að stjórn
veitnanna sagöi af sér vegna
ástandsins. Aö sögn Kristjáns
Jónssonar forstjóra RARIK
verður þetta mál tekiö fyrir á
rlkisstjórnarfundi I dag, þvi eins
og hann sagöi: Máliö þolir enga
bið úr þessu.
Eins og áður hefur Veriö sagt
frá Ifréttum hefur Oliufélagiö h.f.
sem RARIK hefur keypt alla þá
oliu af; sem nota þarf viö keyrslu
á diselvélum, nú stöövaö
viðskiptin viö RARIK vegna
skulda RARIKs viö félagiö, en
hún er nú 54 miljónir króna.
Kristján Jónsson sagöi að þaö
lægi ljóst fyrir aö ef ekki yrði
leyst strax úr fjárhagsvanda
RARIKs,þá myndi keyrsla disel-
stööva innan tiöar stöövast og
taka yröi viöa upp rafmagns-
skömmtun. Austfirðirnir myndu
fara verst útúr þvi máli, þar sem
þaö landsvæöi er háöara diselraf-
stöðvum en önnur. —S.dór
BUR fœr
heimild til
skipaskipta
Borgarráð samþykkti i fyrra-
dag beiöni útgerðarráðs BÚR um
sölu Spánartogaranna þriggja,
Ingólfs Arnarsonar, Snorra
Sturlusonar og Bjarna Benedikts-
sonar og kaup á fjórum 500 lesta
togurum I staö þeirra. Spánar-
togarar BÚR eru um 1000 lestir að
stærö og þykja ekki hagkvæmir I
rekstri. Sala togaranna og undir-
búningur að kaupum á skipum I
þeirra staö er á byrjunarstigi.
Munið samkomu herstö ðvaandstæðinga í
Háskólabíói í kvöld kl. 21. — Sjá baksíðu